Tíminn - 02.08.1981, Page 10
10
Sunnudagur 2. ágúst 1981
lokið. Jack Henry Abbolí
gerði dag nokkurn árás á
þjón á veitingahúsi og
stakk hann til bana — að
þvi er virtist að tilefnis-
lausu. Hafði morðingjaeðl-
ið komið upp á yfirborðið
þoldi hann ekki sviðsljósið
sem hann stóð allt í einu i
eftir að hafa eytt mestum
hluta ævi sinnar bak við lás
og slá? Það veit enginn
ennþá því Jack Henry Abb-
ott er á f lótta og náist hann
aftur verður engin misk-
unn hjá Magnúsi.
Upphaf þessa furöulega máls er
þaö þegar Norman Mailer, sá
umdeildi rithöfundur i í^andarikj-
unum, fékk áhuga á máli Gary
Gilmores, fanga i Utah 1 Banda-
rikjunum. Menn muna Væntan-
lega eftir honum fyrir þaö aö
hann haföi verið dæmdur til
dauða fyrir tvöfalt morð og ólikt
öörum föngum heimtaði hann að
dómnum yröi fullnægt. Vakti mál
hans gifurlega athygli á sinum
tima og stóð þref um þaö lengi áö-
ur en Gary Gilmore fékk óák sina
uppfyllta og var tekinn af lifi.
Norman Mailer fékk sem sagt á-
huga á máli þessu og hóf aö skrifa
um það bók — ekki sist um þátt
fjölmiöla eftir áð ákvörðun Gil-
mores um aö láta taka sig af iifi
varð kunn. tJr gögnum sinum
skrifaði Mailer bókina ,,The Exe-
cutioner’s Song” eöa „Söngur
böðulsins” og varö hún viðfræg og
þótti besta bók Mailers um langt
árabil.
Það var á meöan Mailer vann
að bók sinni að Jack Henry Abb-
ott kom til sögunnar.
14 ár fyrir morð
Jack Henry Abbott er nú 37 ára
gamall. Hann er horaöur maöur
með alvarlega andlitsdrætti og
djúpstæð hvöss augu. Hann byrj-
aði snemma á afbrotaferlinum og
þegar hann var tólf ára var hann
dæmdur i fangelsi I fyrsta sinn.
Næstu tuttugu og fimm árunum
eyddi hann næstum eingöngu bak
við rimla. Það voru aöeins fimm
og hálfur mánuður sem hann var
frir og frjáls. Eftir aö honum
hafði veriö sleppt I eitt skiptið
framdi hann bankarán en þaö
tókst ekki betur en svo aö hann
náðist fljótlega og var aftur
stungiö i steininn. Svo geröist það
árið 1966 að hann stakk annan
■ Fyrir stuttu — aðeins
örfáum vikum — var gefin
út í Bandaríkjunum bókin
„ In the Belly of the Beast"
eftir Jack Henry Abbott.
Bókin er safn bréfa sem
höfundurinn skrifaði hin-
um fræga rithöfundi Nor-
man Mailer meðan hann
sat í fangelsi— fyrir morð.
Mailer hreifst svo mjög af
ritsnilld og gáfum fangans
að hann beitti sér fyrir því
að bréfin væru gefin út i
bók og að Jack Henry Abb-
ott væri látinn laus til
reynslu. í nokkrar vikur
baðaði Jack Henry Abbott
sig í frægðarljómanum/
honum var boðið i virðuleg
samkvæmi og fínt fólk
hópaðist utan um hann.
Svo var þessu allt í einu
■ Jack
Henry Abbott
var dænidur i
fangelsi fyrir
m o r ð e n
framtiðin
virtist blasa
við honum eft-
ir að hann
hafði skrifað
um reynslu
sina i fangelsi.
Norman ÍVIail-
er (t.h.) tók
liann upp á
arma sina en
svo f ramdi
Abbott annað
morð...
fanga til bana þegar báöir sátu
inni. Þá kom hann enn á ný fyrir
dómstóla og var dæmdur i fjórtán
ára fangelsi. Meöan á réttarhald-
inu stóö fleygði Abbott vatns-
flösku að dómaranum og hélt þvi
fram að hann væri geðveikur.
Sálfræöingar komust að þeirri
niðurstööu að það væri hann ekki,
þvert á móti væri hann góðum
gáfum prýddur.
Hegðun Abbotts i fangelsinu
var ekki betri en svo að hann sat
inni allan þann tima sem hann
hafði verið dæmdur i og gott bet-
ur. Láta átti hann lausan i lok
ágústmánaðar á þessu ári en að-
eins til reynslu.
„Ég hafði aldrei heyrt
slíka rödd"
En það var sem sagt meðan
Abbott sat i fangelsinu sem hann
fór að skrifa Norman Mailer bréf,
i þeim tilgangi, aö þvi er hann
sagöi, að Mailer fengi rétta hug-
mynd af lifinu i fangelsi. Og Nor-
man Mailer varð undir eins heill-
aður af bréfunum.
„Bréf hans voru tilfinningarik,
beinskeytt, hreinskilin og frábær-
lega vel stiluö...” sagöi Mailer.
,,Ég vissi strax að þessi maður
var óvenjulegur. Abbott hafði
sina eigin rödd. Ég hafði aldrei
heyrt slika rödd áöur”.
Mailer svaraði bréfum Abbotts
og bréfaskriftirnar stóðu i mörg
ár.
Abbott fékk sifellt meiri áhuga
á skriftunum og frá þeim leiddist
hann út i heimspeki. Hann fór að
panta sér bækur sem venjulega
eru sjaldséðar I fangelsum, Heg-
el, Russell og Whitehead, Carnap
og Quine. Hrifnastur varö hann
samt af heimspeki Karls Marx.
Bréfin til Mailers lengdust og
skyndilega stóö Mailer uppi með
rúmlega lOOOsiöur af þéttskrifuð-
um örkum. Mailer sendi sýnis-
horn af bréfunum til bókmennta-
fræðings sem kom þeim áfram til
útgáfufyrirtækisins Random
House. A Random House hrifust
menn mjög af bréfunum og á-
kveðiö var að gefa út hluta þeirra
ásamt meö löngum formála eftir
Norman Mailer.
„Þú hefur rekið hnífinn i
brjóst hans"
Bókin var gefin út fyrir stuttu
sem áður segir og flestir voru
sammála um aö upp væri risinn
nýr megin snillingur á sviði
bandariskra bókmennta. Myndin
sem Jack Abbott dró upp af fang-
elsum i Bandarikjunum var engin
skemmtilestur, þvert á móti lýsir
hann aðbúnaði og sálarástandi
fanganna á sérlega grimmilegan
hátt en jafnframt svo magnaöan
aö fáir sem lesa þessi bréf eru
samir menn eftir. Heimspekileg-
ar vangaveltur eru inn á milli
miskunnarlausra lýsinga eins og
þessarar hér:
„Þið eruð einir i klefa hans. Þú
hefurdregiöfram hníf (átta til tiu
tommu blað, tvieggjaö). Þú held-
ur honum þétt upp við fótlegginn
til að hann sjái hann ekki. Óvinur-
inn brosir og blaðrar eitthvað út i
loftiö. Hann heldur að þú sért
bjáninn hans: hann treystir þér.
Þú sérð staðinn. Markið er milli
annars og þriðja hnapps á skyrt-
unni hans. Um leið og þú segir
eitthvað rólega og brosir færirðu
vinstri fót þinn til hliðar til að
stiga yfir að hægri hlið hans. Þú
skýtur hægri öxlinni að honum og
veröldin snýst við: þú hefur rekið
hnifinn upp að hjöltum i miðjan
brjóstkassa hans.”
„Þetta er eins og aö skera
heitt smjör"
Og siðar segir:
„Þú hefur rekið hnifinn i hann
nokkrum sinnum án þess að taka
einu sinni eftir þvi. Þú fylgir hon-
um eftir niður á gólf til að gera út
af við hann. Þetta er eins og aö
skera heitt smjör, ekki nokkur
andstaöa. Þeir hvisla alltaf þvi
sama: „Ekki....”
Eftir að bæöi Random House og
Norman Mailer höfðu mælt með
þvi var Jack Henry Abbott látinn
laus fyrir timann úr fangelsinu.
Hann fluttist til New York og fékk
sér herbergi á Hjálpræðishernum
en þar hugðist hann búa þar til 25.
ágúst en þá var hann opinberlega
laus úr steininum. Honum var
gert aö gefa sig fram sjö sinnum á
dag viö lögregluna en að ööru
leyti var hann algerlega frjáls
ferða sinna. Og þaö kom i ljóst að
það var margt sem beið hans.
Bókmenntamenn flykktust utan
um hann, hann fór i flott sam-
kvæmi og það var tekið viðtal viö
hann i hinum geysivinsælasta
sjónvarpsþætti „Good Morning
America”. Framtiðin virtist svo
sannarlega blasa við honum.
En svo kom heldur betur babb i
bátinn. Það var á laugardags-
morgni, 18. júli siðastliðinn, að
hann kom i veitingahús nokkurt i
fylgd tveggja fallegra og vel
menntaðra kvenna. Klukkan var
ekki nema hálf sex að morgni og
bak við diskinn i veitingahúsinu
Bini-Bon stóð maður að nafni Ri-
chard Adan.
Tilgangslaust morð
Richard Adan var aðeins 22ja
ára gamall og gerði sér vonir um
aö verða með timanum leikari og
leikritaskáld. A meðan hann beið
eftir þvi að slá i gegn vann hann
fyrir sér á þessu veitingahúsi sem
tengdafaðir hans, Howard Henry,
átti. Adan sóttist eftir þvi að
vinna á nóttunni vegna þess að
hann hafði áhuga á fólki og eftir
miðnætti litu oft ýmsir furðufugl-
ar inn fyrir dyr. Jack Henry Abb-
ott var sá furöulegasti þeirra.
Abbott þurfti að komast á toj-
lettið og spurði Adan hvar það
væri. Adan útskýrði fyrir honum
að það væri aðeins fyrir starfs-
fólkið en Abbott spurði hvort hann
mætti ekki skreppa á það samt.
Adan neitaði.þvi, sagði aö ef gest-
ir veitingahússins færu á tojlettið
myndi það verða fljótt að skitast
út. Hvort þá brast eitthvað i Abb-
ott er ekki vitað en hann bað Adan
rólega að koma með sér út, þar
myndu þeir ræöa málið frekar.
Ungi maðurinn féllst á það og
sem þeir gengu fyrir hornið blik-
aði hnifur á lofti. Adan var stung-
inn i brjóstið, næstum nákvæm-
lega eins og Abbott hafði lýst þvi i
bók sinni.
Adan skjögraði i átt aö veit-
ingahúsinu en Abbott hafði þá
þegar hlaupið inn og skipað vin-
konum sinum að koma með sér.
MORÐINGINN
SEM KOM INN
ÚR KULDANUM
og þoldi ekki hitann