Tíminn - 02.08.1981, Page 25
Sunnudagur 2. ágúst 1981
25
PHILIP
ROTH
THEGHOSTWRITER
(anns ir’itiH al and v> i-a-.lhi
1 wutW.d IKRTMrt 'S ('OMII.AIS’T wphirv.
Philip Roth:
The Ghost Writer
1981 Penguin
Philip Roth hefur löngum
verið umdeildur rithöfundur.
Árið 1969 kom út þekktasta
bók hans, „Portnoy’s Com-
plaint”, sem vakti gifurlega
athygli en varð alræmd i viss-
um kreðsum. 1 bökinni rekur
Roth kynferðisraunir Gyð-
ingadrengssem áihinu mesta
basli með að slita sig lausan
undan geysisterku, hefð-
bundnu og þrúgandi móður-
veldinu. Siðan þá hefur sér-
hver bók Roths vakið mikið
umtal og þar á meðal þessi
sem kom fyrst Ut árið 1979.
Hún segir frá rithöfundinum
E.I.Lonoff, rússneskum Gyð-
ingi sem býr i Ameriku. Nath-
anZuckermann kemur iheim-
sókn og það er ýmislegt i fari
Lonoffs sem kemur honum á
óvartog vekur hjá honum óró-
leika. Þetta er mjög svo læsi-
leg bók, skemmtileg og fyndin
á köflum, auk þess sem hún er
einhvern veginn öllu dýpri en
sumar fyrri bóka Roths. Hún
svfkur ekki aðdáendur hans og
er tilvalin fyrir ókunnuga.
Arnold Wesker:
.Journey into Joumal-
ism
Writers ánd Readers
Publishing Cooperat-
ive 1977
Arnold Wesker er einn
kunnasti leikritahöfundur
Bretlands enda þótthann hafi
falliö nokkuö i skuggann að ' : /.:; ' ■;.
undanfórnu fyrir ungu strák- .
unum. Meðal frægustu leikrita
hans eru þau þrjú sem mynda . ■
„Trilógiuna” — „Chicken ■
Soup With Barley”, „Roots”
og ,,1’m Talking About
Jerusalem”. Arið 1972 hugðist
Wesker skrifa leikrit um
blaðamennsku og fékk af þvi
tilefni leyfitil að koma sér fyr-
ir á skrifstofum Sunday Times
og fylgjast með þvi sem þar
fór fram. Honum ofbauð og
hann skrifaði þessa bók sem
ekki var gefin út fyrr en löngu
seinna. 1 bókinni kemur fram
geysihörð gagnrýni á þá
blaðamennsku sem stunduðer
á blöðum og öðrum fjölmiðl-
um og eftir að hafa lesið hana
þakkar maður sinum sæla fyr-
ir að Wesker skyldi þó velja
Sunday Times en ekki The Sun
eða álika blöð. Og þó — gagn-
rýnin verður enn markvissari
þvi það er eitt virtasta blað á
Vesturlöndum sem Wesker
hakkar þarna i sig.
HnghThomas
The Spanish
CHilWar
Peter Underwood (og
fleiri):
The Vampire’s Bed-
side Companion
Coronet Books /
Hodder and Stoughton
Kjörin bók fyrir áhuga-
menn um blóðsugur og gæsa-
húð. Peter Underwood, sem
kveðst vera forseti Drauga-
klúbbsins og meðlimur „The
Savage Club”, hefur hér safn-
að saman nokkrum góðum
sögum um blóðsugur og fórn-
arlömb þeirra, hann rekur
sögu vampirunnar og orsakir
blóðþorstans, og stendur á þvi
fastar en fótunum að allt sé
sattsem hann segi frá. Það er
lika erfitt að trúa ekki ýmsu
þvi sem hann segir i bókinni.
Jafnframttdcur hann svo með
fjórar nýlegar sögur eftiraðra
ogskulum við vonaað þærséu
ekkert annað en skáldskapur!
Dásamleg bók — en hrollvekj-
andi. Hún sýnir, svo varla
verður um villst, að þrátt fyrir
allan nútima og tækni og allt
það lifir enn i manninum það
eðli sem fær hann til að span-
góla að tunglinu og sjúga blóð
úr fögrum konum. Liklega er
það vitneskja sem flestir geta
verið án en fyrst hún er hvort
sem er til staðar, þá.
Hugh Thomas:
TheSpanish Civil War
Penguin 1979
Borgarastrfðið á Spáni
1936—39 var eins konar for-
máli að siðari heimsstyrjöld-
inni, þar reyndu þýsku nasist-
arnir vopn sin og verjur og
flest stórveldanna komu á
einn eða annan hátt við sögu.
Það sem kannski mikilvægara
er að þarna tókust á hugsjón-
ir: fasisminn sem Francó I
broddi fylkingar annars vegar
og sósialistar, anarkistar og
lýðræðissinnar hins vegar.
Sjaldan eða aldrei hefur strið
höfðað jafnmikiðtil hugsjóna-
eldsins i fólki og fjöldi ungra
manna um allan heim yfirgaf
heimili sin til að berjast á
Spáni. Þessi bók eftir Hugh
Thomas hefur lengi þótt
„standard” verk um þetta
sögulega strið og þeim sessi
heldur hún íendurskoðaðri út-
gáfu. Maður les hana ekki á
einni nóttu en þarna er
samankominn gifurlegur fróð-
leikur um Spán, spænsk
stjómmál, styrjöldina og það
sem þar lá að baki. Omiss-
andi.
■ Bækurnar hér að ofan eru fengnar hjá Búka-
verslun Máls og menningar.
SUNDLAUG TJALDSTÆÐ/
við grunnskólann v/N orður/an ds veg
Ferðafólk <
Ferðafó/k
Matvörudeild:
Crval ferskra, frosinna og niðursoðinna matvæla, öl, hrein-
lætisvörur, búsáhöld, o.fl.'
Ath: opið á laugardögum frá 9 til 12.20 og 13.20 til 18.
Byggingarvörudeild:
Viðlegubúnaður, verkfæri ferðabúnaður, veiðarfæri, raf-
magnsvörur, reiðtygi, garðáhöld, plötur, snældur, málning-
arvörur frá Sjöfn o.fl.
Vef naðarvörudeild:
Fatnaður, skótau, filmur, snyrtivörur, bækur, blöð, leikföng,
ritföng, efni, gjafavörur o.fl. o.fl.
{*'i ^ 111
.
<3>
■ ■
'
i-;
ESSOskálinn
við Norðurlandsveg:
Hverskonar veitingar og skyndiréttir, mjólkurvörur, kjötvör-
ur, álegg, hreinlætisvörur, bökunarvörur, ferskir ávextir,
brauð, pakkavörur, niðursuðuvörur, sælgæti, blöð, Emmess
is — KtJLUíS — leikföng, snældur, útvarpstæki, o.fl. o.fl.
ESSO bensin, oliur og bilavörur
BÍLALEIGA - ÞVOTTAPLAN
Söluumboð og afgreiðsla fyrir Arnarflug
Áætlanaf lug — leiguflug
Simi 95-4298
Vélsmiðja Húnvetninga
v/Norðurlandsveg
'<f , ;
:
Viðgerðir, varahlutasala, nýsmiði, stiliingar, fullkomin
. SDE
SMURSTÖÐ og réttingarverkstæði.
■ ■:
wmmm
B/önc/uósi
JT m\