Tíminn - 02.10.1981, Page 5
Föstudagur 2. október 1981
5
fréttir
íslenskir skákmenn spá um úrslit heimsmeistaraeinvígisins:
KARPOV VINNUR EN KORTSNOJ
ER AVALLT 6ÚTREIKNANLEGUR
■ //Karpov vinnur ein-
vigiö en Kortsnoj er
ávailt óútreiknanlegur
þannig aö erf itt er aö spá
um úrslitin". Þetta var
rauöi þráðurinn i máli
þeirra íslensku skák-
manna sem Tíminn baö
um aö spá fyrir um úrslit
heimsmeistaraeinvígis-
ins sem nú stendur yfir á
Merano á Italiu.
Flestir spáðu þvi að úr-
slitin yrðu einhvers staö-
ar í nánd viö 6:4 Karpov í
vil og aöalástæður fyrir
sigri Karpovs voru taldar
þær að hann hefur sýnt
betri árangur i sterkum
skákmótum að undan-
förnu, hefur raunar tef It í
miklu fleiri slíkum en
Kortsnoj en auk þess var
aldursmunur þeirra, sem
er um 20 ár einnig talinn
vega þungt á vogskál-
unum.
Hins vegar voru flestir
sammála því að Kortsnoj
væri óútreiknanlegur og
gæti allt eins stoliö sigrin-
um frá Karpov enda til í
dæminu að Kortsnoj
mundi' fyllast „'fítons
krafti" eins og einn orö-
aði það enda ætti hann
harma að hefna.
—FRI
| Helgi ólafsson
Helgi Ólafsson:
„Kæmi á
óvart ef
Kortsnoj ynni
meir en tvær
skákir”
■ „Ég tel aö Karpov vinni þetta
nokkuö örugglega, mér kæmi á
óvart ef Kortsnoj ynni meir en
tvær skákir”, sagöi Helgi Ólafs-
son i samtali viö Timann.
„Fyrir þaö fyrsta þá viröist
Kortsnoj ekki vera i góöu formi
núna en Karpov er alltaf jafn
traustur, einnig tel ég styrkleika-
mun þeirra þaö mikinn aö Karpov
er öruggur. Raunar þarf þessi
munur ekki aö vera þaö mikill til
aö Karpov sigri. 1 svona einvigi
veröur þessi munur meiri i tölum
en efni standa til. Sem dæmi má
nefna er Fischer var aö vinna
þessa karla 6:0 þá var styrkleika-
munurinn alls ekki jafnmikill og
tölurnar bentu til.”
„Þótt aldrei sé aö vita hvar
gerist i einviginu þá tel ég samt
alveg útilokaö aö Kortsnoj vinni
þaö”.
—FRI
Baldur Möller:
MSkynsemin
mælir með
Karpov”
■ „Þetta er ekki litil spurning og
ætli ég spái i þann kaffibolla fyrr
en ég hef séö úrslitin úr fyrstu
skákinni”, sagöi Baldur Möller i
samtali viö Timann. „Og helst vil
ég sjá hana lfka og kryfja alla”.
„011 skynsemi mælir meö spá-
dóm i þá átt aö Karpov vinni þetta
en þaö er svo margt i þessu máli
öllu, sem ekki er i minnst kontakt
viö skynsemina.”
„Fyrst svars er krafist þá held
ég aö Karpov vinni en þaö er
mjög ódýrt svar.”
„Þeir eru ólikir skákmenn og
aldursmunur þeirra mun spila
stórt hlutverk. Þetta er einnig
likamsiþrótt og likamsþol er
mikiö atriöi. Þaö er ekkert spurs-
mál aö þritugur maöur er betur
settur en fimmtugur auk þess er
Karpov mjög góöur skákmaöur.
■ Baldur Möller
„Hitt er svo annaö mál, sem
gerir útkomuna óútreiknanlega,
er aö Kortsnoj er uppmagnaöur,
þegar hann talar um fjandskák i
sambandi viö Karpov þá má hann
stinga hendinni i eigin barm þvi
aö hann er i fitonskraftsástandi
vegna þess aö hann hatast viö
andstæöingana.”
„Kortsnoj er mjög snjall skák-
maöur en ekki jafnvægismaöur á
skap sem Karpov er almennt,
hann getur veriö uppmagnaöur
en þaö er ekki mjög traustur
eiginleiki.”
—FRI
Jón L. Árnason:
„Karpov
vinnur stórt”
■ „Ég held aö Karpov vinni
þetta stórt sennilega 6:2”, sagöi
Jón L. Arnason i samtali við Tim-
ann.
„Mér finnst eins og Kortsnoj
hafi staöið sig frekar illa undan-
fariö, hef áhyggjur af aö hann sé
ekki i nógi góöu formi fyrir ein-
vigið.”
„Annars er Kortsnoj hættu-
legur, og ef hann nær sér á strik
þá má Karpov vara sig.” —FRI
Ingi R.
Jóhannsson:
„Langt
einvígi eykur
á likur
Kortsnoj”
■ „Ég vil ekki spá neinu um
■ Jón L. Arnason
þessi úrslit en ég trúi þvi aö eftir
þvi sem einvigiö veröur lengra
þvi meir aukast sigurlikur Korts-
nojs”, sagöi Ingi R. Jóhannsson i
samtali við Timann.
„Ég byggi þetta álit á þvi aö
maöur eins og Kortsnoj, en hann
er fimmtugur og Karpov þrit-
ugur, hefur meiri lifsreynslu en
andstæöingur hans og hún kemur
honum aö miklum notum i löngu
einvigi.”
„Þetta sýndi sig i einvigi þeirra
siöast þótt svo illa færi fyrir
Kortsnoj i siöustu skákinni þá.”
—FRI
Jóhannes Gísli
Jónsson
,,Möguleikar
Karpovs ívið
meiri en
síðast”
■ „Karpov mun vinna, mögu-
leikar hans eru aö minu viti iviö
meiri en siöast”, sagði Jóhannes
Gisli Jónsson i samtali viö Tfm-
ann.
„Munurinn ætti þannig að geta
oröiö aðeins stærri en þá, en hve
stór hann veröur treysti ég mér
ekki til aö segja um”.
„Aöalastæöa fyrir sigri Kar-
povs er sú aö hann hefur teflt
meira á sterkum mótum að und-
anförnu, búinn aö tefla á óhemju-
miklum fjölda af sterkum mótum
frá þvi I fyrra, mun meira en
heimsmeistarar hafa yfirleitt
gert. Ég held aö þaö hafi veriö
Larsen sem lýsti honum sem
„teflandi heimsmeistaranum”.
„Kortsnoj hefur verið úti-
lokaöur frá þessum mótum,
þannig aö hann hefur ekki fengið
tækifæri til aö tefla viö svo sterka
skákmenn. Þaö gæti haft sin
áhrif. Auk þess hefur Kortsnoj
staöið sig mjög illa i undanförn-
um tveim, þrem mótum en þaö er
ekki vist aö þaö sé mjög mark-
tækt, Karpov vinnur ekkert
auðveldlega þó aö ég reikni meö
aö hann vinni”. —-FRI
Óttar Felix
Hauksson:
y,Karpov er í
betra formi”
I ,,Ég spái þvi að Karpov vinni
■ ÓttarFelix Hauksson
meö 2 vinningum” sagöi Óttar
Felix Hauksson i samtali viö
Timann. „Karpov vinni sem sagt
6 skákir, Kortsnoj 4 og 13 endi
með jafntefli”.
„Spána byggi ég á árangri
þeirra 1974 og 1978 auk einvigja
undanfariö. Auk þess tel ég aö
Karpov sé ibetra formi núna, þvi
Kcrtsnoj hefur sýnt þaö undan-
farna tvo mánuði aö hann er tölu-
vert frá sinu besta”.
„Karpov virðist ekki hekiur
vera i toppformi en kannski erlit-
iö að marka þetta þvi þeir geta
veriö að spara orkuna fyrir þessi
átök”.
„Karpov er oröinn eldri og
reyndari en hann var fyrir siðasta
einvigi þeirra og hefur aukiö mik-
ið viö byr janaþekkingu sina sem
var talin há honum fyrst eftir að
hann varð heimsmeistari”.
„Kortsnoj er fimmtugur og þvi
er 20 ára munur á þeim en þaö
gæti haft sitt að segja”.
„Karpov hefur ávallt byrjaö
einvigin af fullum krafti, en
Kortsnoj aftur á móti veriö lengur
aö fara i gang og ef þaö reynist
veröa svo núna, þá mun hann
kannski vinna 3 fyrstu skákirnar
og reyna svo að halda jöfnu i
langan tima og þreyta Kortsnoj.
—FRI
Jóhann
Hjartarson:
MBuast má
við öllu frá
Kortsnoj”
■ „Ég veðja frekar á Karpov,
þar sem hann hefur teflt betur aö
undanförnu”, sagöi Jóhann
■ Jóhannes Gisli Jónsson
■ Jóhann Hjartarson
Hjartarson i samtali við Timann.
„Kortsnoj hefur hinsvegar sýnt
þaö aö búast má viö öllu frá hon-
um, þannig aö úrslitin eru óljós”.
„Þótt ég veöji á Karpov þá held
ég aö sigur hans verði ekki stór,
einvigiö veröur sennilega nokkuð
jafnt, mér sýnast einvigi þeirra
hafa veriönokkuö jöfn og úrslitin
ráöist i siöari hluta þeirra og ég á
ekki von á breytingu á þvi”.
„Mér finnst Karpov hafa teflt
betur aö undanfömu, hann hefur
staöiö sig betur á mótum. Hann
býr einnig viö talsvert betri að-
stööu en hinn til aö þroska skák-
hæfileika sin”. —FRI
Margeir
Pétursson:
„Sigur veltur
á einni til
tveimur
skákum”
■ „Þaö er erfitt aö segja en ég
býst viö aö Karpov vinni þetta
einvigi”, sagöi Margeir Péturs-
son i samtali viö Timann. „Munur
veröur sennilega litill eins og i
hinum einvigjunum, ég hugsa aö
hann velti á einni til tveimur
skákum.”
„Miöað viö fyrri einvigi finnst
mér allt benda til aö Karpov sé
betri skákmaður en Kortsnoj og
þau hlutföli hafa sennilega ekki
breyst slðan þá.”
„Kortsnoj hefur hins vegar oft
komið á óvart, einvigiö gæti þvi
oröiö mjög spennandi.”
„Taflmennskan veröur senni-
lega einnig ákveönari i byrjun til
aö koma i veg fyrir langlokuna
sem varö siöast.” —FRI
■ Margeir Pétursson