Tíminn - 02.10.1981, Síða 15
Jóhannes
Föstudagur 2. október 1981
Iþau spá...
Helgi
15
Grétar
■ Stefán
■ Júllus
■ Baldvin
Þóröur
Steinunn
Jón S.
Þorsteinn
Gylfi
TJesús minn þetta er
ekki léttur leikur’
segir Jóhannes Atlason sem spáir um leik Notts County og Arsenal
Július Hafstein for-
maður HSÍ:
„Ég er i engum vafa, West
Ham vinnur Birmingham,
þessi leikur veröur ekki erfið-
ur fyrir þá”.
Baldvin Jónsson aug-
lýsingastjóri:
„Það væri freistandi að setja
jafntefli á þennan leik
Brighton og Man. City, en ætli
við segjum ekki að City vinni
leikinn”.
Helgi H. Jónsson
fréttamaður:
„Ég spái þvi að Aston Villa
vinni Leeds 2-1, Aston Villa er
nú sennilega komið á skriö
eftir að hafa marið sigur yfir
Val hérna á dögunum”.
Grétar Norðfjörð
knattspy rnudómari:
„Það verður synd að sjá
Swansea tapa leiknum gegn
Liverpool, en ég er viss um
það að Rauöi herinn fer með
sigur af hólmi”.
Stefán Kristjánsson
bankamaður:
„Ég hef nú haldið með Man.
United siðan ég var tveggja
ára og hef aldrei brugðist
þeim,og ég á ekki von á þvi að
þeirfari að bregðast mér núna
þegarmikið liggur viðmeð þvi
aö tapa fyrir Wolves. Setjum
einn á leikinn”.
Jóhannes Atlason
kennari:
„Jesús minn það er nú ekki
hægt aðkalla þetta léttan leik,
ætli við segjum ekki að Arse-
nal vinni Notts County,
annars eru þetta hálfslöpp lið
um þessar mundir”.
Þórður Sigurðsson
kaupmaður:
„Verður maður ekki að spá
Keegan og félögum sigri i
leiknum? Annars er þetta
mjög erfiður leikur. Ég var
staddur erlendis þegar
Saouthampton lék við West
Ham á dögunum og þaö var
ágætis leikur. Viö setjum einn
á leikinn”.
Steinunn Sæmunds-
dóttir golfkona:
„Ég fylgist nú ekki mikið með
ensku knattspyrnunni.ég verð
bara aö spá út i bláinn, ætli ég
segi ekki að Stoke vinni Ever-
ton”.
Jón Sigurðsson körfu-
knattleiksmaður:
„Þetta vill nú vefjast fyrir
marini. Ég er nú iitiö inni í
ensku knattspyrnunni, Ætli ég
skjöti nú samt ekki á sigur
Sunderland gegn Coventry”.
Þorsteinn Bjarnason
ÍBK:
„Það er ekkert vafamál, þetta
er öruggur heimasigur” sagöi
Þorsteinn um leik Tottenham
og Nottingham Forest. „Það
er nú kominn smáskjálfti i
mann þegar maður er að spá i
fimmta sinn, en maður vonar
það besta”.
Gylfi Kristjánsson
blaðamaður:
„Leikirnir gerast ekki örugg-
ari en þessi, það er ekkert
vafamál að W.B.A. vinnur
þennan leik auðveldlega”.
Jón Jörundsson
körfuknattleiks-
maður:
„Þú ert bjartsýnn, ég fylgist
nú ekki mikið með 2. deildinni
það heföi verið skárra að spá
um einhvern leik i 1. deild.
Ætli maöur setji ekki jafntefli
á leikinn”.
röp-.
Einvigi
Grétarsog
Þorsteins
■ — Þeir Grétar Norðfjörð og
Þorsteinn Bjarnason heyja nú
mikið einvigi i getraunaleikn-
um hjá okkur. Báðir hafa þeir
spáð rétt i fjögur skipti og eru
að reyna með sér i fimmta
sinn nú i dag.
Frá þvi i siöustu viku hafa
bæst við sjö nýir spámenn en
auk þeirra Þorsteins og Grét-
ars héldu áfram frá fyrri viku,
þeir Baldvin Jónsson, Helgi H.
Jónsson og Jóhannes Atlason.
Þau sem bæst hafa viö eru,
Steinunn Sæmundsdóttir, Jón
Jörundsson, Gylfi Kristjáns-
son, Jón Sigurðsson, Stefán
Kristjánsson, Þórður Sigurðs-
son og Július Hafstein.
röp-.
Nafn 6 . leikvika Leikir Spá
1. Július Hafstein formaður HSt (nýr) Birmingham — West Ham 2
2. Baidvin Jónsson auglýsingastjóri (2) Brighton —Man. City 2
3. Helgi H. Jónsson fréttamaður (2) Leeds — Aston Villa 2
4. Grétar Norðfjörð knattspyrnu dómari (5) Liverpool — Swansea 1
S. Stefán Kristjánsson bankamaður (nýr) Man.United —Wolves 1
6. Jóhannes Atlason kennari (2) Notts County —Arsenal 2
7. Þórður Sigurðsson kaupmaður (nýr) Southampton — Ipswich 1
8. Steinunn Sæmundsdóttir golfkona (nýr) Stoke — Everton 1
9. Jón Sigurðsson körfuknattl.mað. (nýr) Sunderland — Coventry 1
10. Þorsteinn Bjarnason ÍBK (5) Tottenham — Nottingh. F. 1
11. Gylfi Kristjánsson blaöamaður (nýr) W.B.A. — Middlesboro 1
12. Jón Jörundsson körfuknattl.mað. (nýr) Cardiff — Newcastle X