Fréttablaðið - 02.03.2008, Síða 74
18 2. mars 2008 SUNNUDAGUR
Ég er nú síðasti maðurinn í heiminum til að gefa ráð
varðandi Eurovision! Ég veit ekkert um keppnina. Ég er
rokkstjarna, fjandinn hafi það!“
H
r. Lordi sjálfur
situr á móti mér
á hótelbar á
Hlemmi. Hann er
ekki með
skrímsla grímuna
og því er ég í raun að tala við Tomi
Petteri Putaansuu, 34 ára Finna,
sem er auðsýnilega þungarokk-
saðdáandi. Hann er í Alice Coop-
er-bol, í UFO-vesti og í Kiss-leð-
urjakka. Tomi er kubbslega
vaxinn, minni en ég átti von á,
með sítt svart skegg og hár sem
farið er að grána, með kennara leg
gleraugu á nefinu, smáfríður í
andliti og eilítið Mongólalegur. Ég
lýsi honum svona vel því það er
stranglega bannað að taka af
honum myndir án grímunnar.
Tilefni Íslandsheimsóknarinnar
er að í gær var hryllingsmyndin
Dark Floors frumsýnd í Reykja-
vík. Júlíus Kemp og Ingvar Þórðar-
son eru meðframleiðendur mynd-
arinnar, en Pete Riski leikstýrir.
Hann hefur gert öll myndböndin
með Lordi. Handritið skrifaði Hr.
Lordi og hann og aðrir liðsmenn
sveitarinnar leika vondu skrímslin
í myndinni.
„Ég hef alltaf verið aðdáandi
hryllingsmynda og hryllings í
öllum tegundum listgreina,“ segir
Tomi og ég trúi honum vel. „Strax
þriggja eða fjögurra ára var ég
orðinn hryllingsfíkill og ég held ég
fíli aðallega fantasíuna á bakvið
hryllingspersónurnar. Samt er ET
uppáhaldsmyndin mín. Við höfum
lent í smá veseni með að kynna
myndina í Finnlandi því þar eru
margir sem aldrei hafa séð hryll-
ingsmynd, eða halda að allar hryll-
ingsmyndir séu svokallaðar
splatter-myndir. Þetta er alls engin
splatter-mynd. Ég myndi segja að
myndin sé hryllings-fantasía, mjög
drungaleg og með sálfræðilegu
ívafi.“
Er myndin fyndin?
„Nei, alls ekki! Það er akkúrat
ekkert fyndið í henni!“
En þið leikið samt í henni?
„Já, við í hljómsveitinni leikum
skrímslin.“
Og myndin er samt ekkert
fyndin?
„Nei nei, Lordi hefur aldrei verið
eitthvert grín. Það sem við gerum
hefur ekkert með húmor að gera.
Það er reyndar áhorfandans að
ákveða hvað sé grín og hvað ekki,
en hvað okkur viðkemur þá höfum
við alltaf verið í þessu af fullri og
djúpri alvöru.“
En af hverju vill Lordi drepa alla
í myndinni?
„Við viljum reyndar ekki drepa
alveg alla. Þú verður bara að sjá
myndina. Það er margt sem kemur
á óvart í henni.“
Enginn jafn hissa og við
Öllum að óvörum vann Lordi Euro-
vision-keppnina árið 2006. Þar með
var áratugalangri ógæfu Finna í
keppninni aflétt.
„Okkur var boðið að taka þátt í
forkeppninni og við vorum alveg
örugg um að við ættum enga mögu-
leika á móti finnsku þjóðlagapopp-
urunum og sætu syngjandi stelp-
unum. Við litum bara á þetta sem
ókeypis kynningu á nýjustu plöt-
unni okkar sem við vorum að gefa
út um þetta leyti. Enginn var jafn
hissa á sigrinum og við, hvað þá
þegar við unnum sjálfa keppnina í
Aþenu.“
Hvað hefur svo sigurinn gert
fyrir bandið?
„Að vinna Eurovision er tvíeggj-
að sverð. Það opnaði nýja glugga
og gerði alls konar hluti mögulega,
eins og til dæmis kvikmyndina, en
á sama tíma héldu margir sem
vissu ekki að við höfðum verið til
síðan 1996, að við værum bara eitt-
hvert nýtt band sem hefði verið
stofnað til þess eins að taka þátt í
Eurovision. Þegar við unnum í
Finnlandi varð þjóðin alveg brjál-
uð. Margir sögðust skammast sín
fyrir okkur, við vorum sögð satan-
istar og ég veit ekki hvað og hvað.
Margir hótuðu meira að segja að
flytja til Svíþjóðar ef við yrðum
send til Aþenu. Þegar við unnum
urðum við þjóðhetjur á augabragði
og allir sögðust elska okkur. Þegar
við komum til baka sagði ég á
fyrsta blaðamannafundinum að
þeir sem ætluðu að flytja til Sví-
þjóðar ættu að drífa sig strax.
Lordi gæti meira að segja komið
og hjálpað þeim að pakka! Enginn
gaf sig fram.“
Fenguð þið peningaverðlaun?
„Nei, ekki krónu! Það eina sem
maður fær fyrir að vinna Euro-
vision er bara þetta, maður vann
Eurovision. Svo er það undir þér
sjálfum komið hvað gerist næst.“
Eftir að þið unnuð hafið þið
væntanlega þurft að passa betur
upp á að ykkar rétta andlit sæist
ekki?
„Jú, en það hefur reyndar verið
þannig frá fyrsta degi, en bara
fyrir miklu minni hóp þungarokks-
aðdáenda í Evrópu. Strax eftir sig-
urinn komust meginstraums-fjöl-
miðlarnir á blóðbragðið, meðal
annars ruslblöðin í Bretlandi og
Þýskalandi. Við þurftum að passa
okkur aðeins betur.“
Náðu einhverjir myndum af
ykkur grímulausum?
„Ef allar þessar myndir sem
hafa birst af okkur grímulausum
ættu við rök að styðjast væru
sautján manns í Lordi. Það hafa
birst myndir af meðlimum í öðrum
finnskum þungarokksböndum, en
bara ein mynd af mér grímulaus-
um. Það er tíu ára gömul mynd af
mér þegar ég var miklu grennri.
Ég var ber að ofan að sýna á mér
Kiss-tattúin fyrir kynningu á aðdá-
endaklúbbi Kiss – Kiss Army.“
Líður öðruvísi í búningnum
Herra Lordi segir lítið hafa breyst
í rútínunni hjá bandinu fyrir utan
að allt er orðið stærra og meira um
sig. Miklu fleiri þekkja bandið og
börn fá nú leyfi hjá foreldrum
sínum til að hlusta á þá. Allt út af
Eurovision.
„Sem smápatti horfði ég á
keppnina með foreldrum mínum
og hélt með Finnlandi og það var
sorg ár eftir ár. En þetta er nú bara
sjónvarpsþáttur, ein stór homma-
sýning. Þetta á að vera gaman og
líf og fjör.“
Þú hlýtur að hafa verið í heiðurs-
sætinu í síðustu keppni í Helsinki?
„Jú jú, en eftir að opnunar atriðið
okkar var búið flýtti ég mér heim í
sturtu og horfði svo bara einn á
restina af þessu. Konan var úti að
skemmta sér.“
Hvað ertu lengi að fara í gervið?
„Þrjá, fjóra tíma. Andlitið er
mesta málið. Bara það tekur um
þrjá tíma. Ég sé sjálfur um að fara
í búninginn og meika mig, en ég
næ ekki alveg utan um allt svo ég
þarf aðstoð á síðustu metrunum.
Konan mín fer oft með á túra til að
hjálpa okkur að skipta um gervi.“
Fylgja því andlegar breytingar
að skipta svona um útlit?
„Vissulega. Mér líður náttúrlega
allt öðruvísi þegar ég er orðinn Hr.
Lordi, en það er aðallega vegna
viðbragða annarra. Ef þú sérð mig
í búningnum munt þú bregðast allt
öðru vísi við mér heldur en núna
þegar ég er bara Tomi. Og þegar
þú bregst öðruvísi við þá bregst ég
líka öðruvísi við þér. Ég er miklu
hærri og stærri um mig í gervinu,
ég fíla mig allan voldugri. Helsta
breytingin hjá fólki er að það held-
ur ekki augnsambandi við Hr.
Lordi mjög lengi. Margir vilja líka
snerta á mér andlitið. Það eru fáir
sem vilja snerta á mér andlitið
núna!“
Silvía Nótt var æðisleg
Tomi segir að Lordi komi og spili
fyrir Íslendinga um leið og ein-
hver biðji bandið um það. Honum
finnst Ísland nokkuð sérstakt og
þá sérstaklega trjáleysið. „Strák-
arnir létu mig smakka eitthvað í
gær og sögðu mér ekkert hvað
þetta væri. Ég var viss um að
þetta væri japanskt Kobe-nauta-
kjöt en þá reyndist þetta vera
hrátt hvalkjöt. Það var rosalega
gott.“
Hvaða ráð gefurðu Íslendingum
til að vinna Eurovision?
„Ég er nú síðasti maðurinn í
heiminum til að gefa ráð varðandi
Eurovision! Ég veit ekkert um
keppnina. Ég er rokkstjarna,
fjandinn hafi það! En ókei, þetta
hljómar furðulega þegar ég segi
þetta, en ég held að málið sé að
maður þarf bara að vera maður
sjálfur. Hvernig lag ætlið þið ann-
ars að senda núna?“
Svona frekar hefðbundið Euro-
diskó.
„Jahá, gangi ykkur vel. Euro-
diskó hefur unnið oftar en hryll-
ingsrokk! Annars fannst mér
Silvía Nótt algjörlega frábær á
sínum tíma. Ég held að fáar aðrar
sendinefndir en við í þeirri
finnsku hafi í raun skilið hvað hún
var að gera. Fólk sem tekur Euro-
vision of alvarlega náði þessu
ekki, en okkur fannst þetta æðis-
legt. Leikkonan gerði þetta rosa-
lega vel og ég varð hálf leiður að
heyra að hún væri hætt að leika
Silvíu. Ég hélt að tárin væru
alvöru og allt. Mér fannst líka síð-
hærði gaurinn sem var í fyrra
góður. Það var kúl lag.“
Ein spurning að lokum: Af
hverju ættu Íslendingar að sjá
Dark Floors?
„Markhópurinn í öllu sem ég
geri er bara ein manneskja: Ég
sjálfur. Tónlistin, Lordi-teikni-
myndabækurnar sem ég hef gert
og nú þessi mynd, ég hef gert
þetta allt með það eitt í huga að ég
sjálfur hafi gaman af því. Það er
bara plús ef einhver annar hefur
gaman af þessu líka. En myndin
já, ef súrrealískar hryllingsfant-
asíur eru eitthvað sem þú fílar þá
ættirðu að drífa þig. Og ef þú fílar
ekki svona myndir þá er rétti tím-
inn til að byrja á því núna.“
Lordi er ekkert grín
Dr. Gunni hitti Hr. Lordi, Finnann hryllilega sem færði Finnum langþráð Eurovision-gull árið 2006 ásamt hinum skrímslunum í
hljómsveitinni Lordi. Þeir ræddu hryllingsmyndina sem Lordi er á landinu til að kynna, feluleikinn og Eurovision – hvað annað?
PASSIÐ
YKKUR!
HERRA LORDI
ER MÆTTUR!
Úr súrrealísku
hryllingsfant-
asíunni Dark
Floors.
HERRA LORDI ER EKKI
LEIKSKÓLAKENNARI
Tomi Petteri Putaansuu
með latex fyrir allan
peninginn.