Fréttablaðið - 10.03.2008, Page 20
[ ]
■ Í mars má huga að klippingu
runna og nú er góður tími til
að snyrta runna og limgerði.
Klippa á allar dauðar greinar
burt, líka gamlar sverar grein-
ar, og óhætt er að ganga
hraustlega til verks. Klippa
þarf runnana síðan reglulega
yfir allt sumarið og víði má
klippa allt árið. Rósarunna á
þó að bíða með að klippa
þangað til ekki er von á meira
frosti. Í vorhreti geta rósa-
runnar auðveldlega kalið svo
best er að klippa þá í maí.
Horfa má til breskra skrúð-
garða þegar verið er að snyrta
runna en Bretar eru snillingar
í að móta runna og limgerði
fallega til.
■ Í mars má líka sá fræjum og
upplagt er að sá bæði sumar-
blómum og fjölærum blómum,
runnum og trjám. Fræ eru
þegar farin að fást í blóma-
búðunum og hægt að fara að
sá í bakkana núna. Láta þá svo
standa til dæmis úti í bílskúr
eða úti í gróðurhúsi ef það er
til staðar en beðin þurfa að
vera orðin frostlaus fyrir
nýjan og ungan gróður.
■ Nú má einnig setja niður
vorlauka. Þá er best að
forrækta inni í nokkurn tíma
áður en þeir fara út í beðin og
helst þarf að vera orðið
frostlaust þegar þeir fara
niður. Vorlaukana má for-
rækta í potti á svölum stað, til
dæmis bílskúr. Einhverjar
harðgerar tegundir má þó
setja beint út í beðin en þá
þarf að bíða fram í apríl, maí
með að setja þær niður.
■ Ef orðið er snjólaust er oft
góður tími í mars til að
hreinsa og tína burt rusl úr
garðinum eins og plasptoka og
pappír sem fokið hefur til í
vetur. Gott er að raka yfir
grasflötina og hreinsa laufin
burt og raka upp mosa úr
grasflötinni en bíða þó með að
hreinsa ofan af beðum.
■ Nú er líka kjörinn tími til að
færa til jurtir í garðinum áður
en þær fara að laufgast,
fjölæringa og runna og tré.
Það er líka hægt að gera á
haustin eftir að lauf eru fallin.
■ Á þessum tíma er tilvalið að
umpotta stofublómum. Gott er
að umpotta á nokkura ára
millibili og nú er ágætis tími
til þess. Þau blóm sem eiga
eftir að stækka má setja í
stærri pott og bæta bara við
mold meðfram. Blómum sem
á að halda í svipaðri stærð en
eru í gamalli mold á að hafa í
jafnstórum potti. Dusta burt
alla mold og snyrta ræturnar
ef með þarf og setja nýja mold
í pottinn.
■ Frekari upplýsingar um
garðverkin má finna á
vefsíðunni www.gardurinn.is.
heiða@frettabladid.is
Nú viðrar til vorverka
Þegar snjóa leysir er tilvalið að hreinsa
allt rusl sem hefur fokið í garða og beð
í vetur.
Gott er að hreinsa stífluð niðurföll eftir
veturinn svo ekki fari allt á flot í vorleys-
ingunum.
Klakabox fást í ýmsum formum og gaman getur verið
að útbúa klaka sem eru til dæmis hjartalaga, stjörnur eða
jafnvel eins og Ísland í laginu.
Valborg Einarsdóttir, starfsmaður hjá Félagi áhugamanna um garðyrkju, segir tíma-
bært að klippa limgerðin.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N
Nú þegar hlýnar og snjóa leysir
má fara að huga að garðyrkju-
störfunum. Valborg Einarsdótt-
ir, starfsmaður Garðyrkjufélags
Íslands, ráðlagði Fréttablaðinu
hvaða verkum ætti að sinna í
mars.
Nýr Bæklingur
LAURA ASHLEY
Faxafeni 14 108 Reykjavík sími 5516646
Opið virka daga 10-18 og Laugardaga 10-14