Fréttablaðið - 11.03.2008, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 11. mars 2008
ÞÝSKALAND, AP Fylgi við Jafnaðar-
mannaflokk Þýskalands, sem situr
að völdum í Berlín ásamt kristi-
legum demókrötum, hefur tekið
dýfu um leið og hart hefur verið
deilt í flokksforystunni um það
hvort flokkurinn ætti að álíta það
koma til greina að starfa með nýja
Vinstriflokknum. Þetta staðfesta
niðurstöður nýrra viðhorfskannana.
Tíðindin af fylgistapinu koma
Jafnaðarmannaflokknum illa nú er
styttast fer í kjörtímabili „stóru
samsteypu“, samstjórnar stóru
flokkanna tveggja. Báðir vilja þeir
komast í aðstöðu til að mynda
meirihluta með öðrum hætti eftir
næstu kosningar. - aa
Jafnaðarmenn í Þýskalandi:
Fylgistap vegna
vinstriviðræðna
KURT BECK Formaður SPD.
MALTA, AP Yfirkjörstjórn á Möltu
tilkynnti í gær að Þjóðernis-
flokkurinn, sem haldið hefur um
stjórntaumana í eyríkinu undan-
farin kjörtímabil, hefði naumlega
haft betur í þingkosningum sem
fram fóru um helgina.
Samkvæmt opinberum úrslitum
fékk flokkurinn, sem Lawrence
Gonzi forsætisráðherra fer fyrir,
49,3 prósent atkvæða en Verka-
mannaflokkurinn, sem hafði gert
sér góðar vonir um að fella
stjórnina, 48,8 prósent. Munurinn
var um 1.500 atkvæði.
Þetta voru fyrstu þingkosning-
arnar á Möltu síðan landið gekk í
Evrópusambandið vorið 2004. - aa
Kosið á Möltu:
Stjórnin hélt
naumlega velli
LANDBÚNAÐUR Bændasamtök
Íslands sendu frá sér ályktun í lok
búnaðarþings þar sem lögð er
áhersla á að tollar á innfluttar
landbúnaðarafurðir verði ekki
lækkaðir. Einnig að útflutnings-
skylda á kindakjöti sem til stendur
að fella niður hinn 1. júní á næsta
ári verði beitt áfram. Hún felur í
sér að bændur skuldbindi sig til að
selja hluta framleiðslunnar á
erlendan markað en sé hún
afnumin verði útflutningur alfarið
í höndum bænda og afurðastöðva.
Bændur leggja áherslu á að
ríkissjóður leggi til fjármagn til að
mæta þeim kostnaði sem hækkað
áburðaverð hefur leitt af sér. - jse
Búnaðarþingi lokið:
Krefjast þess að
tollar haldi
Vitur er sá sem vaknar fyrr.
Úrval verslana og þjónustu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur aldrei verið glæsilegra.
Þess vegna skaltu gefa þér góðan tíma í Flugstöðinni og njóta þess
að gera bestu kaupin í upphafi ferðarinnar.
Mættu fyrr og fáðu meira.
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
F
L
U
4
09
15
0
2/
08
Á köldum og dimmum vetri er nauðsynlegt að fá bæði
fallegan lit í tilveruna og yl í kroppinn og hjúfra sig inni
í hlýjunni yfir heitri súpu eða pastarrétti frá Knorr. Alltaf
einfalt, litríkt og gott með Knorr!
Knorr bollasúpa er
fullkomin máltíð
hvenær sem er.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
4
6
5
5
Hlýtt í vetur