Fréttablaðið - 14.04.2008, Síða 54
30 14. apríl 2008 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2. þvogl 6. í röð 8. leyfi 9. hljóma 11.
hvort 12. gljáun 14. gáleysi 16. sjó
17. einkar 18. hætta 20. samtök 21.
uppspretta.
LÓÐRÉTT
1. hrjúf 3. frá 4. rugla 5. tilvist 7.
lítilræði 10. temja 13. líða vel 15.
kaupbætir 16. sunna 19. ónefndur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. babl, 6. rs, 8. frí, 9. óma,
11. ef, 12. fágun, 14. vangá, 16. sæ,
17. all, 18. ógn, 20. aa, 21. lind.
LÓÐRÉTT: 1. gróf, 3. af, 4. brengla, 5.
líf, 7. smávægi, 10. aga, 13. una, 15.
álag, 16. sól, 19. nn.
LÖGIN VIÐ VINNUNA
„Það eru þrjú lög sem ég heyri
mest þegar ég er í vinnunni.
Ave Maria auðvitað og svo Allt
eins og blómstrið eina. Svo
virðist Sultans of Swing með
Dire Straits alltaf vera spilað
á Bylgjunni þegar við erum á
útfararbílnum.“
Frímann Andrésson útfararstjóri.
„Þau bara bentu á mig og sögðu: „Yes, it is she“,“ segir
pylsusalinn María Einarsdóttir á Bæjarins beztu.
María – sem aldrei er kölluð annað en Maja – var á
dögunum í sakleysi sínu að afgreiða þegar hún varð
vör við að nokkrir erlendir ferðamenn voru að benda á
hana. Við nánari eftirgrennslan kom á daginn að þessir
sömu ferðamenn höfðu séð Maju á sjónvarpsstöðinni
Travel Channel en fjallað var um Bæjarins beztu á
þeirri stöð í nóvember á síðasta ári. „Já, það kom í ljós
að þetta voru ferðamenn frá Belgíu sem höfðu séð
umfjöllun um staðinn og komu spes til landsins til að
fá sér pylsu,“ segir Maja, sem lenti í tveimur álíka
uppákomum með stuttu millibili.
Undanfarin misseri hefur það orðið æ algengara að
pylsuvagninn Bæjarins beztu birtist í erlendum
fjölmiðlum. Fyrir tveimur árum var hann til að mynda
valinn næstbesti matsöluturn í Evrópu af breska
blaðinu The Guardian. Þá hafa nokkrir erlendir
sjónvarpsþættir fjallað um þennan litla fjölsótta pylsu-
vagn. Þessi mikla jákvæða umfjöllun sem staðurinn
hefur fengið ytra virðist heldur en ekki skila sér í
auknum komum erlendra ferðamanna – og stórstjarna.
Skemmst er að minnast þess þegar Bill Clinton skellti
sér á eina með sinnepi, einnig voru meðlimir Metallica
fastagestir hjá Maju. Fyrir nokkru var svo sem Maja
væri mætt inn í heimsfrægan glæpaþátt. „Já, ég hafði
verið að horfa á CSI daginn áður og svo kemur allt í
einu einn leikarinn úr þáttunum og fær sér pylsu hjá
mér. Hann heitir Eric eitthvað, þessi ungi sem er alltaf
á rannsóknarstofunni,“ segir Maja og á þar við
leikarann Eric Szmanda sem fer með hlutverk Greg
Sanders í sakamálaþáttunum CSI sem sýndir eru á
Skjá einum.
Maja hefur unnið á Bæjarins beztu í 33 ár. „Það er
samt algengur misskilningur að ég eigi Bæjarins
beztu. Ég á ekkert í þessu, ég bara vinn hérna,“ segir
Maja. En ætli Maju hafi grunað þegar hún hóf störf á
Bæjarins beztu fyrir 33 árum að hún ætti eftir að
verða heimsfrægur pylsusali? „Nei, manni datt það nú
lítið í hug,“ segir Maja hlæjandi. Hún segist þó ekki
fara hjá sér þegar fólk utan úr heimi
þekki hana úr sjónvarpi. „Nei,
blessaður vertu, maður er orðinn
vanur þessu,“ segir hún og brosir.
Maja segist alltaf kunna jafn vel
við starf pylsusalans. „Ég er fyrst og
fremst með frábæra vinnuveitendur.
Maður hittir líka svo mikið af
fólki og margir fastakúnnar
koma daglega,“ segir Maja og
bendir á að allir fái sömu
afgreiðslu, hvort sem það er
Bill Clinton, Valli úr vestur-
bænum eða Fríða úr Fellunum.
„Eini munurinn er sá að ég
þekki Clinton og þá með nafni.“
soli@frettabladid.is
MAJA Á BÆJARINS BEZTU: FÉKK HEIMSÓKN FRÁ BELGÍU
Maja á Bæjarins beztu
orðin fræg um allan heim
ERIC SZMANDA Mætti á Bæjarins
beztu þegar Maja var nýbúin að
horfa á hann í CSI.
„Það hefur aldrei staðið til að
bandið hans Bubba yrði eitthvert
sveitaballaband, það er mikill
misskilningur. Við skoðum þessi
mál þegar sigurvegarinn hefur
verið krýndur,“ segir Páll Eyj-
ólfsson. Að undanförnu hafa átt
sér stað miklar vangaveltur um
hver framtíð Bandsins hans
Bubba og ekki síst sigurvegara
þáttanna sé. Í auglýsingunni
kemur fram að sigurvegarinn
hljóti þrjár milljónir í reiðufé,
plötu- og umboðssamning. Og
ekki síst; stöðu í Bandinu hans
Bubba. Páll segir þetta allt vera í
skoðun og ráðist að sjálfsögðu af
því hver standi uppi sem sigur-
vegari. „Að sjálfsögðu mun band-
ið koma fram með sigurvegaran-
um í einhver skipti en hvort það
verði eitt, tvö eða fleiri á eftir að
ræða um enda sigurvegarinn
ekki kominn í ljós,“ bætir Páll
við.
Hann bendir jafnframt á að
meðlimirnir í Bandinu hans
Bubba séu eflaust í samtals tíu
hljómsveitum og því sé það mikil
skipulagningarvinna að koma
þeim saman fyrir eitt kvöld. „Við
ætlum okkur hins vegar að fara í
mikla landvinnninga með sigur-
vegaranum,“ bætir Páll við.
Úrslitin verða kunngjörð á föstu-
daginn í næstu viku og þá kemur
í ljós hver það er sem heillaði
land og þjóð hvað mest. - fgg
Bandið hans Bubba ekki á sveitaböll
ÓRÁÐIN FRAMTÍÐ Sigurvegarinn í
Bandinu hans Bubba fær þrjár milljónir
og plötu- og umboðssamning. Hvort
bandið fylgir með kemur síðan í ljós.
„Þetta yrði algjör toppur, 28 búr í
hæsta gæðaflokki,“ segir Sigríð-
ur Heiðberg, formaður Kattholts,
en á vefsíðu dýrahótelsins er nú
hafin söfnun fyrir nýjum og
glæsilegum búrum fyrir íbúa
þess. Að sögn Sigríðar er um
kostnaðarsama breytingu að ræða
sem kæmi þó öllum kattavinum
til góða. „Við verðum að fylgjast
vel með og vera í fararbroddi
fyrir dýrin okkar,“ segir Sigríður.
„Við verðum hreinlega að gera
þetta,“ bætir hún við.
Að sögn Sigríðar yrði þetta
algjör bylting fyrir þau í Katt-
holti. Dýrin fengju mun betri
aðstöðu inni í búrunum en áður
þekkist, meðal annars sérdall
fyrir mat og séraðstöðu til að sofa
í. „Ég vona svo sannarlega að
þetta verði að raunveruleika,“
segir Sigríður en kostnaðurinn
við þetta er talinn vera 2,6 millj-
ónir.
Formaðurinn segir að katta- og
dýravinir hafi tekið vel í þessa
söfnun. Þeim sem vilja leggja
málefninu lið er bent á heimasíðu
Kattholts en annars er reiknings-
númerið 0113-26-314425 og kenni-
talan 550378-0199. - fgg
Safnað fyrir svítum í Kattholt
MAJA Er líklegast
frægasti pylsusali
í heimi.
BETRI AÐSTAÐA Sigríður hyggst
panta búrin 28 og hefur hafið
söfnun á heimasíðu Kattholts,
kattholt.is.
Árshátíð Glitnis var haldin með
pomp og prakt í Laugardalshöllinni á
laugardagskvöldið. Kreppunni marg-
frægu var haldið fyrir utan veggi
hallarinnar því innan
þeirra skemmtu
starfsmennirnir sér
konunglega. Sirkus-
hópur hélt fólki við
efnið á meðan
það gæddi
sér á dýrindis
veitingum
en það var
sjálfur sjónvarpsmaðurinn úr Sigtinu,
Frímann Gunnarsson, sem sá um
að stjórna herlegheitunum þar sem
hann þeystist um salinn á rafknúnu
tvíhjóli.
Senuþjófur kvöldsins var hins vegar
hljómsveitin The Supreme þar sem
allir sveitarmeðlimir voru starfsmenn
Glitnis. Þakið ætlaði hreinlega að
rifna þegar sveitin hafði lokið sér af
en fyrir henni fór knatt-
spyrnuhetjan og marka-
hrókurinn Guðmundur
Torfason. Guðmundur er
ansi liðtækur gítar-
leikari og engu
síðri söngvari og
höfðu menn á
orði að þarna
væri kominn
„öruggari“ starfsvettvangur fyrir Guð-
mund í ljósi efnahagsumræðunnar.
Meðal annarra sveitarmeðlima var
Almar Guðmundsson en hann er
einmitt bróðir gamla rokkhundsins
Sigmars Guðmundssonar.
Hafi menn haldið að Bubbi væri
búinn að selja sálu sína til stór-
fyrirtækja þá hefur hljómsveitin
Merzedes Club sýnt það og sannað
að það er hægt að ganga enn lengra
í markaðsvæðingu sinni. Síminn
ætlar sér augljóslega að nýta hvert
kílógramm af sveitarmeðlimum og á
heimasíðu fyrirtækisins er hægt að
tromma með laginu Meira frelsi. Ef
þátttakendur hitta á rétta trommu
byrja þeir Partý-Hanz, Gillz og
Gaz-Man að hnykla
vöðvana, netverj-
um til mismikillar
skemmtunar. -fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Notkun hennar getur varð-
að við lög og skemmt bílvélar.
2 Maine Coon.
3 Ögmundur Jónasson,
þingmaður Vinstri grænna.
MEÐ CLINTON Maja og
Clinton náðu vel saman.