Tíminn - 05.12.1981, Blaðsíða 12
Laugardagur 5. desember 1981
Laugardagur 5. desember 1981
13
12
heimilistíminn
|Umsjón B.St. og KL
Árlegur jólabasar
Félags Framsóknar-
kvenna í Reykjavík:
ALLTAF VISS
STEMMNING
í KRING UM
LAU FABRAUÐS-
BAKSTURINN
; . .
Laufabrauösstaflarnir hlaöast upp á borðsendann og konurnar hamast við aö skera út, þær: Sigrún Sturludóttir, Ingibjörg Helgadóttir, Þórhaila Gunnarsdótt
Sigrún Magnúsdóttir og Sigrún Baldvinsdóttir. Timamyndir G.E.
Sumar vilja heist hnoða og fletja út. Hér eru frá vinstri: Guðrún Þorkeisdóttir, Heiga Jónsdóttir
(Kristin viðpottinn) ogSigrún Ingólfsdóttir meö kökukeflin á fuilu.
Girnilegt er brauðið sem hún Kristln Sigvaldadóttir dregur þarna upp úr steikingarpottinum finnst
ykkur ekki? Hlemmurinn er notaöur til að leggja ofan á brauöiö meðanþaðer heitt.
Mörgum finnst laufabrauðið eitt
af þvi allra nauðsynlegasta af jóla-
kræsingunum, sérstaklega þó
Norðlendingum, en sifellt fleiri
komast þó á bragðið. Hjá sumum
heyrir maður lika aö ánægjan af
laufabrauðinu felist ekki eingöngu I
að borða það, heldur einnig i vinn-
unni við að búa það til og stemmn-
ingunni sem I kring um það skap-
ast, þegar margir hjálpast að við
baksturinn.
Það var lika glatt á hjalla og
komin hálfgerð jólastemmning yfir
mannskapinn hjá einum „laufa-
brauðshópnum”, sem við Tima-
menn litum inn hjá nú nýlega. Það
var hópur félagskvenna i Félagi
framsóknarkvenna i Reykjavik,
sem hafa árum saman haft þann
sið að koma saman 4-5 sinnum I
nóvembermánuði til að baka mörg
hundruð stykki af laufabrauði.
Brauðið selja þær siðan ásamt
ýmsum munum á sinum árlega
jólabasar. En jólabasarinn þeirra
þeirra að þessu sinni, verður I
kjallaranum að Rauðarárstlg 18 I
dag, laugardaginn 5. desember, kl.
2 eftir hádegi.
Að sögn Sigrúnar Sturludóttur
hefur laufabrauðið þeirra alltaf
runnið út svo að segja á nokkrum
minútum. Hún sagði sér alltaf
verða minnisstætt þegar þær fyrst
hefðu auglýst laufabrauð á basarn-
um sinum. Þegar hún hafi opnað
hann rétt fyrir kl. 2 snarbrá henni,
þvi fyrir utan var biðröð alveg út á
Njálsgötu. Siðan hafi verið bætt við
baksturinn nokkur hundruð kökum
á hverju ári, en allt hverfur eins og
dögg fyrir sólu.
Sjálf sagðist Sigrún alin upp við
að fá laufabrauð á jólum, þótt hún
sé frá Vestfjörðum. En konurnar
sem stjórna bakstrinum i hópnum
hjá þeim séu þó flestar af Norður-
landi. Aðrar sem áður voru óvanar
bæði að borða og baka laufabrauð
heföu komið I hópinn og nú væru
þær einnig farnar að baka fyrir
sjálfar sig fyrir hver jól. Mörgum
óvönum fyndist bakstur á laufa-
brauði vera mikið mál, en I hópn-
um hjá kvenfélaginu hafi þær bæði
fengið æfingu og komist að þvi hvað
þetta getur verið auðvelt þegar
maður kann þaö og hefur góðar
uppskriftir. Þeim sem séu vanar
þyki þetta ekki meira mál en að
steikja kieinur.
Sigrún sagði þetta vera mjög
skemmtilegt og hafa myndað góð-
an félagsanda gegn um árin. Kon-
urnar skiptist á að koma saman 15
til 16 i hóp, kynnist þarna vel og slð-
an hafi myndast kunningjahópur f
kring um þetta og alltaf bætast
nýjar i hópinn.
Auk ánægjunnar af að baka
laufabrauðið og borða það er einnig
hægt að nota það sem jólaskraut.
Sigrún sagðist hafa byrjað á þvl
fyrir nokkrum árum að hengja fal-
lega útskorið laufabrauð með rauð-
um borða út I glugga hjá sér um
jólin til skrauts og sé það reglulega
skemmtilegt.
Okkur þykir þetta góð hugmynd
og flaug einnig i hug, að það sé
heidur ekki amalegt að geta siðan
gætt sér á jólaskrautinu á þrett-
ándanum i stað þess að þurfa að
koma þvl fyrir I kassa I geymsl-
unni.
—HEI
PLASTPOKAVERKSMKUA ODOS SIGURÐSSONAR GRENSASVEGI 7 REYKJAVÍK
BYGGINGAPLAST * PLASTPRENTUN • MERKIMIÐAR OG VÉLAR
Rafmagnsveitur
ríkisins
óska að ráða rafmagnsverkfræðing eða
tæknifræðing með starfsreynslu i radio
og/eða simatækni.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf
sendist fyrir 14. desember nk.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 118
105 Reykjavik
Rafmagnsveitur
ríkisins
óska að ráða skrifstofumann.
Upplýsingar um menntun, aldur og fyrri
störf sendist starfsmannastjóra fyrir 17.
desember nk.
Rafmagnsveitur rikisins
Laugavegi 118
105 Reykjavik
Húsvörður
óskast frá 1. janúar 1982
Gert er ráð fyrir 8 stunda vinnudegi sem
unninn er að mestu frá hádegi.
Umsóknir um starfið ásamt upplýsingum
um fyrri störf sendist afgreiðslu blaðsins
merkt ,,1714” fyrir 10. des. n.k.
Verkfræðingar
Hafnamálastofnun rikisins vill lausráða
tvo verkfræðinga. Deildarverkfræðing i
Framkvæmdadeild — verkfræðing i
Rannsóknadeild.
Umsóknum fylgi yfirlit yfir menntun og
starfsferil.
Hafnarmálastofnun rikisins
Eins og venjulega sendir Sögusafnið frá sér fyrir jólin
vinsælar skáldsögur. Þessar bækur eru komnar á mark-
aðinn:
Kamelíufrúin eftir Alexander Dumas í þýðingu Karls ís-
felds. Heimsfræg ástarsaga.
Kroppinbakur eftir Poul Féval. Bók sem alltaf er spurt
um.
Ást og drenglyndi eftir Hermann Lienhart. Hugljúf ástar-
saga.
Þræll arabahöfðingjans eftir Albert M. Treynor. Þetta er
ein af þeim gömlu sögum sem alltaf erspurt um og hefur
verið ófáanleg árum saman.
Glettni örlaganna eftir Marjorie Curtis í þýðingu Elín-
borgar Kristmundsdóttur. Viðburðarík og spennandi
nútímasaga.
Ævintýri Sherlock Holmes eftir A. Conan Doyle í heild-
útgáfu. 4. bindið er komið og fjallar um afrek þessa
fræga leynilögreglukappa.
Sögusafn heimilanna