Fréttablaðið - 07.05.2008, Page 45
MIÐVIKUDAGUR 7. maí 2008 21
Frumsýning á fimmtudag í Ríkis-
leikhúsi íslensku þjóðarinnar.
Hvernig stendur á því að Verslun-
arskólinn heldur ekki áfram að sjá
um uppfærslur af þessum toga
eins og verið hefur í vinsælum
sumarsýningum sem Borgarleik-
húsið hefur hýst?
Þeir sem ánetjast diskóinu eru
litaglaðir einfeldningar meðan
þeir sem aðhyllast pönkstefnunn-
ni eru að mótmæla um leið og þeir
eru í niðurrifi á sínu eigin lífi og
útliti, en svo birtist hún stjarnan
okkar allra sem komið hefur
Íslandi á kortið. Um þetta og svo-
lítið misskilningsdrama fjallaði
sýningin Ástin er diskó, lífið er
pönk.
Það var mikil dans- og söng-
veisla á fjölum Þjóðleikhússins á
alþjóðabaráttudegi verkalýðsins.
Það vekur í raun furðu að svona
stór vinnustaður skuli halda sínu
fólki í vinnu á degi sem slíkum?
Hér var spriklað, sungið, dansað
og gargað milli þess sem reynt var
að leysa erfið fjölskyldumál. Fyrir
aðeins mánuði síðan var frumsýnt
nýtt íslenskt verk norður á Akur-
eyri þar sem ungt fólk varð ást-
fangið og áhorfendur látnir halda
um skeið að um systkin væri að
ræða. Sama misskilningsþemað er
hér á ferðinni. Það er eins og það
sé eitthvað í tísku að leita í þessi
gömlu Grikkja- og Shakespeare-
minni.
Hér var stór og litskrúðugur
hópur samankominn. Gamla West
Side Story-þemað skein í gegn þar
sem átök voru milli pönkara og
diskóliðsins sem allt rann þó
saman í eina Smirnoff-dýrkun
undir lokin. Tónlistaratriðin voru
skemmtilega hröð og þétt og sön-
gatriði vel flutt. Dansatriðin aftur
á móti eins og óendanlega löng
leikfimistund í sjónvarpi á legg-
hlífatímabilinu.
Þau Vigdís Hrefna Pálsdóttir og
Þórir Sæmundsson eru bæði firna-
góðir leikarar og skiluðu sínum
hlutverkum með prýði. Geiflur
Vigdísar og tilfæringar þá er hún
náði kjöri sem Ungfrú Hollywood
voru frábærar og hvert smáatriði
þaulhugsað.
Búningar þeirra þjónuðu til-
gangi sínum einnig mjög vel. Þórir
Sæmundsson, sem leikur ást-
fangna pönkarann Nonna Rokk,
heldur salnum í járngreipum með
sterkri nærveru sinni og góðum
leik. Röddin berst út í hvert
skúmaskot og leikurinn allur
ósvikinn.
Önnur stjarna sýningarinnar
var litla systir fegurðardrottning-
arinnar, Stína, sem Sara Marti
Guðmundsdóttir ljáði lífi, og með
fínstemmdri nálgun sinni þeytti
hún öllum salnum í hláturskast.
Þau Baldur Trausti Hreinsson og
Ragnheiður Steinþórsdóttir í hlut-
verkum hjónanna voru einnig
skemmtilega staðlaðar týpur sem
gaman var að horfa á, einkum hið
netta Baby Jane-gervi móðurinn-
ar. Sem fyrrum hljómsveitartöff-
arar og núverandi rónar voru þeir
Þröstur Leó Gunnarsson og Kjart-
an Guðjónsson þrusugóðir. Ofurl-
ummugæjinn Danni diskó sem
Sverrir Þór Sverrisson ljáði bleiku
lífi kitlaði hláturtaugar áhorfenda
og á vafalítið eftir að falla yngstu
kynslóðinni vel í geð.
Pönkarastelpurnar tvær sem
Elma Lísa Og Edda Björg hræktu
út úr sér voru frábærar. Einn af
göllum sýningarinnar var hversu
ójafn leikurinn var, eins og oft vill
verða þegar hópi af áhugamönn-
um er stillt upp með atvinnu-
leikurum í úrvalsflokki.
Leikmynd, lýsing og búningar
voru í anda ýkjudiskósins. Það er
umhugsunarefni hvernig hvert
verkið á fætur öðru í leikhúsunum
upp á síðkastið gengur út á að agn-
úast út í ákveðin tímabil, eða, eins
og krakkarnir segja núna, „dissa“
diskóið og dissa pönkið, eins og
uppfærslan af Kommúnunni gekk
út á að „dissa“ hippana...
Væri ekki kominn tími til þess
að semja eitthvað um þá litlu
sjálfsvirðingu sem peningahyggj-
an og uppatöffaraskapur innlit/
útlit-flísafárs nútímans veldur? Á
sama tíma og það er verið að agn-
úast út í einhverjar músíkstefnur
og gera að milljónauppsetningum
í leikhúsi með fjölbreytilegum
hópi listamanna er brunafýla
undir rassi velferðarkerfisins, og
líklega ekki bara brunafýla heldur
hreinlega bálköstur, en það er ekki
verið að nýta hið mikla ofurafl
listarinnar til þess að slökkva
þann eld og um leið að kveikja á
perum, opna hugsun? Nei, það er
líklega svo lummó, svo mikið nöld-
ur, því tíminn okkar núna eða þeir
sem telja sig „inn“ þola ekki nöld-
ur og þras eða nokkra greiningu.
Sennilega vegna þess að ástands-
greining og hugsanlegar hug-
myndir um að hægt sé að breyta
einhverju til góðs eru framandi
hugsanir kynslóðar sem alist
hefur upp við eina og aðeins eina
stefnu. Eina stefnu sem einkenn-
ist af stöðugu bænaþrugli upp úr
guðspjalli græðginnar, sem þar
með fæðir af sér innihaldsleysi á
borð við sýningu þá sem okkur var
boðið upp á í Þjóðleikhúsinu á
alþjóðlegum baráttudegi verka-
manna. Elísabet Brekkan
Enn er verið að dissa!
LEIKSÝNINGAR
Ástin er diskó, lífið er pönk
Handrit: Hallgrímur Helgason
★★
Niðurstaða: Skemmtileg tónlistaratr-
iði, löng dansatriði, góður leikhópur
en innihaldslaus sýning.
MENNINGARKIMAR MÆTAST Úr leikritinu Ástin er diskó, lífið er pönk.
Flautuleikararnir og hjónin Guð-
rún Birgisdóttir og Martial Nar-
deau koma fram á sannkölluðum
vortónleikum ásamt píanóleikar-
anum Peter Máté í Salnum í kvöld
kl. 20. Þau félagarnir skipa saman
Tríó Romance, sem lék talsvert
saman á árunum 1995-2003, en
hafa ekki komið saman fram
undir því nafni í fimm ár. „Aðrir
hlutir hafa haft forgang hjá okkur
undanfarið, en þar sem okkur
þótti alltaf mjög gaman að leika
saman sem tríó og úr því að við
erum öll Kópavogsbúar þótti
okkur tilvalið að koma saman að
nýju nú á Kópavogsdögum. Svo er
aldrei að vita með framhaldið, við
stefnum í það minnsta að því að
halda samstarfinu áfram,“
útskýrir Guðrún.
Tónleikarnir bera titilinn „Er
sumarið kom yfir sæinn...“. Það
kemur því vart á óvart að efnisskrá
tónleikanna sé vel til þess fallin að
koma áhorfendum í sumarskap,
enda er hún leikandi létt. „Það er
sannarlega bjart yfir þessum tón-
leikum. Við leikum valsa og ýmis
konar danstónlist og einnig nokkur
bravúr-stykki. Að auki leikum við
líka afar skemmtilega og dálítið
barrokklega djass-svítu eftir Claude
Bolling úr kvikmyndinni California
Suite. Við förum því dálítið ótroðn-
ar slóðir á þessum tónleikum, en
þeir verða sumarlegir og skemmti-
legir,“ segir Guðrún. Miða á tónleik-
ana má nálgast í miðasölu Salarins.
Miðaverð er 2.000 kr. en öryrkjar,
eldri borgarar og námsmenn fá
miðann á 1.600 kr. - vþ
Bjart yfir efnisskránni
TRÍÓ ROMANCE Leikur á tónleikum í
Salnum í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Ástin er diskó, lífið er pönk
e. Hallgrím Helgason
sýn. mið. 7/5 uppselt, fim. 8/5 örfá sæti laus,
lau. 10/5 uppselt
Sá ljóti e. Marius von Mayenburg
sýn. lau. 9/5 örfá sæti laus
Engisprettur e. Biljana Srbljanovic
síðasta sýning lau. 9/5 örfá sæti laus
Skoppa og Skrítla
e. Hrefnu Hallgrímsdóttur
Þrjár sýningar á annan í hvítasunnu,uppselt
Miðasala í síma 551 1200
og á www.leikhusid.is
Þjóðleikhúsið
um hel(l)gina
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Kvikmynd eftir Brian De Palma
leikstjóra Untouchables og Scarface
„Myndin framkallar óhemju
sterk viðbrögð; þar á meðal
hneykslun og réttláta reiði!”
- Robert Ebert, Chicago Sun-Times
„ÆSIFENGIN KVIKMYND. Færni
De Palma í kvikmyndagerð hefur
sjaldan verið jafn flugbeitt!”
- Ray Bennett, Hollywood Reporter
„Hreint ótrúlega þróttmikið verk
og sterkasta yfirlýsing De Palma
á hvíta tjaldinu síðan „Casualties
of War“ leit dagsins ljós!“
- Richard Corliss, Time.
„Reiði og kraftur De Palma fer
eins og 1000 volta rafstraumur í
gegnum „Redacted!”
- Stephanie Zacharek, Salon
Bill O´Reilly, Fox News Channel
„Ekki sýna þessa
kvikmynd, því annars verð
ég þín versta martröð!“
- Bill O´Reilly
RITSTÝRÐ FRUMSÝND 7. MAÍ Í REGNBOGANUM
KLIPPIÐ HÉR!
- Ekkert hlé á góðum myndum
Engin truflun3Minna af auglýsingum2Ekkert hlé1
2 fyrir 1 allar frumsýningarhelgar gegn framvísun þessarar úrklippu.
www.graenaljosid.is - Skráning í Bíóklúbb Græna ljóssins margborgar sig