Fréttablaðið - 20.05.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
ÞRIÐJUDAGUR
20. maí 2008 — 135. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
HILDUR BJÖRG JÓNASDÓTTIR
Fékk hjól í afmælisgjöf
og fer á því út um allt
heilsa
Í MIÐJU BLAÐSINS
VIÐSKIPTI Skuldatryggingarálag á
íslenska banka lækkaði í kjölfar
gjaldeyrisskiptasamninga Seðla-
bankans sem kynntir voru á
föstudag. Kjör íslensku bank-
anna á erlendum fjármálamörk-
uðum hafa batnað mest allra
banka.
Skuldatryggingarálag er gjald
sem leggst ofan á alþjóðlega
millibankavexti og hækkar eftir
því sem meiri áhætta er talin
tengjast viðkomandi banka.
Álag á skuldabréf Landsbankans
hefur lækkað mest síðan á föstu-
dag, um 65 punkta, og nálgast kjör
sem sumum erlendum stórbönkum
standa til boða. Þar á eftir kemur
Kaupþing með 28 punkta lækkun og
svo Glitnir með 26 punkta lækkun.
Mest álag er eftir sem áður á bréf
Kaupþings, 425 punktar. Álag á bréf
Glitnis er 380 punktar en 185
punktar á bréf Landsbankans.
Gengi krónunnar heldur áfram að
styrkjast og hafði við lok markaða í
gær styrkst um 7,8 prósent á fimm
viðskiptadögum, að því er greiningar-
deild Landsbankans bendir á. Í gær
styrktist hún um 1,1 prósent, en um
4,1 prósent á föstudag, sem er mesta
styrking á einum degi síðan í apríl
2002. - óká / sjá síðu 12
Skuldatryggingarálag íslensku bankanna lækkar og krónan styrkist enn:
Íslenskir bankar nálgast erlenda
FÓLK Eurobandið virðist vera í
allmiklum meðbyr nú þegar
styttist í stóru stundina á fimmtu-
dagskvöldið.
Í mikilli veislu í höll Títós fengu
Regína Ósk og Friðrik Ómar mikla
athygli og slógu brosandi í gegn.
Meðal þeirra sem mættu voru
Finnarnir Martti og Pusi, en Martti
stofnaði aðdáendasíðu Jónsa af því
honum finnst Heaven eitt besta
framlagið til Eurovision.
Regína og Friðrik æfa stans-
laust, inni á hótelsvítu ef ekki
betra býðst, enda þurfa þessar
þrjár mínútur á sviðinu að nýtast
sem best. - glh / sjá síður 22 og 24
Risaveisla í Belgrad:
Styttist í stóru
stundina
ÁFRAM ÍSLAND! Nú styttist óðum í stóru
stundina hjá Eurobandinu, sem stígur á
svið á á fimmtudagskvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þægindi um land allt
Í Útilegumanninum að Fosshálsi 5-9
færðu allt til ferðalagsins
Opið
Mán - fös 10.00-18.00
Helgar 12.00-16.00
Rockwood
fellihýsin 2008
Hlaðin staðalbúnaði
· Sérstaklega löguð að
íslenskum aðstæðum
· Galvaníseruð grind
· Sérstök fjöðrun
· Upphitaðar dýnur
Frá 1.398.000 kr.
Polar
hjólhýsin 2008
Hlaðin staðalbúnaði
· Sérhönnuð fyrir norð-
lægar slóðir
· Evrópskar þrýstibremsur
· Galvaníseruð grind
· iDC stöðugleikakerfi
Frá 3.799.000 kr.
Stelpurnar í snjóinn
Verðlaunaféð úr Hæðinni færir
Begga og Pacasi
væntanlega dætur
Pacasar í jóla-
gjöf, en þær
eru spenntar
fyrir snjónum.
FÓLK 30
Styrkir sjálfa sig
Sjónvarpskonan Eva
María Jónsdóttir ætlar
á hugleiðslunám-
skeið og sjálfs-
styrkingarnám-
skeið í sumar.
FÓLK 30
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Í góða veðrinu má sjá hjólreiðafólk á ferðinni
um allan bæ. Hildur Björg Jónasdóttir hjól í
vinnuna á nýju hjóli
an rúmlega sex til aðá
Fékk nýtt fjallahjól
Hildur Björg Jónasdóttir tekur daginn snemma og hjólar í vinnuna.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Sumarblóm fer að verða tímabært að gróð-ursetja í garðinn. Blóm-legt og fagurt umhverfi er gott fyrir heilsuna og hvar er betra að slaka á en í fallegum og friðsæl-um garði sem prýddur er dýrindis gróðri? Ef fólk er ekki svo heppið að eiga garð má alltaf fá sér göngutúr í grasagarðinum í Laugardal, sem er allur að lifna við um þessar mundir.
Sjóvá kvennahlaup ÍSÍ mun fara fram í nítjánda sinn laugardaginn 7. júní í samstarfi við Lýðheilsu-stöð og er því kjörið að byrja að þjálfa sig og fara út að skokka. Bolurinn í ár er fjólublár og er þema ársins „Heilbrigt hugarfar, hraustar konur“. Allar konur geta tekið þátt
á sínum forsendum, óháð aldri og líkamlegri
getu.
Vatn er lífsnauðsynlegt og hollasti svaladrykk-urinn. Það hentar vel á milli mála og skemmir ekki tennur og er því gott að hafa ætíð vatn við höndina.
Næstu fyrirlestrar og námskeið
21. maí kl. 19:00 - 21:00 Ævintýralíf
Benedikta Jónsdóttir heilsuráðgjafi
28. maí kl. 19:00-22:00 Heilbrigði og hamingjaBenedikta Jónsdóttir heilsuráðgjafi
07. júní kl. 10:30 -11:30Opin hláturjógatími Ásta Valdimarsdóttir hláturjógakennari
www.madurlifandi.is
GARÐAR THOR CORTES
Heillaði son soldánsins af
Brunei upp úr skónum
Prinsinn sagði Garðar hafa guðdómlega rödd
FÓLK 30
LH HESTAR
Landsmót á
tímamótum
Sérblað Landssambands hestamannafélaga
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
ÍÞRÓTT • MENNING • LÍFSSTÍLL
lh hestar
ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2008
Reykjavíkurmeistaramót Fáks í hestaíþróttum er orðið eitt stærsta mót ársins. Mótið hefur verið opið undanfarin ár fyrir alla knapa í félögum innan LH. Þátttaka hefur aukist ár frá ári og nú voru skráningar um 650. Mótið hófst klukkan 16 á mið-vikudegi og stóð í fimm og hálf-an dag. Dagskrá stóð f ái
Reykjavíkurmót sligar Fák
Viðar Ingólfsson varð sigurvegari í Meistaradeild VÍS eftir tvísýna baráttu við Sigurð Sigurðarson. Aðal keppnishestur Viðars, Tumi frá Stóra-Hofi, halaði inn flest stig-in fyrir knapa sinn. Enginn hestur hefur unnið jafn mörg stig í deild-inni frá upphafi. Tumi bætti síðan um betur þegar þeir félagar urðu efstir í tölti á Reykjavíkurmeist-aramóti Fáks um hvítasunnuna. Viðar er fjölhæfur knapi. Hann er í fremstu röð í 150 metra skeiði og 100 metra fljúgandi skeiði á Hreimi frá Barkarstöðum. Á kyn-bótasýningu í Víðidal sýndi hann stóðhestinn Takt frá Tjarnarlandi, sem fékk 8,57 fyrir hæfileika, þaraf 9,5 fyrir tölt
Stefnir í gott ár hjá Viðari
Þrír íslenskir hestaíþrótta dómarar fengu alþjóðleg dómararéttindi á dómararáðstefnu FEIF sem var haldin á Hvanneyri 11. til 13. apríl. Alls tóku 48 dómarar þátt í ráðstefnunni, þar af ellefu frá Ís-landi. Eftir ráðstefnuna var haldið nýdómarapróf og stóðust þrír ís-lenskir dómarar prófið: Elísabeth Jansen, Hulda G. Geirsdóttir og Ísólfur Þórisson. Öllum samhæf-ingarnámskeiðum fyrir íþrótta-dómara er nú lokið og er hægt að nálgast upplýsingar um þá dóm-ara sem eru virkir árið 2008 á www.lhhestar.is undir tenglinum íþróttadómarar.
Þrír fá alþjóðleg dómararéttindi
Nú liggja fyrir félagatöl hesta-mannafélaganna fyrir árið 2008. Fjöldi þátttakenda frá hverju fé-lagi á LM2008 miðast við þau. Tölu-verð fjölgun hefur orðið í félögun-um og þar með fjöldi hrossa sem þau hafa rétt til að senda til þátt-töku. Á LM2006 voru 112 í hverj-um flokki en á LM2008 eiga 119 þátttökurétt. Alls sendu félögin 100 hross í hvern flokk á LM2006. Hægt er að fá nánari upplýsingar á www.lhhestar.is.
Gæðingum á
LM fjölgar
Viðar Ingólfsson á gæðingnum Tuma frá
Stóra-Hofi.
MYND/JENS EINARSSON
Frá verðlaunaafhendingu á Reykjavíkur-
meistaramóti Fáks í hestaíþróttum.
MYND/JENS EINARSSON
Ágústínus frá Melaleiti. Knapi Agnar Þór Magnússon.
MYND/JENS EINARSSON
Stóðhesturinn Ágústínus frá Melaleiti kom með gusti inn í aðdraganda Landsmóts 2008. Hann fékk 8,61 í aðaleinkunn á héraðssýningu kynbótahrossa í Víðidal í síðustu viku
ústínusi biskupi frá Hippo. En það er öruggt að hann er undan hinum fræga Kolfinni frá Kjarnholtum 1, sem var einhver mesti garpur í röðum stóðhesta hvað gangrými og skörungsskap ð
LM2008. Tvær dætur Hugins frá Haga vöktu mikla athygli, þær Gletta frá Þjóðólfshaga og Mýkt frá Seljabrekku. Gullfallegar ogflinkar h
Ágústínus inn á sviðið með gusti
Berglind
Ágústsdóttirræktaði hæst dæmda íslenska stóðhestinnBLS. 6
Eftirminnilegar
næturvaktir
Magnús Einarsson útvarpsmaður
færir sig upp um rás.
TÍMAMÓT 18
VÍÐA NOKKUÐ BJART Í dag
verður austan strekkingur allra
syðst, annars mun hægari. Skýjað
með köflum víða um land og yfir-
leitt úrkomulaust. Hiti víðast 7-13
stig að deginum.
VEÐUR 4
7 10
8
8
11
SKIPULAGSMÁL Borgaryfirvöld hafa
sent nokkrum húseigendum á
Laugavegi bréf þar sem farið er
fram á að húseigendur geri endur-
bætur á húsum sínum. Eru þeir
hvattir til að klára þær fyrir 17.
júní en verði þeim ekki lokið fyrir
1. ágúst verði hugsanlega beitt
dagsektum. Magnús Sædal bygg-
ingafulltrúi segir að yfirleitt séu
dagsektir ekki hærri en fimmtíu
þúsund krónur á dag. Hann vonar
að ekki þurfi að koma til þeirra.
„Ég fagna því að borgaryfirvöld
ætli að gera skurk í þessum málum
en það má standa mun betur að
því,“ segir Orri Arnarsson, hús-
eigandi á Laugavegi 39. Þar er eig-
endum meðal annars gert að múr-
húða veggi og lagfæra handrið á
svölum. „Í fyrsta lagi er þetta of
stuttur tími,“ segir Orri. „Það er
erfitt að fá verktaka til að taka að
sér verk hér, einfaldlega vegna
þess að það er erfitt að athafna
sig. Svo hefur það áhrif að það
ríkir mikil óvissa á svæðinu. Það á
að rífa nánast allt beggja megin
við okkur og ég hef heyrt af því að
menn vilji kaupa okkar hús og það
er einfaldlega mjög erfitt að
athafna sig í þessari óvissu.“
Magnús telur ekki of lítinn frest
gefinn af hálfu borgaryfirvalda.
„Mestan part er nú um smotterí að
ræða sem menn ættu að geta gert
strax. Annað tekur kannski lengri
tíma, enda gefum við líka frest til
1. ágúst,“ segir Magnús.
Hann bætir við að ástandið á
byggingarmarkaði sé þannig að
auðvelt ætti að vera að ráða sér
iðnaðarmann í sumar, þurfi þess
með.
Múrari sem blaðamaður hafði
samband við taldi að allir verk-
takar væru búnir að fullbóka
sumarið. Múrviðgerð á heilu húsi
þyrfti að áætla með löngum fyrir-
vara, útbúa útboðsgögn og bjóða
verkið út. Slíkt verk taldi hann
ólíklegt að hægt yrði að hefja fyrr
en næsta vor.
Kostnaður við múrhúðun getur
hlaupið á milljónum, allt eftir
stærð hússins. Algengt verð á við-
gerð á sléttpússuðu húsi er 3.800
krónur á fermetra. Við það bætist
kostnaður við vinnupalla og fleira.
- jse / sjá síðu 4
Íbúum á Laugavegi
hótað dagsektum
Borgaryfirvöld senda húseigendum á Laugavegi bréf þar sem þeim er gert að
laga hús sín. Borgin hótar allt að 50 þúsund króna dagsektum eftir 1. ágúst.
AKRANES Samþykkt var á auka-
fundi bæjarstjórnar í gær að
Akranesskaupstaður gengi til
samninga við félagsmála-
ráðuneytið um að taka við hópi
flóttafólks.
Gísli S. Einarsson bæjarstjóri
segist harma að undirskriftalistar
gangi meðal bæjarbúa þar sem
hvatt er til að fólkinu verði hafnað
af Akranesbæ. Hann segir fólkið
verða allt að þrjátíu talsins og
gefur lítið fyrir ummæli
Magnúsar Þórs Hafsteinssonar,
þingmanns Frjálslynda flokksins,
sem sagt hefur að fólkið verði nær
sextíu talsins. „Hann virðist ekki
þurfa að rökstyðja eitt né neitt,“
segir Gísli. „Hann veit vel að hann
er að segja ósatt og er að lokka
fólk til þess að trúa einhverjum
ranghugmyndum.“ - kdk
Undirskrifasöfnun hörmuð:
Flóttafólk vel-
komið á Skaga
ÞRIGGJA MÍNÚTNA ÞÖGN Loftvarnarflautur voru þeyttar til minningar um fórnarlömb jarðskjálftans í Sichuan í síðustu viku. Tvær
konur björguðust í gær eftir hafa legið grafnar í rústum í viku. Kínverjar óttast nú sterka eftirskjálfta. Sjá síðu 6. NORDICPHOTOS/AFP
Tvö á toppnum
Keflavík og Fjölnir
ætla að verða
spútnikliðin í
sumar og unnu
bæði þriðja leik
sinn í röð í gær.
ÍÞRÓTTIR 26-27