Fréttablaðið - 22.05.2008, Qupperneq 70
46 22. maí 2008 FIMMTUDAGUR
Nýtt! Gras.is beint á skjáborðið þitt!
Gras.is hefur sett upp vefþjónustu (Gagdet) sem t
engir þig beint
við fréttirnar, án þess að þurfa opna vafrann þinn!
Þýski leikstjórinn Roland Emmerich er samur við sig. Þrátt fyrir að
10.000 BC. hafi fengið hvern skellinn á fætur öðrum þá er Emmerich
síður en svo búinn að gefast upp á stórmyndum.
Empire-kvikmyndavefurinn greinir frá því að næsta
verkefni hans verði heimsendakvikmyndin 2012. Og
að John Cusack muni leika aðalhlutverkið.
Kvikmyndin 2012 er byggð á fornu tímatali Maya-
indíánanna sem töldu sig hafa reiknað það út að
heimurinn myndi farast á því herrans ári. Hann
ferst þó ekki alveg og leiðir Cusack hóp eftirlifenda
sem reynir að draga björg í bú eftir að heimsbyggðin,
eins og við þekkjum hana, er orðin rústir einar.
Kunnuglegur Roland
LEIÐTOGI John Cusack hefur fallist
á að leika leiðtoga eftirlifenda í
heimsendakvikmynd Rolands
Emmerich.
Jake Gyllenhaal fær það verðuga verkefni að taka við gróðaskútu Johnnys
Depp og sjóræningjastóðs hans í ráðgerðum stórsmelli Jerrys Bruckheim-
er. Framleiðandinn hyggst færa tölvuleikinn The Prince of Persia: The
Sands of Time upp á hvíta tjaldið og Gyllenhaal hefur fallist á að leika aðal-
hlutverkið. Nýja Bond-stúlkan Gemma Arterton verður Gyllenhaal innan
handar en Persíu-prinsinn berst við ill öfl um hlut sem gerir eiganda þess
kleift að ferðast í tíma og rúmi og ráða þannig yfir heiminum.
Samkvæmt vefsíðunni Movies.com gera forsvarsmenn Disney-
fyrirtækisins sér vonir um að þarna sé jafnvel kominn arftaki
hins ofurvinsæla en mistæka Sjóræningjaþríleik. Varla hefur
það skemmt fyrir hjá Jake að Harry Potter-leikstjórinn
Mike Newell hefur samþykkt að vinna undir stjórn hins
ráðríka Bruckheimers.
Prinsinn Gyllenhaal
VERÐUGT VERKEFNI Jake Gyllenhaal hefur verið
falið að verða næsta aðdráttarafl stórmyndar
Jerrys Bruckheimer.
Sjö íslenskar kvikmyndir í fullri lengd
fengu vilyrði fyrir framleiðslustyrk á
nýjum lista Kvikmyndamiðstöðvar
Íslands sem birtur var á vefsíðu hennar
í vikunni. Nokkur kunnugleg andlit eru
á listanum; Hátíð í bæ eftir Hilmar
Oddsson, R.W.W.M, hryllingsmynd Júlí-
usar Kemp, og Good Heart Dags Kára
sem tökur standa yfir á. Brim í leik-
stjórn Árna Ólafs Ásgeirssonar fékk
framleiðslustyrk frá Kvikmyndamið-
stöðinni en tökur á henni eru vel á veg
komnar.
Eitt nýtt andlit er í þessum hópi en
það er Sumarland Gríms Hákonarsonar
sem leikstýrir þar sinni fyrstu kvik-
mynd í fullri lengd eftir mikla velgengni
í stuttmyndageiranum. Marteinn Þóris-
son fær jafnframt vilyrði fyrir fram-
leiðslustyrk en hann hyggst færa bók
Hallgríms Helgasonar, Rokland, upp á
hvíta tjaldið. Róbert Douglas er einnig á
lista hinna útvöldu með myndina sína
Baldur en tvær síðastnefndu kvikmynd-
irnar eiga það sameiginlegt að aðalleik-
arar myndarinnar grenna sig töluvert.
Hins vegar er eitt nafn sem aldrei
áður hefur verið á þessum lista. Það er
danski Óskarsverðlaunahafinn Bille
August sem fær vilyrði fyrir fram-
leiðslustyrk enda er hann að fara að
leikstýra A Journey Home eftir bók
Ólafs Jóhanns Ólafssonar með Jennifer
Connelly í aðalhlutverki. - fgg
Sjö íslenskar kvikmyndir í vinnslu
Hafi einhver talið sig fullfæran um að tippa
á næsta hlutverk velska leikarans Christi-
ans Bale þá fékk hann örugglega ekki
þrettán rétta eftir nýjasta útspil leikarans.
Nýverið var nefnilega tilkynnt að Bale
hygðist taka þátt í endurreisn kvikmynda-
bálksins um Tortímandann.
Framleiðendur fjórðu myndarinnar um Tortímandann
tilkynntu á Cannes-hátíðinni-með nokkru stolti að Bale
hygðist leika John Connor. Og ekki bara í einni, ekki
tveim heldur þremur framhaldsmyndum. Kvikmyndin
hefur legið í nokkuð lausu lofti að undanförnu og sögu-
sagnir gengið um að hún hefði jafnvel verið slegin út af
borðinu. En nú er ljóst að sagan af John Connor og
félögum heldur áfram.
Alvöruleikari
Framleiðendurnir reyndust þó heldur tregir í taumi
þegar kom að því að upplýsa um söguþráðinn en stað-
festu þó að umhverfi myndanna yrði bylting mannanna
gegn ofurvaldi vélanna áður en frelsishetjan fær þá
flugu í hausinn að senda fyrst fótgönguliða og síðar
fyrrverandi óvin sinn til að vernda móður sína gegn
drápsvélum framtíðarinnar. „Bale er alvöruleikari og
þetta er því mikill fengur fyrir okkur,“ sagði Victor
Kubicek hjá kvikmyndafyrirtækinu Halcy-
on á blaðamannafundi í Cannes.
„Bale var fyrsti valkostur okkar.
Hann las handritið og féll strax
fyrir því,“ bætti Kubicek við en
hann vildi aftur móti ekkert tjá
sig um hvort ríkisstjórinn í Kali-
forníu, Arnold Schwarzenegger,
kæmi til með að birtast í kvik-
myndunum. Austurríska vöðva-
tröllið kom auðvitað þessari fram-
tíðarsýn stórmyndasnillingsins
James Cameron á kortið með ódauð-
legum setningum eins og „I’ll be
back“ og „Hasta la vista,
baby“.
Keisari sólarinnar
Bale er fæddur í
velska smábænum
Haverfordvest
árið 1974 en flutt-
ist fljótlega til
Bournemouth í
Englandi. Hann
steig sín fyrstu
skref á leiksviði aðeins tíu ára gamall þegar hann fór
með aðalhlutverkið í sýningunni The Nerd eða Njörð-
urinn sem sett var upp á West End. Mótleikari hans var
ekki af verra taginu, sjálfur Rowan „Mr. Bean“ Atkin-
son. Hann þótti sýna lipra takta og faðir hans, fjöllista-
maðurinn og þúsundþjalasmiðurinn David Bale, ákvað
að kasta frá sér sínum eigin ferli sem reynsluflugmað-
ur til að taka að sér umboðsmennsku fyrir son sinn.
Ferill Bales komst á mikið flug þegar hann skaut fjög-
ur þúsund öðrum táningspiltum ref fyrir rass þegar
þeir börðust um hlutverk Jims Graham í verðlauna-
kvikmynd Stevens Spielberg, Empire of the Sun.
Á flug með Batman
Ferill Bales eftir að fullorðinsárin tóku völdin hefur
verið ansi skrykkjóttur. Eftir velgengni ameríska geð-
sjúklingsins tók Bale að sér svipaða rullu í Shaft,
fremur mislukkaðri endurgerð á samnefndri kvik-
mynd frá árinu 1971. Ekki var framhald Bales af þeirri
hörmung mikið skárra, Captain Corelli’s Mandolin, þar
sem hann þótti ekki sannfærandi í sínu hlutverki.
Leikarinn var hins vegar ekki dauður úr öllum æðum
og gaf Matthew McConaughey ekkert eftir í Reign of
Fire, ágætri drekamynd sem naut töluverðra vinsælda.
The Machinist frá árinu 2004 sýndi svo að ekki varð
um villst að Bale bjó yfir miklum hæfileikum. En jafn-
vel þótt kvikmyndin hefði fengið prýðilega dóma þá
reyndist aðsóknin ekki til að hrópa húrra
fyrir.
Batman Begins skaut Bale hins vegar
upp á stjörnuhimininn enda kvikmynd-
in með því allra besta sem gerist í
myndasöguheiminum. Sú einstaka
velgengni hefur orðið til þess að
stórir leikstjórar falast eftir kröft-
um hans; Michael Mann réð hann
í Puplic Enemies á móti Johnny
Depp. Auk þess mun Bale leika
hershöfðingjann Steve Jacoby í
kvikmyndinni Killing Pablo en
honum var falið að elta uppi
Pablo Escobar. Það verður hinn
nýkrýndi Óskarsverðlaunahafi,
Javier Bardem, sem sér síðan um
að kólumbíski eiturlyfjabaróninn
vakni til lífsins á hvíta tjaldinu. - fgg
Christian Bale í tortímingahug
ÓTRÚLEG VELGENGNI Batman Begins fékk frábæra dóma og
hefur verið hælt sem einni bestu myndasögu-kvikmynd allra
tíma.
ÓLÍKINDATÓL Christian
Bale hefur síður en svo
valið hina hefðbundnu
leið upp á topp og nú
er ráðgert að hann leiki
John Connor í þremur
kvikmyndum.
Endurkoma ársins verður loks að
veruleika hjá íslenskum aðdáend-
um Indiana Jones þegar fjórða
myndin, Indiana Jones and the
Kingdom of the Crystal Skull,
verður tekin til sýningar í dag.
Myndin var frumsýnd við hátíð-
lega athöfn á Cannes í síðustu viku
og hefur hálfpartinn stolið sen-
unni við frönsku Rívíeruna.
Þau Cate Blanchett, Harrison
Ford og Steven Spielberg hafa
verið ákaflega áberandi og Spiel-
berg lýst því yfir að hann sé reiðu-
búinn að gera fleiri myndir um
Indiana. Viðtökur gagnrýnenda
hafa verið jákvæðar en fréttarit-
ari BBC í Frakklandi hafði þó eftir
einum gesti að fjórða myndin
hefði ekki staðið undir væntingum
sannra aðdáenda mannsins með
hattinn. Aðrir áhorfendur voru
hins vegar ekki á sama máli og sá
ágæti maður og aldrei þessu vant
var stappað og klappað fyrir Kan-
anum í frönskum bíósal.
Vefsíða IMDB er heldur ekkert
að spara einkunnagjöfina, níu í
einkunn af tíu segir allt sem segja
þarf um hversu magnþrunginn
upplifunin hefur verið. Rotten
Tomatoes, sem kallar ekki allt á
ömmu sína, tekur ekki alveg svo
djúpt í árina en myndin fær engu
að síður 78 prósent af hundrað og
telst því frábær að mati gagnrýn-
enda víða um heim.
- fgg
Indiana frumsýndur í dag
> ERFITT HJÁ KENNEDY
Væntanlega geta aðdáendur Jamies
Kennedy farið áhyggjulausir í
kvikmyndahúsin um helgina en
Sena frumsýnir um helg-
ina nýjustu gamanmynd
Kennedy, Kickin It old
Skool. Myndin segir frá
breikmeistara sem vaknar
eftir tuttugu ára dásvefn
og hyggst ná fyrri hæðum í
listgrein sinni.
NÝR Á LISTA Bille August fær vilyrði fyrir fram-
leiðslustyrk frá Kvikmyndamiðstöð Íslands en
hann hyggst leikstýra A Journey Home.
INDY MÆTTUR Fjórða myndin verður
frumsýnd á Íslandi í dag.
bio@frettabladid.is