Fréttablaðið - 27.05.2008, Síða 2

Fréttablaðið - 27.05.2008, Síða 2
2 27. maí 2008 ÞRIÐJUDAGUR SKOÐANAKÖNNUN 4,2 prósent segj- ast bera mikið traust til Ólafs F. Magnússonar borgarstjóra, sam- kvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Að auki segjast 9,5 prósent bera mikið traust til hans. Samanlagt eru það því 13,7 pró- sent sem bera mikið eða mjög mikið traust til borgarstjóra. Hins vegar segjast 46,8 prósent bera mjög lítið traust til Ólafs og 20,3 prósent bera lítið traust til hans. Samanlagt er það því 67,1 prósent sem bera lítið eða mjög lítið traust til Ólafs. 19,2 prósent segjast hvorki bera lítið né mikið traust til Ólafs. Konur treysta Ólafi aðeins betur en karlar. 14,9 prósent kvenna segjast bera mikið eða mjög mikið traust til hans, en 12,6 prósent karla. Þá segjast 63,9 prósent kvenna bera lítið eða mjög lítið traust til borgarstjóra, en 70,1 pró- sent karla. Ef litið er til trausts á borgar- stjóra eftir fylgi við stjórnmála- flokka er minnihluti allra flokka sem segist bera mikið eða mjög mikið traust til Ólafs. Mest traust er borið til borgarstjóra meðal Frjálslyndra og sjálfstæðismanna, eða 40,0 prósent Frjálslyndra og 33,0 prósent sjálfstæðismanna, sem segjast bera mikið eða mjög mikið traust til hans. 46,7 prósent Frjálslyndra og 33,9 prósent sjálf- stæðismanna bera hins vegar lítið eða mjög lítið traust til hans. 15,4 prósent framsóknarfólks ber mikið eða mjög mikið traust til Ólafs, en 76,9 prósent þeirra ber lítið eða mjög lítið traust til hans. 8,3 prósent kjósenda Vinstri grænna og 4,1 prósent Samfylk- ingar treystir borgarstjóra mikið eða mjög mikið. 75,0 prósent Vinstri grænna og 88,5 prósent samfylkingarfólks treystir honum hins vegar lítið eða mjög lítið. Ef litið er til þeirra sem ekki gefa upp stuðning við flokk segj- ast 8,7 prósent bera mikið eða mjög mikið traust til Ólafs. 69,4 prósent bera lítið eða mjög lítið traust til hans og 21,8 prósent segjast hvorki bera mikið né lítið traust til borgarstjóra. Hringt var í 600 Reykvíkinga á kosningaaldri laugardaginn 24. maí og skiptust svarendur jafnt eftir kyni. Spurt var: Hversu mikið traust berð þú til núverandi borgarstjóra, Ólafs F. Magnús- sonar? 91,2 prósent aðspurðra tóku afstöðu til spurningarinnar. svanborg@frettabladid.is Fjórtán prósent bera traust til borgarstjóra Um 67 prósent segjast bera lítið eða mjög lítið traust til Ólafs F. Magnússonar borgarstjóra. Tæp 14 prósent bera mikið eða mjög mikið traust til hans. Rúm 19 prósent segjast hvorki bera mikið né lítið traust til Ólafs. TRAUST TIL BORGARSTJÓRA Mjög mikið 4,2% Mikið9,5% Hvorki né 19,2% Lítið 20,3% Mjög lítið 46,8% SKV. KÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS 24. MAÍ flugfelag.is Aðeins eitt símtal í 570 3400 og málið er afgreitt. Flugfrakt Sækjum og sendum – hratt og örugglega á hagstæðu verði. REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR FÆREYJARVESTMANNAEYJAR ÍSAFJÖRÐUR GRÆNLAND VOPNAFJÖRÐUR ÞÓRSHÖFN GRÍMSEY NARSARSSUAQ KULUSUK CONSTABLE POINT NUUK Til/frá Reykjavík Akureyri 8-12 ferðir á dag Egilsstaðir 5-7 ferðir á dag Ísafjörður 2-3 ferðir á dag Vestmannaeyjar 2-3 ferðir á dag JAPAN, AP Umhverfisráðherrar aðildarríkja G8-hóps mestu iðn- ríkja heims náðu í gær sam- komulagi um að stefnt skyldi að því að draga úr losun gróður- húsalofttegunda um helming fram til miðrar aldarinnar. Lýstu þeir því yfir að þróuðustu ríkin yrðu að ganga fram fyrir skjöldu í baráttunni gegn loftslagsbreyt- ingum. Með fundi ráðherranna í Kobe um helgina var ætlunin að leggja grunn að sameiginlegri stefnu- yfirlýsingu um aðgerðir í lofts- lagsmálum á leiðtogafundi G8 í Japan í júlí. Í ályktun ráðherr- anna segir einnig að sett skuli markmið um samdrátt losunar næsta áratuginn, fram til ársins 2020, en ekki var tilgreint hve mikill hann skyldi vera í pró- sentum. Bandaríkin hafa ekki viljað samþykkja skuldbindandi losunarmarkmið fyrir árið 2020 og Japanir eru einnig tregir til þess. Viðleitni G8-hópsins til mark- miðasetningar á þessu sviði er einnig liður í undirbúningi lofts- lagsráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna í Kaupmannahöfn á næsta ári, þar sem til stendur að semja um arftakasamkomulag Kyoto- bókunarinnar sem rennur út árið 2012. - aa UMHUGAÐ UM UMHVERFIÐ Ichiro Kamoshita, umhverfisráðherra Japans 2. f.v., ásamt kollegum frá hinum G8-ríkj- unum á fundinum í Kobe. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Umhverfisráðherrar G8-hóps mestu iðnríkja heims álykta um loftslagsmál: Losun helminguð fram til 2050 DÓMSMÁL Maður var í Héraðs- dómi Suðurlands í gær sýknaður af ákæru um að hafa ekið bíl út af Suðurlandsvegi ölvaður og undir áhrifum kókaíns. Dómnum þykir ekki sannað að hann hafi ekið bílnum. Enginn gat sagt lögreglu til um hver hefði ekið, en sá ákærði, sem hafði bíllyklana í vasa sínum, sagði fjórða mann hafa ekið, sem hefði horfið sporlaust og hann kynni engin frekari deili á. Segir í dómnum að þessi framburður sé með ólíkindum, en samt sem áður þykir ósannað hver það var sem sat undir stýri. - sh Sýknaður af ölvunarakstri: Enginn veit hver ók bílnum ALÞINGI Starfsemi Fjöl smiðjunn- ar er mikilvæg og það þarf að finna lausn á húsnæðisvanda hennar. Að því er unnið, sagði Jóhanna Sigurð- ardóttir félags- málaráðherra á Alþingi í gær. Birkir Jón Jónsson Fram- sóknarflokki tók málið upp á þingfundi en greint var frá húsnæðisvanda Fjölsmiðjunnar í Fréttablaðinu í gær. Sagði Birkir málið standa upp á ríkisstjórnina og svaraði Jóhanna því til að rætt hefði verið við sveitarfélögin sem að starfseminni standa ásamt ríkinu. Málið væri því í farvegi. - bþs Félagsmálaráðherra: Unnið að lausn húsnæðisvanda Fjölsmiðjunnar JÓHANNA SIG- URÐARDÓTTIR DANMÖRK Þúsundir hollra þegna dönsku konungsfjölskyldunnar söfnuðust saman fyrir utan Amalíuborgarhöll í Kaupmanna- höfn í gær til að óska Friðriki krónprins til hamingju á fertugs- afmælisdegi hans. Heillaóskendur prinsins létu hellirigningu ekki á sig fá er prinsinn þakkaði fyrir sig af svölum hallarinnar, með eiginkon- una Maríu Elísabetu og börnin tvö með sér. Foreldrar Friðriks, Margrét Þórhildur drottning og Hinrik prins, létu líka sjá sig. Meðal gjafa sem prinsinn fékk var forláta riffiltaska úr selskinni frá grænlensku landstjórninni. - aa Danir samgleðjast prinsi: Friðrik krón- prins fertugur FERTUGUR Hjónin Friðrik og María Elísabet brosa blítt á Bessastöðum á dögunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ALÞINGI Atkvæðagreiðsla Alþingis í gær um fjögur frumvörp um skólamál tók tvær og hálfa klukkustund. Var þeim að endingu vísað aftur til umfjöllun- ar menntamálanefndar. Frumvörpin fjalla um leik-, grunn- og framhaldsskóla og menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda á skólastigunum þremur. Kolbrún Halldórsdóttir, VG, lagði fram fjölda breytingartil- lagna við frumvörpin og Höskuldur Þór Þórhallsson, Framsóknarflokki, hafði líka margvíslegar athugasemdir fram að færa. - bþs Maraþonatkvæðagreiðsla: Skólamálin aft- ur til nefndar ALÞINGI Hægt verður að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans um sem nemur allt að 500 milljörð- um króna samkvæmt frumvarpi fjármálaráðherra sem dreift var á Alþingi í gær og rætt verður í þinginu í dag. Frumvarpið kveður á um að fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, verði heimilt að taka slíkt lán og endurlána það Seðlabankanum. Auk þess að efla gjaldeyrisforðann þykir æskilegt að svigrúm ríkissjóðs verði aukið til útgáfu ríkisverðbréfa á innlendum markaði ef þess er talin þörf, í því skyni að efla innlent fjármála- kerfi og stuðla að stöðugleika á gjaldeyrismarkaði, að því er fram kemur í athugasemdum frumvarps- ins. Segir að mikil eftirspurn eftir skammtíma- bréfum að undanförnu hafi dregið nokkuð úr virkni peningastefnu Seðlabankans og haft óheppileg hliðaráhrif á skuldabréfa- og gjaldeyris- markaði. Ekki liggur fyrir hvenær, að hvaða marki, í hvaða áföngum eða í hvaða hlutföllum erlendrar og innlendrar lántöku heimildin verður nýtt. Mun það ráðast af aðstæðum. Áhrif hugsanlegrar lántöku á afkomu ríkissjóðs eru óljós enda ráðast þau af kjörum. - bþs Frumvarp um lántöku fyrir Seðlabankann verður rætt á Alþingi í dag: Gjaldeyrisforðinn styrktur ALÞINGI Frumvarp um lántöku ríkissjóðs verður rætt í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Á að fjölga námsstöðum? Valgerður Sverrisdóttir, Framsóknar- flokki, vill vita hvort heilbrigðisráð- herra hyggist fjölga námsstöðum í heimilislækningum þar sem meira en 60 heimilislæknar munu á næstu árum hætta störfum sökum aldurs. ALÞINGI Valgarð, ertu enn hægri maður? „Já, það má segja að ég sé fæddur svona, oftast eru það mistök að fara of langt til vinstri.“ Í gær voru 40 ár liðin frá því Íslendingar breyttu úr vinstri umferð í þá hægri. H-dagurinn, en svo var dagurinn kallaður, markaði tímamót í sögu þjóðarinnar. Valgarð Briem lögfræðingur var fyrsti maðurinn til að skipta yfir á hægri akrein. Jón spyr um póstinn Jón Bjarnason VG vill svör frá samgönguráðherra um framtíð póstþjónustu í landinu. Vill hann vita hvort áform séu uppi um að fækka póstburðardögum víðar en þegar hefur verið ákveðið og hvort lokanir póstafgreiðslna séu fyrirhugaðar. ÓLAFUR F. MAGNÚSSON BORGARSTJÓRI Konur treysta Ólafi aðeins betur en karlar. Alls segjast 14,9 prósent kvenna bera mikið traust til Ólafs en12,6 prósent karla. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.