Fréttablaðið - 27.05.2008, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 27.05.2008, Blaðsíða 6
6 27. maí 2008 ÞRIÐJUDAGUR Hafðu samband við nemendur skólans og fáðu upplýsingar um allt er varðar námið, félagslífið, stúdentagarða, LÍN, kennara eða annað sem þér dettur í hug. Hægt er að hringja í okkur í síma 840 8030 milli kl. 12 og 18 alla virka daga. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á fsha@fsha.is www.fsha.is www.haskolanam.is www.unak.is Háskólann á Akureyri Ertu að hugsa um háskólanám? Gakktu í hóp ánægðra nemenda við Dagskrá fundarins er: Skýrsla stjórnar um framkvæmdir og starfsemi samtakanna á liðnu starfsári. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga til umræðu og samþykktar. Lagabreytingar ef fyrir liggja tillögur um þær. Kosning stjórnar, varastjórnar, endurskoðenda og varaendurskoðenda. Tekin ákvörðun um félagsgjöld. Önnur mál. Aðalfundur SÁÁ verður haldinn miðvikudaginn 30. maí kl. 17 í Efstaleiti 7. PERSÓNUVERND Persónuvernd segir að Sjúkrahús Akureyrar hafi ekki mátt afhenda Capacent Gallup gögn um þá sjúklinga sem lágu á spítal- anum á árinu 2007. Maður sem lá á Sjúkrahúsi Akur- eyrar snemma árs taldi óeðlilegt að utanaðkomandi fyrirtæki eins og Capacent Gallup hefði fengið upp- lýsingar um spítalavist hans. Að sögn fulltrúa sjúkrahússins hafði Capacent Gallup verið falið að framkvæma könnun á viðhorfi sjúklinga til þjónustu sjúkrahúss- ins. Áðurnefndur sjúklingur óskaði eftir því að Persónuvernd kannaði hvort unnið hefði verið í samræmi við lög um persónuvernd. Í bréfi til hans hafi komið fram að bæðist hann ekki sérstaklega undan því myndi starfsmaður Gallup hringja í hann. Gallup fékk síðan að vita um bæði þá sem vildu vera með í könn- uninni og þá sem vildu það ekki. „Það er ekkert ólíklegt að [á sjúkrahúsinu] hafi verið fólk sem var að gera eitthvað sem því fannst mjög viðkvæmt og vill gleyma, og þó svo að Gallup viti ekkert hvað þetta fólk var að gera á sjúkrahús- inu þá getur það tekið á að fá allt í einu símtal frá ókunnugum sem vita að þú varst á sjúkrahúsinu og þú veist ekki hvað þeir vita um þig meira!“ vitnar Persónuvernd í erindi mannsins. Eftir mikla eftirgangsmuni og margítrekaðar óskir frá því í júní í fyrra fékk Persónuvernd loks svör frá Halldóri Jónssyni, forstjóra Sjúkrahúss Akureyrar, í janúar og febrúar á þessu ári. Svör frá sjúkra- húsinu við ítrekuðum viðbótar- spurningum Persónuverndar bár- ust síðan í apríl. Halldór sagði að samið hefði verið við Gallup á árinu 2004 um gerð tveggja þjónustukannana á árunum 2005 og 2007. Persónu- vernd hefði í apríl 2005 verið send tilkynning um verkefnið „Gæði frá sjónarhóli sjúklings“. Persónuvernd segir að þótt til- kynning sjúkrahússins hafi á árinu 2005 verið birt á heimasíðu Persónu- verndar þá hafi ekki verið tekin afstaða til erindisins. Auk þess væri ekki getið um að endurtaka ætti könnunina á árinu 2007. „Í því máli sem um ræðir liggur fyrir að upplýsingum um einstakl- inga, þar á meðal kennitölum þeirra, sem lágu á Sjúkrahúsi Akur- eyrar var miðlað til utanaðkomandi aðila,“ segir Persónuvernd og kveð- ur upp úr með að slíkt hafi verið óheimilt í tilfelli mannsins sem kvartaði enda um viðkvæmar persónu upplýsingar að ræða: „Ekki verður litið svo á að ein- staklingur hafi samþykkt miðlun viðkvæmra upplýsinga með því að láta hjá líða að andmæla henni.“ gar@frettabladid.is Gallup afhent nöfn án leyfis sjúklinga Sjúkrahús Akureyrar braut lög um persónuvernd með því að senda Gallup upp- lýsingar um nöfn sjúklinga sem lágu á spítalanum. Samþykki sjúklinganna lá ekki fyrir. Gallup gerði könnun á viðhorfi til þjónustunnar fyrir sjúkrahúsið. Hringdu í síma ef blaðið berst ekki Er útskriftarveisla á dagskrá hjá þér þetta vorið? Já 25% Nei 75% SPURNING DAGSINS Í DAG: Myndir þú vilja spilakassa burt úr skólahverfum? Segðu skoðun þína á visir.is. SJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI Spítalastjórnin vildi vita hug sjúklinga til þjónustunnar en braut á þeim lög um persónuvernd í leiðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA MENNTAMÁL Umboðsmaður Alþing- is gerir athugasemdir við starfs- hætti málskotsnefndar Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN) í nýlegu áliti. Embættið hefur í tvígang fjall- að um kvartanir sama einstak lings vegna úrlausna nefndarinnar og komist að þeirri niðurstöðu að nefndin hafi ekki leyst rétt úr álitamálum sem þar komu upp. „Þessi mál og fleiri sem ég hef haft til athugunar um úrlausnir nefndarinnar eru mér tilefni til þess að vekja athygli nefndarinn- ar á nauðsyn þess að hún hugi betur að starfsháttum sínum,“ segir meðal annars í álitinu. Umboðsmaður fjallar um þá ákvörðun málskotsnefndar að áætla tekjur á lánþega sem var að endurgreiða lán, en var ekki með tekjur hér á landi. Var á því byggt að hann hafi dvalið í Bandaríkjun- um og óskað eftir því að hann afhenti gögn sem sýndu fram á tekjur eða tekjuleysi þar í landi. Vegna orðalags í lögum hefði nefndin átt að ganga úr skugga um að lánþeginn sé sannarlega ekki skattskyldur af öllum tekjum hér á landi eins og lánþeginn hélt fram, að mati umboðsmanns. Það gerði nefndin ekki. Umboðsmaður Alþingis komst að þeirri niðurstöðu að úrskurður málskotsnefndarinnar hafi ekki verið í samræmi við stjórnsýslu- lög og lagði það fyrir nefndina að taka málið til meðferðar á ný. - bj Umboðsmaður Alþingis gagnrýnir málsmeðferð málskotsnefndar LÍN: Hugað verði að starfsháttum LÍN Umboðsmaður Alþingis lagði það fyrir málskotsnefnd LÍN að fjalla aftur um mál lánþega. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI REYKJAVÍK Könnun Fréttablaðsins leiddi í ljós að um 60 prósent Reykvíkinga vilja flugvöllinn úr Vatns- mýri. Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarfulltrúi sjálfstæðismanna, segir niðurstöðuna ekki koma á óvart. Málið sé umdeilt. „Á meðan ekki er ljóst hvert flugvöllurinn myndi fara er þetta skiljanleg niðurstaða. Sjálf tel ég að hann fari á endanum, þótt það verði ekki á næstu árum,“ segir Hanna. Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknar, segir niðurstöðurnar skiljanlegar. „Við framsóknarmenn lögðum fram sáttatillögu um að völlurinn færi á Löngusker eða grynningar þar við. Ef það gengur ekki á hann að vera þar sem hann er.“ Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi VG, segir könnunina athyglisverða. „Það vekur athygli að meirihluti Vinstri grænna vill sjá uppbyggingu í Vatnsmýrinni. Jafnframt gera menn kröfu um að innanlandsfluginu verði fundinn öruggur staður í framtíðinni.“ Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylking- ar, segir niðurstöðuna koma á óvart í ljósi stöðu efnahagsmála. „Í þessu svæði búa gríðarleg verðmæti og það er dýrt að hafa flugvöll þarna,“ segi Dagur. Hann segir það verkefni kjörinna fulltrúa að vinna að sátt í málinu. Í yfirlýsingu sem Ólafur F. Magnússon borgar- stjóri sendi frá sér fagnar hann niðurstöðu könnun- arinnar. Hann segir hana sýna að sjónarmið hans í málinu njóti meirihlutafylgis. - kóp Skoðanakönnun Fréttablaðsins um flugvöll í Vatnsmýrinni: Fulltrúar ekki á eitt sáttir FLUGVÖLLURINN Um 60 prósent aðspurðra vildu ekki að flug- völlurinn færi úr Vatnsmýrinni í könnun Fréttablaðsins. ALÞINGI Allsherjarnefnd bárust 53 umsóknir um ríkisborgararétt á vorþingi. Nefndin lagði til að 24 af þeim sem sóttu um yrði veittur ríkisborgararéttur. Meðal þeirra er Sævar Ciesielski en hann hefur verið án ríkisfangs. Atli Gíslason, þing- maður og nefndarmaður í undirnefnd allsherjarnefndar, segir að Sævar hafi fyrst haft bandarískt ríkisfang þar sem þágildandi lög kváðu á um að ríkisfang barna stýrðist af föður. Sævar hafi ávallt búið á Íslandi og ekkert því til fyrirstöðu að veita ríkisfang. Alger samstaða hafi verið um þessa veitingu. - kdk Sævar Marinó Ciesielski: Fær íslenskt ríkisfang KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.