Fréttablaðið - 27.05.2008, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 27. maí 2008 13
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 236
4.783 -0,94% Velta: 1.841milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 7,06 +0,00% ... Bakkavör
34,50 -1,71% ... Eimskipafélagið 20,10 +0,00% ... Exista 10,02
-0,89% ... Glitnir 17,45 -0,85% ... Icelandair Group 20,55 -1,68%
... Kaupþing 776,00 -1,15% ... Landsbankinn 25,45 -0,97% ... Marel
95,20 -0,31% ... SPRON 4,47 -0,89% ... Straumur-Burðarás 11,41
-0,26% ... Teymi 3,35 +0,60% ... Össur 97,30 -0,51%
MESTA HÆKKUN
FÆREYJA BANKI +1,65%
CENTURY ALUM. +1,11%
TEYMI +0,6%%
MESTA LÆKKUN
ATL. PETROLEUM -6,73%
EIK BANKI -2,52%
BAKKAVÖR -1,71%
Umsjón: nánar á visir.is
Fjármálaeftirlitið hefur veitt
Tryggingamiðstöðinni hf. heimild
til þess að kaupa Íslenska
endurtryggingu hf. Fyrir kaupin
átti Tryggingamiðstöðin hf.
36,02% af heildarhlutafé
Ís lenskrar endurtryggingar hf. en
á nú félagið í heild.
Samkvæmt upplýsingum frá
Fjármálaeftirlitinu hefur
starfsemi Íslenskrar endurtrygg-
ingar einskorðast frá árinu 2000
við að gera upp eldri endurtrygg-
ingarsamninga. Í ljósi þessarar
stöðu varð það nýverið að
samkomulagi að helstu eigendur
félagsins myndu gera tilboð í
aðra eignarhluti í félaginu. Boði
Tryggingamiðstöðvarinnar hf.
var tekið. Auk Tryggingamið-
stöðvarinnar hf. og tíu annarra
aðila áttu Vátryggingafélag
Íslands hf. og Sjóvá Almennar
tryggingar hf. eignarhlut í
félaginu. -bih
TM má kaupa
Staðgreiðsluverð íbúðarhúsnæðis á
höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 1,6
prósent í mars að teknu tilliti til árstíða-
sveiflu. Árshækkunin nam 7,0 prósentum.
Fjölbýli lækkaði um 2,2 prósent milli
mánaða og hefur ekki lækkað jafn mikið
frá því í maí árið 2001, segir í Hagvísum
Seðlabanka Íslands.
Verðbólga mæld sem breyting á vísitölu
neysluverðs hækkaði um 3,4 prósent í
apríl og hefur hækkað um 11,8 prósent á
síðustu 12 mánuðum. Mest áhrif hafði
verðhækkun nýrra bíla um 11 prósent og
hækkun á mat og drykkjarvörum um 6,4
prósent.
Helstu vísbendingar um eftirspurn
benda til að áfram hafi hægt á vextinum í
apríl. Nýskráningum bifreiða fækkaði
milli ára í apríl annan mánuðinn í röð, um
tæplega 37 prósent. Vöruviðskipti við
útlönd voru óhagstæð um 2,8 milljarða
króna í mars.
Sementssala án stóriðju virðist vera að
aukast. Nam ársvöxtur hennar tæplega 35
prósent í apríl en eitt prósents samdráttur
varð á fyrsta fjórðungi ársins. Væntinga-
vísitala Gallup hækkaði lítillega í apríl en
mældist 30 prósentum lægri í ár en á
sama tíma og í fyrra.
Í Hagvísum Seðlabankans kemur einnig
fram að ríkissjóður skilaði betri afkomu
en á sama tíma í fyrra. Afgangur ríkis-
sjóðs var um fjórum milljörðum króna
meiri í ár en í fyrra. - bþa
Íbúðaverð á niðurleið
en sementsala eykst Vísitala neysluverðs í maí er 304,4
stig og hækkaði um 1,37 prósent
frá fyrra mánuði, samkvæmt mæl-
ingum Hagstofunnar. Vísitala
neysluverðs án húsnæðis er 273,6
stig og hækkaði um 1,48 prósent
frá apríl.
Gengissig krónunnar og erlend-
ar verðhækkanir halda áfram að
skila sér út í verðlagið. Verð á
bensíni og olíu hækkaði um 5,7
prósent. Síðastliðna tólf mánuði
hefur vísitala neysluverðs hækkað
um 12,3 prósent en án húsnæðis
um 11,4 prósent. Undanfarna þrjá
mánuði hefur vísitala neysluverðs
hækkað um 6,4 prósent sem jafn-
gildir 28 prósenta verðbólgu á ári.
- as
Vísitala neyslu-
verðs hækkar
Marel Food Systems lauk á föstu-
dag við sölu skuldabréfa fyrir
jafnvirði sex milljarða króna. Í
næstu viku stefnir fyrirtækið á
hlutafjárútboð. Því mun ljúka á
föstudag í næstu viku.
Þeir hluthafar Marel sem heim-
ild hafa til að taka þátt í útboðinu
þurfa að vera skráðir hluthafar í
enda 2. júní. Auk hluthafa munu
þeir fjárfestar sem óska sérstak-
lega eftir hlutum verða að skrá sig
fyrir 75 þúsund hlutum hið
minnsta, líkt og segir í tilkynn-
ingu.
Söluverðmæti hlutanna nemur
117 milljónum evra, jafnvirði
þrettán milljarða króna. Marel
hefur hins vegar heimild til að
auka hlutinn í 147 milljónir evra
verði umframeftirspurn í útboð-
inu. - jab
Marel selur fyr-
ir sex milljarða
HÖRÐUR ARNARSON FORSTJÓRI Marel
hefur selt skuldabréf fyrir sex milljarða
króna og stefnir á hlutafjárútboð.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ungverjar hækkuðu stýrivexti í
gær úr 8,25 prósent í 8,5. Ung-
verjar eru í hópi hávaxtaríkja og
glíma líkt og við Íslendingar við
versnandi verðbólguhorfur.
Norðmenn og Pólverjar tilkynna
um vaxtaákvarðanir á morgun og
er búist við að Norðmenn haldi
stýrivöxtum óbreyttum í 5,5
prósentum og Pólverjar einnig í
5,75 prósent. -as
Hækka vextina