Fréttablaðið - 27.05.2008, Side 16

Fréttablaðið - 27.05.2008, Side 16
16 27. maí 2008 ÞRIÐJUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 RITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Kristján Hjálmarsson, Trausti Hafliðason og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál). FULLTRÚI RITSTJÓRA: Páll Baldvin Baldvinsson. VIÐSKIPTARITSTJÓRAR: Björn Ingi Hrafnsson og Óli Kr. Ármannsson. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á suðvesturhorninu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 Sá tími er liðinn að fólk ráði sig hjá traustu fyrirtæki, vinni sig upp og starfi þar í áratugi, jafnvel þar til það fer á eftirlaun. Fólk vill gjarnan tilbreytingu, gerir kröfu um að vera ánægt í vinnunni og vill kannski mennta sig meira á miðjum aldri eða víkka sjóndeildarhringinn með því að vinna erlendis um tíma. Aðrir vilja fyrst og fremst stöðugleika, kjósa að vera hjá sama fyrirtæki sem lengst og leggja mikið upp úr trausti og trúnaði við það. Hins vegar er ekki á vísan að róa með traust fyrirtæki lengur. Þau geta fyrr en varir verið komin í eigu nýrra aðila sem gefa lítið fyrir starfs- reynslu og trúnað við vinnustað- inn. Vilja ný andlit og kalla það frískara yfirbragð. Einnig er nokkuð um að samruni fyrir- tækja kalli á breytta þjónustu og nýja þekkingu. Ef marka má aðferðir við uppsagnir víðast hvar, er ljóst að gengisfall hefur orðið á því að vera traustur og góður vinnu- kraftur. Starfsmaður er nú gjarnan kallaður inn á skrifstofu einhvers deildarstjóra, umbúða- laust sagt upp störfum og tilkynnt að hann verði að yfirgefa vinnustaðinn strax. Síðan er staðið yfir honum meðan hann tekur saman persónulegar eigur og honum fylgt út á hlað. Punktur. Jafnvel eftir þrjátíu ára starf. Sé um um hópuppsagnir að ræða er mönnum kannski boðið að setjast niður saman, síðan birtist forstjórinn á skjá eða tjaldi, segir þeim tíðindin og þakkar fyrir góð störf. Ekki einu sinni handtak. Það segir sig sjálft að það er hart fyrir hvern sem er að vera sviptur sjálfsvirðingunni um leið og afkomunni, ekki síst vegna þess að það er algjör óþarfi. Eina sem stjórnandinn þarf að gera er að koma fram við starfsmann á þessum tímamótum eins og hann væri frændi hans eða skólabróðir, en ekki númer á launaskránni. Ég er farinn Reyndar er rétt að gangast við því að það er barnaskapur að vísa til vensla eða vinatengsla í samhengi við uppsagnir á vinnustað þegar litið er til þess hvernig margir kjósa að slíta hjónabandi sínu. Stundum er aðdragandi að hjónaskilnuðum og báðir aðilar gera sér grein fyrir hvert stefnir. Hitt er býsna algengt að annar aðilinn telji sig vera í traustu og jafnvel ham- ingjuríku sambandi þegar höggið kemur. Karlmaður á miðjum aldri kom ekki heim til sín eina nóttina og var kona hans að vonum áhyggju- full. Undir morgun mætti hann og sagðist vera fluttur. Vera búinn að finna aðra konu, rétt eins og hann hefði fengið sér nýjan bíl. Rúmlega þrítugur maður, faðir tveggja barna kom fram einn morguninn með ferðatösku í hendi þegar börnin hans sátu og snæddu morgunverð og móðir þeirra var að útbúa nesti fyrir þau. – Ertu að fara í ferðalag? spurði konan forviða. „Nei ég er að flytja héðan. Ég vil fá skilnað,“ sagði hann, tók upp töskuna, gekk út og lokaði á eftir sér. Kona sem verið hafði í hjóna- bandi á þriðja áratug og rak heimili sem var rómað fyrir samheldni og glaðværð, sá einn daginn að umslagi hafði verið tyllt undir eitt hornið á stóru málverki í stofunni, þannig að ekki var hægt annað en taka eftir því. Í umslaginu reyndist vera bréf frá manninum hennar sem sagðist vera orðinn ástfanginn af annarri konu, og vildi skilja. Öll þessi dæmi vitna um tilfinningalegan vanmátt. Menn treysta sér ekki til að setjast niður og ræða málið við fólkið sem það hefur deilt lífi sínu með. Finna ekki flöt á því og flýja því ábyrgðina á þessari ákvörðun. Það er auðvitað bara mannlegt, en breytir ekki því að áfall maka og barna verður margfalt þyngra og sárara fyrir vikið. Ung kona sem ég þekki segir skilnað foreldra sinna ekki hafa verið erfiðan fyrir sig, en hún kæmist enn í uppnám þegar hún rifjaði upp hvernig faðir hennar gekk fyrirvaralaust út af heimilinu eins og ekkert væri sjálfsagðara, af því hann taldi sig hafa fundið heitara rúm í öðru húsi. Aðeins 40 prósent! Umrót á vinnustöðum og heimil- um eru ekki sér íslenskt fyrirbæri og þróunin getur orðið á hvaða veg sem er. Í nýlegri grein kemur fram að 55% hjónabanda í Svíþjóð endi með skilnaði en aðeins 40% á Íslandi. Einhvern tíma hefði orðið „aðeins“ ekki staðið framan við þá skilnaðartíðni. Hreyfing á vinnuafli og skilnaðartíðnin eru hluti af stærra samhengi og sá veruleiki sem við búum við. En þegar fólk stendur fyrirvaralaust frammi fyrir hjónaskilnaði og atvinnumissi er virðing fyrir tilfinningum þess hvorki gamaldags né framúr- stefnuleg, heldur sjálfsagður hlutur. Sjálfsagður hlutur JÓNÍNA MICHAELSDÓTTIR Í DAG | Umrót UMRÆÐAN Anna Birna Almarsdóttir skrifar um lyfjamál Á næstu vikum mun Rannsóknastofnun um lyfjamál (RUL) við Háskóla Íslands standa fyrir vitundarvakningu um hvernig best sé að losa heimilið við ónothæf lyf. Vitundarvakningin er unnin í samstarfi við apótekin og Landspítala-háskólasjúkrahús. Hún er jafnframt liður í rannsóknarverk- efni um umfang og ástæður þess að lyfjum er hent. Um er að ræða hagnýta rannsókn sem mun vonandi gefa af sér mikilvægar upplýsingar um kostnað, ástæður og magn lyfja sem er hent á Íslandi. Þessar upplýsingar geta þá gefið hugmynd- ir um hvernig megi minnka það magn lyfja sem er hent, og þannig spara heilbrigðiskerfinu umtals- verðar fjárhæðir ár hvert. Reynslan sýnir að 57% eitrunartilfella eiga sér stað á heimilum landsins. Hætta er á að börn komist í lyf og hljóti skaða af og því er mikilvægt að geyma lyf á viðeigandi stöðum (s.s. í læstum skápum) og skila ónothæfum lyfjum til apóteka sem fyrst eftir að þau verða ónothæf. Þá eykur geymsla ónothæfra lyfja á heimilum hættuna á misnotkun lyfja. Eitrunarmiðstöð Landspítala- háskólasjúkrahúss berast oft fyrirspurnir er varða eitranir hjá börnum. Algengustu fyrirspurnirnar varða lyf og röng inntaka lyfja er jafnframt ein helsta ástæða vísana á slysadeild eða sjúkrahús. Á árunum 2001- 2002 voru skráð u.þ.b. 2,5 eitrunartilvik á hver 1.000 börn undir 9 ára aldri á íslensk- um heilbrigðisstofnunum. Tíðni eitrana meðal fólks 70 ára eða eldri er svipuð og hjá börnum. Umhverfinu stafar einnig hætta af lyfjum sem ekki er fargað með viðeigandi hætti. Lyf sem hent er í salerni eða rusl geta mengað vatnsból og jarðveg og haft neikvæð áhrif á lífríki. Umhverfisverndarstofnun Banda- ríkjanna (EPA) lýsti nýlega vaxandi áhyggjum á lyfjamengun vatnsbóla landsins. Þó Íslendingar hafi greiðan aðgang að ómenguðu vatni, eru enn ákveðin svæði á Íslandi þar sem yfirborðsvatn er nýtt til neyslu og þar er meiri hætta á hvers konar vatnsmengun en þar sem grunnvatni er veitt. Lyf eru lífvirk efni og geta því leitt til breytinga á lífríkinu. Því er ekki ástæða til annars en að farga lyfjum með því að skila þeim í apótek þar sem þeim er síðan fargað á öruggan hátt. Höfundur er forstöðumaður Rannsóknastofnunar um lyfjamál. Afeitrum heimilið ANNA BIRNA ALMARSDÓTTIR Til verka! Ólíkt Ólafi F. Magnússyni borgar- stjóra, sem túlkar öll tíðindi sér í hag, vita sjálfstæðismenn í Reykjavík að þeir eru í öldudal og hafa því gripið til fumlausra mótvægisaðgerða. Í gær sendi Sjálfstæðisflokkurinn frá sér fréttatilkynningu þess efnis að borgarstjórnar- flokkurinn hefði opnað nýja heimasíðu – í nýrri og glæsilegri mynd! Nú þegar þetta þjóðþrifaverk er frá geta sjálfstæðismenn í borginni væntanlega kastað mæðinni og farið að einbeita sér að öðrum málum. Til dæmis pólitík. Vinsælt embætti Umsóknarfrestur um starf fram- kvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga rann út 19. maí. Alls sóttu 22 um. Í hópi umsækjenda um starf framkvæmdastjóra SÍSF eru Svavar Halldórsson, fréttamaður á Sjónvarpinu, Gunnlaugur A. Júlíus- son, hagfræðingur hjá SÍSF, og Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda. Myndarlegur ritstjóri Nýtt tölublað Heimaskaga, mál- gagns Frjálslynda flokksins á Akranesi, leit dagsins ljós fyrir stuttu. Á forsíðunni er stór mynd af Magnúsi Þór Haf- steinssyni, varabæjarfulltrúa og varaformanni Frjálslynda flokksins. Ekki óeðlilegt í ljósi þess að hann hefur verið í fylkingarbrjósti frjálslyndra, þ.e.a.s. flokksins, á Skaganum undanfarið. Heimaskagi telur fjórar síður. Á síðu tvö er greinargerð eftir Magnús Þór og á síðu þrjú áskorun til Karenar Jónsdóttur um að segja af sér. Báðum fylgir mynd af Magnúsi Þór. Á baksíðunni er svo auglýsing fyrir Eyjublogg Magnúsar, með teikningu af honum. Semsagt fjórar mynd- ir af Magnúsi á jafnmörgum síðum. Ritstjóri Heima- skaga er Magnús Þór Hafsteinsson. bergsteinn@frettabladid.is G eir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir stærðu sig af því nú um helgina að um áttatíu prósent stefnu- yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar væri nú í höfn eða í góðum farvegi í viðkomandi ráðuneyti. Tilefnið var að meta samstarf ríkisstjórnarinnar eftir eitt ár. Erfitt er að meta gildi fullyrðingarinnar um áttatíu prósent því ekki er vitað um öll verkefni sem verið er að vinna að innan ráðuneytanna né heldur hvað kemur út úr þeirri vinnu. Það sló tóninn fyrir þetta fyrsta ár þegar Hafrannsóknastofn- un mælti með því að þorskkvótinn yrði minnkaður um þriðjung. Þrátt fyrir að fiskveiðar séu, sem betur fer, ekki lengur eina undirstaða íslensks efnahagslífs munar um minna. Það sem stendur upp úr nú er að ekki hefur tekist að fylgja fyrsta kafla stefnuyfirlýsingarinnar; um trausta og ábyrga efna- hagsstjórn. Þar segir að eitt brýnasta verkefni ríkisstjórnarinn- ar sé að tryggja stöðugleika í efnahagslífinu. Það er það sem nú á vantar. Stjórnarandstaðan gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega hér í Fréttablaðinu á laugardag og sagði stjórnina ekki hafa tekið á efnahagsvandanum. Sumir, líkt og Guðni Ágústsson, formað- ur Framsóknarflokksins, þurfa í þeim efnum einnig að líta í eigin barm, því hluti af vandanum nú er ofþensla efnahagsins á síðasta kjörtímabili þegar hann átti aðild að ríkisstjórn. Hann sagði í laugardagsblaðinu að það hefði verið alveg ljóst á síðustu tveimur árum síðustu ríkisstjórnar að verið væri að glíma við ofþenslu. Því er eðlilegt að spyrja hvort hann telji þá ekki að ríkisstjórnin sem hann átti aðild að hefði ekki átt að bregðast við þá, í stað þess að bíða eftir aðgerðum þessarar ríkisstjórn- ar? Steingrímur J. Sigfússon er samkvæmari sjálfum sér, þar sem hann hefur gagnrýnt skort á viðbrögðum ríkisstjórnanna við ofþenslu síðustu ára. Hættumerkið í efnahagslífinu sem blasti við okkur í gær var ný mæling á verðbólgunni sem sýndi að hún hefði ekki verið hærri í átján ár. Viðbrögð Geirs H. Haarde voru á þá leið að hann reiknaði með að nú færi að hægja á verðbólgunni, líkt og hann sagði fyrir mánuði síðan. Það er þá kannski spurning hvernig eigi að bregðast við verðbólgunni, á annan hátt en bara að bíða og vona. Verðbólga er auðvitað ekkert annað en kjararýrnun fyrir almenning í landinu og því nauðsynlegt að reyna að spyrna við fótum gegn henni. Verkalýðshreyfingar hafa í þeim efnum staðið sig vel, með takmörkuðum launahækkunum í nýafstöðn- um kjarasamningum. Það verður ekki dregið í efa að ráðherrar hafi reynt að ná tökum á efnahagslífinu, þó svo svör þeirra við fyrirspurnum fjölmiðla hafi verið á þá leið að það verði bara að bíða og sjá. Eitt svarið lá fyrir í gær þegar dreift var á Alþingi frumvarpi sem heimilar erlenda lántöku. Nú hefur verið rætt um það í nokkurn tíma að ríkisstjórnin verði að fara í slíka lántöku og því spurning af hverju frumvarpið var ekki lagt fram fyrr, til að sýna að rík- isstjórninni væri full alvara með það að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans og verja efnahagslífið frekari áföllum. Stjórnarsamstarfið eftir eitt ár. Átján ára verðbólgumet SVANBORG SIGMARSDÓTTIR SKRIFAR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.