Fréttablaðið - 27.05.2008, Síða 18

Fréttablaðið - 27.05.2008, Síða 18
[ ]Brauð og gróft korn er gott fyrir meltinguna. Gott er að borða trefjaríkan mat til þess að halda meltingunni í jafnvægi en umfram allt er best að hafa fæðuna fjölbreytta og holla. Fyrirburar græða á náinni snertingu við foreldra sína og virðist hún hafa jákvæð áhrif á bata. Kanadísk rannsókn leiðir í ljós að börn, sem fæðast allt frá 28. viku, græða á náinni snertingu við for- eldra sína en hún virðist draga úr streitu og sársauka. Áður var talið að börn sem fæddust á 28 til 31 viku væru ekki nægilega þroskuð til að græða á snertingu. Umrædd rannsókn á vegum McGill University bendir hins vegar til þess að jafnvel þau börn sem eru í hitakassa styrkist við snertingu foreldra. Blóðsýni var tekið úr hæl barn- anna og hjartsláttur, súrefnis- magn í blóði og svipbrigði mæld. Slík sýnataka getur verið sárs- aukafull og sýna börnin oft streitu- einkenni í nokkrar mínútur á eftir. Í rannsókninni voru sársauka- viðbrögðin mæld 90 sekúndum eftir sýnatökuna. Þau voru mun minni hjá þeim börnum sem upp- lifðu snertingu foreldra en hinum. - ve Fyrirburar græða á snertingu foreldra Snerting foreldra virðist draga úr streitu og sársauka. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGE Aðgerðir gegn reykingum ungra RÍKISSTJÓRN BRETLANDS ÍHUGAR BANN VIÐ SÍGARETTUSJÁLFSÖLUM, TÓBAKI TIL SÝNIS OG TÍU SÍGAR- ETTNA PÖKKUM. Bretar bönnuðu reykingar á al- menningsstöðum árið 2007 og eru stjórnvöld nú áköf í að fyrir- byggja reykingar unglinga. Breski heilbrigðisráðherrann Alan Johnson, sem sjálfur reykti grimmt á æskuárum, segist í næstu viku munu setja af stað víðtækar aðgerðir gegn reyk- ingum. Árlega byrji 200 þúsund breskir unglingar undir 16 ára aldri að reykja, en byrji fólk svo snemma að neyta tóbaks eykst þrefalt hætta á ótímabærum dauða miðað við þá sem hefja reykingar á þrítugsaldri. „Ég vil banna sígarettusjálfsala þar sem eftirlit með aldri kaup- andans er ómögulegt. Það var gert fyrir löngu í mörgum Evrópu- löndum með mjög góðum ár- angri,“ sagði Johnson. Tveir þriðju breskra reykinga- manna byrja að reykja áður en þeir verða 18 ára, sem eykur verulega hættu á dauða af völd- um krabbameins. - þlg Innritun fyrir haustönn 2008 Innritun stendur nú yfi r í Heilbrigðisskólanum. Umsóknarfrestur er til 11. júní. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans að Ármúla 12 og á heimasíðu, www.fa.is. Umsækjendur sem óska eftir að mati á námi frá öðrum skólum þurfa að skila ljósritum af prófskírteinum með umsókninni. Rafræn innritun fer fram í gegnum menntagátt www.menntagatt.is/ Eftirtaldar námsbrautir eru í boði: heilbrigðisritarabraut, lyfjatæknabraut, læknaritarabraut, námsbraut fyrir heilsunuddara, sjúkraliðabraut sjúkraliðanám á brú og tanntæknabraut. Nánari upplýsingar um allar þessar brautir eru á heimasíðu skólans. Athugið að skólinn býður einnig upp á fjarnám allt árið í mörgum áföngum Heilbrigðisskólans. Skólameistari Borðaðu þig granna(n) Nánari upplýsingar Sími 865-8407 www.vigtarradgjafarnir.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.