Fréttablaðið - 27.05.2008, Síða 42

Fréttablaðið - 27.05.2008, Síða 42
26 27. maí 2008 ÞRIÐJUDAGUR sport@frettabladid.is Kópavogsvöllur, áhorf.: 965 Breiðablik Grindavík TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 12-12 (7-10) Varin skot Casper 4 – Zankarlo 4 Horn 7-4 Aukaspyrnur fengnar 16-10 Rangstöður 4-6 GRINDAV. 4-4-2 Zankarlo Simunic 5 Ray A. Jónsson 6 (36., Michael J. Jóns. 7) Eysteinn H. Hauks. 6 Marinko Skaricic 5 Jósef K. Jósefsson 7 Scott Ramsay 9 Orri Freyr Hjaltalín 8 Jóhann Helgason 7 Alexander Þórarins. 7 (88., Bogi Einars. -) Andri S. Birgisson 8 *Tomasz Stolpa 9 (93., Marko Stefáns -) *Maður leiksins BREIÐAB. 4-4-2 Casper Jakobsen 3 Árni K. Gunnarsson 3 (46., Magnús Gunn. 4) Guðmann Þórisson 3 Srdjan Gasic 3 Kristinn Jónsson 3 (46., Olgeir Sig. 4) Steindór Þorsteins. 4 Arnar Grétarsson 3 Nenad Petrovic 3 Jóhann B. Guðm. 5 Prince Rajcomar 5 Nenad Zivanovic 5 (65., Haukur Baldv. 6) 0-1 Tomasz Stolpa (1.), 1-1 Nenad Zivanovic (17.), 1-2 Orri Freyr Hjaltalín (28.), 1-3 Tomasz Stolpa (30.), 1-4 Scott Mckenna Ramsay (38.), 1-5 Andri Steinn Birgisson (41.), 2-5 Prince Rajcomar (76.), 3-5 Haukur Baldvinsson (81.), 3-6 Andri Steinn Birgisson (94.). 3-6 Kristinn Jakobsson (8) Landsbankadeild karla Keflavík 4 4 0 0 12-6 12 FH 4 3 1 0 12-4 10 Fram 4 3 0 1 6-1 9 Fjölnir 4 3 0 1 7-3 9 Valur 4 2 0 2 8-8 6 Fylkir 4 2 0 2 5-6 6 Breiðablik 4 1 2 1 6-8 5 ÍA 4 1 1 2 3-6 4 KR 4 1 0 3 5-7 3 Grindavík 4 1 0 3 7-10 3 Þróttur 4 0 2 2 4-7 2 HK 4 0 0 4 2-10 0 Landsliðskonan Dóra Stefánsdóttir náði þeim frábæra árangri að skora þrennu í tveimur leikjum LdB FC Malmö í röð, fyrst í 5-0 bikarsigri á Karlskrona og svo í 5-2 sigri á Sunnanå SK í sænsku úrvalsdeildinni sex dögum síðar. Næsta á dagskrá er landsleikur við Serbíu á miðvikudaginn. „Ég hef einhvern tímann náð að skora þrennu áður en ég man ekki hvað mörg ár eru síðan það var. Ég spilaði meira sem varnarmaður en núna er ég komin aðeins framar á miðjunni,” sagði Dóra Stefánsdóttir sem hafði fyrir þessa leiki skorað samtals 3 mörk í fyrstu 33 leikjum sínum í sænsku úrvalsdeildinni. „Það er alltaf gaman að fá að taka meiri þátt í sókninni. Við spilum leikkerfi þar sem er einn varnars- innaður miðjumaður og tveir sóknarsinnaðir, við erum með gott lið sem er vel spilandi og það er góður hraði í leik liðsins. Maður er látinn keyra inn í vítateig í hverri einustu sókn þannig að einhvern tímann hlýtur boltinn að detta fyrir mann,” segir Dóra hógvær en hún skoraði öll mörkin sín um síðustu helgi eftir föst leikatriði. „Það var eitt hörku skallamark en í hinum tveimur mörkunum datt boltinn fyrir mig rétt við markið. Í bikarleiknum var maður að þruma honum en núna var boltinn að detta meira fyrir mig inni í teig,” segir Dóra sem segist þó ekki vera að reyna láta fólkið í Malmö gleyma Ásthildi Helgadóttur. „Ásthildur er búin að skrifa sína sögu hér og fólkið gleymir henni ekkert,” segir Dóra sem að sama skapi vonast til að bæta við hróður íslenskra leikmanna hjá félaginu. Hún æfir mikið og leggur mikið á sig sem er að skila sér. Dóra var spennt að fá að hitta landsliðsstelpurnar aftur. „Nú er rosalega mikilvægur leikur með landsliðinu fram undan. Núna þurfum við að sýna það að við höfum það sem þarf til þess að komast áfram. Nú þurfum við að hafa hausinn á réttum stað. Það er alltaf gaman að koma í lands- liðsverkefnin og ég hlakka til að hitta stelpurnar og fara yfir það hvernig við ætlum að vinna Serbana,” sagði Dóra á leið upp í flugvél til Belgrad þar sem hún hittir hinar landsliðs- stelpurnar. LANDSLIÐSKONAN DÓRA STEFÁNSDÓTTIR: SKORAÐI ÞRENNU Í TVEIMUR LEIKJUM Í RÖÐ MEÐ MALMÖ Gaman að fá að taka meiri þátt í sókninni > Eiður Smári ekki með annað kvöld Eiður Smári Guðjohnsen verður ekki í landsliðs- hópnum sem mætir Wales í vináttulandsleik á Laugardalsvelli annað kvöld en þetta var stað- fest á heimasíðu KSÍ í gær. Þar kemur fram að KSÍ hafi ekki fengið leyfi frá félagsliði Eiðs Smára, Barcelona, til að spila leikinn en leikdagurinn 26. maí er ekki alþjóðlegur leikdagur. Þórir Hákonarson, fram- kvæmdastjóri KSÍ, staðfesti í samtali við Fréttablaðið í gær að læknir Barcelona hefði sent KSÍ tilkynningu um að Eiður Smári væri meiddur. Þá hefur Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari kallað Indriða Sigurðsson, leikmann Lyn, inn í landsliðshópinn í stað Ragnars Sigurðssonar sem er meiddur. Vilt þú fara á EM í sumar? Farðu á nýja vefborða Landsbankadeildarinnar og skráðu þig. Þú gætir verið á leiðinni á stórleik Frakklands og Ítalíu á EM! FÓTBOLTI Guðjón Þórðar- son hefur heimildir fyrir því að ÍA og sérstaklega Stefán Þórðarson, hafi verið stimplaðir af dóm- urum fyrir Íslandsmótið sem grófir leikmenn sem þyrfti að fylgjast sér- staklega með. „Ég hef heimildir fyrir þessu. Þær eru því miður til staðar,“ sagði Guðjón við Fréttablaðið í gær. Guðjón greindi frá þessu í viðtali við Stöð 2 Sport eftir tap ÍA fyrir Keflavík á sunnudag. „Það var fundur hjá dóm- urum þar sem það var útmálað að Skagaliðið væri svo gróft að það þyrfti að taka sérstak- lega á því. Þar var sérstaklega fjallað um að þeir ætluðu að sýna Stefáni Þórðarsyni hvernig ætti að „díla“ við hlutina,“ sagði Guðjón meðal annars. Stefán fékk rautt spjald sem ÍA mun áfrýja. Þórarinn Gunnarsson, formaður dómaranefndar KSÍ, sagði í gær að vissulega væru haldnir fundir með dómurum þar sem skerpt væri á ákveðnum atriðum. Meðal annars væru notaðar myndbands- upptökur til að taka dæmi, bæði íslenskar og erlendar. „Það eru þá myndbrot frá síðasta ári, við erum ekki að skoða atriði frá því í ár,“ sagði Þórarinn. Hann neitaði annars að tjá sig um málið líkt og Birkir Sveinsson, nefndarmað- ur og starfsmaður KSÍ. Vísuðu þeir báðir á framkvæmdastjórann Þóri Hákonarson. Þórir vísaði ummæl- um Guðjóns til föður- húsanna. „Það er ekkert lið tekið fyrir á svona fundum og hvað þá leik- menn, það er af og frá,“ sagði Þórir. Hann á ekki sæti í dómara- nefndinni. Þórir skaut ummælum Guðjóns til aganefndar í gær en hún tekur málið væntanlega fyrir á fundi sínum í dag. Garðar Örn Hinriksson hefur mætt á alla fundi dómaranefndar með dómurum og hann segir að aldrei hafi verið bent sérstaklega á Skagamenn eða Stefán. „Þetta gerðist ekki og mun aldrei gerast, Þessi fundur var ekki haldinn,“ sagði Garðar. - hþh Guðjón ásakar dómara um sérmeðferðir gegn ÍA: Skagamenn stimplaðir? STIMPLAÐUR? Fékk umdeilt rautt spjald í Keflavík. FRÉTTABLAÐIÐ/ EIRÍKUR KRISTÓFERSSON FÓTBOLTI Skagamenn töpuðu 1-3 fyrir toppliði Keflavíkur í Landsbankadeildinni á sunnu- dagskvöldið en þetta var söguleg- ur sigur fyrir heimamenn. Þetta var nefnilega í fyrsta sinn í 17 tilraunum sem Keflavíkurlið- ið nær að vinna lið undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar í efstu deild. Fyrir þennan leik höfðu lið Guðjóns (ÍA, KA og KR) unnið 11 leiki af þessum 17 og fimm sinnum hafði orðið jafntefli. Frægasti sigur liða Guðjóns var örugglega í lokaumferð- inni 1989 þegar KA tryggði sér Íslands- meistara- titilinn með 2-0 sigri í Keflavík. - óój Þjálfarinn Guðjón Þórðarson: Fyrsta tapið á móti Keflavík FÓTBOLTI Lið HK í Landsbanka- deild karla setti nýtt met í Árbænum á sunnudagskvöldið þegar liðið tapaði sínum tíunda útileik í röð. Ekkert lið hefur tapað jafn- mörgum útileikjum í röð í efstu deild síðan deildin innihélt fyrst tíu lið sumarið 1977. HK náði markalausu jafntefli í fyrsta útileik sínum í fyrra en hefur síðan tapað öllum útileikjum sínum, þar á meðal 3-0 á móti Blikum þar sem þeir fengu þó að spila á sínum eigin heimavelli. Þrjú lið áttu gamla metið, Haukar töpuðu öllum 9 útileikjum sínum sumarið 1979 (eina tímabil Hauka í efstu deild), Víkingar töpuðu 9 útileikjum í röð frá 1992 til 1993 og Stjörnumenn töpuðu 9 útileikjum í röð sumurin 1997 og 2000 en liðið var í 1. deildinni 1998 til 1999. - óój Landsbankadeildarlið HK: Tíunda tapið í röð á útivelli ENGIN BREYTING HK á enn eftir að vinna útileik í Landsbankadeildinni undir stjórn Gunnars Guðmundssonar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI Breiðablik tapaði í gær sínum fyrsta leik í tíu leikjum á heimavelli þegar þeir steinlágu fyrir Grindvíkingum, 6-3. Grind- víkingar höfðu fyrir leikinn í gær tapað öllum sínum þremur leikj- um, skorað eitt mark og fengið á sig sjö. Fyrri hálfleikurinn var ótrúleg- ur. Hriplek Blikavörnin réð ekkert við leiftursóknir Grindvíkinga sem skoruðu fimm mörk gegn einu. Tomasz Stolpa var frábær, vann boltann oft, lagði upp mark og lék á als oddi. Hann skoraði tvö mörk, það fyrra eftir aðeins nítján sekúndur. Blikar byrjuðu samt með boltann. Scott Ramsay var einnig frá- bær, hann skoraði eitt og lagði annað upp. Blikar byrjuðu leikinn reyndar ágætlega og náðu að jafna en svo datt botninn úr leik þeirra. Þeir reyndu að bæta við en þeir réðu ekkert við hreyfanlega Grindvíkinga sem tóku öll völd á vellinum. Staðan í hálfleik var 5-1 en Grindvíkingar skutu einnig í slá og fengu fleiri fín færi. Stuðn- ingsmenn Blika sáust yfirgefa völlinn í hálfleik. Þeir sem ekki fóru sungu „6-5 fyrir Breiðablik“. Ólafur Kristjánsson gerði tvær breytingar á Blikaliðinu í hálfleik og fór í þriggja manna vörn. Það tók sinn tíma en Blikar uppskáru tvö mörk, fyrst frá Rajkomar og svo frá hinum átján ára gamla Hauki Baldvinssyni í sínum fyrsta leik í deildinni. Grindvíkingar sýndu að vörn þeirra er viðkvæm en að sama skapi var sóknarleikur þeirra góður. Blikar sýndu karakt- er með því að koma til baka en ömurlegur fyrri hálfleikur þeirra var þeim um of. Andri Steinn var hins vegar ekki hættur fyrir Grindvíkinga og skoraði síðasta mark leiksins í uppbótartíma eftir góðan undirbúning Ramsays og lokatölur því eins og segir 3-6 á Kópavogsvelli. Orri Freyr Hjalta- lín, fyrirliði Grindavíkur, var brosmildur í leikslok. „Við komum dýrvitlausir til leiks, svekktir eftir síðasta leik og við vorum stað- ráðnir í að sýna hvað við getum. Við höfum verið að spila ágætlega úti á vellinum en þessi auka gredda kom í dag. Þetta eru allt saman fínir fótboltamenn í þessu liði en það auka sem vantaði kom svo sannarlega í dag,“ sagði Orri. hjalti@frettabladid.is Markaveisla í Kópavogi Breiðablik tapaði á heimavelli sínum fyrir frískum Grindvíkingum í stór- skemmtilegum níu marka leik. Gestirnir skoruðu fimm mörk í fyrri hálfleik. MARK Tomasz Stolpa skorar hér þriðja mark Grindavíkur með laglegum hætti í mikl- um markaleik á Kópavogsvelli í gærkvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.