Fréttablaðið - 27.05.2008, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 27.05.2008, Blaðsíða 44
 27. maí 2008 ÞRIÐJUDAGUR28 EKKI MISSA AF 17.30 Entourage STÖÐ 2 EXTRA SJÓNVARPIÐ SKJÁREINN OMEGA Dagskrá allan sólarhringinn. SJÓNVARP NORÐURLANDS 12:15 Samantekt helstu frétta vikunn- ar á N4 . Endursýnt á klukkutíma fresti til 10:15 á Sunnudag. 20.00 Be Cool STÖÐ 2 BÍÓ 21.00 Age of Love - NÝTT SKJÁREINN 22.25 Njósnadeildin (Spooks) SJÓNVARPIÐ 23.00 Bardaginn mikli, Mike Tyson-Lennox Lewis STÖÐ 2 SPORT STÖÐ 2 Miðlar á borð við sjónvarp eru sífellt að skilgreina og endurskilgreina sig og sitt hlutverk. Sjónvarpi hefur til að mynda ávallt verið mikið í mun að sýna fram á að það er frábrugðið bæði kvikmynda- miðlinum og útvarpinu, og hefur beitt ýmsum brögðum til þess að marka sér sérstöðu. Eitt þessara bragða kallast bein útsending frá stórviðburðum hvers konar og er í miklu uppáhaldi hjá dagskrárgerðarmönnum, enda kemur það blóðinu á hreyfingu svo um munar. Lítið má út af bera og ef þú klúðrar málunum er alþjóð til vitnis um það. Eða, þannig er það kenningunni samkvæmt. Í raun réttri eru beinar útsendingar fremur vandmeðfarið form sem hentar ekki hvaða efni sem er. Menningarefni á til að mynda ekki að vera í beinni; fæstir nenna að horfa á beinar útsendingar frá afhend- ingu Grímunnar eða Eddunnar eða setningu Listahátíðar í Reykjavík eða ámóta viðburðum, enda ekkert á þeim að sjá nema sama fólkið alltaf hreint að þamba hvítvín, flytja ávörp og svara vandræðalegum spurningum vandræðalegra spyrla. Hér er þó ekki verið að formæla því framtaki að bjóða upp á innlent menningarefni í sjónvarpi, þvert á móti: Húrra fyrir því! En beinar útsendingar gera virðulegum athöfnum ekki góð skil þar sem þær eru í eðli sínu óvirðulegar sökum himinhás óvissustuðuls. Að auki eru setningar- og verðlaunaathafnir í eðli sínu fremur fráhrindandi viðburðir þar sem fólk klappar sjálfu sér og öðrum á bakið á klígjulegan hátt. Hvernig væri að eyða fremur fjármunum sjónvarpsstöðvanna í að framleiða úthugsað og áhugavert menningarefni, fremur en óundirbúin og sjálfumglöð skyndiviðtöl við listamenn sem voru að fá verðlaun frá vinum sínum og samstarfsmönnum? Beinar útsendingar í sjónvarpi eru því hið versta mál þegar kemur að menningarefni, en þær eru ekki alslæmar, enda er heimur utan menningarinnar. Íþróttakappleikir, sérlega þeir sem einhver eftirvænting ríkir vegna, ganga einungis upp í beinni útsendingu, sem og hryðjuverkaárásir og hamfarir hvers konar. VIÐ TÆKIÐ VIGDÍS ÞORMÓÐSDÓTTIR VILL MEIRI ÚTHUGSUN Allt í beinni, af hverju? 16.05 Sportið (e) 16.35 Leiðarljós 17.20 Táknmálsfréttir 17.30 Púkka 18.00 Geirharður bojng bojng 18.25 Undir ítalskri sól (4:6) Sænsk þáttaröð þar sem rithöfundurinn Bo Hag- ström fer um Ítalíu og kynnir sér matar- menninguna þar. 19.00 Fréttir 19.30 Veður 19.40 Eldhúsdagur á Alþingi Bein út- sending frá almennum stjórnmálaumræð- um á Alþingi. 22.00 Tíufréttir 22.25 Njósnadeildin (Spooks) (7:10) Breskur sakamálaflokkur um úrvalssveit innan bresku leyniþjónustunnar MI5 sem glímir meðal annars við skipulagða glæpa- starfsemi og hryðjuverkamenn. Meðal leik- enda eru Peter Firth, Rupert Penry-Jones og Hermione Norris. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi barna. 23.20 Jane Eyre (1:4) Breskur mynda- flokkur byggður á sögu eftir Charlotte Brontë um munaðarlausa stúlku sem elst upp í örbirgð en verður seinna kennslukona á heimili auðmanns. Hún verður fljótt ástfang- in af honum og með tíð og tíma heillast hann af henni líka en áður en þau fá að eigast verða þau að að glíma við leyndar- mál úr fortíð hans. Aðalhlutverk: Ruth Wil- son, Toby Stephens, Francesca Annis, Christ- ina Cole, Lorraine Ashbourne, Pam Ferris og Tara Fitzgerald. (e) 00.10 Dagskrárlok 07.00 Barnatími Stöðvar 2 08.05 Oprah 08.45 Kalli kanína og félagar 08.50 Í fínu formi 09.05 Bold and the Beautiful 09.25 La Fea Más Bella 10.10 Homefront 10.55 Matur og lífsstíll 11.25 Sjálfstætt fólk 12.00 Hádegisfréttir 12.45 Neighbours 13.10 Curb Your Enthusiasm (1.10) 13.45 Connie and Carla Gamanmynd frá Niu Vardalos. Aðalhlutverk. Toni Collette, David Duchovny, Nia Vardalos. 15.20 Sjáðu Ásgeir Kolbeins kynnir allt það heitasta í bíóheiminum. 15.55 Ginger segir frá 16.18 Kringlukast 16.43 Sylvester and Tweety Mysterie 17.08 Shin Chan 17.28 Bold and the Beautiful 17.53 Neighbours 18.18 Markaðurinn og veður 18.30 Fréttir 18.54 Ísland í dag 19.30 The Simpsons 19.55 Friends 20.20 Hell´s Kitchen (10:11) Efnilegir áhugamenn í matreiðslu keppa um starf á glæsilegum veitingastað en líka um hylli, grið og vægð hins skelfilega Ramseys. 21.05 Shark (12:22) Sebastian sækir erf- iðustu málin fyrir saksóknaraembættið en oftar en ekki hittir hann fyrir harðsvíraða glæpamenn sem hann eitt sinn varði sjálfur. 21.50 Kompás Fréttaskýringaþáttur sem markaði tímamót í íslensku sjónvarpi. 22.25 60 minutes 23.10 White Lights, Black Rain Heim- ildamynd frá HBO. Rifjað er upp þegar tvær japanskar borgir voru jafnaðar við jörðu með fyrstu kjarnorkusprengjunum sem varpað hefur verið á mannabyggð. 00.40 Medium (9:16) 01.25 ReGenesis 02.15 Big Love 03.10 Connie and Carla 04.45 Shark 05.30 Fréttir og Ísland í dag 06.25 Myndbönd frá Popp TíVí 18.00 Premier League World Nýr þáttur þar sem enska úrvalsdeildin er skoðuð frá ýmsum óvæntum hliðum. 18.30 Football Icon Football Icons Enskur raunveruleikaþáttur þar sem ungir knattspyrnumenn keppa um eitt sæti í her- búðum Englandsmeistara Chelsea. 19.30 Coca Cola mörkin Farið yfir öll mörkin og helstu atvikin í leikjum síðustu umferðar í Coca Cola deildinni en þar eiga Íslendingar nokkra fulltrúa. 20.00 EM 2008 - Upphitun Þýskaland - Austurríki. Frábærir þættir þar sem liðin og leikmennirnir sem leika á EM eru kynnt til leiks. 20.30 EM 2008 - Upphitun Króatía - Pólland 21.00 10 Bestu - Pétur Pétursson Fyrsti þátturinn af tíu í þessari mögnuðu þáttaröð en í þessum þætti verður fjallað um Pétur Pétursson og hans feril. 21.50 English Premier League Ný og hraðari útgáfa af þessum vinsæla þætti. 22.45 Football Rivalries 23.40 Premier League World 06.00 Be Cool 08.00 Fat Albert 10.00 Barbershop 2. Back in Buisness 12.00 Guess Who 14.00 Fat Albert 16.00 Barbershop 2. Back in Buisness 18.00 Guess Who 20.00 Be Cool Framhald hinnar geysi- vinsælu gáskafullu glæpamyndar Get Shorty. Hér er saman gengið mætt til leiks og gáskinn orðinn jafnvel ennþá meiri. 22.00 Waiting 00.00 Something the Lord Made 02.00 Iron Jawed Angels 04.00 Waiting 07:00 Landsbankadeildin 2008 Breiða- blik - Grindavík 16:25 Landsbankadeildin 2008 Breiða- blik - Grindavík 18:15 Landsbankamörkin 2008 Allir leik- irnir og öll mörkin skoðuð í Landsbanka- deild karla. 21:00 Kaupþings mótaröðin 2008 Sýnt frá fyrsta móti sumarsins á Kaupþingsmóta- röðinni. 22:00 PGA Tour 2008 - Hápunktar Farið er yfir það helsta sem er að gerast á PGA mótaröðinni í golfi. 23:00 Bardaginn mikli Mike Tyson er yngsti þungavigtarmeistari sögunnar en hefur verið sjálfum sér verstur eins og dap- urlegt einkalíf hans vitnar um. Í þessum magnaða þætti eru sýndir gamlar mynd- ir með Tyson en snemma varð ljóst að þar væri afburðaboxari á ferðinni. Í þættinum er sömuleiðis fjallað um bardaga hans við Lennox Lewis en margir álíta að Tyson hafi þá þegar verið útbrunninn bæði líkamlega og andlega. 00:00 World Series of Poker 2007 Snjöllustu pókerspilarar heimsins setjast að spilaborðinu og keppa um stórar fjárhæðir. 08.00 Rachael Ray (e) 08.45 Vörutorg 09.45 Óstöðvandi tónlist 16.20 Vörutorg 17.20 Everybody Hates Chris (e) 17.45 Rachael Ray Spjallþáttur þar sem Racheal Ray fær til sín góða gesti og eldar gómsæta rétti. 18.30 Jay Leno (e) 19.20 Are You Smarter than a 5th Gra- der? (e) 20.10 Kid Nation Bandarísk raunveru- leikasería þar sem 40 krakkar á aldrinum 8 til 15 ára flytja inn í yfirgefinn bæ og stofna nýtt samfélag. Þar búa krakkarnir í 40 daga án afskipta fullorðinna. Mengunin er farin að segja til sín í bænum og flugur og rott- ur eru að leggja bæinn undir sig. Bæjarráðið beitir refsivaldi í fyrsta sinn og sá seki er ekki sáttur við sitt hlutskipti. 21.00 Age of Love - NÝTT Bandarísk raunveruleikasería þar sem ástin er í aðal- hlutverki. Mark Philippoussis er þrítug tenn- isstjarna frá Ástralíu sem er að leita að stóru ástinni. Í upphafi er piparsveinninn kynnt- ur fyrir hópi kvenna. Það kemur honum í opna skjöldu þegar þær reynast allar vera á fimmtugsaldri. Þær eru nýbyrjaðar að berjast um athygli hans þegar fleiri stúlk- ur eru kynntar til leiks. Þær eru ungar og sprækar, enda allar undir þrítugu. Stelpurn- ar eru snöggar að sýna klærnar og upphefst skemmtileg barátta um piparsveininn. Stóra spurningin er. Skiptir aldurinn máli? 21.50 Cane - Lokaþáttur 22.40 Jay Leno Spjallþáttur á léttum nótum þar sem háðfuglinn Jay Leno fær til sín góða gesti og slær á létta strengi. 23.30 C.S.I. (e) 00.20 Eureka (e) 01.10 C.S.I. 01.50 Vörutorg 02.50 Óstöðvandi tónlist > Dan Castellaneta Castellaneta er röddin á bak við Homer í Simpsons- þáttunum. Frasinn „d’oh“ sem Castellaneta gaf Homer var bætt í hina virðulegu Oxford-orðabók árið 2002. Castellaneta talar einnig fyrir föður Homers, trúðinn Krusty, Willie húsvörð, Barney á barnum, Quimby bæjarstjóra Springfield og fjölda annarra persóna. Stöð 2 sýnir Simpsons alla virka daga. ▼ ▼ ▼ ▼

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.