Fréttablaðið - 12.06.2008, Page 42
12. JÚNÍ 2008 FIMMTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● bílar
Bílasýningin Sexy Green Car
Show fór nýlega fram í Corn-
wall á Englandi. Hún var nú
haldin í annað sinn en þar eru
sýndar helstu nýjungar fram-
leiðenda á grænum bílum,
það er bílum sem valda lítilli
mengun.
Heitið Kynþokkafulla græna bíla-
sýningin er sprottið af kaldhæðni,
því hingað til hafa sparneytnir
vetnisbílar ekki verið hannaðir
með það að markmiði að vera flott-
ir heldur praktískir. Í stuttu máli
hafa þeir ekki þótt svalir á götum
úti.
Á meðal bíla á sýningunni var
Lotus-sportbíll með vél sem gengur
fyrir bensíni, bioetanóli og metan-
óli. Bíllinn nær 254 kílómetra há-
markshraða og fer upp í hundrað-
ið á 4,1 sekúndu. Bíllinn mun vera
umhverfisvænn því metanólið sem
hann gengur fyrir verður unnið úr
koltvísýringi, en Lotus telur að sú
tækni verði fullkomnuð á næstu
fimmtán til tuttugu árum.
Annar bíll sem var kynntur á sýn-
ingunni var Ford Focus ECOnectic,
en 1,6 lítra dísilvélin framleiðir
115 grömm af koltvísýringi á kíló-
metra, sem er minnsti útblást-
ur bíls af þessari stærðar-
gráðu. Og yfir hundr-
að kílómetra kemst
hann á 4,5 lítrum.
Saab 9-X Bio
Hybrid Concept
er hugmyndabíll
þar sem athugað-
ir eru möguleikar þess
að drífa bílinn áfram á bioetanóli,
bensíni og rafmagni. Á toppi bílsins
er sólarrafhlaða. Svokallað hybrid-
kerfi sem Saab hefur verið að þróa
slekkur á vélinni á meðan ekki
reynir á hana. Bíllinn getur keyrt
stuttar vegalengdir á rafmagni
einu saman, en það nýtist til dæmis
vel í umferðarteppum. Þar að auki
er bremsan notuð til að endurnýja
orku. Þannig eyðir bíllinn 4,9 lítr-
um á 100 kílómetrum.
Aðrir framleiðendur á sýning-
unni sem hafa sýnt viðleitni til að
draga úr bensíneyðslu voru Volks-
wagen, Citroën, Peugeot, Seat,
Honda, Fiat, Smart, Toyota og Seg-
way. - nrg
Grænir þokkafullir bílar
Morgan LIFE er vetnisrafdrifinn, smíðaður úr áli, viði og leðri. Kemst 400 kílómetra á
einni hleðslu og nær 140 kílómetra hraða á klukkustund.
Saab 9-X Bio Hydrid er með
öfluga rafhlöðu, sólarbatterí og tví-
skipta bensín- og ethanólvél.
Polo Bluemotion kemst 1.200
kílómetra á einum tanki. Minna
viðnám í dísilvél, gírkassa og
dekkjum gera þetta meðal
annars að verkum..
Lotus þessi mun
ganga fyrir alkóhóli
sem er unnið úr
koltvísýringi. Hann
nær 254 kílómetra
hámarkshraða.
Ford Focus ECOnectic var
kynntur á sýningunni en
hann fer hundrað kíló-
metra á 4,5 lítrum.