Fréttablaðið - 04.07.2008, Side 2
2 4. júlí 2008 FÖSTUDAGUR
FLÓTTAMENN „Á Ítalíu má halda
flóttamönnum í allt að átján mán-
uði í hálfgerðum búðum, þar sem
ferðafrelsi er takmarkað og öryggi
lítið. Íslensk yfirvöld eru að senda
Ramses í mjög slæmar aðstæður,“
segir Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, for-
maður Íslandsdeildar mannrétt-
indasamtakanna Amnesty Inter-
national.
Keníumaðurinn Paul Ramses
Oduor var sendur til Ítalíu í gær-
dag, eftir að hafa sótt um hæli hér
á landi sem pólitískur flóttamaður.
Kona hans og barn verða send til
Svíþjóðar eða Kenía.
„Þúsundir flóttamanna bíða
úrlausnar á Ítalíu og hann lendir
aftast í þeirri röð. Þessi fjölskylda
mun því ekki sameinast fyrr en
eftir dúk og disk,“ segir Jóhanna.
Réttast væri að Ramses kæmi
aftur hingað og yfirvöld „öxluðu þá
ábyrgð“ sem þau beri samkvæmt
mannréttindasáttmála Sameinuðu
þjóðanna. En það sé rauður þráður í
flóttamannastefnu Íslendinga að
stjórnvöld geri allt sem þau geti til
að koma flóttamönnum til annarra
ríkja.
Ítalskir blaðamenn greindu árið
2005 frá aðstæðum í búðum ítalska
ríkisins fyrir flótta-
menn og ólöglega
innflytjendur.
Þeir lýstu bar-
smíðum og niðurlæg-
ingu. Lögreglan hefði
stolið af flóttamönn-
um.
Ítölsk stjórnvöld
neituðu þessu en
nokkrir ítalskir þing-
menn heimsóttu
sama ár búðir nálægt
Sikiley og sögðu þær hrörlegar; þar
hefði skort vatn og hreinlætis-
aðstöðu. Þess hefði ekki verið gætt
að fólkið hefði aðgang að þjónustu
lækna og lögmanna.
Flóttamannastofnun Sameinuðu
þjóðanna hefur einnig gagnrýnt
aðstæður í búðum Ítala. Útlend-
ingastofnun tók beiðni Ramses ekki
til formlegrar umfjöllunar, heldur
vísaði til Dyflinnarsamkomulags-
ins, sem segir að flóttamann megi
senda til þess lands sem veitti
honum fyrst vegabréfaáritun. Í
fyrra var þetta gert 24 sinnum á
Íslandi.
Ramses stoppaði á Ítalíu á leið
sinni hingað í janúar. Hann var sótt-
ur af lögreglu í fyrradag og gisti
nauðugur hjá útlendingadeild lög-
reglunnar um nóttina. Svo var
honum vísað burt.
klemens@frettabladid.is
Mogens Glistrup látinn
Danski stjórnmálamaðurinn Mogens
Glistrup er látinn. Hann var 82 ára að
aldri. Glistrup stofnaði Framfaraflokk-
inn danska árið 1972, en lengi vel var
meginmálstaður hans sá að létta á
skattbyrði Dana. Síðar vó andstaða
við innflytjendur þyngra.
DANMÖRK
BRUSSEL, AP Borgarar Evrópusam-
bandsríkjanna munu geta sótt sér
heilbrigðisþjónustu hvert sem er á
innri markaði sambandsins án
þess að þurfa fyrst að fá samþykki
heilbrigðistryggingar sinnar í
heimalandinu. Þetta kveður
frumvarp að nýjum Evrópuregl-
um á um, sem framkvæmdastjórn
ESB birti í vikunni.
Þjónustufrelsið á innri mark-
aðnum gerir nú þegar þegnum
eins ESB-lands kleift að leita sér
læknisþjónustu í öðru, en þeir
þurfa þá almennt séð fyrst að fá
heimild heimatryggingar sinnar.
Þessar reglur eiga líka við um
ríkisborgara EFTA-ríkjanna á
Evrópska efnahagssvæðinu, það
er Íslendinga, Norðmenn og
Liechtensteinbúa. - aa
Þjónustufrelsi í ESB:
Frelsi aukið til
læknisþjónustu
LEITAÐ AUSTUR Tannlæknaþjónusta er
meðal þess sem vinsælt er að kaupa í
öðru landi á innri markaði Evrópu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
STJÓRNMÁL „Það er eins og maður
hafi stigið á eitthvert ægilegt lík-
þorn,“ segir Ögmundur Jónasson,
þingmaður VG, sem í greinum í
Fréttablaðinu og Morgunblaðinu á
miðvikudag sagði EES-samning-
inn skaðlegan og velti fyrir sér
hvort úrsögn væri æskileg.
Uppskar hann kröftug viðbrögð
úr röðum Evrópusinna, til dæmis
formanns Evrópusamtakanna, sem
sagðist stundum velta fyrir sér á
hvaða öld Ögmundur lifði.
„Ég vil að Evrópuumræðan sé
kröftug en hún hefur verið of
þröng og það er einblínt á hvort
við eigum að ganga í Evrópusam-
bandið eða ekki,“ segir Ögmundur
og telur fleiri kosti í stöðunni.
Nefnir hann tvíhliðasamninga um
tollalækkanir og aðrar ívilnanir.
„Mér finnst Brussel-valdið vera
að færa sig meira og meira upp á
skaftið og setja okkur skorður sem
ég tel stangast á við væntingar
okkar í lýðræðislegu samfélagi,“
segir Ögmundur og á þar meðal
annars við nýlegan úrskurð um
Íbúðalánasjóð.
Ögmundur kveðst skilja sjónar-
mið þeirra sem vilja ganga í ESB
en telur sjálfur að því fylgi fleiri
ókostir en kostir. „Ákvarðanir eru
teknar með ógagnsæjum og mið-
stýrðum hætti og fáir koma að
þeim,“ segir hann. Nefnir hann
Gatt-samningana sérstaklega sem
hann segir framkvæmdastjórn
ESB hafa gert í umboði ríkis-
stjórna aðildarríkja en án umræðu
í þjóðþingum þeirra. - bþs
Ögmundur Jónasson vill kröftuga Evrópuumræðu og undrast viðbrögð við grein:
Fleiri kostir en EES og ESB
ÖGMUNDUR JÓNASSON Segir Brussel-
valdið setja Íslendingum skorður sem
stangist á við væntingar í lýðræðisríki.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VINNUMARKAÐUR Samningafundur
lækna og samninganefndar
ríkisins var árangurslítill í gær.
Gunnar Ármannsson, formaður
samninganefndar lækna, segir að
læknar hafi lagt fram tillögu sem
samninganefnd ríkisins hafi
tekið sér tvo tíma til að skoða.
Hún hafi svo komið til baka með
sama krónutölutilboðið og áður,
þó með smávægilegri útfærslu.
„Niðurstaðan er sú að það ber
enn mikið í milli,“ segir Gunnar.
„Við viljum semja fram í október
2009 og gera breytingar á
vinnutíma- og hvíldartímaákvæð-
um. Þessi atriði skipta lækna og
vinnuveitendur miklu máli. Við
vildum samtvinna þetta í einn
pakka en ríkisvaldið vildi ekki
skoða það.“
Samningafundur hefur verið
boðaður í næstu viku. - ghs
Læknafélagið:
Lítill árangur á
samningafundi
Alræmdar aðstæður á Ítalíu
Paul Ramses, flóttamaðurinn sem var rekinn úr landi í gær, lendir aftast á lista þúsunda flóttamanna og
gæti verið í 18 mánuði í alræmdum ítölskum flóttamannabúðum. Kona hans og barn fara á aðrar slóðir.
JÓHANNA K.
EYJÓLFS-
DÓTTIR
KÚRDAR Í FLÓTTAMANNABÚÐUM ÍTALA
Ítalir hafa á síðustu árum verið sakaðir
um að flytja flóttamenn úr landi án
þess að kanna lagalegan rétt þeirra.
Ómannúðlegar aðstæður eru sagðar
einkenna sumar flóttamannabúðirnar.
Dómsmálaráðherra svarar því ekki, hvort
aðstæður á Ítalíu hafi verið kannaðar.
NORDICPHOTOS/AFP
TVEIR MÓTMÆLTU
Tveir menn fóru inn á afrein flug-
brautar á Keflavíkurflugvelli til að
mótmæla brottvísun Pauls Ramses
í gærmorgun.
Upphaflega munu mennirnir
hafa ætlað að loka Reykjanesbraut
fyrir umferð og koma þannig í veg
fyrir að Ramses yrði settur um
borð í vélinni.
Eyjólfur Kristjánsson hjá lög-
reglunni á Suðurnesjum segir að
litið sé á málið „grafalvarlegum“
augum og brotið varði allt að sex
ára fangelsi.
KOM STARFI ABC
Á LAGGIRNAR
„Ramses var að vinna hjá okkur
frá því seint 2006 og til 2007,“
segir Þórunn
Helgadóttir, hjá
ABC-barnahjálp.
„Hann hjálp-
aði okkur að
koma starfi ABC
á laggirnar úti í
Kenía. En hann
hætti þegar
hann sneri sér
að stjórnmál-
um og fór að
vinna að framboði.
Það er ekki hægt að vera bæði
hjá ABC og í stjórnmálum og hans
hugur var í pólítíkinni. En hann var
góður vinur okkar allra áfram.“
ÞÓRUNN FYRIR
MIÐJU
Dómsmálaráðherra, Björn Bjarnason,
svaraði ekki spurningum um málið
í gær.
Hann var spurður hvort stjórnvöld
gerðust ekki sek um
að slíta fjölskyldu í
sundur með því að
senda foreldrana í
sitt hvort landið.
Hvort mögulegt
hefði verið að
líta málið öðrum
augum.
Hvað hann segði
um þá fullyrðingu
að rauði þráðurinn
í flóttamannastefnu
Íslands væri að koma sem flestum
þeirra á herðar annarra ríkja.
Hvort aðstæður í flóttamannabúð-
unum á Ítalíu hefðu verið kannaðar.
Svona var svar dómsmálaráðherra,
sem barst um kvöldmatarleytið:
„Unnt er að kæra málið, sem er
tilefni spurninga þinna til ráðuneyt-
isins, og segi ég því ekkert um það
mál. Almenn afstaða mín til þessara
mála hefur birst í þeim frumvörpum
til útlendingamála, sem ég hef flutt
og alþingi samþykkt.“
Amnesty International sendi Birni
einnig bréf í gær. Í því var mannrétt-
indayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna
rifjuð upp og beiting Dyflinnar-sam-
komulagsins gagnrýnd.
Stjórnvöld voru þá hvött til að
endurskoða ákvörðunina, í ljósi
þess að stjórnvöld hefðu „gengið á
rétt nýfædds sonar hans til að njóta
umönnunar beggja foreldra“.
BJÖRN SVARAR EKKI
BJÖRN
BJARNASON
LÖGREGLUMÁL „Þarna lét borgara-
lega skyldan til sín taka. Þetta
sýnir að lögreglan getur unnið
bæði hratt og vel þegar hún fær
smá upplýsingar,“ segir Páll Stef-
ánsson ljósmyndari. Eins og
Fréttablaðið greindi frá á mið-
vikudag var dekkjum og felgum
af Volkswagen GTI bifreið Páls
stolið á einkar ósvífinn hátt við
Dalbraut. Málið hlaut farsælan
endi í gær þegar Páll fékk dekkin
sín aftur og lögreglan handtók
þjófinn.
Það var athugull starfsmaður
dekkjaverslunarinnar Pitstop í
Dugguvogi sem þekkti felgurnar
aftur eftir að hafa lesið umfjöllun
Fréttablaðsins. Þjófurinn hafði þá
komið með þær á verkstæðið og
beðið um affelgun, því hann hafði
í hyggju að mála felgurnar. Starfs-
maðurinn hafði samband við Pál,
sem kom upplýsingunum áfram til
lögreglu. Maðurinn var svo hand-
tekinn í gær. Páll fékk felgurnar í
hendurnar tandurhreinar og
óskemmdar.
„Þetta fór á besta veg,“ segir
Páll, þakklátur að vonum. „Fólki
sem ég hef heyrt í síðustu daga
var mikið í mun að láta þjófana
ekki komast upp með þetta, heldur
vildi það ná þessum helvítis
öpum,“ segir hann, alsæll yfir að
þeim hafi orðið að ósk sinni í
gær.
Lögregla rannsakar nú
hvort umræddur dekkja-
þjófur tengist þremur sambæri-
legum málum sem upp hafa komið
á síðustu
vikum.
- kg
Bíræfnir dekkjaþjófar náðust eftir ábendingar frá starfsmanni dekkjaverkstæðis:
Borgaraleg skylda kom sér vel
ÞAKKLÁTUR Páll Stefánsson
ljósmyndari fékk felgurnar sínar
hreinar og óskemmdar til baka.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VESTMANNAEYJAR „Þetta á að sýna
hæðina á vikrinum á hinum ýmsu
stöðum bæjarins,“ segir Marinó
Sigursteinsson en hann var sá
sem setti upp þessar vikursúlur.
Goslokahátíðin í Eyjum hófst í
gær en þá er lokum Heimaeyjar-
goss minnst. Vikursúlur voru
settar upp til að sýna hæð
vikursins eftir eldgosið. Við
súlurnar er skráð í hversu mikla
hæð vikurinn náði en þykkast
náði vikurinn í sjö metra.
„Þetta sýnir aðallega hversu
mikið afrek það var að hreinsa
bæinn á sínum tíma,“ segir
Marinó. - vsp
VIKURSÚLUVÍGSLA Súlan við ráðhúsið
sýnir að hæð vikursins var 165 senti-
metrar eftir gosið.
Súlur settar upp í Eyjum:
Tákna hæð vik-
ursins eftir gos
Sigmar, geturðu ekki betur?
„Ég held ég verði að segja pass.“
Sigmar Guðmundsson er nýhættur sem
spyrill í spurningaþættinum Gettu betur
eftir nokkurra ára starf.
DANMÖRK Drukkinn 78 ára gamall
Svíi stal árabát eftir viðburðaríka
nótt í Helsingjaeyri í Danmörku.
Þegar hann reyndi að flýja til
Svíþjóðar á bátnum sofnaði hann
á leiðinni.
Maðurinn hugðist ferju frá
Helsingjaeyri til Helsingborgar í
Svíþjóð þegar hann uppgötvaði að
hann átti ekki fyrir farinu. Þá brá
hann á það ráð að taka árabát
traustataki og róa sjálfur þessa
fimm kílómetra yfir Eyrarsund.
Hann sofnaði hins vegar á
leiðinni og danska lögreglan náði
honum stuttu síðar.
Eigandi bátsins hyggst ekki
kæra manninn. - vsp
Svíi stal bát í Danmörku:
Sofnaði við
heimróðurinn
SPURNING DAGSINS