Fréttablaðið - 04.07.2008, Page 4
4 4. júlí 2008 FÖSTUDAGUR
Með fréttaskýringu í Fréttablaðinu á
miðvikudag um umferðaröryggi fylgdi
mynd af vélhjóli sem lent hafði í slysi.
Tekið skal fram að ökumaður þess
hjóls ók ekki á ólöglegum hraða, þótt
umfjöllunin fjalli meðal annars um
hraðakstur kappaksturshjóla eins og
þeirra sem sjást á myndinni.
ÁRÉTTING
VINNUMARKAÐUR Forysta hjúkrunar-
fræðinga hefur fundað undanfarið
með hjúkrunarfræðingum um allt
land til að fara yfir það hvernig
boðað yfirvinnubann virkar ef til
þess kemur, hvaða reglur gilda og
fara yfir stöðuna í kjaramálunum,
nú síðast á félagsfundi í Neskaup-
stað í gærkvöld. Boðað yfirvinnu-
bann hefst á fimmtudaginn kemur
klukkan fjögur ef ekki verður búið
að semja fyrir þann tíma.
Anna Stefánsdóttir, hjúkrunar-
forstjóri Landspítala, LSH, segir að
erfitt sé að segja til um það hvaða
áhrif yfirvinnubann hafi á starf-
semi spítalans. „Við erum frekar að
horfa til þess að það náist sam-
komulag áður en til þess kemur og
það er að mínu mati mjög mikil-
vægt að það verði,“ segir hún.
Unnið er samkvæmt sumaráætl-
un á LSH og er starfsemin í sam-
ræmi við það. Anna telur að yfir-
vinnubannið geti til dæmis komið
niður á lyflækningasviði. Hún er þó
ekki tilbúin til að greina frá því nú
hvernig brugðist verður við.
„Við munum þurfa að grípa til
ráðstafana ef til þessa yfirvinnu-
banns kemur en það er erfitt að
segja til um það núna hverjar þær
verða, það fer eftir aðstæðum
þegar yfirvinnubannið skellur á ef
það skellur á.“
Samningafundur hefur verið boð-
aður á mánudag. Anna segir að enn
sé tími til stefnu. „Við horfum til
þessa samningafundar á mánudag-
inn. Ég hef miklar væntingar til
fundarins,“ segir hún. - ghs
HEF VÆNTINGAR „Ég hef miklar
væntingar til fundarins,“ segir Anna
Stefánsdóttir, hjúkrunarforstjóri á LSH.
Þessi mynd er úr safni og tengist efni
fréttarinnar ekki beint.
Hjúkrunarfræðingar undirbúa yfirvinnubann á fimmtudaginn kemur:
LSH vonast eftir samningi
BRUSSEL, AP Stjórnvöld í Evrópu og
Bandaríkjunum verða að endur-
skoða stefnu sína varðandi lífrænt
eldsneyti með tilliti til hækkandi
matvælaverðs í heiminum. Þetta
fullyrtu talsmenn hjálparsamtaka
og sérfræðingar í matvælamálum
á fjölþjóðlegri ráðstefnu í Brussel.
Í máli frummælenda á ráðstefn-
unni kom enn fremur fram sú
skoðun að hömlur sem mörg ríki
hafa sett við útlutningi á búvörum
gerðu miklum fjölda þurfandi
fólks erfiðara að nálgast mat. Kall-
að var eftir stórauknum fjárfest-
ingum í að auka landbúnaðarfram-
leiðslu í þróunarlöndum, ekki síst í
Afríku. - aa
Matvælasérfræðingar álykta:
Iðnríkin endur-
skoði stefnuna
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
Helsinki
Eindhofen
Amsterdam
London
Berlín
Frankfurt
Friedrichshafen
París
Basel
Barcelona
Alicante
Algarve
Tenerife
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
22°
24°
28°
23°
21°
25°
23°
20°
21°
22°
24°
26°
24°
24°
26°
29°
27°
21°
14
17
Á MORGUN
Hægviðri eða hafgola.
Síðdegisskúrir syðra.
SUNNUDAGUR
Hægviðri eða hafgola.
16
13
13
14
15
14
17
15
6
6
2
15
4
3
5
6
6
3
5
5
20
1615
13 20
20
18
15
23
20
24
EIN STÆRSTA
FERÐAHELGIN
Vel horfi r með
veður þessa miklu
ferðahelgi. Í dag
verður bjartast
á vestanverðu
landinu með hita
allt að 22 stigum.
Á morgun verður
bjartast á Norður-
og Austurlandi
með hita allt að 24
stigum. Á sunnu-
dag verður víðast
bjart með hita allt
að 20 stigum, til
landsins.
13
20
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
MALASÍA, AP Anwar Ibrahim,
leiðtogi stjórnarandstöðunnar í
Malasíu, hefur heitið því að ná
völdum innan skamms.
Anwar var
nýlega sakaður
um samkynhneigð
af fyrrverandi
aðstoðarmanni.
Samkynhneigð er
glæpur í Malasíu
sem getur varðað
allt að tuttugu ára
fangelsi. Anwar
heldur því fram
að ásakanirnar
séu runnar undan rifjum ríkis-
stjórnarinnar, sem rói nú lífróður
til að halda völdum.
Eitt helsta baráttumál Anwars
er að lækka eldsneytisverð.
Ríkisstjórn Malasíu hækkaði í
síðasta mánuði bensínverð um 41
prósent og verð á disilolíu um 63
prósent. - gh
Stjórnmál í Malasíu:
Anwar snýr
vörn í sókn
ANWAR IBRAHIM
VIÐSKIPTI „Þetta eru mikil tímamót,
því Baugur verður ekki lengur með
neinar eignir á Íslandi og mun nú
undirbúa flutning höfuðstöðva
sinna til London og sinna eigna-
safni sem byggt hefur verið upp og
við teljum afskaplega verðmætt til
framtíðar,“ segir Gunnar Sigurðs-
son, forstjóri Baugs. Fyrirtækið
lauk í gærkvöldi við sölu allra eigna
á Íslandi og mun eftirleiðis leggja
áherslu á fjárfestingar í smásölu-
verslun í Bretlandi, Norðurlöndun-
um og Bandaríkjunum. Þar með
hefur fyrirtækið Hagar, sem rekur
Bónus og Hagkaup, verið selt fjár-
festingarfélaginu Gaumi, en það er
í eigu Jóhannesar Jónssonar, Ásu
K. Ásgeirsdóttur og barna þeirra,
Jóns Ásgeirs og Kristínar, auk
félags í eigu Ingibjargar Pálma-
dóttur og Bague eignarhaldsfélags.
Nafni fjárfestingarfélagsins FL
Group hefur verið breytt í Stoðir,
eignarhaldsfélag. Stoðir hafa keypt
kjölfestuhlut í Baugi Group af
Styrki Invest. Viðskiptin eru gerð
með fyrirvara um áreiðanleika-
könnun og samþykki hluthafafunda
Stoða. Eftir viðskiptin munu Stoðir
fara með tæplega fjörutíu prósenta
eignarhlut í Baugi. Aðrir hluthafar
í Baugi eru Kevin Stanford, Don
McCarthy og Bague SA auk starfs-
manna félagsins.
Stoðir hafa jafnframt selt allan
34,8 prósenta eignarhlut sinn í
Northern Travel Holding, sem er
móðurfélag Iceland Express, Sterl-
ing og fleiri fyrirtækja í ferðaiðn-
aði. Það er Fons ehf. sem kaupir og
greiðir fyrir með hlutabréfum í
Stoðum.
Fjármögnun Baugs til almenns
reksturs og mögulegrar útvíkkun-
ar á starfsemi erlendis hefur jafn-
framt verið tryggð, að minnsta
kosti til næstu tveggja ára. „Það er
mikill áfangi í því árferði sem er á
alþjóðlegum lánamörkuðum. Við
höfum lagt mikið á okkur til þess að
klára þau mál og það er auðvitað
mikill léttir að fjármögnun liggi nú
fyrir,“ segir Jón Ásgeir Jóhannes-
son, stjórnarformaður Baugs.
Eftir breytinguna verður megin-
hluti starfsemi Baugs í London, en
meðal stærstu fjárfestinga Baugs
má nefna Iceland, House of Fraser,
Mosaic Fashions og Hamleys, All
Saints, Goldsmiths og Mappin and
Web í Bretlandi, Magasin du Nord
og Illum í Danmörku og Saks í
Bandaríkjunum.
Gunnar Sigurðsson bendir á að
kjölfestueignir Baugs í Bretlandi
standi mjög sterkt, söluvöxtur sé
upp á fjögur prósent á þessu ári og
rekstrarhagnaður hafi aukist um
fjórðung milli ára, sem tali sínu
máli í því erfiða árferði sem nú ríki
á breskum smásölumarkaði.
Alls vinna um sjötíu þúsund
starfsmenn hjá félögum í eigu
Baugs í 4.300 verslunum viða um
heim.
Stoðir hf. á eftir breytinguna 32
prósenta hlut í Glitni, 99 prósenta
hlut í Tryggingamiðstöðinni, 39
prósenta hlut í Landic Property og
39 prósenta hlut í Baugi Group, auk
annarra fjárfestinga hér á landi og
erlendis.
Helstu eigendur Stoða eru Gaum-
ur og Ingibjörg Pálmadóttir. Þá er
einnig stór hluti í eigu Þorsteins
Más Baldvinssonar í Samherja,
Pálma Haraldssonar í Fons og
Magnúsar Ármann og Þorsteins M.
Jónssonar. bjorn.ingi@markadurinn.is
Baugur Group selur
allar eignir á Íslandi
Fjárfestingarfélagið FL Group verður eignarhaldsfélagið Stoðir. Kaupir kjöl-
festuhlut í Baugi Group, sem selur allar eignir sínar hér á landi, þar með talið
Hagkaup og Bónus, og flytur til London. Endurfjármögnun Baugs er í höfn.
99% eignahlutur
23% eignahlutur
39% eignahlutur
STOÐIR
Tryggingamiðstöðin á
Íslandi. Dótturfélag TM í
Noregi er Nemi Forsikring.
Landic Property er eitt
þriggja stærstu fast-
eignafélaga á Norður-
löndum. Félagið á um
600 fasteignir í Svíþjóð,
Danmörku, Íslandi og
Finnlandi.
Baugur á eignahlut í
fjölmörgum smásölu-
fyrirtækjum í Bretlandi,
Norðurlöndum og Banda-
ríkjunum.
Meðal annarra eigna:
49% hlutir í Refresco
(49%), 26% hlutir í Royal
Unibrew og helmings-
hlutur í Bayrock Group í
Bandaríkjunum.
Glitnir er íslensk-norsk
bankasamstæða með
starfsemi í fimm löndum.
39% eignahlutur
HÖFUÐSTÖÐVAR BAUGS GROUP VIÐ TÚNGÖTU Í REYKJAVÍK Innan skamms verða þær
væntanlega fluttar til Lundúna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVAEngin lausn á olíuverði
Engar augljósar skammtímalausnir eru
til við hinu snarhækkaða olíuverði.
Þetta sagði Henry Paulson, fjármála-
ráðherra Bandaríkjanna, eftir fund
með ráðamönnum í Berlín. Hann
telur þó að fjárfesting í vistvænni
orkutækni og árangur í næstu lotu
Doha-viðræðna Alþjóða viðskipta-
málastofnunarinnar geti hjálpað til að
hafa hemil á verðbólgu og hækkandi
heimsmarkaðsverði á matvælum.
BANDARÍKIN
GENGIÐ 03.07.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
159,2223
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
78,36 78,74
155,62 156,38
124,4 125,1
16,681 16,779
15,476 15,568
13,164 13,242
0,7363 0,7407
128,09 128,85
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR