Fréttablaðið - 04.07.2008, Síða 10
10 4. júlí 2008 FÖSTUDAGUR
GEORGÍA Líkamsárásir vegna pólit-
ískra skoðana eru daglegt brauð í
fyrrverandi sovétlýðveldinu Georg-
íu og það þó að landið telji sig eiga
heima í hópi ESB- og NATO-ríkja.
Íþróttablaðamaðurinn Mamuka
Kvaratskhelia er dæmi um slíkt,
eins og sjá má á georgíska frétta-
vefnum www.humanrights.ge.
Kvaratskhelia var á leið á flug-
völlinn í Tíblísí í byrjun júní til að
sækja vin sinn, rússneskan blaða-
mann, þegar svartur jeppi ók í veg
fyrir hann. Út úr jeppanum stukku
fjórir grímuklæddir menn. Þeir
bundu fyrir augun á Kvaratskhelia
og bundu á honum hendur og fætur
með límbandi, óku með hann inn í
skóg og gengu þar í skrokk á honum.
Skildu hann svo eftir. Öllum verð-
mætum var rænt af honum.
Kvaratskhelia nýtur virðingar
meðal almennings í Georgíu, ekki
síst fyrir að liggja aldrei á pólitísk-
um skoðunum sínum og fyrir bar-
áttu sína fyrir mannréttindum og
lýðræði í landinu. Árásin á hann
hefur vakið mikla athygli, sérstak-
lega hjá stjórnarandstöðunni.
Tamara Kvaratskhelia, eiginkona
Mamuka, segir að kjarkmiklir ein-
staklingar séu lítils metnir í
Georgíu. „Ég veit ekki hvernig
hann getur búið hér eftir það sem
gerðist,“ segir hún. Kvaratskhelia
hefur legið á sjúkrahúsi frá því
árásin var gerð og verður rúmliggj-
andi næstu vikur. Kvaratskhelia
hefur á alþjóðavettavangi sagt frá
grófum mannréttindabrotum í for-
setakjöri knattspyrnusambandsins
í Georgíu í fyrrasumar. - ghs
MISÞYRMT Blaðamaðurinn Mamuka
Kvaratskhelia hefur legið á sjúkrahúsi frá
því árás var gerð á hann. FRÉTTABLAÐIÐ/GHS
Líkamsárásir vegna pólitískra skoðana eru daglegt brauð í Georgíu:
Rændu blaðamanni og börðu
Nora D. Volkow er forstöðumaður
National Institute on Drug Abuse
(NIDA), fíkniefnarannsóknarstofnun-
ar sem heyrir undir Heilbrigðisstofn-
un Bandaríkjanna. Fréttablaðið hefur
greint frá því að Volkow fer nú fyrir
hópi bandarískra vísindamanna sem
kanna möguleika á rannsóknarsam-
starfi við SÁÁ, Íslenska erfðagrein-
ingu og Landspítalann.
„Ísland er með eina bestu fíkniefnaendurhæf-
ingarmeðferð í heimi,“ segir Volkow. Hún telur
að á Íslandi séu einstakir möguleikar til rann-
sókna á lyfjafíkn. „Við unnum að vel heppnuðu
verkefni í samvinnu við DeCode sem miðaði að
því að finna gen sem gera mann næmari fyrir
nikótínfíkn. Niðurstöðurnar voru hrífandi. Við
fundum þrjú gegn sem ekki aðeins gera mann
næmari fyrir nikótínfíkn heldur jafnframt lík-
legri til að þróa með sér sjúkdóma sem fylgja
nikótínnotkun, svo sem krabbamein eða æða-
sjúkdóma.“
Afkastamikill fræðimaður
Rannsóknir Volkow hafa valdið straumhvörf-
um á sviði fíkniefnarannsókna. Meðal annars
hafa þær varpað ljósi á þau áhrif sem fíkni-
efnanotkun hefur á heilann. Þær sýndu að
minna magn er af tilteknum prótínum í heilum
fíkla, hvort sem þeir voru háðir ólöglegum
efnum, nikótíni eða áfengi, en almennt er. Prót-
ínin eiga þátt í losun dópamíns í heilanum sem
veldur ánægju. „Þetta var mikilvægt, ekki
aðeins því þetta sýndi hvaða efni höfðu áhrif
þarna, heldur einnig að í fyrsta skipti var ótví-
rætt að lyfjafíkn er læknisfræðilegur sjúk-
dómur,“ segir hún.
Rannsóknir Volkow sýndu að fíkniefni hafa
víðtækari áhrif á heilann en áður var talið. „Ég
sýndi, og það kom vísindasamfélaginu á óvart,
að fíkniefni raska með djúpstæðum hætti
fremri heilaberkinum, svæði sem hefur að
gera með dómgreind, vitsmuni og óhlutbundna
hugsun. Það færði áhersluna frá því að lyfja-
fíkn væri sjúkdómur sem hefði einkum með
randkerfið að gera, sem er frumstæður hluti
heilans, yfir á nýrri hluta heilans sem tengjast
vitsmunum.“
Ein af fyrstu uppgötvunum Volkow var að
sýna fram á skaðleika kókaíns, en hún sýndi að
notkun þess gæti valdið blæðingu í heilanum.
„Það var óvænt uppgötvun því á þeim tíma, á
níunda áratugnum, var talið að kókaín væri
öruggt lyf,“ segir hún.
Fíkniefni stórt vandamál
Volkow segir að lyfjafíkn sé „ótrúlega alvar-
legt“ vandamál. Hún segir árlegan kostnað í
Bandaríkjunum sem rekja megi til lyfjafíknar
hlaupa á fimm hundruð milljörðum Banda-
ríkjadala, jafnvirði um fjörutíu þúsund millj-
arða króna. Þar sé innifalinn heilbrigðiskostn-
aður, kostnaður vegna glæpa sem fylgi
lyfjafíkn og kostnaður vegna lakari námsgetu
fíkla. Hún segir erfitt að meta hvort umfang
vandans fari vaxandi. Kannanir bendi til þess
að færri unglingar noti fíkniefni en áður, en
afleiðingar fíkniefnanotkunar á samfélagið
fari ekki minnkandi. Til dæmis látist nú fleiri
af því að taka of stóran lyfjaskammt en áður.
Betri lyf fram undan
Volkow telur að í náinni framtíð verði komin
betri lyf til að berjast gegn eiturlyfjafíkn. Hún
segir að verið sé að þróa efnileg lyf gegn
kannabis-, kókaín- og amfetamínfíkn og unnið
sé að bólusetningum gegn lyfjafíkn.
Athyglisbrestur og svefnleysi
Volkow hefur undanfarin ár rannsakað ofvirkni
með athyglisbresti (ADHD). ADHD er meðal
algengustu geðraskana og er algengasta geð-
röskunin meðal barna. Misnotkun lyfja er
margfalt algengari meðal þeirra sem þjást af
ADHD en almenn gerist. Rannsóknir Volkow
hafa sýnt að óvenjulítið dópamín er í heila
þeirra sem þjást af ADHD. Þeir eru því líklegri
en aðrir til að nota lyf til að auka magnið.
Volkow vinnur nú að rannsóknum á svefn-
leysi. „Svefnleysi eykur líkur á ýmsum kvill-
um: háum blóðþrýstingi, hjarta- og æðasjúk-
dómum, bólgusjúkdómum, smitsjúkdómum og
offitu,“ segir hún. Hún segir svefnleysi valda
jafnmörgum bílslysum og akstur undir áhrif-
um áfengis í Bandaríkjunum.
Besta endurhæfingin hérlendis
FRÉTTASKÝRING: Rannsóknir Noru D. Volkow á eiturlyfjafíkn
Nora D. Volkow fæddist og ólst upp í Mexíkó.
Hún lauk framhaldsprófi í geðlækningum frá
háskólanum í New York. Síðan hefur hún starf-
að við rannsóknir í Bandaríkjunum. Hún varð
forstöðumaður NIDA 2003.
Volkow hefur hlotið fjölda viðurkenninga.
Bandaríska vikuritið Time valdi hana nýlega
eina af hundrað áhrifamestu manneskjum
heims.
Volkow er barnabarnabarn rússneska
stjórnmálamannsins Leons Trotskí. Hún málar
í frístundum.
NORA D. VOLKOW
FRÉTTAVIÐTAL
GUNNLAUGUR HELGASON
gunnlaugurh@frettabladid.is
Þingvallast
ræti
M
ýrarvegur
Hamarst
ígur
Aku
rge
rði
Tr
yg
gv
ab
rau
t
Grenivellir
Fu
ruv
elli
r
Hjalteyrargata
HA
GK
AU
P-2 krónur
á Akureyri
í dag!
Sparaðu hjá Orkunni í dag!
SPÁÐU Í HVAÐ ÞÚ SPARAR!
Afsláttur er veittur af almennu verði Orkunnar sem er
175,6 kr. á 95 okt. bensíni og 192,1 kr. á dísel.
M.v. verð 3. júlí 2008.
MENNING Jóhanna Vigdís Guð-
mundsdóttir hefur verið ráðin
framkvæmdastjóri Listahátíðar í
Reykjavík. Jóhanna Vigdís tekur
við starfinu af Hrefnu Haralds-
dóttur sem því hefur gegnt í rúm
sjö ár en tekur nú við starfi
listræns stjórnanda hátíðarinnar af
Þórunni Sigurðardóttur.
Jóhanna Vigdís starfaði áður sem
forstöðumaður hjá Straumi
Burðarási en hefur líka unnið hjá
Borgarleikhúsinu og Deloitte.
Hún var valin úr hópi tuttugu og
þriggja umsækjenda um starfið. - ht
Listahátíð í Reykjavík:
Jóhanna Vigdís
ráðin í starfið
ALÞINGI Skipuð var nefnd til þess
að gera úttekt á aðalþáttum
starfsemi Alþingis og bera saman
við stöðu í nágrannalöndunum.
Þetta ákvað forsætisnefnd Alþingis
á fundi sínum í byrjun síðasta mán-
aðar.
Nefndin á að leggja fram
hugmyndir um hugsanlegar
breytingar á starfsemi Alþingis og
skila áliti til forsætisnefndar
Alþingis fyrir 1. júní 2009.
Forseti Alþingis skipaði Bryndísi
Hlöðversdóttur, forseta lagadeildar
Háskólans á Bifröst, Ragnhildi
Helgadóttur, prófessor við
Háskólann í Reykjavík, og Andra
Árnason hæstaréttarlögmann í
nefndina. Á fyrsta fundi nefndar-
innar var Bryndís valin formaður
hennar. - vsp
Forsætisnefnd skipaði nefnd:
Gerir úttekt á
starfsemi þings
SAMFÉLAGSMÁL Súðavíkurbær mun
eignast nýtt leik- og útivistar-
svæði en Umhverfissjóður UMFÍ
veitti ungmennafélagi staðarins
hálfrar milljónar króna styrk til
verkefnisins í fyrrakvöld.
Um fyrstu úthlutun sjóðsins var
að ræða en hann var stofnaður til
minningar um Pálma Gíslason sem
var formaður UMFÍ til margra
ára. Þrjú hundruð þúsund krónur
voru veittar sundfélaginu Gretti/
HSS til að bæta sundlaugina í
Bjarnarfirði á Ströndum. Síðasti
styrkurinn, tvö hundruð þúsund
krónur, fór svo til Ungmenna-
félagsins Ingólfs/HSK til fegrunar
á skógræktarsvæði félagsins. - ges
Umhverfissjóður UMFÍ styrkir:
Útivistarsvæði
rís í Súðavík
GULLNA HLIÐIÐ Ferðamenn virða fyrir
sér gullið hlið við Versalahöll utan við
París. Hliðið var tekið niður á dögum
frönsku byltingarinnar í lok átjándu aldar
en hefur nú verið sett upp á ný eftir
tveggja ára endursmíði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Árekstur við Egilsstaði
Einn var fluttur á sjúkrahús eftir
árekstur skammt vestan við Egilsstaði
eftir hádegi í gær. Tildrög slyssins voru
þau að jeppabifreið var ekið aftan
á aðra sem ók eftir hringveginum.
Báðar bifreiðarnar eru taldar ónýtar.
LÖGREGLUFRÉTTIR