Fréttablaðið - 04.07.2008, Side 21
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA HELGIN VINNUVÉLAR O.FL.
Hjördís Guðný Guðmundsdóttir grunnskóla-
kennari kann margt fyrir sér í eldhúsinu.
Hjördís hefur lengi gert garðinn frægan með elda-
mennsku sinni og það eru fáir réttir sem hún leggur
ekki í elda. Hjördís segist elda fjölbreyttan mat og
frá öllum heimshornum. Þegar hún er spurð um sinn
uppáhaldsrétt þá nefnir hún indverskan pottrétt sem
á alltaf við að hennar sögn.
„Ég kynntist þessum rétti þegar ég var stödd í
óvissuferð með samstarfsfólki fyrir norðan. Réttur-
inn var toppurinn á góðum degi. Ég hef eldað hann
nokkrum sinnum heima og honum er alltaf svo vel
tekið af börnum mínum og manni sem er sérstaklega
ánægður með réttinn. Rétturinn er bæði fyrir mat-
gæðinga og matvanda, hann er allra,“ segir Hjördís.
Innihald réttarins er 600 til 800 grömm af gúllasi
í bitum og hægt er að nota bæði nauta- og
lambagúllas. Annað sem þarf er ein dós af niður-
soðnum tómötum og 20 til 40 grömm af kókosmassa
en hægt er að nota kókosmjólk en 50 grömm af kók-
osmassa samsvara 400 millilítrum af kókosmjólk.
Svo er það salt, pipar, engifer, kanill og negull, allt
eftir smekk.
„Aðferðin er einföld og góð. Ég byrja á því að
brúna kjötið í potti og bæti síðan restinni ofan í og
læt allt malla þar til kjötið er vel maukað eða mjúkt
undir tönn. Með réttinum ber ég fram hrísgrjón og
naan-brauð. Rétturinn sómir sér mjög vel einn á
borði sem aðalréttur. Verði ykkur að góðu,“ segir
Hjördís með bros á vör.
mikael@frettabladid.is
Indversk áhrif í eldhúsinu
Hjördís Guðný kann ýmislegt fyrir sér í eldhúsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
SILKIMJÚKUR KRAPÍS
Ásgeir Sandholt hefur getið
sér gott orð fyrir að búa til
litarefnalausan krapís, að
mestu gerðan úr ávöxtum,
vatni og sykri.
MATUR 2
ELTA SÓLINA
KMK-félagið stendur fyrir
útilegu við Hítarvatn um
helgina þar sem meðal
annars verður boðið upp
á kennslu í fluguveiði.
HELGIN 3
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
H
rin
gb
ro
t
6.490 kr.
4ra rétta tilboð
og nýr A la Carte
· Léttreiktur lax með granateplum og wasabi sósu ·
· Kókos- og engifersúpa með grilluðum tígrisrækjum ·
· Lambahryggur með lambaskanka og rósmarínsósu ·
· Banana- og súkkulaðifrauð með vanillusósu ·
Gjafabréf PerlunnarGóð tækifærisgjöf!
Hægt er að panta 4ra rétta seðilinn
með sérvöldu víni með hverjum rétti: 9.990 kr.
Côte Rôtie „La Mouline“ 2003 | Rhône, Frakkland
Opus One 1995 | Napa Valley, Bandaríkin
NÝTT!Glas af eðalvíni
Nú hefur veitingahúsið Perlan bætt við möguleikanum að velja
sér glas af 19 eðalvínum með mat. Verð frá 890-8.900 kr.
Sjá nánar á perlan.is.