Fréttablaðið - 04.07.2008, Síða 36
útlit
smáatriðin skipta öllu máli
Þegar krónan er orðin svo ótrúlega ókristi-
leg gagnvart öðrum gjaldmiðlum verðum
við að leita annarra leiða til að upplifa
sanna sumarsælu án þess að það tröll-
ríði heimilisbókhaldinu. Ef þú ert ekki
tímabundin eða að stelast úr vinnunni
er um að gera að taka strætó í Naut-
hólsvík og hafa strandtöskuna
meðferðis. Í henni þarf að
vera handklæði til að liggja
á, sólarvörn svo þú eldist
ekki um aldur fram, góð
bók, gloss, iPod, bikiní og
strandskór. Njóttu þess
að hreinsa hugann og
gleyma stund
og stað. Að
strandferð
lokinni er
ekki úr vegi
að halda áfram
sumarþemanu
með tilheyrandi dekri. Farðu í bað og skrúbbaðu
þig með Bobbi Brown-strandsápunni sem er
alger snilld. Í henni er ekta strandsandur sem
gott er að nudda inn í húðina. Að baði loknu
skaltu bera á þig strandolíuna frá Bobbi Brown
til að gera þig silkimjúka og dásamlega. Þarf
kona eitthvað fleira? martamaria@365.is
SOLEIL TAN DE CHANEL
Coco Chanel fékk innblástur þegar hún
eyddi sumrinu 1930 í Biarrits og bjó
til fyrsta sólarpúðrið, Poudre Tan.
Nýja sólarpúðrið gefur húðinni
fallegan ljóma og gullið yfirbragð.
STUTTBUXUR
FRÁ MISS
SIXTY
eru ómissandi í
Nauthólsvík.
Bobbi Brown sápan úr Strand-
línunni er frábær. Hún er tví-
lit, sandlituð með smáum sand-
kornum í með örlítið dekkri rönd
með grófari sandkornum. Ef þú
vilt fá strandfílinginn inn á bað til
þín þá er þessi algerlega málið.
Í
sól og sumaryl síðustu helgi ákváðum
við fjölskyldan að skella okkur í sveita-
ferð. Með góða skapið að vopni og nóg
af heimatilbúnu nesti keyrðum við út úr
bænum með fullan tank af bensíni. Ein-
hvern veginn fannst mér svo mikilvægt að
taka nesti meðferðis svo ég þyrfti ekki að
innbyrða eiturbras úr sóðalegri vegasjoppu.
Á leiðinni velti ég því fyrir mér hvers
vegna enginn hefði heilsuvætt hringveginn
með hreinni matvöru, lífrænu lambakjöti,
ferskum fiski, spelti, sojamjólk og girnileg-
um grænmetisréttum? Og hvernig stæði
eiginlega á því að það væri erfitt að fá alvöru gourmet-kaffi fyrir ofan
Ártúnsbrekkuna?
Á heimleiðinni neyddumst við til að taka bensín á Vegamótum á
Snæfellsnesi þar sem dæla merkt N1 var það eina sem í boði var á
þessari ögurstundu. Þegar við reyndum að dæla á bílinn komumst
við að því að við þurftum að kaupa sérstök bensínkort til að stinga í
sjálf salann til að fá dælurnar til að virka. Þegar ég spurði afgreiðslu-
dömuna, sem var líklega ekki ennþá búin að eyða fermingarpening-
unum sínum, út í kort fyrir 5.000 krónur sagði hún að þau kort væru
löngu búin og bauð mér kort fyrir 10.000 kall. Þar sem við vorum á því
að reyna að kaupa eins lítið bensín og við kæmumst upp með spurðum
við um ódýrara kort. Eftir mikla leit fann hún loksins 3.000 króna kort
þannig að ég bað um tvö þannig. Þegar kom að því að dæla á bílinn kom
í ljós að á hverju korti var einungis bensín fyrir 2.960 krónur og því
vantaði 80 krónur upp á í heildina. Þegar eiginmaðurinn, sem var orð-
inn ótrúlega fúll á þessu stigi málsins, fór inn í sjoppuna og talaði við
fermingarbarnið yppti það bara öxlum og sagðist ekkert geta gert því
kortin færu sjaldnast upp í topp.
Ekki var þetta svar til að bæta stemninguna í bílnum því tveimur
dögum áður hafði eiginmaðurinn upplifað svipað atvik á N1 á Brú við
Hrútafjörð. Þar voru bara 10.000 króna kort í boði og í mótmælaskyni
komst hann á þrjóskunni einni saman í Borgarnes. Á meðan hann rifj-
aði þetta upp varð skapið þyngra og þyngra og við ákváðum að láta N1
ekki ræna okkur framar.
Eini ljósi punkturinn var kannski að við æfðum okkur í hugarreikn-
ingi á leið til Reykjavíkur. Af 100 seldum 3000 króna kortum græðir N1
líklega 4000 krónur ef þeir stela 40 krónum af hverju korti, af 1000 kort-
um 40.000 krónur og 10.000 kort gera þá um 400.000 krónur. Meðan við
reiknuðum fram og til baka fórum við að spá hvort þeir rændu mismiklu
eftir stærð kortanna eða hvort við værum eina fólkið á Íslandi sem lend-
ir í þessu tvisvar í röð? Gæti verið að þessar ránskrónur borgi tveggja
króna afsláttinn – sem þeir auglýsa grimmt – ef maður dælir sjálfur?
Það er yndisleg tilfinning að vita að húðin sé tandurhrein og glans-
andi. Frá Chanel er komin splunkuný húðlína sem fær hvaða húð
sem er til að ljóma. Byrjaðu á því að bera Lait Con-
fort frá Chanel á húðina og hreinsaðu öll óhreinindi
burt. Þegar það er búið skaltu bera á þig hreinsi-
vatnið, Lotion Confort, úr sömu línu. Þegar
húðin er orðin tandurhrein skaltu bera
á þig Hydramax + active frá Chanel en
það er gelkennt dagkrem sem svínvirkar.
Þegar þessu er lokið skaltu leggjast upp í
sófa og slappa af! -MMJ
Andlitsdekur a la Chanel
Lait Con-
fort hreinsar
húðina svo
hún ljóm-
ar af hrein-
leika og Lot-
ion Confort
er hreinsi-
vatnið sem
allir eru að
tala um.
MYNDIR/AUÐUNN
Yfirleitt eru konur ekkert sérstak-
lega smart þegar þær taka toppinn
frá andlitinu með ennisbandi. Þetta
ennisband sker sig þó úr úr því það
er svo dásamlega mjúkt. Það er í
stíl við andlitslínuna frá Chanel.
Appelsínugul
strandtaska full-
komnar stemn-
inguna.
Prófaðu að dekra almennilega við þig í hjarta borgarinnar
Nautn í Nauthólsvík
Doppótt-
ur draumur.
Þessi sund-
bolur fæst
í Noa Noa í
Kringlunni.
Sólarvörnin frá
Biotherm er
frábær ferða-
félagi og gætir
þess að húðin
eldist ekki fyrir
aldur fram.
Strandlínan frá
Bobbi Brown
er hreinn unað-
ur út af fyrir sig.
Húðin drekkur
þennan unað í sig og húðin
verður silkimjúk eins og á ung-
barni á eftir.
Marta María Jónasdóttir
martamaria@365.is
Hvers á maður að gjalda?
Ómengaðar án allra aukefna og
100% náttúrulegar.
– Hentar allri fjölskyldunni.
12 • FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2008