Fréttablaðið - 04.07.2008, Side 40
Föstudagar eru í uppáhaldi því þá eru
færri fundir en á hefðbundnum vinnu-
degi í borgarmálunum. Það er því sér-
takt tækifæri á góðum föstudegi að
fara á kaffihús eða í bókabúð og ná
utan um verkefnin sín og hugmyndir.
Ég fer oftar en ekki í Eymundsson í
Austurstræti sem
hefur þó þann
ókost að hugurinn
reikar mjög langt frá
Reykjavík þegar ég
sit í kringum allar
ferðabækurnar og
sötra kaffi.
Ég er svo heppin að eiga tvö hjól, eitt
sem er í vinnunni og ég nota til að
fara á milli funda í miðbænum. Hitt
er heima og ef ég næ að fara í hjóla-
túr í Fossvogsdalnum með
sonum mínum
eftir vinnu
er dagur-
inn þegar
orðinn
ógleym-
anlegur.
Maður er manns gaman og til að gera
föstudag ógleymanlegan verður að
safna saman liði og bjóða í grillveislu.
Skemmtilegast er að geta náð nokkr-
um vinum saman með öll börnin og
geta átt afslappaða stund í lok vikunn-
ar en þó með hasar
og fjör barna-
skarans í bak-
grunni. Helst
þarf að byrja grillhá-
tíðina snemma svo
allir hafi tíma til að
fara úr hversdags-
leikanum inn í helg-
ina.
Grillveislan er
fullkomnuð með
grillkjöti frá Kjöt-
höllinni í Miðbæ
(við Álftamýri).
Langbesta
nautakjötið og
bestu grillborg-
ararnir í bænum.
Þegar skarinn af vinum er farinn heim
er lykilatriði að henda sér í lopasokka
og stóra peysu og lesa góða bók.
Maður verður að eiga tóma stund til
að lesa um helgar og mikilvægt að
ná að minnsta kosti einum kafla áður
en maður fer í
draumahöllina
þreyttur en glað-
ur eftir vikuna. Ég
var að ljúka við
þessa bók, the
Glass Castle -
alveg frábær.
Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir
borgarfulltrúi
FÖSTU
DAGUR
LEIÐIR TIL
AÐ GERA
FÖSTUDAG
ÓGLEYM-
ANLEGAN5
Fjölnir Þorgeirsson er fædd-
ur 27.06.1971. Þegar fæðing-
ardagurinn er lagður saman
verður 33 útkoman. Þegar
3+3 eru lagðir saman kemur
út talan sex en það er lífstala
Fjölnis. „Að hafa töluna 33 í
útkomunni af fæðingardegi er
ávísun á að viðkomandi einstaklingur sé kraft-
mikill og með gott hugmyndaflæði. Fjölnir er
talan sex sem gerir hann að skapstórum ljúfl-
ingi. Það má finna marga íþróttamenn með
þessa tölu, þar er hestamennska ekki frátal-
in. Fjölnir er á frekar erfiðu ári í ár varðandi
ástarmálin sín. Þau minna helst á loftárás þar
sem gott væri að hafa neðanjarðarbyrgi. Ástin
skiptir Fjölni miklu máli og fast samband fer
honum miklu betur en að vera á markaðn-
um,“ segir Sigríður Klingenberg og bætir
því við að hún haldi að einn fugl sé floginn
en annar sé á leiðinni til hans. Hún væri
ekki mjög hissa þó að ástar orkan
væri í kringum hann á hesta-
mannamótinu á Hellu. „Fjölni
mun ganga vel á hestamanna-
mótinu ef hann nær að halda ró
sinni. Hann er á mjög góðu ári til
að horfast í augu við sjálfan sig og
til að sigrast á veikleikum sínum.
Hann er á tölunni sjö sem gefur
honum nýja lífsýn og frið. Þegar líður á árið
mun hann ná sáttum við sjálfan sig. Þetta
er akkúrat árstalan sem fær fólk til að
klífa fjöll, breyta mataræði sínu og fara
að lifa heilbrigðara lífi. Næsta ár verður
gott hjá Fjölni. Peningamálin munu glæð-
ast og sú orka byrjar að kíkja inn í líf hans
þegar hausti tekur að halla og þá sýn-
ist mér hann vera kominn með gamla
kærustu upp á arminn. Fjölnir á eftir
að verða margra barna auðið, búa í
sveit sinni og verður virtur hesta-
bóndi.“
Klingenberg.is
SIGRÍÐUR KLINGENBERG spáir fyrir Fjölni Þorgeirssyni
Á eftir að verða margra barna faðir
16 • FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2008