Fréttablaðið - 04.07.2008, Qupperneq 54
30 4. júlí 2008 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> GOTT KYNLÍF
Will Smith segir að lykillinn að góðu
hjónabandi sé að stunda mikið
kynlíf. Leikarinn, sem hefur
verið giftur Jada Pinkett Smith
í ellefu ár og á með henni tvö
börn, segist halda spennunni
í hjónabandinu með því að
stunda kynlíf reglulega. Auk
þess segist hann varla þola að
taka sér langt frí frá vinnu sinni
og vonar að Jada sé tilbúin að stunda
mikið kynlíf í fimm mánaða fyrirhug-
uðu fríi þeirra hjóna.
Pálmi Gestsson leikari
starfar sem hafnarvörður
á Bolungarvík. Hann átti
von á rólegheitum í starfi
en þess í stað stendur hann
sveittur við að vigta fisk-
afla Bolvíkinga.
„Ég hélt ég gæti bara haft það
huggulegt og fylgst með skipun-
um sigla að, en annað hefur komið
á daginn,“ segir Pálmi Gestsson,
leikari og hafnarvörður. Pálmi
réði sig í starf hafnarvarðar á Bol-
ungarvík í sumar og leysir þar af
stóra bróður sinn, Ólaf Svan, sem
er yfirhafnarvörður. „Þetta er
bara hörkupúl og vinna,“ segir
Pálmi sem þarf að vigta aflann úr
hverjum einasta báti sem kemur
að landi. Meira að segja þess sem
dorgar fram af höfninni með veiði-
stöng. „Við lifum í vigtunar- og
bókhaldssamfélagi,“ segir Pálmi.
Hann segir það hafa verið flókið
að læra á allar þær vélar sem hann
vinnur með. „Það rauk alveg úr
hausnum á mér fyrstu vikuna.
Þetta þarf allt að vera rétt. Annars
fær maður trillukarlana á hurðina
strax, sem er ágætt,“ segir Pálmi
og hlær. Um helgina eykst svo
álagið á Pálma til muna þegar sjó-
stangveiðikeppni verður haldin á
Bolungarvík. Þá þarf Pálmi að
vigta afla hvers og eins.
Þrátt fyrir puð og púl í starfi
hafnarvarðar nýtur Pálmi verunn-
ar á æskustöðvunum til hins ýtr-
asta. Hann hefur fest kaup á hús-
inu sem hann fæddist í. Kona hans,
Dillý, dvelst þar með honum ásamt
átta ára syni þeirra. Pálmi á
ógrynni ættingja á Bolungarvík
og býr dóttir hans þar sem og
sonur hans sem leysir af í lögregl-
unni. „Það er frábært að vera
hérna og ekki síst fyrir strákinn
litla. Hann bara fer út á morgnana
og kemur heim þegar hann er
svangur.“
Pálmi hefur breytt sinni lífsrút-
ínu. „Nú er maður kominn í gamla
stílinn. Ég fer heim í hádeginu og
fæ mér að borða, hlusta fréttirnar
og legg mig jafnvel,“ segir hann
og hlær. „Það er bara hlustað á
gömlu gufuna að sjálfsögðu. Alla
vega þegar ég er að vigta enda
held ég að það náist engin önnur
stöð.“
Pálmi var einmitt í hádegismat
þegar blaðamaður náði tali af
honum. „Ég er að horfa hérna út.
Sé alla Snæfjallaströndina og inn
Djúpið,“ segir hann hugfanginn.
Pálmi mun starfa sem hafnarvörð-
ur til loka júlí. Þá mun stóra vigt-
unarsumrinu í lífi Pálma ljúka og
þá er nóg komið af vigtunum í bili.
„Ég er hættur að stíga á vigtina
sjálfur,“ segir Pálmi kampakátur.
soli@frettabladid.is
Hörkupúl að vera hafnarvörður
MEÐ STÓRA BRÓÐUR Pálmi og Óli Svanur stóri bróðir hans voru kátir á við hafnarbakkann í gær. Óli Svanur réði Pálma til starfans
en hann er yfirhafnarvörður á Bolungarvík. FRÉTTABLAÐIÐ/DILLÝ
Einn frægasti og vinsælasti hópur
tónlistarmanna í kúbverskri tón-
list, Buena Vista Social Club, er
nú væntanlegur hingað til lands í
annað sinn. Það er Hr. Örlygur
sem sér um að flytja tónlistar-
mennina hingað heim á Klakann.
Stórtónleikar verða á Hlíðarenda
seinna í mánuðinum.
Buena Vista Social Club var
vinsæll og lifandi skemmtistaður
í Havana á fimmta áratug síðustu
aldar. Staðurinn var vinsæll sam-
komustaður tónlistarmanna þar
til Castro komst til valda og
skemmtistaðnum var lokað, í kjöl-
far þess fluttu margir tónlistar-
mannanna til Bandaríkjanna en
aðrir urðu eftir á Kúbu. Meðal
þeirra sem urðu eftir í Havana
voru píanóleikarinn Rubén Gonz-
ález, gítarleikarinn Compay Seg-
undo og söngvarinn Ibrahim Fer-
rer. Næstum fimmtíu árum eftir
lokun Buena Vista Social Club
þegar bandaríski tónlistarmaður-
inn Ry Cooder kom til Kúbu til að
taka upp plötu komst hann að því
að margir þessara tónlistarmanna
voru enn á lífi og í fullu fjöri þrátt
fyrir háan aldur. Úr þessu sam-
starfi varð svo metsöluplatan
Buena Vista Social Club og heim-
ildarmynd með sama nafni sem
þýski leikstjórinn Wim Wenders
leikstýrði og tónleikaferðalag.
Nú er rúmur áratugur síðan
þessi fræga plata var tekin upp
og margir sem á henni spiluðu
hafa fallið frá en líkt og orðtækið
segir, þá kemur maður í manns
stað og er hljómsveitin enn á ný á
ferð um heiminn að spila tónlist
sína. Cachaíto López er sem
forðum burðarás hljómsveitar-
innar en með henni spilar ellefu
manna úrvalssveit kúbverskra
hljómlistarmanna. Tónleikarnir
munu fara fram í Vodafone-höll-
inni 24. júlí og verður miðasala og
verð auglýst síðar.
- sm
Gömlu mennirnir aftur til Íslands
BUENA VISTA SOCIAL CLUB TIL ÍSLANDS Tónlistarmennirnir eru fullir af fjöri þrátt fyrir
háan aldur. Þeir leika á tónleikum í Vodafone-höllinni 24. júlí næstkomandi.
NORDICPHOTOS/GETTY
Nú hefur sá orðrómur verið á
kreiki að skemmtistaðir í miðbæ
Reykjavíkur hyggist taka höndum
saman og loka á slaginu þrjú í
þeirri von að opna augu yfirvalda
fyrir þeim vandamálum sem
mundu skapast í miðbænum ef
skemmtistaðir lokuðu allir á sama
tíma. „Þetta er eitthvað sem félag
kráareiganda hefur pælt í en þetta
er þó aðeins hugmynd enn sem
komið er,“ segir Kormákur Geir-
harðsson, eigandi Ölstofunnar og
formaður Félags kráareiganda. Að
sögn Kormáks hittast fulltrúar
kráareiganda, íbúa og yfirvalda á
hverjum mánudegi og skiptast á
skoðunum um skemmtanahaldið í
miðbænum þá helgina. „Ég held að
ef skemmtistaðir loki allir á sama
tíma verði ástandið í miðbænum
verra núna en það var fyrir tíu
árum síðan. Ég tel að besta lausnin
sé sú að skemmtistaðir loki á mis-
munandi tímum og samgöngur úr
bænum verði bættar og löggæsla
verði sýnilegri því það er ekki
hægt að kenna Íslendingum að
drekka á einni nóttu,“ segir Kor-
mákur að lokum. - sm
Vinna að lausn á
miðbæjarvanda
KORMÁKUR segir
ekki hægt að
kenna landanum
að drekka á einni
nóttu.
Megan Fox hefur slitið trúlofun
sinni við fyrrverandi Beverly
Hills-leikarann Brian Austin
Green. Megan, sem trúlofaðist
Brian í nóvember 2006, finnst hún
vera of ung til að festa ráð sitt og
ákvað því að slíta sambandi sínu
við leikarann.
Megan, sem var valin kyn-
þokkafyllsta kona heims af
tímaritinu FHM fyrr á þessu ári,
greindi vinum sínum og sam-
starfsfélögum frá ákvörðun sinni
í síðustu viku. Brian og Megan
höfðu verið saman í fjögur ár, en
Brian var áður trúlofaður
meðleikkonu sinni Vanessu
Marcil og á með henni sex ára
son.
Sleit trúlof-
uninni
FJÖGURRA ÁRA SAMBAND Á ENDA
Megan Fox finnst hún vera of ung til að
festa ráð sitt og sleit nýverið trúlofun
sinni við leikarann Brian Austin Green.
Sextánda Humarhátíðin á Höfn fer fram
um helgina með tilheyrandi húllumhæi,
hoppuköstulum og hljóðfæraleik. Þetta
er fyrir löngu orðinn miðpunktur
sumarsins hjá Hornfirðingum. Þeir sem
troða upp á svæðinu eru meðal annars
Gunni og Felix, hljómsveitirnar Dísel og
Undur, Bjarni Töframaður og Soffía
mús.
„Það verður æðislegt stuð í bænum
bæði á föstudags- og laugardagskvöld,“
segir Valdemar Einarsson, forsvars-
maður hátíðarinnar. „Það verða þrjú
böll í gangi í bænum bæði kvöldin og
lifandi músik um allan bæ.“
Hápunktur Humarhátíðarinnar er
stórdansleikur í Íþróttahúsinu á
laugardagskvöld. „Það er heimaband,
hljómsveitin Parket, sem sér um fjörið,“
segir Valdemar. „Þetta er hörkuband
sem hefur starfað lengi. Ég myndi segja
að þeir séu frekar rokkband heldur en
hitt.“
Mæting hefur verið mismikil eftir
árum en það fjölgar að meðaltali um
helming í bænum yfir hátíðina. Eins og
vera ber á humarhátíð mun bærinn
fljóta í þessari lúxusfæðu. „Nei, það er
nú enginn frír humar í boði, en allt er
selt á sanngjörnu verði. Við erum til
dæmis með humarsúpu, grillaðan humar
og svokallaða humarloku. Ætli það sé
ekki svona hálft tonn af humri sem
rennur ofan í gesti á hátíðinni. Það er
það sama og eitt og hálft tonn af humri
upp úr sjó.“ - glh
Hálft tonn af humri um helgina
HUMAR GRILLAÐUR Í GESTI Gestir á Humar-
hátíð á Höfn borða hálft tonn af humri um
helgina.