Fréttablaðið - 07.07.2008, Side 2

Fréttablaðið - 07.07.2008, Side 2
2 7. júlí 2008 MÁNUDAGUR T B W A \R E Y K JA V ÍK \ S ÍA LÖGREGLUMÁL Maður frá Akureyri, sem leitað hafði verið án árangurs vegna þjófnaðar á myndavél, bankaði í fyrrinótt upp á hjá einum lögreglumannanna sem hafði leitað hans. Lögreglumaður- inn elti þjófinn og kallaði á aðstoð sem leiddi til handtöku hans. Í fórum mannsins var þýfi úr öðru innbroti auk þess sem félagi hans var ákærður fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Erindi mannsins í hús lögreglu- mannsins er óvíst en grunur leikur á að hann hafi verið að undirbúa innbrot í húsinu. Það var hrein tilviljun að hús lögreglu- mannsins varð fyrir valinu. - ges Óheppinn þjófur á Akureyri: Bankaði upp á hjá lögreglunni Valgerður, ertu orðin Sivjuð á þessu? „Það sem bjargar mér er það að ég er bara kvöldsvæf á veturna og þarf lítið að sofa á sumrin.“ Valgerði Sverrisdóttur, varaformanni Framsóknarflokksins, brá í brún þegar hún heyrði að Siv Friðleifsdóttir hefði tví- vegis verið sögð varaformaður flokksins í kvöldfréttum Útvarps á laugardaginn. SPÁNN, AP Margt var um manninn á götum Pamplona á Spáni í gær þegar fólk safnaðist saman til að fagna byrjuninni á hinni árlegu nautahlaupshátíð, San Fermin. San Fermin-hátíðin er þekkt um allan heim fyrir nautahlaupin. Hvert hlaup á sér stað um klukkan 8 fyrir hádegi. Þar er reynt á hæfileika og hugrekki þátttakenda sem þurfa að hlaupa meðfram þröngum götum Pamplona með sex ógnvekjandi naut sér við hlið. Seinni hluta dags mæta nautin síðan þjálfuð- um nautabönum í nautaats- hringnum. - stp Þúsundir komu saman: Hlaupið undan sex nautum STEMNING Gríðarlegur mannfjöldi kemur árlega saman í Pamplona á Spáni til að fylgjast með árlegu nautahlaupi. ANKARA, AP Tyrknesk lögregla handtók í gær tvo fyrrverandi háttsetta hershöfðingja sem grun- aðir eru um að hafa ætlað að steypa íslamskri ríkisstjórn lands- ins. Alls hefur nú 21 verið hand- tekinn undanfarna viku í tengsl- um við meint valdarán. Engar ákærur hafa verið gefnar út vegna málsins og yfirvöld hafa litlar upplýsingar viljað veita. Sum dagblöð tengd tyrknesku stjórninni fullyrða að þeir grun- uðu hafi skipulagt hrinu atburða, meðal annars fjöldamótmæli og ofbeldisfull átök við lögreglu, sem að endingu myndu leiða til valdar- áns hersins. Þeir handteknu eru hluti þjóð- ernissinnaða hópsins Ergenekon, sem er fylgjandi veraldlegri ríkis- stjórn í Tyrklandi. Annar hers- höfðinginn tók þátt í því að skipu- leggja nokkur mótmæli gegn ríkisstjórn landsins í fyrra. Rann- sókn á meintu valdaráni hófst á síðasta ári þegar handsprengjur ætlaðar opinberri öryggislögreglu fundust á heimili fyrrverandi hershöfðingja. Stjórnarandstæðingar og fleiri hafa stigið fram og gagnrýnt hand- tökurnar. Þeir fullyrða að þær séu liður í tilraun stjórnvalda til að þagga niður í andstæðingum ríkis- stjórnarinnar. - sh Tveir fyrrum háttsettir hershöfðingjar taldir hafa ætlað að steypa Tyrklandsstjórn: Tyrkir segjast hafa afstýrt valdaráni REIÐIR MÓTMÆLENDUR Handtökunum var mótmælt af andstæðingum stjórn- valda í gær. Þeir segja stjórnina reyna með þeim að þagga niður í gagnrýnis- röddum FRÉTTABLAÐIÐ / AP HESTAR Á milli 13 þúsund og 14 þúsund manns voru samankomnir á Gaddstaðaflötum á Hellu í gær, á lokadegi Landsmóts hesta- manna. Spennan var mikil og þéttsetið var í brekkunum þar sem fylgst var með úrslitum í öllum flokk- um. Mótshaldarar eru ánægðir með keppnishaldið, segir lögreglan góðan anda hafa ríkt á svæðinu og engin stórmál komið upp. Kjartan Þorkelsson, sýslumað- ur á Hvolsvelli, er mjög ánægður með mótið og segir að allt hafi farið vel fram miðað við þann mannfjölda sem var staddur á mótinu. - stp Landsmóti hestamanna lokið: Ánægðir með útkomuna LÖGREGLUMÁL Maður í annarlegu ástandi keyrði á ofsahraða undan lögreglu á stolnum bíl í fyrra- kvöld. „Engu skipti þótt lögreglu- menn settu upp lokanir og þreng- ingar. Bifreiðinni var miskunnarlaust ekið yfir kanta og hringtorg, á móti rauðu ljósi, upp á gangstéttir og á móti aksturs- stefnu,“ segir Jóhann Karl Þóris- son, aðalvarðstjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Tilkynnt var um furðulegt akst- urslag mannsins klukkan rúmlega tíu í fyrrakvöld. Lögreglan gaf ökumanninum stöðvunarmerki við Rauðavatn skömmu síðar. Maðurinn sinnti því í engu heldur jók hraðann suður Breiðholts- braut, fór fram úr bílum öfugum megin vegarins og ók inn í Árbæ- inn. Þar ók hann á ofsahraða eða allt að hundrað kílómetra hraða á klukkustund þar sem hámarks- hraði var þrjátíu. Ökumenn þurftu að sveigja frá manninum og keyra út í kant og gangandi vegfarendur þurftu sömuleiðis að forða sér. Þaðan ók maðurinn í gegnum Rofabæ, inn í Bæjarháls, gegnum Höfðabakka og austur Vestur- landsveg að Grafarholti þar sem hann sýndi hvað glæfralegastan akstur. Loks barst eftirförin aftur inn á Vesturlandsveg í átt að Mosfells- bæ. Þar ók lögreglubíll í hlið bif- reiðarinnar með þeim afleiðingum að hún valt og hafnaði utan vegar. Ökumanninn sakaði ekki. Hann var gisti fangageymslur. - ges Lögregla ók á bíl ökuníðings sem flúði undan henni á ofsahraða hverfa á milli: Stefndi vegfarendum í voða REYKJAVÍK Óvíst er hvort af byggingu vatnagarðs sem byggja átti í Úlfarsárdal verður. Hugsanlegt er að þar verði einungis hverfissundlaug. Ákveðið var að láta reisa vatnagarð og sundlaug í Úlfarsárdal í tíð meirihluta sjálfstæðismanna og framsóknarmanna í borginni. Tillaga þess efnis var samþykkt samhljóða í íþrótta- og tómstundaráði í janúar árið 2007 og skipulagsráð samþykkti í október það ár tillögu að deiliskipulagi sem gerði ráð fyrir garðinum. Einnig var leitað eftir samstarfsaðilum um rekstur garðsins og fór forval um þróunar- og hugmynda- samkeppni fram þá um sumarið. „Vatnagarðurinn hefur verið tekinn út af deili- skipulaginu,“ segir Óskar Bergsson, borgarfulltrúi framsóknarmanna, sem spurðist fyrir um málið og fékk þau svör að verið væri að íhuga annan stað fyrir garðinn við Leirtjörn í miðsvæði hverfisins. „Ég treysti því að menn vinni samkvæmt því sem sagt var þegar þessi breyting var gerð í vetur,“ segir Óskar. „Þessi sundlaugagarður var eitt af kosninga- málum okkar framsóknarmanna og við höfum mikinn áhuga á því að hann verði að veruleika.“ „Við gerum ráð fyrir umfangsmikilli þjónustu í þessu hverfi, þar á meðal sundlaug,“ segir Kjartan Magnússon, formaður íþrótta- og tómstundaráðs. Kjartan kveðst ekki geta svarað því hvort um sundlaug eða vatnagarð verði að ræða. „Við eigum eftir að útfæra skipulagið nánar.“ Fulltrúar meirihlutans í skipulagsráði telja að ekki sé rými fyrir vatnagarð þar sem hann átti upphaf- lega að rísa, vegna annarrar íþrótta- og útivistar- aðstöðu sem þar er í undirbúningi, að því er fram kemur í skriflegu svari til minnihlutans í ráðinu. Hanna Birna Kristjánsdóttir, formaður ráðsins, segir hvorki búið að taka endanlega ákvörðun um staðsetningu né stærð sundlaugar í Úlfarsárdal. „Við erum að skoða þetta í samhengi við annað skipulag á svæðinu,“ segir Hanna Birna. „Við höfum hugmyndir um útivistarparadís í dalnum og þar stendur einnig til að hafa sundlaug.“ Hanna Birna útilokar ekki vatnagarð en segir að umfang sundlaugarinnar hafi ekki enn verið ákveðið. helgat@frettabladid.is Vatnaparadís gæti breyst í sundlaug Óvíst er um vatnagarð sem sjálfstæðismenn og framsóknarmenn ákváðu að reisa í Úlfarsárdal. Hugsanlega verður hverfissundlaug látin nægja. Formaður skipulagsráðs segir stærð og staðsetningu sundlaugar ekki hafa verið ákveðna. HVERFISSUNDLAUG Óvíst er hvort ráðist verður í byggingu vatnagarðs sem rísa átti í Úlfarsárdal. Kannski verður hverfis- sundlaug látin nægja. HÓPREIÐ Landsmót hestamanna þykir hafa tekist vel þetta árið. EFTIRFÖR Maðurinn ók gegn akst- ursstefnu, uppi á gangstéttum og yfir hringtorg. Myndin er úr safni. Starfsmanni SÞ banað Yfirmaður þróunaraðstoðar Sam- einuðu þjóðanna í Sómalíu féll fyrir hendi sómalskra byssumanna í gær, að því er talsmenn Sameinuðu þjóðanna fullyrða. Hann var skotinn í höfuðið á leiðinni út úr mosku í Mogadishu, höfuðborg landsins. SÓMALÍA LÖGREGLUMÁL Varðstjóri lögregl- unnar á Akranesi segir eftirlit með aldurstakmarki gesta á Írskum dögum um helgina hafa skilað góðum árangri. Ekkert hafi verið um skrílslæti eins og í fyrra og hátíðarhöldin hafi tekist mjög vel. Þó fékk lögreglan tilkynningu um fimm líkamsárásir, tíu voru teknir með eiturlyf og níu voru grunaðir um að keyra undir áhrifum. - ges Írskir dagar á Akranesi: Hátíðarhöldin fóru vel fram Reykingamenn reiddust Þrír menn voru stungnir í Kaup- mannahöfn í fyrrinótt eftir að einn þeirra hafði beðið nokkra reyk- ingamenn um að færa sig út fyrir á meðan þeir reyktu. Reiddust reyk- ingamennirnir og stungu manninn og félaga hans. Þeir voru fluttir á sjúkrahús en munu ekki í lífshættu. DANMÖRK SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.