Fréttablaðið - 07.07.2008, Síða 12

Fréttablaðið - 07.07.2008, Síða 12
12 7. júlí 2008 MÁNUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS Uppreisn innvígðra Með brotthvarfi Davíðs Oddssonar úr formannsstóli Sjálfstæðisflokksins árið 2005 virðist sem flokksmenn hafi orðið óhræddari við að stíga létt hliðarspor frá þeirri línu sem gefin er af nýjum drottnara í Valhöll. Þannig hafa nokkrir innmúraðir og innvígðir sjálfstæðismenn síðustu daga staðið fyrir eins konar uppreisn gegn eigin flokki. Einar Bene- diktsson erkisendiherra og Jónas H. Haralz, frjálshyggjufrumherji og fyrrverandi bankastjóri, riðu á vaðið með skýlausum ESB-áróðri í Morgunblaðsgrein á laugar- dag sem vakti verðskuldaða athygli. Afstaða Einars þarf kannski ekki að koma mjög á óvart, en Jónasar þeim mun fremur. Evrópa heillar Svein Sveinn Andri Sveinsson, hæstaréttar - lögmaður og fyrrverandi varaborgar - fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, dregur ekki heldur dul á Evrópuhneigðir sínar í grein í Fréttablaðinu í gær. Þar segir hann enga sjáanlega galla við Evrópusambandsaðild og að Ísland ætti að sækja um strax. Það er ekki beint sú lína sem lagt er upp með í hans fyrrum höfuðbóli. Brenndur Árni bítur frá sér Uppreisn helg- arinnar er þó að finna í Sunnudags- mogganum, þar sem Árni Johnsen fer mikinn í grimmilegri árás á gjörvallt íslenska réttarkerfið í aðsendri grein. Árni, sem þekkir réttarkerfið af eigin raun, er ómyrkur í máli þegar hann sakar Hæstaréttar- dómara um vanþekkingu, rannsóknar- lögreglu um brjálæðislegar ofsóknir á hendur Baugsmönnum og talar um smámenni og valdníðinga í dómskerfinu. Hvað skyldi þingmaðurinn Sigurður Kári Kristjánsson segja við þessu? Honum þótti formaður Samfylking- arinnar sýna sjálf- stæðismönnum tillitsleysi með því að nefna að sitt- hvað mætti læra af Baugsmálinu. stigur@frettabladid.is Embættismenn og ráðherra geta vísað út og suður í paragröff og þóst bundnir af – til Dyflinnar, Rómar eða Brussel – en það fær því samt ekkert breytt að mann- vonskan kemur ekki að utan. Hún kemur að innan. Að því hlaut að koma fyrr eða síðar að það vinnulag sem Íslend- ingar hafa tamið sér við afgreiðslu umsókna um pólitískt hæli hér á landi kæmi Birni Bjarnasyni og starfsmönnum hans í veruleg vandræði. Nánast án undantekn- inga hafa Íslendingar nýtt sér klásúlu í einhverjum Schengen- viðauka sem Björn kallar því ábúðarfulla nafni „Dyflinnarsamn- inginn“ og mun kveða á um að heimilt sé að senda flóttamann aftur til þess lands sem fyrst tók á móti honum, jafnvel þótt viðkom- andi hyggist ekki leita þar hælis. Með þessu móti koma íslenskir embættismenn sér undan því að taka afstöðu til umsóknar viðkom- andi flóttamanns. Þetta er mjög þægilegt: nei því miður, við hér erum bundin af Dyflinnarsamn- ingnum og getum ekki einu sinni velt aðstæðum þínum fyrir okkur. Vertu úti. Hvar er nú Guðrún Helga? Við þessi eldri munum Gervasoni- málið (blaðamenn: hvar er hann nú?) sem kom upp 1980 í tíð ríkisstjórnar vinstri flokkanna og einhvers konar Sjálfstæðisflokks; Frakki sem neitaði að gegna herþjónustu í landi sínu og átti yfir höfði sér fangelsi. Með samstilltu átaki tókst að beygja ríkisstjórnina þá til að veita honum pólitískt hæli, en þess ber að geta að í þáverandi meirihluta var kona að nafni Guðrún Helgadóttir sem lét samvisku sína og réttlætiskennd ráða för, og hótaði einfaldlega stjórnarslitum. Þegar kemur að máli keníska flóttamannsins Pauls Ramses er hins vegar ekki að sjá að neinn almennur þingmaður eða ráðherra hyggist standa uppi í hárinu á Birni Bjarnasyni og hans liðsmönnum. Kunnugleg orð úr nýlegri íslenskri stjórnmálasögu koma óneitanlega upp í hugann í því sambandi: „gunga“ og „drusla“. Fjölskyldu sundrað Hvernig sem embættismenn og ráðherra reyna að snúa sig út úr því, teygja og toga og vísa út og suður þá blasir við stórslys: íslenskir embættismenn hafa sundrað ungri fjölskyldu algjör- lega að ástæðulausu. Íslenskir embættismenn hafa rekið ungan heimilisföður, sem hafði verið svo fákænn að treysta á íslenska mannúð, frá konu og nýfæddum syni með vísan í fyrrgreindar heimildir kenndar við Dyflinni, og litlar líkur á öðru en að hann verði aftur sendur til Keníu þar sem hann óttast um líf sitt. Er þetta óþjóðalýður? Skyldi þetta vera glæpamaður af því tagi sem hin vökula „greiningadeild Ríkislögreglustjóra“ segir okkur að séu að hreiðra um sig hér á landi? Það er nú öðru nær: fólk sem kynni hefur haft af honum virðist ljúka upp einum munni um að þarna fari mannkostamaður – til að mynda íhaldsmaðurinn gáfaði Atli Harðarson, heimspekingur og skólamaður á Akranesi, sem kynntist Paul gegnum son sinn og lýsir honum á bloggsíðu sinni sem „grandvörum og vel gefnum manni“. Þessi harka í garð þeirra sem hér leita ásjár er náttúrlega ekki ný af nálinni. Framkoma Íslendinga við gyðinga sem komust hingað á flótta undan nasistum á sínum tíma er smánarblettur á sögu þjóðarinnar eins og Einar Heimisson sagnfræð- ingur dró fram á sínum tíma. Þeir gyðingar og Mið-Evrópumenn sem þó náðu að festa hér rætur á fyrri hluta tuttugustu aldar urðu hins vegar ómetanlegri fyrir íslenska menningu – til dæmis er erfitt að ímynda sér hvernig þróun íslenskr- ar tónlistar hefði orðið án þeirra. „Forvirkar aðgerðir“ Smám saman hefur Björn Bjarnason dómsmálaráðherra skapað uggvænlegt andrúmsloft kringum störf sín og þeirra deilda sem undir hann heyra. Nú síðast kynnti ráðherrann fyrir okkur hugtakið „forvirkar aðgerðir“ í framhaldi af skýrslu „greininga- deildar Ríkislögreglustjóra“ um hryðjuverkaógn sem deildin neyddist þó til að játa að sé nær engin hér: „forvirknin“ hljómar kunnuglega fyrir þá sem fylgst hafa með umræðum í Bandaríkj- unum þar sem aðgerðir Bush- stjórnarinnar á borð við Íraksstríð, hleranir, njósnir og hvers kyns afnám borgaralegra réttinda eru kallaðar „pre-emptive“. Ekki er langt síðan sami Björn og nú biður um heimildir til „forvirkra aðgerða“ upplýsti okkur um að hann teldi að fólk eins og Þórhildur Þorleifsdóttir og Arnar Jónsson, Úlfur og Helga Hjörvar, Lúðvík, Eðvarð, Hannibal og Finnbogi Rútur (fyrir utan öll hin sem enn á eftir að upplýsa um) hefðu á sínum tíma ógnað þjóðarhagsmunum, verið glæpamenn og átt símhleran- ir skilið. Samfylkingunni virðist þykja í lagi að við eigum það undir dómgreind þessa manns hverjir eiga í vændum að verða fyrir „forvirkum aðgerðum“. En í tilfelli Paul Ramses og fjölskyldu hans hafa „forvirkar aðgerðir“ svo sannarlega þegar skilað sínum árangri. Hringdu í síma ef blaðið berst ekki UMRÆÐAN Árni Páll Árnason skrifar um íslensku krónuna Við heyrum oft af niðurstöðum saman-burðarkannana sem sýna góða stöðu Íslands í samanburði við önnur lönd. Þrátt fyrir að við höfum oft síðustu ár mælst með lélega útkomu í hagstjórn – m.a.s. tal- ist lélegri á því sviði en í karlafótbolta – hafa ýmsir aðrir þættir verið okkur hlið- hollir og gert að verkum að staða okkar hefur verið með því besta sem gerist. En það er ekki síður mikilvægt að skoða þann samanburð sem er okkur óhagstæður. Þannig háttar til að í danska viðskiptablaðinu Børsen var nýverið athyglisverð frétt um þróun íslensku krónunnar. Þar kom fram að krónan hefði fallið svo mjög að helst væri að leita samanburðar meðal þjóða sem við erum ekki vön að bera okkur saman við – og dygði það þó ekki til. Þannig hefur nýgíneíska cedí- ið fallið um 16,73% gagnvart danskri krónu frá ára- mótum og svasílenska línangeníið hefur fylgt suður- afríska randinu og fallið um 20,24%. Íslenska krónan hefur hins vegar fallið vel yfir 30% gagnvart danskri krónu á sama tíma. En kannski er ekki ástæða til að örvænta. Í greininni kom fram að krónan hefur ekki reynst jafn veik og túrkmeníska manatið, en það hefur fallið um 65,78%. Þar er sem kunn- ugt er Gúrbangúlí Berdímúhammedoff tek- inn við stjórnartaumunum í kjölfar fráfalls Nýasofs Túrmenbasha í fyrra, en spilling og flokksræði einkenna sem fyrr allt þjóðlífið. Neðst á listanum í Børsen yfir veika gjald- miðla er svo simbabveski dollarinn, sem fall- ið hefur um 100 prósent. Allir þekkja þær stjórnarfarslegu hörmungar sem gengið hafa yfir hina simbabvesku þjóð undanfarin ár og skýra hrun þess samfélags. Þetta hlýtur að vekja okkur til umhugsunar um í hvaða hópi Ísland er þegar litið er til gengisstöðug- leika. Við sjáum af þessum samanburði hvað ógæfu- sömustu þjóðir heims, sem lúta dyntum sjúkra ein- ræðisherra, þurfa að sætta sig við. Metnaðarfull þjóð sem vill búa við góðan og stöðugan kaupmátt og búa alþjóðavæddum fyrirtækjum fyrirsjáanlegt rekstr- arumhverfi hlýtur að ætla sér aðra efnahagsumgjörð og betri. Höfundur er alþingismaður. Íslenska krónan - best í heimi? ÁRNI PÁLL ÁRNASON „Forvirkar aðgerðir“ Mál Pauls Ramses GUÐMUNDUR ANDRI THORSSON Í DAG | Þ egar frá líður munu sagnfræðingar vafalaust rekast á margt hnýsilegt úr fortíðinni. Henda gaman að bölsýnis- spám sem aldrei rættust, draga dár að bjartsýnistali sem engin innistæða reyndist fyrir. Af og til munu þeir einnig vafalaust rekast á texta sem sýnist hafa ræst í öllum meginatriðum og ber þess glöggt vitni að höfundar hans hafi haft sýn á framtíðina og eitthvert vit á viðfangsefninu. Á árunum 2001 og 2002 starfaði hér á landi svonefnd hnatt- væðingarnefnd í umboði utanríkisráðherra. Þórður Friðjónsson, fyrrverandi forstjóri Þjóðhagsstofnunar, var formaður hennar, en aðrir í nefndinni voru þau Ari Edwald, framkvæmdastjóri Sam- taka atvinnulífsins, Guðbrandur Sigurðsson, forstjóri Útgerð- arfélags Akureyrar, Grétar Már Sigurðsson, skrifstofustjóri í utanríkisráðuneytinu, Páll Sigurjónsson, formaður stjórnar Útflutningsráðs, Rannveig Rist, forstjóri Íslenska álfélagsins, Runólfur Smári Steinþórsson, dósent við Háskóla Íslands, Sigurð- ur Einarsson, forstjóri Kaupþings og Gylfi Arnbjörnsson, fram- kvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands. Þetta einvalalið sendi frá sér gagnmerka skýrslu um Ísland í hnattvæddum heimi, sem afhent var Halldóri Ásgrímssyni í apríl 2002. Í henni var horft fram á veginn: „Meginkosturinn við að hafa sjálfstæðan gjaldmiðil er að breytingar á gengi hans geta auðveldað aðlögun að breyttum ytri aðstæðum. Meginókosturinn er á hinn bóginn að gengisfellingar- möguleikinn getur dregið úr aga við hagstjórnina. Í löndum þar sem gengisfall vofir sífellt yfir er óhjákvæmilegt að innlendir vextir verði ævinlega hærri en erlendir vextir og að vaxtamun- urinn verði þeim mun meiri sem markaðsaðilar telji líkurnar á gengis lækkun meiri. Á tímum frjálsra fjármagnsflutninga er ólík- legt að margfalt stærri gjaldeyrisforði en Seðlabankinn ræður nú yfir megnaði að sefa ótta manna við gengisfellingu og draga þar með úr vaxtamun.“ Og enn fremur: „Með hækkun erlendra skulda þjóðarinnar undanfarin ár hefur lækkun á gengi krónunnar kostnaðarsamari hliðaráhrif fyrir þjóðarbúið í heild en áður fyrr. Skuldasöfnun í erlendri mynt hefur einkum verið á meðal einkaaðila og kemur gengislækkun skýrt fram í efnahagsreikningum fyrirtækja. Aukn- ar skuldir heimila þýða einnig að gengislækkun hefur meiri áhrif á efnahag þeirra en áður. Lækkun gengis kemur fram í hækkun verðlags og stór hluti innlendra lána til heimila og fyrirtækja er verðtryggður.“ Í stuttu máli má segja að flest, ef ekki allt, sem hnattvæðing- arnefndin hafði um þessi mál að segja fyrir sex árum, hafi ræst. Því er ljóst að því verður ekki haldið fram með gildum rökum, að þróun síðustu ára hafi komið algjörlega á óvart og hafi ekki verið unnt með neinum hætti að sjá fyrir. Umræðan um framtíð íslensku krónunnar hefur á hinn bóginn þróast lítið sem ekkert á þeim sex árum sem liðin eru frá útkomu skýrslu hnattvæðingarnefndar. Herkostnaðurinn við það hefur reynst okkur ansi hár og mikill. Samt hafa staðreyndirnar legið á borðinu fyrir framan okkur allan tímann. Því er eðlilegt að sú spurning vakni, hvort við höfum efni á að bíða aðgerðalaus önnur sex ár? Hver verður herkostnaðurinn við það? Sex ár liðin frá skýrslu hnattvæðingarnefndar: Herkostnaðurinn af krónunni BJÖRN INGI HRAFNSSON SKRIFAR ÚTGÁFUFÉLAG: 365 RITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Kristján Hjálmarsson, Trausti Hafliðason og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál). FULLTRÚI RITSTJÓRA: Páll Baldvin Baldvinsson. VIÐSKIPTARITSTJÓRAR: Björn Ingi Hrafnsson og Óli Kr. Ármannsson. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á suðvesturhorninu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.