Fréttablaðið - 07.07.2008, Síða 34
18 7. júlí 2008 MÁNUDAGUR
Fátt er betra fyrir sál
og líkama en að dansa
frá sér allt vit.
Íslendingar hafa
lengi verið heldur
tregir til að dansa og
eigum við okkur til að
mynda engan flottan
þjóðdans eins og flestar
aðrar þjóðir. Þjóðin vakn-
aði þó rækilega til dansvitundar á
tuttugustu öldinni og tók löður-
sveitt til við að stunda flestar þær
tegundir af dansi sem heimurinn
hefur upp á að bjóða. Nú er svo
komið í höfuðborginni að auðvelt
er að hafa upp á námskeiðum í
framandi dönsum á borð við maga-
dans og krump, en auk þess má
ávallt treysta á fjöldann allan af
skólum sem bjóða dansþyrstu
fólki upp á hefðbundnari dansa
eins og djassballett og samkvæm-
isdansa. Enn hefur þó lítið borið á
námskeiðahaldi í nýlegu dansæði
sem flætt hefur yfir heiminn á
undanförnum árum, en nám-
skeiðaskortur þessi gefur til
kynna að æðið hafi enn ekki
almennilega náð Íslandsströndum.
Þessi nýstárlegi dansstíll kallast
fingradans og má sjá mörg dæmi
um hann á vefsíðunni YouTube.
Nafn dansins er ekki villandi;
fimir fingur flinkustu dansaranna
hafa náð ótrúlega góðum tökum á
dansstílum sem fram að þessu
hafa einskorðast við fætur. Vin-
sælasti dansstíllinn hjá fingra-
dönsurum er tvímælalaust breik-
dans og er hreinlega með
ólíkindum að sjá færnina hjá
mörgum dansaranna. Sumir ganga
meira að segja svo langt að skreyta
hönd sína með litlum strigaskóm
og svitaböndum, þannig að andi
síðastliðins níunda áratugar svíf-
ur ótvírætt yfir vötnum. En fingur
hafa einnig náð góðum tökum á
öðrum dansstílum, til að mynda
klassískum ballett, Michael
Jackson-dönsum og steppdansi
svo eitthvað sé nefnt.
Það er næsta víst að til eru
Íslendingar sem leggja stund á
fingradans. Stóra spurningin er:
hvers vegna eru þeir ekki farnir
að bjóða upp á námskeið í þessari
list? Þeir gætu grætt á, tja, í það
minnsta fingri!
STUÐ MILLI STRÍÐA Fimir fingur
VIGDÍS ÞORMÓÐSDÓTTIR VILL FLEIRI DANSNÁMSKEIÐ
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Rifjaðu upp með
mér hvað það er
aftur sem við gerum
aldrei!
Fyrirgefðu,
Haraldur,
hann Röggi
getur verið
svolítið
grimmur.
Takk fyrir
það, nú skul-
um við koma
honum heim.
Almáttugur. Hann
lítur illa út, allur úti
í varalit og ódýru
ilmvatni. Verður
ekki betra!
Tja, að sjá
þetta!
... og
það
segir
ekki
neitt
Hvað heldur þú
að Selma segi
þegar hún sér
hann?
Úff!
Ég ætti að fá gosfyrirtæki
til að styrkja mig
í matarhléun-
um. Kók! Ekki bara í morgunmat-
inn!
Múmía
Úff.
Ég vona að hann skilji
eftir klósettpappír fyrir
okkur til að leika okkur
með.
Og þetta
kalla þeir
„skemmtun“?
þú verður
að vera
svona hár
til að fara í
tækið.
Þú mátt fara
í tækið ef þú
ert nógu stór.
Hæðar-
krafa
365 – Skaftahlíð 24 – 105 Reykjavík – Sími 512 5000 – www.365.is
Vegna fyrirhugaðrar afskráningar 365 hf. af skipu-
legum verðbréfamarkaði hefur stjórn félagsins
ákveðið, með samþykki hluthafafundar þann
1. júlí 2008, að kaupa hluti þeirra hluthafa sem
þess óska.
Hluthöfum 365 hf. er gert tilboð um að selja
hlutabréf sín í félaginu á gengi 1,20 kr. fyrir hvern
hlut í 365 hf. Tilboðið gildir til kl. 16.00 þann 11. júlí
2008. Tilboðið er gert þeim hluthöfum sem skráðir
voru í hluthafaskrá félagsins kl. 11.00 þann
1. júlí 2008.
Hluthöfum gefst þó kostur á að vera áfram hlut-
hafar í óskráðu félagi 365. Kauptilboðið er sett fram
í því skyni að koma til móts við hluthafa félagsins
og er það hverjum og einum hluthafa í sjálfsvald
sett hvort hann samþykkir kauptilboðið. Ef hluthafi
hefur ekki hug á að taka þátt í kauptilboðinu, þarf
viðkomandi hluthafi ekki að aðhafast neitt, þar
sem allir þeir sem taka ekki þátt í tilboðinu halda
ósjálfrátt áfram sem hluthafar í óskráðu félagi 365.
Tilboðið er lagt fram á grundvelli nánari skilmála
sem koma fram í bréfi sem sent hefur verið til allra
hluthafa á skráð lögheimili þeirra. Í bréfinu eru
einnig leiðbeiningar um tilboðið ásamt notandanafni
og lykilorði, sem hluthafi verður að nota til að taka
þátt í tilboðinu. Hluthafar sem hyggjast taka þátt í
tilboðinu skulu lesa bréf sitt vandlega og fylgja þeim
leiðbeiningum sem þar eru gefnar. Ef bréfið hefur
ekki borist hluthafa þann 7. júlí 2008 skal hann
hafa samband við 365 í síma 512 5000, þar sem
einnig eru veittar allar aðrar upplýsingar
um tilboðið.
Stjórn 365 hf.