Fréttablaðið - 07.07.2008, Blaðsíða 36
20 7. júlí 2008 MÁNUDAGUR
folk@frettabladid.is
> ENN VINIR
Í síðustu viku sást til söngkonunnar
Lily Allen þar sem hún gekk hönd í
hönd með sínum fyrrverandi, Ed
Simons úr Chemical Brothers.
Söngkonan og Ed áttu í stuttu
sambandi sem endaði fyrr á
árinu eftir að hún missti fóst-
ur. Eftir fósturlátið varð Lily að eigin
sögn mjög þunglynd og sökkti sér í
vinnu sem fór að lokum með sam-
band hennar og Eds. Þau virðast þó
enn vera ágætir vinir ef marka má
heimildir The Sun.
Hjartaknúsarinn Orlando Bloom
hefur sést æ oftar í fylgd með
áströlsku fyrirsætunni Amöndu
Kerr. Nýlega sást til parsins þar
sem þau eyddu saman nokkrum
sólardögum á Kanaríeyjum. Parið
hefur enn ekki viðurkennt
opinberlega að þau séu par en
þrátt fyrir það hefur Amanda
kynnt Orlando fyrir föður sínum.
Það er þó byrjun.
Ástin blómstr-
ar hjá Orlando
ÁSTFANGINN LEIKARI Orlando Bloom
hefur sést mikið með fyrirsætunni
Amöndu Kerr upp á síðkastið.
NORDICPHOTOS/GETTY
Jennifer Aniston meinaði Kimberly
Stewart aðgang baksviðs fyrir
tónleika Johns Mayer í Hyde
Park á dögunum. Jennifer og
John hafa átt í ástarsambandi
síðustu vikur en Kimberly er
fyrrverandi kærasta Johns.
Heimildarmaður Daily
Mirror sagði að Jennifer hafi
brugðist ókvæða við þegar hún sá
Kimberly baksviðs. „Jennifer
spurði John hvað Kimberly væri að
gera þarna. Hún vill ekki hafa neinn
í kringum sig né John sem minnir
hana á hina villtu daga Johns. Hún
er yfir sig ástfangin af honum en
er hrædd um að verða særð aftur.
Það hefur komið fyrir áður að kona
steli manninum hennar, Angelina
stal Brad, og Jennifer gæti ekki
afborðið það ef það kæmi fyrir
aftur,“ segir heimildarmaðurinn
um málið.
Kimberly þessi er eins og
margir vita dóttir rokkarans
Rods Stewart og góð vinkona
Parisar Hilton.
JENNIFER ANISTON
Hrædd um að missa kær-
astann.
JOHN MAYER Vísaði
fyrrverandi út af
tillitssemi við
Jennifer.
Jennifer óörugg og afbrýðissöm
Hljómsveitin Merzedes
Club hélt áheyrnarprufur
á Tunglinu á laugardaginn
þar sem leitað var að nýrri
bakraddasöngkonu. Rúm-
lega þrjátíu stúlkur mættu
til leiks en valið stendur nú
milli tveggja. Önnur þeirra
er dóttir Jóns Gnarr.
„Þetta gekk mjög vel,“ segir Val-
geir Magnússon, umboðsmaður
Merzedes Club, um prufur fyrir
hlutverk nýrrar bakraddasöng-
konu sveitarinnar sem fóru fram
á Tunglinu á laugardaginn. Fyrir
helgi hafði Valgeir lýst eftir stúlk-
um „með fagran limaburð“ til
þess að mæta í prufurnar. Því var
lítið um íturvaxin kvenkyns hæfi-
leikabúnt í prufunum. „Nei, við
vorum nú búin að útiloka vissar
týpur þegar við auglýstum eftir
söngkonunni. Flestar sem mættu
voru með útlitið í lagi en sumar
höfðu útlitið en gátu bara alls
ekki sungið. Þær þurfa að hafa
hvort tveggja,“ segir Valli.
Stúlkurnar tvær sem standa
eftir að prufunum loknum heita
Bryndís Bjarnadóttir og Margrét
Edda Jónsdóttir. Sú síðarnefnda
er dóttir grínistans Jóns Gnarr.
„Hún kynnti sig sem Magga Edda
og var ekkert að flagga faðerni
sínu. Við vissum ekki að hún væri
dóttir hans fyrr en eftir á þannig
að hún komst áfram á eigin verð-
leikum og engu öðru,“ segir Valli
ákveðinn. Jón Gnarr samdi text-
ann við lagið Frelsi sem Merzed-
es Club gaf út á dögunum. Stúlk-
urnar gátu valið um að syngja
Frelsi eða lagið I wanna touch
you. „Magga Edda kunni textann
við Frelsi utan að, enda ekki við
öðru að búast eftir á að hyggja,“
segir Valli og hlær. Stúlkurnar
munu nú fara í frekari prufur hjá
Barða Jóhannssyni. Um næstu
helgi mun svo önnur þeirra, eða
báðar tvær, stíga á svið með
hljómsveitinni. Í Sjallanum á
föstudagskvöldið og á Blönduósi
daginn eftir.
„Svo þarf að sérhanna galla á
viðkomandi. Harpa Einars fer í
það. Ekki endilega efnislítinn,
frekar framúrstefnulegan og
vissulega aðsniðinn,“ segir Valli
Sport. soli@frettabladid.is
Dóttir Jóns Gnarr líkleg bakradda-
söngkona Merzedes Club í Portúgal
DÓMNEFNDIN Þau Partý-Hanz, Stóri og
Rebekka sátu í dómnefnd. Partý og Stóri
skörtuðu þessum fínu kúrekahöttum
enda var hljómsveitin að spila á Lands-
móti hestamanna seinna um kvöldið.
FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
MAGGA EDDA Magga Edda stóð upp úr ásamt Bryndísi Bjarnadóttur. Margrét er
dóttir Jóns Gnarr en það vissi dómnefndin ekki þegar hún mætti í prufurnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN