Fréttablaðið - 07.07.2008, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 07.07.2008, Blaðsíða 48
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Þráins Bertelssonar 3.20 13.33 22.43 2.24 13.17 0.07 Í dag er mánudagurinn 7. júlí, 190. dagur ársins. ...ég sá það á visir.is Segir grafhýsi Kleópötru fundið Myndir berast frá Mars Tilfærsla yfir á hægri akrein sviðsett Býst við minni verðbólgu MEST LESIÐ: Ég hélt að sá tími myndi aldrei koma að ég þyrfti að fara á mótmælafund til að biðja íslensk yfirvöld að stilla sig um að ata hendur sínar saklausu blóði – en það átti fyrir mér að liggja að fara í mótmælastöðu upp í Skugga- sund, þar sem dómsmálaráðherra hefur skrifstofu. Ég er ekki að grínast. Dómsmálaráðuneyti Íslands stendur við Skuggasund. SÁ ÚRSKURÐUR að flytja úr landi – frá eiginkonu og nýfæddu barni – mann sem á yfir höfði sér að verða drepinn í heimalandi sínu er ógnvænlegur. Ekki síst vegna þess að huggun mín og margra annarra síðustu hálfa öld hefur verið sú að þótt Flokkurinn sem mótað hefur íslenskt þjóðfélag víli ekki fyrir sér að tortryggja, upp- nefna, njósna um, hefta eða eyði- leggja starfsframa þeirra sem þora að setja sig upp á móti vilja hans séu menn þó alltént ekki í beinni lífshættu. Með orðinu „upp- nefna“ á ég við það meiðyrði að kalla andstæðinga sína „kommún- ista“. Aðferð sem gaf góða raun í skammvinnu galdrafári McCarthys í Bandaríkjunum. NÚ ER svo komið að Flokkurinn virðist ekki lengur víla það fyrir sér að senda saklaust fólk í böðuls- hendur. Úr því að „Lebensraum“ er orðið svona takmarkað á Íslandi vil ég gera stjórnvöldum það til- boð að flytja mig til Ítalíu og bjóða mig fram sem gísl í staðinn fyrir Paul Ramses, svo að hann geti fengið að sjá litla barnið sitt aftur, en ég komist út úr skugga hinnar helbláu handar. NÝJASTA hugsjón Flokksins er að leynileg lögregla fái „fram- virkar rannsóknarheimildir“. Sem sé heimildir til að rannsaka mann- eskjur eftir geðþótta án þess að nokkur grunur liggi fyrir um að þær hafi gerst brotlegar við lög eða hafi lögbrot í hyggju. Ég veit ekki af hverju fólk kaus Flokkinn, en það var ekki til þess arna sem þjóðin veitti Samfylkingunni það umboð sem hún hefur. ÉG MÓTMÆLI mannhatri og miskunnarleysi í nafni þeirra kyn- slóða sem að mér standa og hafa lifað og dáið frá landnámstíð í trú á frelsi og framtíð þessa lands og allra heimsins barna. Allar komu þær kynslóðir naktar í heiminn og enginn krafði þær um vegabréf til að fá að lifa. Farðu burt, Skuggi Skuggason í Skuggasundi. Farðu burt, helbláa hönd. Skuggi Skuggason í Skuggasundi

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.