Fréttablaðið - 07.07.2008, Side 48
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þráins
Bertelssonar
3.20 13.33 22.43
2.24 13.17 0.07
Í dag er mánudagurinn 7. júlí,
190. dagur ársins.
...ég sá það á visir.is
Segir grafhýsi Kleópötru fundið
Myndir berast frá Mars
Tilfærsla yfir á hægri akrein sviðsett
Býst við minni verðbólgu
MEST LESIÐ:
Ég hélt að sá tími myndi aldrei koma að ég þyrfti að fara á
mótmælafund til að biðja íslensk
yfirvöld að stilla sig um að ata
hendur sínar saklausu blóði – en
það átti fyrir mér að liggja að fara
í mótmælastöðu upp í Skugga-
sund, þar sem dómsmálaráðherra
hefur skrifstofu. Ég er ekki að
grínast. Dómsmálaráðuneyti
Íslands stendur við Skuggasund.
SÁ ÚRSKURÐUR að flytja úr
landi – frá eiginkonu og nýfæddu
barni – mann sem á yfir höfði sér
að verða drepinn í heimalandi sínu
er ógnvænlegur. Ekki síst vegna
þess að huggun mín og margra
annarra síðustu hálfa öld hefur
verið sú að þótt Flokkurinn sem
mótað hefur íslenskt þjóðfélag víli
ekki fyrir sér að tortryggja, upp-
nefna, njósna um, hefta eða eyði-
leggja starfsframa þeirra sem
þora að setja sig upp á móti vilja
hans séu menn þó alltént ekki í
beinni lífshættu. Með orðinu „upp-
nefna“ á ég við það meiðyrði að
kalla andstæðinga sína „kommún-
ista“. Aðferð sem gaf góða raun í
skammvinnu galdrafári
McCarthys í Bandaríkjunum.
NÚ ER svo komið að Flokkurinn
virðist ekki lengur víla það fyrir
sér að senda saklaust fólk í böðuls-
hendur. Úr því að „Lebensraum“
er orðið svona takmarkað á Íslandi
vil ég gera stjórnvöldum það til-
boð að flytja mig til Ítalíu og bjóða
mig fram sem gísl í staðinn fyrir
Paul Ramses, svo að hann geti
fengið að sjá litla barnið sitt aftur,
en ég komist út úr skugga hinnar
helbláu handar.
NÝJASTA hugsjón Flokksins er
að leynileg lögregla fái „fram-
virkar rannsóknarheimildir“. Sem
sé heimildir til að rannsaka mann-
eskjur eftir geðþótta án þess að
nokkur grunur liggi fyrir um að
þær hafi gerst brotlegar við lög
eða hafi lögbrot í hyggju. Ég veit
ekki af hverju fólk kaus Flokkinn,
en það var ekki til þess arna sem
þjóðin veitti Samfylkingunni það
umboð sem hún hefur.
ÉG MÓTMÆLI mannhatri og
miskunnarleysi í nafni þeirra kyn-
slóða sem að mér standa og hafa
lifað og dáið frá landnámstíð í trú
á frelsi og framtíð þessa lands og
allra heimsins barna. Allar komu
þær kynslóðir naktar í heiminn og
enginn krafði þær um vegabréf til
að fá að lifa. Farðu burt, Skuggi
Skuggason í Skuggasundi. Farðu
burt, helbláa hönd.
Skuggi
Skuggason í
Skuggasundi