Fréttablaðið - 11.07.2008, Page 2
2 11. júlí 2008 FÖSTUDAGUR
AUSTURRÍKI, AP Nóg verður til af
olíu í heiminum næstu áratugina,
þrátt fyrir að orkuþörf muni
aukast um 50 prósent til ársins
2030.
Þetta er fullyrt í nýrri skýrslu
frá OPEC, samtökum olíufram-
leiðsluríkja, sem kynnt var í
Austurríki í gær.
Í skýrslunni segir að nýjar
aðferðir við að ná upp olíu úr
jörðu, tryggi að ekki verði skortur.
Engu að síður viðurkennir
Abdalla Salem El-Badri, fram-
kvæmdastjóri OPEC, að hætta sé
á að framboð verði ekki jafnt og
stöðugt, til dæmis ef Bandaríkin
eða Ísrael ráðast á Íran.
„Það er ómögulegt að eitthvað
komi í staðinn fyrir framleiðsluna
í Íran,“ sagði hann. - gb
Samtök olíuríkja:
Nóg til af olíu
næstu áratugi
SPURNING DAGSINS
SKIPULAGSMÁL „Hafnarfjörður var
vinalegur bær en nú eru hlutirnir
ítrekað gerðir án tillits til vilja eða
líðanar fólksins sem býr þar,“
segir Halldór Halldórsson, íbúi í
Staðarhvammi.
Eigendur allra húsa í Staðar-
hvammi hafa skrifað undir mót-
mæli vegna framkvæmda við leik-
skólann Hvamm þar í götunni.
Óskað hefur verið álits Skipulags-
stofnunar á lögmæti framkvæmd-
anna. Bæta á við tveimur færan-
legum kennslustofum og hefur
bærinn veitt stöðuleyfi til eins árs
vegna þeirra. Nágrannarnir óttast
að stofunum sé í raun ætlað að
standa mun lengur, en að bæjaryf-
irvöld fari þessa leið til að komast
undan grenndarkynningu.
Halldór bendir á að á árinu 2003
hafi Hvammur verið tvöfaldaður.
Íbúar hafi talið að Staðarhvamm-
ur myndi geta borið umferðina og
ekki andmælt. Svo hafi ekki reynst
vera og íbúarnir hafi einmitt ætlað
að krefjast úrbóta þegar í ljós hafi
komið í vor að bæjaryfirvöld
hefðu samþykkt að fjölga stöðu-
gildum við leikskólann vegna
nýrrar stækkunar.
Staðarhvammur er botnlangi og
gatan hallar niður að leikskólan-
um. Halldór segir erfitt að snúa
þar við bílum vegna hönnunar göt-
unnar. Þar séu 38 almenn stæði en
ekkert þeirra tilheyri leikskólan-
um sem þegar sé með ríflega 30
starfsmenn. Búast megi við um
170 bílum daglega eftir viðbótina.
„Það átti ekki að kynna málið en
vegna mótmæla okkar var haldinn
stuttur kynningarfundur um miðj-
an maí þar sem næstum allir íbú-
arnir mótmæltu harðlega,“ segir
Halldór, sem kveður íbúana síðan
ekkert hafa heyrt eða séð frá
bænum fyrr en á mánudaginn að
maður birtist og sprautaði niður
merkingar við leikskólann.
„Ég skrifaði þá mótmælabréf og
byrjaði að safna undirskriftum.
Ég sendi ráðamönnum bæjarins
strax afrit því mér þótti sjálfsögð
kurteisi að láta þá vita svo þeir
færu ekki að ana út í einhverja
vitleysu í algjörri andstöðu við
íbúana. En um hádegisbil næsta
dag mættu gröfurnar,“ segir Hall-
dór.
Að sögn Halldórs er þegar kom-
inn grunnur fyrir nýju húsin. „Þeir
sem til þekkja segja grunninn alls
ekki byggðan til eins árs. Þegar
stöðuleyfi er fengið til eins árs er
hægt að fá það framlengt í tíu ár
án grenndarkynninga. Þetta vita
þeir og nota sér smugur til að þess
að koma í veg fyrir að íbúalýðræð-
ið geti virkað,“ segir Halldór.
Í gær átti Halldór fund með Ell-
ýju Erlingsdóttur, forseta bæjar-
stjórnar. Kom þar fram að bærinn
freistar þess að fá afnot af bíla-
stæðum kaþólsku kirkjunnar ofan
við leikskólann. „Þau segjast
reyna allt sem þau geta til að leysa
málið en það er ekkert í hendi. Á
meðan áskiljum við okkur rétt til
að beita öllum eðlilegum leiðum til
að stöðva framkvæmdirnar,“ segir
Halldór.
Ekki náðist í Ellýju Erlingsdótt-
ur. gar@frettabladid.is
Íbúarnir æfir vegna
stækkunar leikskóla
Veiting stöðuleyfis vegna tveggja kennslustofa fyrir leikskóla við Staðarhvamm
í Hafnarfirði veldur gremju íbúa í botnlangagötunni. Ekki sé bætandi við um-
ferðarþungann sem verið hafi frá því skólinn var stækkaður fyrir fimm árum.
HALLDÓR HALLDÓRSSON „Áskiljum okkur rétt til að mótmæla á meðan umferðar-
vandinn vegna stækkunar leiksskóla er óleystur,“ segir íbúi við Staðarhvamm.
FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
REYKJAVÍK Ógæfufólk verður áber-
andi í miðbæ Reykjavíkur á sumr-
in. Við Austurvöll og í Austur-
stræti má oft sjá verulega drukkið
fólk um hábjartan dag.
Stella Víðisdóttir, sviðsstjóri
velferðarsviðs Reykjavíkurborg-
ar, segir að þrátt fyrir að ógæfu-
fólk verði sýnilegara á sumrin sé
það mat velferðarsviðs að þeim
hafi ekki fjölgað og unnið sé að
úrbótum. „Nú rekum við bæði
gistiskýli og heimili og erum að
bæta við rúmum til þess að geta
hýst sem flesta.“ Hún segir að
unnið sé að frekari úrræðum á
velferðarsviði en að oft séu mál
háð forgangsröðun.
Stella segir að ef fólkinu fylgi
læti þá sé það alfarið á ábyrgð lög-
reglu að leysa málin. „Ég held að
lögreglan mætti vera sýnilegri á
daginn,“ bætir hún við. „Það er í
hennar verkahring að bregðast
við óspektum.“
Hörður Jóhannesson aðstoðar-
lögreglustjóri segir lögregluna
meðvitaða um vandamálið en það
sé lítið hægt að gera. „Við eigum
vitanlega að halda uppi lögum og
reglu en þetta er félagslegt vanda-
mál og oft er um að ræða fólk sem
á sér engan samastað á daginn.“
Hann bætir því við að ekki sé hægt
að handtaka fólk fyrir það eitt að
vera drukkið.
„Hér á landi er leyfilegt að vera
ölvaður á almannafæri en þegar
um óspektir er að ræða eða fólki
er misboðið á það að hringja í
okkur.“ - hþj
Mannekla hindrar lögregluna í störfum sínum í miðborginni:
Ógæfufólk á ábyrgð lögreglu
ÓGÆFUFÓLK DETTUR UM MANN Á
sumrin verður vandinn sýnilegri en
ekki er nægur mannafli til að takast á
við hann. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
STJÓRNMÁL Lúðvík Bergvinsson,
þingflokksformaður Samfylking-
arinnar, vísar því á bug að aðeins
minnihluti þingmanna flokksins
styðji umhverfisstefnu hans,
Fagra Ísland, af heilum hug. Í
samtali við Fréttablaðið sagði
hann frétt þess efnis í gær frá-
leita.
Þingflokkurinn ræddi umhverf-
ismál á sérstökum fundi á þriðju-
dag. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins lýstu nokkrir þing-
menn óánægju með efndir fyrir-
heita úr kosningabaráttunni fyrir
ári og grundvölluðu gagnrýni sína
einkum á þeirri staðreynd að tvö
ný álver eru í sjónmáli; í Helguvík
á Suðurnesjum og á Bakka við
Húsavík.
Lúðvík segir Fagra Ísland ekki
snúast um tvö álver, líkt og skilja
megi af opinberri umræðu. Plagg-
ið sé langtímaáætlun um að auka
vægi náttúruverndar og að henni
sé unnið á vettvangi ríkisstjórnar-
innar. Álverin tvö séu arfur frá
fyrri ríkisstjórn, núverandi ríkis-
stjórn hafi ekkert ákveðið um ný
álver. „Ef stöðva ætti byggingu
þessara álvera þyrfti að gera það
með sérstökum lögum frá Alþingi.
Í engu er kveðið á um slíkt hvorki
í Fagra Íslandi né stjórnarsáttmál-
anum sem þingflokkur Samfylk-
ingarinnar samþykkti og ríkis-
stjórnin starfar eftir.“
- bþs
Segir fráleitt að umhverfisstefna Samfylkingarinnar njóti ekki meirihlutastuðnings:
Fagra Ísland snýst ekki um tvö álver
LÚÐVÍK BERGVINSSON segir Fagra Ísland
vera langtímaáætlun um að auka vægi
náttúruverndar og að eftir því sé unnið.
Jón Steinar, hyggstu svara
svari Eiríks við svari þínu við
gagnrýni hans?
„Ég hef löngu lagt alla svardaga á
hilluna.“
Jón Steinar Gunnlaugsson Hæstaréttar-
dómari svaraði gagnrýni Eiríks Tómas-
sonar prófessors á sératkvæði Jóns í
dómsmáli. Eiríkur hyggst svara til baka.
SAMGÖNGUR Boeing 757-þota með
181 farþega innanborðs nauðlenti
á Keflavíkurflugvelli í gær eftir
að annar hreyfill flugvélarinnar
bilaði. Lögregla, slökkvilið og
björgunarsveitir á suðvestur-
horninu voru kallaðar út.
Orsök bilunarinnar liggur ekki
fyrir. Farþegar urðu þess ekki
varir þegar drepið var á hreyflin-
um og héldust rólegir, samkvæmt
Guðjóni Arngrímssyni, upplýs-
ingafulltrúa Icelandair.
Vélin var á leið frá Amsterdam,
samkvæmt heimildum Vísis. - gh
Hreyfill Boeing-þotu bilaði:
Nauðlenti á ein-
um hreyfli
FLUGVÉLAR ICELANDAIR Lendingin tókst
vel, en Boeing 757-þotur eru hannaðar
til að geta lent þó annar hreyfillinn bili.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
MENNTUN Ingibjörg R. Magnús-
dóttir færði Háskóla Íslands eina
milljón og sjö hundruð og fimmtíu
þúsund krónur að gjöf í tilefni af
85 ára afmæli sínu.
Framlag Ingibjargar fer í sjóð í
hennar nafni við Rannsóknar-
stofnun í hjúkrunarfræði. Markmið
sjóðsins er að efla rannsóknir í
hjúkrunar- og ljósmóðurfræði.
Ingibjörg er hjúkrunarfræðing-
ur og hefur verið einn ötulasti
talsmaður þróunar hjúkrunar-
menntunar á Íslandi. - hþj
Háskóli Íslands hlýtur styrk:
Tæplega tvær
milljónir gefnar
SÚDAN, AP Sjö friðargæsluliðar á
vegum Sameinuðu þjóðanna og
Afríkusambandsins voru drepnir
í árás um tvö hundruð vígamanna
í Darfúr-héraði í Súdan á þriðju-
dag.
Friðargæsluliðunum er ætlað
að róa ástandið í Súdan, en
borgarastyrjöld hefur geisað þar
milli uppreisnarmanna og
Súdansstjórnar frá árinu 2003.
Bæði uppreisnarmenn og
Súdansstjórn hafa fordæmt
árásina og vísað frá sér ábyrgð.
Búnaður vígamannanna bendir þó
til þess að þeir tilheyri janja-
weed-hersveitum, sem njóta
stuðnings stjórnarinnar. - gh
Borgarastyrjöldin í Súdan:
Sjö friðargæslu-
liðar felldir
GRINDAVÍK Heildarkostnaður
Grindavíkurbæjar vegna launa
Ólafs Arnar Ólafssonar, fráfar-
andi bæjarstjóra, hljóðar upp á
rúmar fjörutíu og tvær milljónir
króna. Hann mun fá greidd laun
þar til kjörtímabilinu lýkur í maí
2010 auk fyrstu sex mánaðanna af
næsta kjörtímabili. Þetta koma
fram á vísi.is.
Þegar Ólafur tók við bæjar-
stjórastöðunni voru laun hans
rúmar átta hundruð þúsund
krónur en eru nú 1,2 milljónir. Til
samanburðar eru laun forsætis-
ráðherra tæplega 1,1 milljón.
- ges
Laun bæjarstjórans í Grindavík:
Stjórnarslit upp
á tugi milljóna
Sina brann í Hafnarfirði
Kalla þurfti út slökkvilið vegna sinu-
bruna við Hellnahraun í Hafnarfirði
um sexleytið í gærdag. Slökkvistarf
gekk vel og hafði eldurinn verið
slökktur skömmu eftir að slökkvi-
lið kom á staðinn. Eldsupptök eru
ókunn.
LÖGREGLUFRÉTTIR