Fréttablaðið - 11.07.2008, Page 4
4 11. júlí 2008 FÖSTUDAGUR
Ranglega var sagt í blaðinu í gær að
Urriðafoss væri vatnsmesti foss lands-
ins. Hið rétta er að Selfoss í Ölfusá er
vatnsmeiri miðað við meðalrennsli.
LEIÐRÉTT
DÓMSMÁL „Ég vona að Hæstirétt-
ur taki á málinu efnislega,“ segir
Halldór Sævar Guðbergsson, for-
maður Öryrkjabandalags Íslands.
Gildi lífeyrissjóður hefur áfrýj-
að til Hæstaréttar dómi Héraðs-
dóms Reykjavíkur um að sjóðn-
um hafi verið óheimilt að draga
frá örorkulífeyri konu, vegna
greiðslna almannatrygginga.
Gildi dró frá greiðslum til henn-
ar eftir breytingu á samþykktum
árið 2006.
Ráðuneytisstjóri fjármálaráðu-
neytisins var vanhæfur til að
staðfesta breytingarnar, að mati
héraðsdóms. Því ætti það sama
við alla starfsmenn ráðuneytisins
og breytingarnar
hefðu ekkert
gildi.
„Mér vitanlega
kom Baldur Guð-
laugsson [ráð-
neytisstjóri]
þarna hvergi
nærri. Því þykir
mér undarlegt að
það valdi vanhæfi
starfsmanna til að
vinna verk sem
eru á ábyrgð ráð-
herrans,“ segir Gestur Jónsson,
lögmaður Gildis.
Efnislega má segja um breyt-
ingarnar að fólk sem fær lífeyri
úr sjóðnum getur ekki haft hærri
tekjur en það hafði áður en það
varð fyrir tjóni. Tekjur frá
almannatryggingum eru þar tald-
ar með, en fátt um þær sagt í eldri
samþykktum. Svo er ekki um elli-
lífeyri.
Fjórtán lífeyrisjóðir breyttu
samþykktum sínum með sama
hætti, um svipað leyti og Gildi.
„Það þarf að fá úr því skorið
hvort allar þessar samþykktir
standast,“ segir Gestur Jónsson.
Staðfesti Hæstiréttur dóminn
kynni hann að hafa þau áhrif að
fjölmargir lífeyrissjóðir þurfi að
gera upp síðustu ár, fyrir um tvö
þúsund öryrkja. - ikh
Dómur um samþykktir lífeyrissjóða sem gæti þýtt greiðslur til 2000 öryrkja:
Gildi áfrýjar til Hæstaréttar
BALDUR
GUÐLAUGSSON
FLÓTTAMENN Útlendingastofnun kannar ekki aðstæður
flóttamanna í þeim ríkjum sem hún endursendir
hælisleitendur til, á grundvelli ákvæðis í Dyflinnar-
samningi.
Innan hennar er talið að treysta megi ríkjum ESB,
enda hafi þau skuldbundið sig með alþjóðlegum
mannréttindasáttmálum.
Þetta segir Ragnheiður Böðvarsdóttir, staðgengill
forstjóra Útlendingastofnunar.
„Við fengum viðvörun að utan vegna Grikklands. En
við höfum ekki verið með neina hælisleitendur sem
hefðu getað farið þangað, svo ég viti til,“ segir hún.
Ekki hafi verið brugðist sérstaklega við gagnrýni
Sameinuðu þjóðanna og Amnesty International á
aðstæður flóttamanna á Ítalíu.
„Það er gert ráð fyrir því að þetta sé öruggt ríki,“
segir hún.
Keníamaðurinn Paul Ramses, sem
nú er á Ítalíu, hefur sagt að hann
þurfi að byrja að nýju þar ytra. Öll
gögn í málinu, sem sýni að hann hafi
gilda ástæðu til að flýja heimalandið,
séu á Íslandi.
Ragnheiður segir að í móttökuríki,
svo sem Ítalíu, hefjist ný málsmeð-
ferð. Vilji hælisleitandi að gögn hans
séu send með honum, þurfi hann að
fara fram á það. Einnig geti móttöku-
ríkið farið fram á þetta. Stofnunin
sendi þó skjölin ekki að fyrra bragði.
Ragnheiður segir að tölur þær sem birst hafa í
blaðinu um hversu hlutfallslega margir útlendingar
eru sendir héðan, á grundvelli Dyflinnar-samnings,
séu ekki til marks um meðvitaða stefnu stjórnvalda.
Minnst nýta Norðmenn samninginn á þennan hátt,
eða í um 8 prósentum tilfella. Íslendingar nýta hann í
um 38 prósentum tilfella. Þetta megi helst skýra með
því að Ísland sé sjaldnast fyrsti viðkomustaður
flóttamanna.
Um hvort hafi meira vægi við ákvarðanir Útlend-
ingastofnunar, lög um réttindi barna eða lög um
endursendingarrétt flóttamanna, segir Ragnheiður:
„Meginreglan er þessi Dyflinnar-samningur, en
þegar sérstakar kringumstæður eru fyrir hendi, þá
eru þær að sjálfsögðu skoðaðar og málið metið
heildstætt.“ Aðspurð segir hún að áður hafi komið
fram að það hafi verið gert í máli Pauls Ramses.
klemens@frettabladid.is
Stofnunin kannar
ekki aðstæður úti
Staðgengill forstjóra Útlendingastofnunar segir að Evrópuríkjum sé treyst til
að standa við samninga. Gögn hælisleitanda fari með honum ef þess er óskað.
Dyflinnar-samningur sé meginregla, en aðstæður barna skoðaðar í hvert sinn.
EKKI HVERT SEM ER
Mörður Árnason, Samfylkingu, innti dómsmálaráðherra
eftir framkvæmd Dyflinnar-samningsins á Alþingi í vor.
Spurði Mörður meðal annars um hvort
ráðherra teldi réttlætanlegt að senda
hælisleitanda til ríkis sem setti flóttamann-
inn hugsanlega í varðhald. Í svari Björns
kom fram að ekki hafi verið litið svo á
að hugsanlegt varðhald kæmi í veg fyrir
endursendingu.
Ráðherra var einnig spurður hvort
réttlætanlegt væri að endursenda
hælisleitanda til ríkis þegar líkur væru á
að í móttökulandinu yrði ekki fjallað um
umsókn hans efnislega.
Svaraði Björn Bjarnason því neitandi: „Það er stefna
ráðuneytisins, eins og annarra norrænna yfirvalda í
þessum málaflokki, að senda ekki hælisleitendur til ríkja
þar sem ekki er tryggt að fjallað verði efnislega um hælis-
umsókn þeirra.“
MÖRÐUR
ÁRNASON
RAMSES HEIM Í gær var undirskriftalisti afhentur dómsmála-
ráðuneytinu. Sagt var að tæplega 3.300 manns hefðu skrifað
undir hann. Þar var skorað á Björn Bjarnason og Útlendinga-
stofnun að „snúa Paul Ramses heim til Íslands nú þegar“.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
RAGNHEIÐUR
BÖÐVARSDÓTTIR
Grill-leikur
me› s‡r›um rjóma!
Taktu þátt í grillleik MS og þú gætir
unnið glæsilegt Weber-grill eða
vandað grillsett. Kauptu dós af sýrðum
rjóma frá MS, farðu á www.ms.is, sláðu
inn lukkunúmerið sem er í lokinu og þú
færð strax að vita
hvort þú hefur
unnið.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
8
-1
0
2
0
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
Helsinki
Eindhoven
Amsterdam
London
Berlín
Frankfurt
Friedrichshafen
París
Basel
Barcelona
Alicante
Algarve
Tenerife
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
12
11
11
13 13
11
16
11
14
12
10
4
4
5
3
4
5
3
13
12 15
16
12
13
13
15
15
12
20°
19°
19°
20°
21°
20°
20°
20°
20°
24°
21°
27°
21°
28°
27°
32°
33°
25°
Á MORGUN
Sunnan 3-10 m/s, stíf-
astur vestan til
4
SUNNUDAGUR
Hægar suðlægar áttir.
2
6
2
HELGIN
Nokkur umskipti
verða í veðrinu
um helgina þegar
lægð nálgast. Má
búast við að seinni
partinn á morgun
fari að rigna sunn-
anlands og vestan
og að úrkomsvæðið
gangi yfi r landið
aðfararnótt sunnu-
dagsins. Eftir hádegi
á sunnudag verður
yfi rleitt úrkomlítið
norðan og austan til
annars skúrir.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
LÖGREGLUMÁL Áhöfn skemmti -
ferðaskipsins Auroru, sem
lagðist að höfn í Reykjavík í
gær, kallaði eftir aðstoð
íslenskrar lögreglu síðdegis í
gær vegna farþega sem fannst
látinn um borð í skipinu. Fyrstu
fregnir hermdu að maðurinn
hefði verið myrtur, en svo
reyndist ekki vera.
Upplýsingafulltrúi skipsins
staðfesti í gær að enginn grunur
væri um morð um borð í
skipinu. Aldraður hjartasjúk-
lingur hefði látist af eðlilegum
orsökum.
Við slíkar aðstæður mun vera
eðlilegt að kalla til lögreglu til
að rannsaka andlátið. - sh
Skemmtiferðaskipverji lést:
Orsakir andláts
sagðar eðlilegar
AURORA Í fyrstu var talið að maðurinn
hefði verið myrtur. Svo reyndist ekki
vera. FRÉTTABLAÐIÐ / AUÐUNN
DÓMSMÁL Tæplega þrítugur maður
hefur í Héraðsdómi Norður lands
eystra verið dæmdur í sex
mánaða fangelsi fyrir fíkni-
efna brot. Maðurinn var handtek-
inn á Akureyrarflugvelli við
komuna frá Reykjavík með tæp
20 grömm af kókaíni innvortis.
Maðurinn á mikinn sakaferil að
baki. Hann hefur meðal annars
sætt óskilorðs bundnu fangelsi
samtals í 41 mánuð með ellefu
dómum á árunum 1996 til 2004.
Þar af var hann árið 2006
dæmdur í samtals sextán mánaða
fangelsi fyrir ótal brot. Hann rauf
reynslulausn í fyrra og er
óafplánuð refsing gerð upp nú. - sh
Síbrotamaður í fangelsi:
Dæmdur fyrir
kókaín innvortis
LÖGREGLUFRÉTTIR
Á ofsahraða við Smáralind
Ökumaður á ofsahraða var stöðvaður
á Reykjanesbraut við Dalveg til móts
við Smáralind í fyrrinótt. Reyndist
maðurinn hafa ekið á 125 kílómetra
hraða en leyfilegur hámarkshraði er
sjötíu kílómetrar.
Eldur í bifreið á Holtavegi
Eldur kom upp í gamalli bifreið á
bílastæði við Holtaveg í Reykjavík
um þrjúleytið í fyrrinótt. Bifreiðin var
kyrrstæð þegar eldurinn kom upp og
ekkert fólk nærstatt samkvæmt upp-
lýsingum frá Slökkviliði höfuðborgar-
svæðisins. Eldsupptök eru ókunn.
DÓMSMÁL Kærum íbúa í Kópavogi
vegna tveggja deiliskipulagsreita
í Lindahverfi er vísað frá
úrskurðarnefnd skipulags- og
byggingarmála.
Íbúinn kærði deiliskipulag
fyrir 27 þúsund fermetra
verslunar- og þjónustuhúsnæði í
Lindum IV og skipulag fyrir tíu
hæða háhýsi í Bæjarlind 8-10.
Sjálfur býr kærandinn í Krossa-
lind sem er 500 metra frá Lindum
IV og 800 metra frá Bæjarlind.
Úrskurðarnefndin segir lítil
sjónræn áhrif af framkvæmdun-
um tveimur fyrir kærandann og
hann geti ekki átt aðild að
stjórnsýslukæru því hann eigi
hvorki einstakra né verulegra
hagsmuna að gæta. - gar
Kópavogsbúi kærði skipulag:
Kæru vísað frá
úrskurðarnefnd
BANDARÍKIN, AP Bandarísku
læknasamtökin sendu í gær frá
sér formlega afsökunarbeiðni
fyrir kynþáttastefnu sem
samtökin fylgdu áður og gerði
svörtum læknum erfitt fyrir.
Fram á sjöunda áratug síðustu
aldar voru við lýði kynþátta-
skilyrði til aðildar og allt fram á
níunda áratuginn voru í gildi
reglur sem mismunuðu svörtum.
Afsökunarbeiðnin er liður í
viðleitni samtakanna til að rétta
hlut blökkumanna í læknastétt-
inni. Þótt þrettán prósent
Bandaríkjamanna séu blökku-
menn eru aðeins þrjú prósent
lækna vestra svartir. - gh
Bandarísku læknasamtökin:
Biðjast afsökun-
ar á rasisma
GENGIÐ 10.07.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
151,9111
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
75,34 75,7
148,8 149,52
118,33 118,99
15,86 15,952
14,669 14,755
12,534 12,608
0,7022 0,7064
122,45 123,17
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR