Fréttablaðið - 11.07.2008, Page 6
6 11. júlí 2008 FÖSTUDAGUR
Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@frettabladid.is
DR. GUNNI neytendur@frettabladid.is
Nú berast greiðsluseðlar fyrir
bifreiðagjöld inn um lúgur
landsmanna. Fríða Björk Pálsdóttir
skrifar: Dóttir mín á bíl og fékk
reikning: bifreiðagjöld 7.502 kr og
úrvinnnslugjald 350, eða samtals
7.852. Ég er öryrki og fékk annan
reikning fyrir minn bíl. Hann
hljóðar svona: ekkert bifreiðagjald
(enda gerðir samningar um það
fyrir einhverjum árum að öryrkjar
greiði ekki bifreiðagjöld), en 700
krónur í úrvinnslugjald. Þannig að
spurningin er: Af hverju á ég ekki
að greiða 350 króna úrvinnslugjald
heldur 700 krónur, bara af því ég er öryrki?
Jóhannes Jónsson hjá Ríkisskattsstjóra
svarar: „Úrvinnslugjald er lagt á öll ökutæki
sem gjaldskyld eru samkvæmt lögum um
bifreiðagjald. Gjaldið er lagt á tvisvar
sinnum á ári (1. janúar vegna tímabilsins
janúar - júní og 1. júlí vegna
tímabilsins júlí - desember) að
fjárhæð kr. 350 í hvort skipti. Þeir
bótaþegar sem rétt eiga á niðurfell-
ingu bifreiðagjalds eru ekki
undanþegnir álagningu úrvinnslu-
gjalds vegna þeirra bifreiða. Í stað
þess að senda bótaþegum tvo
greiðsluseðla á ári að fjárhæð kr.
350.- í hvort skipti, fá þeir sendan
einn greiðsluseðil (1. júlí) að
fjárhæð kr. 700. Það er því ekki
þannig að bótaþegar/öryrkjar
greiði hærra úrvinnslugjald.“
Bifreiðagjald er lagt á öll
ökutæki. Ekki skiptir máli hvort um bensín-, dísil-
eða rafmagnsknúin tæki er að ræða. Gjaldið er
reiknað út frá þyngd ökutækisins og má finna
reiknivél á vef skattsins. Úrvinnslugjaldi er bætt við
aukalega og er ætlað að standa straum af skilagjald-
inu sem fæst endurgreitt þegar ökutækið er afhent
til förgunar. Skilagjaldið er fimmtán þúsund krónur.
Bifreiðagjöldin rukkuð:
Öryrkjar greiða úrvinnslugjald
PALLBÍLLINN KOSTAR SITT Svona bíll
er um 6 tonn og eigandinn þarf því að
borga um 65 þúsund á ári í bifreiða- og
úrvinnslugjöld.
ORKUVEITAN „Ég var í góðri trú um að við værum búnir
að finna á þessu lausn og svo kom þetta bréf. Þá
hringdi ég í Hjörleif [Kvaran, forstjóra Orkuveitunnar]
og hélt að við værum búnir að finna á þessu aðra
lausn,“ segir Guðmundur Þóroddsson, fyrrverandi
forstjóri Orkuveitunnar. „Mér finnst leiðinlegt að ekki
sé hægt að ræða málin og komast að samkomulagi án
þess að þurfa að vera með einhverjar hótanir og fara
með þetta í fjölmiðla.“
Guðmundur fékk bréf afhent í fyrradag þar sem
Orkuveitan krafðist þess að afhent yrðu fundargögn
sem hann á að hafa tekið í heimildarleysi eftir að samið
hafði verið um starfslok hans í lok maí. Í yfirlýsingu
frá Guðmundi í gær segir hann að þau gögn sem hann á
að hafa tekið hafi verið afrit af frumgögnum sem hann
átti rétt á vegna setu á stjórnarfundum.
Í bréfinu frá lögfræðingunum var þess einnig krafist
að Guðmundur afhenti ýmis fríðindi sem hann fékk
meðan hann var forstjóri Orkuveitunnar, eins og
jeppabifreið og farsíma. Í yfirlýsingunni frá Guðmundi
kemur fram að sá skilningur hafi verið lagður í
ráðningarsamninginn „að þau afnot séu hluti af
starfskjörum“ hans.
Guðmundur segir að bréfi lögmannsins hafi ekki
fylgt neinn rökstuðningur fyrir því að fríðindi eins og
jeppi og farsími ættu ekki að fylgja honum eftir
starfslok.
„Mér skildist á lögfræðingi Orkuveitunnar að þetta
sé hefðin. Það verður líklega að fá dómstóla til að skera
úr um túlkun fyrst við getum ekki komist að samkomu-
lagi og þá þarf ég að fara að koma mér upp lögfræðing-
um,“ segir Guðmundur.
Í Fréttablaðinu í gær kom fram að Hjörleifur
Kvaran hefði ekki átt frumkvæði að því að leita til
lögfræðinga. Guðmundur telur líklegt að þetta sé
komið frá Kjartani Magnússyni, stjórnarformanni
Orkuveitunnar. „Ég tel að þetta bréf hefði þurft að vera
að frumkvæði forstjórans,“ segir Guðmundur.
Hjörleifur Kvaran segist harma að málið sé komið í
þennan opinbera farveg og segir þetta allt geta verið
byggt á misskilningi. „Ég trúi ekki öðru en að Guð-
mundur skili skjölunum eftir helgi,“ segir Hjörleifur,
en Guðmundur hefur verið í laxveiði undanfarið. Ekki
náðist í Kjartan Magnússon vegna málsins þar sem
hann er erlendis. vidirp@frettabladid.is
Telur Kjartan standa
að baki kröfubréfinu
Guðmundur Þóroddsson sendi út yfirlýsingu í gær vegna bréfs Orkuveitunnar
þar sem krafist er að Guðmundur afhendi gögn sem hann á að hafa tekið í
heimildarleysi. Forstjóri Orkuveitunnar telur þetta geta verið byggt á misskiln-
„Gögn þau sem farið er fram á að skilað sé eru gögn
sem geymd hafa verið í skrifstofu undirritaðs frá upphafi,
eru afrit af frumgögnum og innihalda eintök undirritaðs
af fundargögnum stjórnarfunda OR frá 1999 þar til hann
fór í leyfi til að gegna starfi forstjóra REI sl. sumar.“ „Gögn
stjórnarfunda eru send stjórnarmönnum og forstjóra OR
fyrir hvern stjórnarfund eða dreift á fundinum.“
„Hvað varðar kröfu um skil á bifreið þeirri, sem var
hluti af starfskjörum mínum hjá Orkuveitunni, hefur sá
skilningur verið uppi að þau afnot séu hluti af starfskjör-
um.“
„Undirritaður lýsir […] furðu á einhliða fréttaflutningi
Ríkissjónvarpsins af þessu máli.“
ÚR YFIRLÝSINGU GUÐMUNDAR
ORKUVEITAN Menn eru ósammála um starfslok Guðmund-
ar og fríðindin sem fylgdu starfi hans. Málið fer líklega fyrir
dómstóla. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓBERT
GUÐMUNDUR
ÞÓRODDSSON
KJARTAN MAGNÚSSON
Bænahvelfing í Landakoti
Kaþólska kirkjan á Íslandi hefur óskað
eftir að fá að byggja bænahvelfingu
við Landakotskirkju. Skipulagsstjóri
Reykjavíkur gerir ekki athugasemdir
við það en vill að kaþólskir láti vinna
tillögu að breytingu á deiliskipulagi
Landakots og að sú tillaga verði síðan
auglýst til kynningar.
REYKJAVÍK
LÖGREGLUFRÉTTIR
Grunaður um ölvunarakstur
Ökumaður grunaður um akstur undir
áhrifum var stöðvaður á Akranesi
um níuleytið í fyrrakvöld. Honum var
sleppt að yfirheyrslu lokinni.
Íbúar ráði raflínum
Fulltrúar minnihluta H-listans í bæj-
arstjórn Voga vilja að farið verði að
vilja íbúafundar frá í fyrrasumar um
að allar nýjar raflínur í sveitarfélaginu
verði lagðar í jörð.
VOGAR
Ætlar þú að mæta á mótmæli
fyrir utan dómsmálaráðu-
neytið vegna Pauls Ramses?
Já 10,7%
Nei 89,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Hefur Samfylkingin staðið við
loforð sín í umhverfismálum?
Segðu skoðun þína á visir.is.
KJÖRKASSINN
MENNING „Útsýnið er stórkostlegt
og fólk getur fylgst með húsinu
rísa,“ segir María Björk Óskars-
dóttir, framkvæmdastjóri Gesta-
stofu við Lækjartorg.
Tíu metra langur útsýnisgluggi
var afhjúpaður í Gestastofu í gær
en hann snýr að austurhöfninni
þar sem tónlistar- og ráðstefnu-
hús verður reist.
Björgólfur Guðmundsson
afhjúpaði gluggann en hann er
stjórnarformaður Portus sem
heldur utan um uppbyggingu
austurhafnarinnar.
Björgólfur gerði efnahags-
ástandið að umtalsefni í ávarpi
sínu. „Vonandi harðnar ekki svo á
dalnum að við þurfum að breyta
áformum okkar hér,“ sagði hann.
Í Gestastofu verður sýning um
hönnun og byggingu tónlistar-
hússins auk þess sem haldnir
verða fyrirlestrar og aðrir við-
burðir sem tengjast byggingu
hússins.
Gestastofa verður opin öllum
frá og með næsta laugardegi.
- ht
Tíu metra útsýnisgluggi sem snýr út að byggingaframkvæmdum við austurhöfnina afhjúpaður í Gestastofu:
Hægt að fylgjast með tónlistarhúsi rísa
BJÖRGÓLFUR Í GESTASTOFU Afhjúpaði
tíu metra útsýnisglugga sem snýr að
byggingarsvæði tónlistar- og ráðstefnu-
húss við Reykjavíkurhöfn.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÁSTRALÍA Lagið My Way með
hjartaknúsaranum Frank Sinatra
er það lag sem flestir kjósa að
láta spila við jarðarförina sína,
samkvæmt lista sem kirkjugarð-
urinn Centennial Park í Suður-
Ástralíu hefur sent frá sér.
Óvenjulegasta jarðarfararlagið
er sagt vera hinn ódauðlegi
smellur Queen, The Show Must
Go On.
Ekki kemur á óvart að Louis
Armstrong prýði annað sæti
listans yfir vinsælustu lögin með
hið angurværa Wonderful World.
Athygli vekur hins vegar að
einhver skuli hafa valið tóna
breska tríósins Right Said Fred
sem undirleik fyrir kveðjustund-
ina, en I‘m Too Sexy er í níunda
sæti á listanum yfir lög sem
þykja óvenjuleg. - kg
Sinatra vinsæll í jarðarförum:
My Way trónir
á toppnum