Fréttablaðið - 11.07.2008, Page 18
11. júlí 2008 FÖSTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 187
4.251 -0,70% Velta: 1.045 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: ALFESCA 7,03 0,00% ... Atorka 6,20
-0,80% ... Bakkavör 24,80 -4,62% ... Eimskipafélagið 14,30 -0,69% ...
Exista 6,87 -2,00% ... Glitnir 15,15 -0,98% ... Icelandair Group 16,65
0,00% ... Kaupþing 739,00 -0,40% ... Landsbankinn 23,10 -0,22% ...
Marel 89,80 +0,22% ... SPRON 3,25 +1,56% ... Straumur-Burðarás
9,79 -0,91% ... Teymi 1,96 0,00 ... Össur 87,90 -1,01%
MESTA HÆKKUN
CENTURY ALU +5,86%
SPRON +1,56%
MAREL +0,22%
MESTA LÆKKUN
BAKKAVÖR -4,62%
EXISTA -2,00%
ÖSSUR -1,01%
„Það er eitthvert sull á bak við
tjöldin“ segir Júlíus Ólafsson,
fyrrverandi framkvæmdastjóri
og eigandi Tölvulistans. Hann
seldi Ásgeiri Bjarnasyni Tölvu-
listann fyrir rúmum fjórum árum
og á að eigin sögn enn eftir að fá
lokagreiðsluna.
Nafni Tölvulistans var breytt í
Músavík í síðasta mánuði rétt áður
en fyrirtækið var lýst gjaldþrota
25. júní síðastliðinn. Stofnað var
nýtt fyrirtæki sem ber nafn Tölvu-
listans en starfsemi þess er engin.
IOD heildsala rekur Tölvulistann í
dag undir sinni kennitölu.
Júlíus átti fyrsta veðrétt í hluta-
bréfum Tölvulistans sem eru í dag
einskis virði. Hann segist eiga
kröfurétt á móðurfélag Tölvulist-
ans BBEN upp á 63 milljónir.
„Tölvulistinn var rekinn á sömu
kennitölunni frá því að ég sel
þangað til í síðasta mánuði. Þá er
rekstur Tölvulistans seldur til IOD
og nafninu á kennitölu Tölvulist-
ans breytt og gert gjaldþrota. Ég
mun vefengja þessa sölu og er
kominn á fullt með innheimtu á
þessum 63 milljónum“,“ segir Júlí-
us.
Ásgeir Bjarnason vildi ekkert
segja um málið en í viðtali við
Markaðinn síðastliðinn miðviku-
dag sagði hann ástæðuna fyrir söl-
unni ekki vera bága skuldastöðu
fyrirtækisins.
IOD sem nú rekur Tölvulistann
er í eigu sömu aðila og reka m.a.
Sjónvarpsmiðstöðina og Heimilis-
tæki. Fyrirtækið var áður stærsti
birgir Tölvulistans.
Aðspurður um ástæðu yfirtök-
unnar sagði Hlíðar Þór Hreinsson,
einn eigenda IOD, hana liggja í
augum uppi. -ghh
Segir kennitölu-
flakk í gangi
Tölvulistinn lýstur gjaldþrota í lok síðasta mánaðar.
Fyrri eigandi véfengir sölu á rekstri til nýs aðila.
TÖLVULISTINN Rekur fjölda verslana,
m.a. þessa við Nótatún í Reykjavík.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Álrisinn Alcoa, sem meðal annars
rekur álverið á Reyðarfirði, hagn-
aðist um 546 milljónir Bandaríkja-
dala, jafnvirði um 42 milljarða
íslenskra króna, á öðrum fjórð-
ungi ársins Þetta er 23 prósenta
samdráttur frá sama tíma í fyrra.
Tekjur álrisans á tímabilinu
námu 7,6 milljörðum dala saman-
borið við 8,07 dali í fyrra. Það er
jafnframt meira en spáð hafði
verið.
Hár rekstrarkostnaður dró úr
hagnaði félagsins en álverð, sem
hækkaði um rúm sex prósent á
milli ára, hífði afkomuna upp, að
sögn fréttastofu Reuters. - jab
Dregur úr hagnaði
ÁLVERIÐ Á REYÐARFIRÐI Hagnaður
Alcoa dróst saman um 23 prósent á
milli ára á öðrum ársfjórðungi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Fjárfestingarsjóður í eigu stjórn-
valda í furstadæminu Abu Dabi
hefur keypt 90 prósenta hlut í
Chrysler-byggingunni, einu
þekktasta kennileiti Manhattan-
eyju í New York í Bandaríkjun-
um.
Seljendur eru fasteignasjóður
tryggingafyrirtækisins Prudenti-
al Financial, sem átti 75 prósenta
hlut.
Bandaríska fasteignafélagið
Tishman Speyer Properties, sem
átti fyrir fjórðungshlut í turnin-
um, heldur eftir afganginum og
hefur umsjón með honum í nafni
beggja aðila.
Bandaríska dagblaðið Wall
Street Journal bendir á að mjög
hafi hægst um á bandarískum
fasteignamarkaði og hafi verið
leitað til þess að fá arabíska fjár-
festingasjóði til að fjármagna
fasteignakaup í stærri kantinum.
Þannig hafi arabískir sjóðir fjár-
magnað söluna á General Motors-
byggingunni í síðasta mánuði auk
þess að leggja þarlendum bönk-
um til mikið hlutafé vegna
afskrifta úr bókum þeirra. - jab
Arabar kaupa
Chrysler-húsið
Englandsbanki, seðlabanki Bretlands,
ákvað í gær að hreyfa ekki við vaxtastig-
inu sökum aðstæðna í efnahagslífinu.
Stýrivextirnir þar í landi eru nú fimm
prósent og hafa staðið óbreyttir frá í
apríl. Bankinn hafði áður lækkað vextina
um hálft prósentustig frá áramótum.
Flestir höfðu reiknað með þessari
niðurstöðu þrátt fyrir þrýsting frá
forráðamönnum í fyrirtækjarekstri í
Bretlandi um að bankinn komi til móts við
þrengingar í efnahagslífinu og háar
álögur á lántakendur og lækki vexti.
Bankastjórnin segir að verðbólguþrýst-
ingur hafi legið til grundvallar ákvörðun-
inni. Varað er við að dregið geti úr
hagvexti af þeim sökum.
Verðbólga í Bretlandi mælist nú 3,3
prósent. Verðbólgumarkmið seðlabank-
ans er hins vegar tvö prósent. Hefur
Mervyn King seðlabankastjóri þegar
ritað breska fjármálaráðuneytinu bréf,
líkt og reglur bankans kveða á um, þar
sem útlistaðar eru ástæður þess að
verðbólga hafi farið svo langt umfram
markmiðin, að sögn breska viðskipta-
dagblaðsins Financial Times. - jab
Óbreyttir vextir í Bretlandi
Bandarísku húsnæðissjóðirnir
Fannie Mae og Freddie Mac eru
fjárhagslega sterkir. Þetta sagði
Henry Paulson, fjármálaráðherra
Bandaríkjanna, í gær.
Þær raddir hafa orðið æ hávær-
ari að fyrirtækin standi á brauðfót-
um. Bandaríska dagblaðið Wall
Street Journal sagði vikunni
stjórnvöld hafa fundað um aðgerð-
ir þurrkist upp eigið fé sjóðanna
með þeim afleiðingum að þeir þurfi
að afla aukins hlutafjár til að forða
sér frá gjaldþroti.
Fannie og Freddie njóta stuðn-
ings ríkisins þrátt fyrir að vera
skráð á markað. Gengi bréfa í fyr-
irtækjunum hefur hrunið í vikunni
eftir að fréttist að tap þeirra yrði
meira en vænst var.
Paulson sagði hins vegar í gær,
að sjóðirnir væru að sigla í gegn-
um erfiða tíma. Þeir gegni hins
vegar mikilvægu hlutverki á
bandarískum fasteignalánamark-
aði.
Gengi bréfa í báðum sjóðum
hefur fallið verulega í vikunni. Þar
af hefur Freddie Mac hrunið um
tæp 47 prósent frá á mánudag. - jab
Sjóðirnir sterkir
FJÁRMÁLARÁÐHERRANN Henry Paulson
segir tvo fasteignasjóði sem njóta ríkis-
styrkja standa traustum fótum þrátt fyrir
gengishrun og útlánatap. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
ÁHYGGJUFULLUR BANKASTJÓRI Seðlabankastjóri
Bretlands hefur skrifað stjórnvöldum bréf vegna
hárrar verðbólgu. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Alla daga
frá10 til 22
800
5555
Skoðaðu: www.max1.is
G
C
I G
R
O
U
P
G
R
E
Y
A
LM
A
N
N
AT
E
N
G
S
L
Settugömlu
dekkinuppíný
Breyttu túttunum undirbílnumígæðadekk hjá Max1
Þú breytir gömlu túttunum undir bílnum í gæðadekk í dag.
Þú færð 2.500 kall fyrir hverja túttu upp í hvert nýtt gæðadekk.
Auktu umferðaröryggi þitt og sparneytni með Max1.
Svona erum við – fyrir þig. Max1 fargar einnig túttunum á
umhverfisvænan hátt. Sparaðu. Komdu við hjá Max1 í dag.
Hér erum við fyrir þig:
Max1 Reykjavík
Bíldshöfða 5a (hjá Hlölla), beinn sími: 515-7095 eða 515-7096
Bíldshöfða 8, beinn sími: 515-7097 eða 515-7098
Jafnaseli 6 (við Sorpu), beinn sími: 587-4700
Max1 Akureyri
Tryggvabraut 5, beinn sími 462-2700
Uppítökuverð
2.500 kr.pr. dekk
Auktu umferðaröryggi
þitt og sparneytni.
Vertu á betri
dekkjum frá Max1.
Max1 fargar gömlu
dekkjunum með
umhverfisvænum
aðferðum