Fréttablaðið - 11.07.2008, Síða 22
[ ]Melónur eru tilvaldar á sumrin, hvort sem er sem snarl á daginn eða sem eftirréttur á kvöldin. Melónur eru ferskar og hollar og einstaklega fallegar á borði.
Myndlistarkonan Álfheiður Ólafsdóttir
bakar hveitikökur á hellu eftir upp-
skrift ömmu sinnar.
„Uppskriftin kemur að vestan en amma
var frá Hnífsdal. Þar voru annars vegar
bakaðar hveitikökur og hins vegar
rúgkökur,“ segir Álfheiður og útskýrir að
fyrir sunnan sé hveiti og rúg blandað
saman í flatkökurnar.
„Það er gaman að sjá hvað þetta er
misjafnt eftir landshlutum. Í uppskrift-
inni minni er bara hveiti en það má líka
setja til dæmis þrjá bolla af heilhveiti á
móti fimm bollum af hveiti, það gefur
aðeins meira bragð.“
Álfheiður ólst upp við hveitikökur og
rúgkökur á jólaborðinu og heldur þeim
sið sjálf. Hún segir gott að smyrja
kökurnar með hangikjöti eða osti og þær
fari vel með öllum mat.
„Kökurnar passa vel með nýmóðins
mat alveg eins og með hangikjötinu og
sviðunum í gamla daga. Heima hjá mér
voru svið á aðfangadagskvöld sem var
ekkert endilega venjulegt. Þá voru
þessar kökur hafðar með og líka steikt
brauð sem er kallað soðbrauð í dag. Ég
hef gaman af þessum gömlu góðu
minningum og krökkunum mínum finnst
þetta líka gott svo ég nota kökurnar með
öndinni á jólunum.“
Álfheiður segist ekki baka mikið þess
utan og annað brauð til heimilisins sé
bakað í brauðvél. Hún bakar þó kökurnar
við sérstök tækifæri og ætlar að bjóða
gestum og gangandi upp á hveitikökur
með hangikjöti á morgun en þá opnar hún
myndlistarsýningu með Önnu Sigríði Sig-
urjónsdóttur í Saltfisksetrinu í Grindavík.
heida@frettabladid.is
Brauðin bökuð á hellunni
ÁLFHEIÐUR ÓLAFSDÓTTIR VIÐ BAKSTURINN Bakvið hana sést málverk eftir hana
á eldhússkápunum sem var upphafið að barnabókinni Grímur og sækýrnar
sem Álfheiður skrifaði og myndskreytti. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hveitikökur:
8 bollar hveiti
½ msk. salt
½ bolli sykur
1 lítri köld mjólk
5-6 tsk. lyftiduft
½ tsk. hjartasalt
Aðferð:
Þurrefnin fara í skál og gerð
hola í miðjuna sem mjólkinni
er hellt í. Þurrefnunum er
svo blandað varlega saman
við mjólkina en deigið getur
orðið seigt ef það er hrært of
mikið. Deigið er svo hnoðað
lauslega og skipt í 11 parta
sem eru flattir út. Gata þarf
hverja köku, til dæmis með
pönnukökuspaða, til að hitinn
komist í gegnum kökuna.
Kökurnar eru svo bakaðar á
eldavélarhellu á lágum hita og
hreyfðar til og snúið þangað
til þær verða dröfnóttar eins
og rjúpuegg. Ekki er hægt að
baka þessar kökur á nýtísku
keramik-hellum.
Jarðarberjaplantan er af tig-
inni rósaætt og ber hennar eru
meðal ljúffengra ávaxta móður
jarðar.
Jarðaberjablöntuna er hægt rækta
á sólríkum stað í heimilisgarðin-
um eða við sumarhúsið. Natni er
þó nauðsynleg ef góður árangur á
að nást.
Til eru mörg afbrigði af jarðar-
berjaplöntum, meira að segja eitt
íslenskt sem sums staðar vex villt.
Það ber smá en afar gómsæt ber.
Nokkur erlend yrki hafa reynst
vel hér, til dæmis Glima og Senga-
sengana sem bera dökkrauð, stór
og bragðgóð ber.
Jarðarberjaplantan fjölgar sér
með renglum en móðurplantan má
ekki mynda of margar því að það
dregur úr þroska berjanna. Því
þarf að klippa þær af.
Til að tryggja góða uppskeru á
plantan helst ekki að blómstra á
fyrsta ári heldur þarf að klípa af
henni bæði blóm og renglur fyrsta
sumarið. Þá verður hún kröftug og
launar umhyggjuna með blóðrauð-
um berjum næstu ár.
-gun
Blóðrauð
ber jarðar
JARÐARBERJAPLANTAN Launar natni með
ljúffengum berjum.
Sölustaðir: Járn og gler · Garðheimar · Húsasmiðjan
Egg · Búsáhöld Kringlunni · Útilegumaðurinn · Motor Max
Everest · Seglagerðin Ægir · www.weber.is
X
E
IN
N
J
G
W
E
B
Q
2
x2
5
W
eb
er
Q
Weber Q gasgrill, frábært í ferðalagið
Sumarið
er komið!