Fréttablaðið - 11.07.2008, Blaðsíða 28
Hulda Pjetursdóttir, verðbréfa-
miðlari hjá Kaupþingi, hefur verið
með töluverða göngudellu síðan
hún labbaði á Hvannadalshnjúk
fyrir þremur árum. Í fyrra reyndi
hún við Mont Blanc en varð frá að
víkja vegna veðurs. Hinn 1. júlí síð-
astliðinn komst hún á toppinn ásamt
vinum sínum, Önnu Hjartardótt-
ur og Magnúsi Viðari Sigurðssyni.
Hulda og félagar hennar voru með
tvo mjög reynda franska fjallaleið-
sögumenn sem höfðu verið með í för
árið áður. Spurð að því hvernig hún
hafi undirbúið sig fyrir gönguna
segist hún aðallega hafa hlaupið og
farið í ræktina. „Þetta tók samt vel
á og var hressandi. Veðrið var gott
og við fengum sól á toppnum og
frábært útsýni. Við fórum svokall-
aða La Traversée-leið, eða þriggja
tinda-leiðina, sem er mjög falleg
og liggur yfir tvö fjöll, Mt Blanc du
Tacul og Mt Maudit áður en komið
er að sjálfu Mt Blanc. Ferðin hófst
um kl. 2 eftir miðnætti og var geng-
ið fyrsta hlutann í niðamyrkri með
ennisljós. Ég verð samt að játa það
að ég fór þetta svolítið á seiglunni,
sérstaklega bakaleiðina,“ segir hún
en ferðin tók 13 tíma og var lítið
um hvíld nema rétt á toppnum. „Við
vorum öll heppin með heilsuna og
fór þunna loftið vel í okkur þrátt
fyrir tiltölulega stutta aðlögun. Það
var skemmilegt og óvænt við þessa
ferð að sama dag og við komumst á
toppinn voru 26 konur frá 25 Evr-
ópusambandsríkjum að ganga á Mt
Blanc til að fagna því að 200 ár voru
liðin frá því að fyrsta konan, Marie
Paradis, komst á topp Mt Blanc og
var heilmikið gert úr því í fjölmiðl-
um. Marie fór á toppinn á sínum
tíma í korselett og síðu pilsi eins
og þá var venja að konur klæddust.
Ég get ekki ímyndað mér hvernig
það hefur verið.“ Þegar Hulda er
spurð hvað sé mesta „kikkið“ við að
komast á fjallstind nefnir hún það
að komast út úr þægindahringn-
um sínum. „Það er góð tilfinning að
fara lengra en maður þorir og held-
ur að maður geti, annars er hætta á
stöðnun. Svo er fjallamennska eitt-
hvað sem maður verður háður, vill
fara hærra og lengra, þetta er dálít-
ið sérstök árátta. Það er svo mikið
frelsi sem fylgir því að ganga á fjöll
og svo er það frábær afslöppun í
leiðinni. Svo er góður félagsskapur
ómissandi hluti af góðum ferðum,“
segir Hulda sem er strax farin að
leggja grunn að næstu ferð. „Ætli
næsta utanlandsferð verði ekki
Afríka eða Suður-Ameríka og svo
er búið að plana nokkrar ferðir inn-
anlands í sumar, þ. á m. á Mýrdals-
jökul.“
martamaria@365.is
Hulda Pjetursdóttir fór á topp Mont Blanc 200
árum eftir að fyrsta konan fór á toppinn
Fór þetta á
seiglunni
Á toppnum ásamt Magnúsi Viðari Sigurðssyni, framkvæmdastjóra framleiðslu-
sviðs hjá Sagafilm, og Önnu Hjartardóttur. Með þeim á myndinni eru leiðsögu-
mennirnir Jean Marc Boucansaud og Eric Decamp. Í ágúst stefnir hún á að
hlaupa hálft maraþon en segir að það verði ekki hundrað í hættunni þótt hún taki
bara tíu kílómetra.
Systurnar Katrín Alda og Rebekka Rafnsdætur munu í
dag opna verslun í kjallaraíbúð á Ægisíðu 101. „Þetta eru
föt sem ég er búin að vera að safna. Ég er búin að búa úti
síðustu fjögur árin og er búin að sanka að mér alls konar
fínu dóti á þeim tíma,“ segir Katrín Alda. Hún hefur ferð-
ast mikið á síðustu árum og keypt þau föt sem hafa heill-
að hana, jafnvel þótt þau hafi ekki passað á hana sjálfa.
Fötin eru öll second-hand, en í búðinni verða einnig fjaðra-
kragar, sem Katrín hannar, og skartgripir. Katrín er útskrifuð
úr London College of Fashion en þar lærði hún svokallað
fashion management. Báðar hafa svo systurnar verið mikið
í kringum tískubransann og meðal annars unnið í Spúútnik.
„Íbúðin niðri í kjallara var tóm svo við ákváðum bara
að gera þetta,“ segir Katrín. Hún segir að vinnan við búð-
ina hafi verið skemmtileg hjá þeim systrum. Þær hafa líka
verið duglegar við að finna sniðugar lausnir á uppstilling-
um í búðinni. Til dæmis tóku þær ísskápinn í íbúðinni úr
sambandi og nú hýsir hann skartgripina sem verða til sölu.
Þær systur ætla þó ekki að hella sér alveg út í búðarrekst-
urinn eða hætta sínu daglega amstri, því búðin verður að-
eins opin einn dag í viku.
„Það er opnunarpartí á föstudaginn frá tvö til tvö og það
eru allir velkomnir, en svo verður bara opið á fimmtudög-
um frá þrjú til níu.“ - þeb
Opna búð heima
Systurnar Rebekka og Katrín Alda ætla að selja föt og skart úr kjallaraíbúðinni á Ægisíðu 101. Opið verður á fimmtudög-
um frá þrjú til níu, en opnunarpartí verður haldið í dag. FÖSTUDAGUR/STEFÁN
Til að koma blóðinu til að renna og
búknum til að svitna er málið að labba
á fjall. Sniðugt er að byrja á Esjunni
en þar sem stöðugur straumur af
fólki gengur þangað á hverjum
degi er auðvelt að elta bara
hina. Fáðu vin þinn eða vin-
konu til að labba með
þér og hafðu vatns-
brúsa við höndina,
plástur og smá
nesti meðferð-
is. Þetta getur ekki
klikkað.
LABBAÐU Á FJÖLL
4 • FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2008