Fréttablaðið - 11.07.2008, Síða 38
díana mist
bland
í gær og á morgun ...
FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ
Eftir maríneringu síðustu mánaða
ákvað ég að taka því rólega um helg-
ina. Ég var farin að sjá sjálfa mig fyrir
mér með gúrkumaska í andlitinu með
vel snyrtar tásur sem vísuðu beint upp
í loft. Í hádeginu hringdi vinkona mín
í mig, en umrædd vinkona lenti í því
hræðilega atviki að halda óvart fram
hjá með þeim afleiðingum að henni var
hent að heiman. Með kökkinn í háls-
inum grátbað hún mig um að koma
með sér á Landsmótið á Hellu og lof-
aði góðu stuði. Hún bar sig svo aum-
lega að í einhverju bríaríi sagði ég já
þótt ég fari helst ekki upp fyrir Ártúns-
brekkuna. Það var þó með því skilyrði
að hún myndi redda hjólhýsi því ég sef
ekki í tjaldi.
Með lánsbíl frá föður sínum og svart
hjólhýsi í eftirdragi sótti hún mig í pallí-
ettustrigaskóm með vel glossaðar
varir. Þegar ég kom inn í bílinn glumdi
Páll Óskar í græjunum og í aftursæt-
inu var kista, full af klökum og ísköld-
um bjór. Það var ekkert annað í stöð-
unni en að búa til góða stemningu og
ég vippaði mér inn í bílinn og náði mér
í einn kaldan í aftursætið.
Áður en ég vissi af vorum við vin-
konurnar mættar á Hellu, búnar að
finna stæði fyrir hjólhýsið og komn-
ar í kokkteil hjá menntamálaráðherra
og eiginmanni hennar, Kristjáni Ara-
syni. Þar voru hjónin Baltasar Kormá-
kur og Lilja Pálmadóttir, Karítas, systir
Þorgerðar Katrínar, og Kjartan, eigin-
maður hennar, Díana Bjarnadóttir og
fleiri og fleiri.
Eftir kokkteilinn vorum við komnar í
þvílíkt stuð og lentum í fullt af partíum.
Þegar ég var orðin þvoglumælt sá vin-
kona mín ekki annað í stöðunni en að
drösla mér í hjólhýsið.
LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ
Ekki hefði ég trúað því fyrir mán-
uði að ég ætti eftir að vakna í hjól-
hýsi tvær helgar í röð. Þessi morgunn
var þó ögn skárri en síðasti laugardag-
ur þar sem vinkona mín vakti mig með
tveimur hráum eggjum sem hún lét
mig skella í mig áður en ég fékk alvöru
morgunkaffi. Hún sagði að þetta væri
allra meina bót. Ég lofaði sjálfri mér
að haga mér betur þetta kvöldið svo
mér yrði ekki hent út hjá Vogi á heim-
leiðinni. Áður en ég vissi af var ég þó
komin í kokkteil hjá Steini Loga, for-
stjóra Húsasmiðjunnar. Ég var vel búin,
með Lúbarinn á bakinu en í honum var
skriðdrekaolía og vodkapeli, og því var
ekkert annað í stöðunni en að rölta um
svæðið í leit að stuði. Á leiðinni rák-
umst við á Unni Birnu Vilhjálmsdótt-
ur sem var í svaka stuði. Þar voru líka
Birna Rún Gísladóttir viðskiptafræð-
ingur og kærasti hennar, Jakob Frí-
mann Magnússon, ásamt Jarúnu dótt-
ur sinni. Þar var líka Ásbjörn Gíslason,
forstjóri Samskipa, Kári Stefánsson,
Guðni Ágústsson, Hinrik Ólafsson og
Randver Þorláksson. Þegar líða tók á
nóttina mætti ég Fjölni Þorgeirssyni
með dökkhærða dömu upp á arminn,
þar fór sá séns!
SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ
Það var ekkert sérstaklega gaman að
pakka saman öllu dótinu en það var
samt þess virði því ég skemmti mér
ótrúlega vel þrátt fyrir að það hafi eng-
inn lifandi karlmaður gefið mér auga
hvað þá reynt eitthvað meira. Lífið
snýst líka stundum um það að hafa
gaman og vera ekki stöðugt með karla
á heilanum, yfir og út! Djöfull er ég
þroskuð …
FÖSTUDAGUR:
Farðu í bíó og sjáðu myndina Mamma Mia með Meryl
Streep, Pierce Brosnan og Colin Firth í aðalhlutverkum.
Unga kynslóðin getur drukkið í sig gömlu ABBA-slagar-
ana og eldri kynslóðin getur farið aftur í tímann og reynt
að muna stemninguna sem ríkti í Hollywood. Mamma
Mia er sýnd í Sambíóunum.
LAUGARDAGUR:
Skelltu þér í sveitaballagallann og farðu á
ball í Sjallanum. Þar munu Sprengjuhöll-
in og XXX Rottweiler sameina krafta sína
og ef þeir eru þekktir rétt þá verður dúnd-
urstuð.
H
E
L
G
IN
Svala Ragnarsdóttir
myndlistarkona
Þegar ég er heima eyði ég nánast öllum mínum tíma í sóf-
anum mínum - ég gæti barasta stjórnað heiminum sitjandi
í honum. Ég fann hann í Góða hirðinum en hann er traust
íslensk smíði úr tekki og klæddur fallegu Álafossáklæði.
Mér finnst Royal skyndibúðingurinn sjálfur reyndar bragðvondur en umbúðirnar og litirnir eru svo æðislega fiftís að
pakkarnir eru til sýnis í eldhúsinu.
Ég gerði þetta verk - „Viti“ - sem útilistaverk fyrir
Bjarta daga í Hafnarfjarðarbæ. Ég er svo ánægð með
það að núna hef ég það bara á veggnum heima.
Þessi dýrindis skoska klukka varð
á vegi mínum í Glasgow í pínulítilli
antíkbúð. Það kostaði mikinn pappa
og límband að flytja hana heim en
það var hvers punds virði.
Kátu kanínustyttuna fékk ég í
útskriftargjöf í vor frá yndislegu
samstarfsfólki mínu í Saltfélag-
inu. Hún er eftir Katrínu Péturs-
dóttur og hausinn er úr títan-
íumi hvorki meira né minna.
John, Paul, George
og Ringo eru með
bestu vinum mínum
(við kynntumst í sumar-
fríi á Mallorca fyrir mörg-
um árum síðan) og ég
gæti ekki lifað án þeirra né
hvíta albúmsins þeirra.
Hver dama verður auðvitað að telja
til uppáhaldsskóna sína! Þetta par
fékk ég að gjöf frá systkinum mínum
en þeir eru frá Chie Mihara og eru
algjör draumur að ganga á.
Þetta málverk er eftir Guðmund
Thoroddsen, eða Mumma. Ég kalla
verkið „Ískornann“ því að það er
eins og íkorninn sé úr rjómaís. Mikið
augnayndi.
Michel Gondry er
uppáhaldskvik-
myndagerðar-
maðurinn
minn og
ég hef
horft á
þenn-
an frá-
bæra safn-
disk með tón-
listarmyndböndum
og stuttmyndum eftir hann
milljón sinnum.
TOPP
10
Hver vill ekki lykta eins og
sumar búið til af Marc Jacobs!
Þetta ilmvatn er mér ómiss-
andi þessa dagana og svo er
flaskan óskaplega falleg.
F
Ö
S
T
U
D
A
G
U
R
/S
T
E
F
Á
N
14 • FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2008