Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.07.2008, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 11.07.2008, Qupperneq 48
24 11. júlí 2008 FÖSTUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Elskan, mamma þín gaf mér allt gamla barna- dótið þitt. Viltu fá hárlokkinn þinn aftur? Nei, er þetta ekki litli guttinn! Mikið hefurðu stækkað síðan síðast! Já, tíminn líður. Eigum við ekki að sjá hvort frænka á brjóstsykur í vesk- inu sínu? Hvað ertu orðinn gamall, elskan? Þrjátíu og fimm og hálfs! Þú ert nú hálf- væskilslegur. Færðu nóg að borða? Hann bjargar sér! Það er gat á veggnum á baðherginu þínu Palli! Ha? Já, það. Ég ætlaði einmitt að nefna þetta. Hvernig gerðist þetta? Gatið! Hvað? Þetta gat? Já, þetta gat! Af hverju er risastórt gat á veggnum á bað- herberginu þínu? Þú ert að tala við mig, ekki satt? (Púff) Suður á bóginn. Suður á bóginn. Suður á bóginn. Suður á bóginn. Suður á bóginn. Það er ekki frumlega hugs- un að finna hjá neinum þeirra! Vá! 365 – Skaftahlíð 24 – 105 Reykjavík – Sími 512 5000 – www.365.is Vegna fyrirhugaðrar afskráningar 365 hf. af skipu- legum verðbréfamarkaði hefur stjórn félagsins ákveðið, með samþykki hluthafafundar þann 1. júlí 2008, að kaupa hluti þeirra hluthafa sem þess óska. Hluthöfum 365 hf. er gert tilboð um að selja hlutabréf sín í félaginu á gengi 1,20 kr. fyrir hvern hlut í 365 hf. Tilboðið gildir til kl. 16.00 þann 11. júlí 2008. Tilboðið er gert þeim hluthöfum sem skráðir voru í hluthafaskrá félagsins kl. 11.00 þann 1. júlí 2008. Hluthöfum gefst þó kostur á að vera áfram hlut- hafar í óskráðu félagi 365. Kauptilboðið er sett fram í því skyni að koma til móts við hluthafa félagsins og er það hverjum og einum hluthafa í sjálfsvald sett hvort hann samþykkir kauptilboðið. Ef hluthafi hefur ekki hug á að taka þátt í kauptilboðinu, þarf viðkomandi hluthafi ekki að aðhafast neitt, þar sem allir þeir sem taka ekki þátt í tilboðinu halda ósjálfrátt áfram sem hluthafar í óskráðu félagi 365. Tilboðið er lagt fram á grundvelli nánari skilmála sem koma fram í bréfi sem sent hefur verið til allra hluthafa á skráð lögheimili þeirra. Í bréfinu eru einnig leiðbeiningar um tilboðið ásamt notandanafni og lykilorði, sem hluthafi verður að nota til að taka þátt í tilboðinu. Hluthafar sem hyggjast taka þátt í tilboðinu skulu lesa bréf sitt vandlega og fylgja þeim leiðbeiningum sem þar eru gefnar. Ef bréfið hefur ekki borist hluthafa þann 7. júlí 2008 skal hann hafa samband við 365 í síma 512 5000, þar sem einnig eru veittar allar aðrar upplýsingar um tilboðið. Stjórn 365 hf. Síðan ég hóf skipu- lagt eftirlit með fjárútlátum mínum hef ég gert mér grein fyrir því að hér á landi fljóta á milli neytenda og fyrirtækja milljón- ir króna í skatt- frjálsu fé. Í næstum því hvert einasta skipti sem ég fer út í búð rekst ég á vörur með rangri verðmerkingu. Fyrsta stríðið hófst í Nóatúni fyrir tveimur árum síðan. Þar voru tveggja lítra kókflöskur verð- merktar á 225 krónur en þegar á kassann kom var verðið 239 krón- ur. Í nafni aura minna sýni ég mikla biðlund svo að í hvert sinn sem ég keypti kók bað ég vinsamlegast um að fá krónurnar mínar fjórtán til- baka. Alveg sama hve margir biðu í röð á eftir mér. Því næst talaði ég við verslunarstjórann, eða hæst- ráðandi starfsmann á vakt, og lét vita af þessum hræðilega misskiln- ingi. Mér þótti ég hafa unnið mikinn sigur þegar Nóatún lét verða af því að breyta verðmerkingunni tveim- ur mánuðum seinna. Mér fannst ég dugleg. En stríðinu lauk ekki þar, þvert á móti. Eftir að augu mín opnuðust fyrir röngum verðmerk- ingum fór ég að sjá þær alls staðar. Í Hagkaup fékk ég ekki fimmtíu prósenta afslátt á grillkjötinu mínu og þegar ég bað um leiðréttingu þurfti að sækja yfirmann til þess að snúa lykli. Í 10-11 keypti ég chilli-hrískökur sem voru merktar á 159 krónur fyrir hver hundrað grömm. Á kassanum kostuðu þær hins vegar rúmlega þrjúhundruð kall. Mig langar til að vita hvað verður um þessa peninga. Hve mikið af kóki seldi Nóatún haustið 2006? Ég verð að hugsa um það. Um daginn þegar ég bað Hag- kaup vinsamlegast um að skila mér tuttugu og tveimur krónum fyrir ranga verðmerkingu á barnaolíu varð konan sem hafði verið á undan mér svo upprifin af framtakssemi minni að hún rauk inn í verslunina með pokana sína, vopnuð kassa- kvittun. Það var þá sem ég upp- götvaði að einhver sigur hefði unn- ist. STUÐ MILLI STRÍÐA Svartir peningar HELGA ÞÓREY JÓNSDÓTTIR VELTIR VÖNGUM YFIR ÓUPPGEFNUM TEKJUM MATVÖRUVERSLANA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.