Fréttablaðið - 11.07.2008, Side 50
26 11. júlí 2008 FÖSTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Kl. 17
Guðmundur Thoroddsen opnar einka-
sýningu sína í Galleríi Íbíza Bunker,
Þingholtsstræti 31, í dag kl. 17. Þetta
er önnur einkasýning Guðmundar, en
hann hefur tekið þátt í fjölda
samsýninga. Í Galleríi Íbíza Bunker
sýnir Guðmundur sjálflýsandi
innsetningu. Tónlistarmaðurinn
Auxpan flytur tónlist fyrir opnunar-
gesti kl. 18.
Sýning á verkum Stefáns
Jónssonar frá Möðrudal verður
opnuð í Gallery Turpentine, Ing-
ólfsstræti 5, í dag kl. 17. Sýningin
er yfirlitssýning á verkum Stór-
vals í tilefni af 100 ára afmæli
listamannsins. Á henni verða
verk sem spanna stóran hluta af
ferli hans, þau elstu frá 1948 og
þau yngstu eru frá 1992.
Stefán Jónsson frá Möðrudal var
einnig þekktur undir lista-
mannsnafninu Stórval. Hann
var sjálflærður listamaður sem
náði að skipa sér sess í hjörtum
þjóðarinnar með myndum sínum af fjallinu Herðu-
breið. Með myndum sínum leitaði listamaðurinn
aftur til æskustöðvanna í Möðrudal; hann sýnir
áhorfendum fagra en þó heldur grófgerða og ýkta
sveitarmynd þar sem fjallið Herðubreið gnæfir
ávallt yfir öllu sem fram fer.
Sjaldnast er nokkur sögu-
þráður í myndum Stórvals
heldur sýna þær fremur einfalt
landslag og svipmyndir af
bernskuslóðum. Líkt og útlínur
verka hans eru oft frekar grófar
er litaval sömuleiðis stundum á
skjön við það sem áhorfandinn
getur átt von á; þannig blandast
saman bjartir litir og drungalegir
og valda óvæntum hughrifum.
Aðalsteinn Ingólfsson
listfræðingur ritar texta um
Stefán í sýningarskrá, en þar
segir meðal annars: „Líkast til
var Herðubreið Stefáni ómeðvitað tákn fyrir líðan
hans hverju sinni, uppruna hans og liðna æsku,
þegar náttúran var mikilfenglegri, sauðir vænni
og hestar betri en nokkurn tímann fyrr eða síðar í
Íslandssögunni.“
Sýningin stendur til 26. júlí. - vþ
Herðubreið gnæfir yfir
> Ekki missa af …
hádegistónleikum þeirra
Michaels Jóns Clarke barítóns
og Þórarins Stefánssonar
píanóleikara í Ketilhúsi á Akur-
eyri í dag kl. 12. Þar munu þeir
félagar leika og syngja íslensk
þjóðlög fyrir viðstadda, en tón-
leikarnir eru liður í hátíðinni
Listasumar á Akureyri. Húsið
er opnað hálftíma fyrir sjálfa
tónleikana og er miðaverð
1.500 kr.
HERÐUBREIÐ Verk eftir Stórval,
Stefán Jónsson frá Möðrudal.
Sýningarrýmið Gallerí
Ágúst var opnað fyrir réttu
ári síðan og hefur á þeim
tíma staðið fyrir mörgum
áhugaverðum sýningum.
Sumarsýning gallerísins
verður opnuð þar á morgun
kl. 16, en á henni verður
litið yfir farinn veg.
Sýningin er hópsýning, en þeir
listamenn sem eiga á henni verk
eru Ásdís Sif Gunnarsdóttir,
Andrea Maack, Davíð Örn Hall-
dórsson, Hulda Stefánsdóttir,
Magnea Ásmundsdóttir, Sara
Björsdóttir og Rakel Bernie, en
þau hafa öll haldið sýningar í gall-
eríinu á síðastliðnu ári.
„Gallerí Ágúst opnaði í ágúst í
fyrra og því er þetta ekki eiginleg
afmælissýning, þó svo að á henni
sé litið yfir farinn veg,“ útskýrir
Sigrún Sandra Ólafsdóttir sem
rekur galleríið. „Gallerí og söfn
bjóða oft upp á hópsýningar á
sumrin og því er tilvalið að nýta
hásumartímann til þess að gera
slíkt hið sama hér í Galleríi
Ágúst.“
Hingað til hefur verið mest um
einkasýningar í galleríinu, fyrir
utan að opnunarsýning þess var
samsýning Ásdísar Sifjar Gunn-
arsdóttur og Rakelar Bernie. Sum-
arsýningin er því fyrsta hópsýn-
ingin sem sett er upp í galleríinu.
„Ég er afar ánægð með hvernig til
tókst,“ segir Sigrún. „Verkin deila
rýminu vel og eru fjölbreytt eins
og við er að búast; hér eru mál-
verk, teikningar, ljósmyndir,
myndbandsverk og skúlptúrar.
Það hefur þó verið dálítið öðruvísi
að setja þessa sýninu upp en þær
sem áður hafa verið þar sem að
þær hafa haft sterk höfundarein-
kenni eins eða tveggja listamanna
og gjarnan einkennst af einhvers
konar þemum. Það fer aftur á móti
ekki mikið fyrir slíku í þetta skipt-
ið, en þetta er sterk sýning og því
ekki annað hægt en að vera ánægð
með hana.“
Fram undan er spennandi starf-
semi hjá galleríinu, meðal annars
afmælissýning í næsta mánuði.
Sigrún segir þó sýningarhald
aðeins hluta af starfsemi gallerís-
ins. „Þó svo að sýningarhald sé
kannski sýnilegasti hlutinn af
starfsemi gallería þá er margt
annað sem fer fram á bakvið tjöld-
in; til að mynda kynningarstarf-
semi, ráðgjöf og þjónusta við við-
skiptavini. Framundan hjá Gallerí
Ágúst er áframhaldandi sterk dag-
skrá sýninga, með íslenskum sem
erlendum listamönnum ásam
öðrum verkefnum, bæði hér heima
sem alþjóðlega.“
Sumarsýning Gallerís Ágústs
stendur til 26. júlí. Galleríið er til
húsa að Baldursgötu 12.
vigdis@frettabladid.is
Verkin deila rýminu vel
FYRSTA HÓPSÝNINGIN Frá sumarsýningu Gallerís Ágústs FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ný sýning var opnuð í gær í Lista-
safni Íslands, en um er að ræða
sýningu á verkum úr eigu safns-
ins. Á henni má sjá breitt úrval
verka úr safneign; flest eru eftir
íslenska listamenn, en þungamiðja
sýningarinnar er þó brjóstmynd
eftir sjálfan Picasso af Jacquel-
ine, eiginkonu listamannsins. Hin
klassísku gildi eru í fyrirrúmi á
sýningunni, bæði í málaralist og
höggmyndum, en gildin þau,
mótuð á tímum fornmenningar
Miðjarðarhafslandanna, voru
hinum spænska meistara alla tíð
óþrjótandi uppspretta. Þessi gildi
eru rauði þráðurinn á sýningunni,
en stór hluti verkanna sem þar má
sjá vísa til þessa ævaforna upp-
runa eða byggja á þeim gildum,
sem sprottin eru af klassískum
meiði. Sumarsýningin stendur til
loka september og er sýningar-
stjóri Halldór Björn Runólfsson.
Rétt er að vekja athygli á því að
leiðsögn um sýninguna fer fram á
sunnudag kl. 14. Þá mun Rakel
Pétursdóttir safnafræðingur
ganga með gestum um sýninguna
og ræða verkin sem ber fyrir augu
og inntak sýningarinnar í heild.
-vþ
Hin klassísku gildi í myndlist
HALLDÓR BJÖRN RUNÓLFSSON
Safnstjóri Listasafns Íslands og sýningar-
stjóri nýju sumarsýningarinnar.
Minningarstofur í íbúðarhúsinu á
Hrauni í Öxnadal voru opnaðar 16.
nóvember í fyrra, þegar 200 ár
voru liðin frá fæðingu skáldsins
og náttúrufræðingsins Jónasar
Hallgrímssonar. Í húsinu er einnig
íbúð fyrir fræðimenn og lista-
menn sem er mikið sótt enda er
kyrrð og fegurð einstök á Hrauni í
Öxnadal undir Hraundranga.
Í fyrra var einnig opnaður fólk-
vangur í landi Hrauns, Jónasar-
vangur, og gefinn út bæklingur
um gönguleiðir um fólkvanginn.
Minningarstofurnar á Hrauni
verða opnar föstudaga, laugar-
daga og sunnudaga í júlí á milli kl.
14 og 18. Þar er sögð ævisaga
Jónasar Hallgrímssonar í máli og
myndum. Ýmsir listamenn hafa
gefið verk í minningarstofurnar,
svo sem Arna Valsdóttir sem gaf
vídeóverk, Í hjarta mér, og Krist-
inn E. Hrafnsson sem gaf lágmynd
sína af Jónasi Hallgrímssyni.
Aðgangur að minningarstofunum
er ókeypis og eru allir hjartanlega
velkomnir. - vþ
Minningarstofur
opnar í sumar
JÓNAS HALLGRÍMSSON SKÁLD Minning
hans er heiðruð á Hrauni í Öxnadal.
ÞAR SEM
ÍSLENDI
NGUM
FINNST S
KEMMTIL
EGAST AÐ
DJAMMA
NÁNARI
UPPLÝSI
NGAR
HÚSIÐ O
PNAR KL
. 24.00
MIÐAVER
Ð 1000 K
R.
ALDURS
TAKMAR
K 20 ÁRA
HJÁLMA
R
STÓRTÓ
NLEIKAR
MEÐ REG
GIE-SVEI
T ÍSLAND
S
LAUGAR
D. 12. JÚ
LÍ
BYLGJAN BER AF
Samkvæmt könnun Capacent í aldurshópnum 18-54 ára á tímabilinu
1. janúar til 29. júní 2008. Hlutdeild - hlustun í mínútum á dag.