Fréttablaðið - 11.07.2008, Síða 58

Fréttablaðið - 11.07.2008, Síða 58
34 11. júlí 2008 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is Þorgrímur Þráinsson er tekinn við þjálfun 2. flokks Vals í knattspyrnu. Hingað til hefur Þorgrímur, sem varð Íslandsmeistari með Val á árum áður, tekið rithöfundarstörfin fram yfir þjálfun. „Valur leitaði til mín þar sem hinn metnaðarfulli fráfarandi þjálfari gat ekki sinnt liðinu eins og hann vildi. Ég fór því á einn leik með þeim og sá eina æfingu og leist vel á strákana,“ sagði Þorgrímur en hann er kominn í frí frá skriftum þar til á haustmánuðum. „Ég er búinn að skrifa barnabók og kvikmyndahandrit og er í smá fríi. Mér hefur oft staðið til boða að þjálfa hér og þar en ég hef ekki haft tíma þar sem ég lít á þjálfun sem eitthvað meira en tveggja tíma starf á dag. Ég hef alltaf haft mikla skoðun á þjálfunaraðferðum. Það er gaman að fá að taka að sér flotta stráka og fá að kenna þeim eitthvað,“ sagði Þorgrímur. Búast má við því að hann geti kennt þeim sitthvað innan sem utan vallar. Þorgrímur var góður knattspyrnu- maður en auk þess er hann annálaður bindindismaður. Fyrir síðustu jól gaf hann svo út bókina „Hvernig gerirðu konuna þína hamingjusama“ þar sem meðal annars er fjallað um hvernig er hægt að stunda „skemmtilegra kynlíf“. „Þetta er erfiður aldur og það er margt sem heillar þá. Það eru ekki margir sem ganga upp í meistaraflokk og ná langt og það er að mörgu að hyggja. Á þessum aldri eru strákar að skoða hitt kynið og freistingarnar eru margar og þá víkur fótboltinn oft,“ sagði Þorgrímur sem hló við aðspurður hvort kynlífsfræðsla yrði í boði. „Þeir fá kannski eintak af bókinni.“ Að öllu gamni slepptu ætlar Þorgrímur að vera til staðar utan vallar án þess að predika um of yfir strákunum. „Þeir geta leitað til mín með allt. Ég verð með aukaæfingar ef menn vilja, upplýsingar um mataræði og markmiðasetningu. Ég mun styðja við bakið á þeim með hvaða hætti sem þeir vilja,“ sagði Þorgrímur en fyrsta æfing liðsins er í kvöld. Bækur Þorgríms um unga knattspyrnukappa frá 1990 vöktu mikla lukku meðal unglinga. Það lá því beint við að spyrja Þorgrím hvort hann væri ekki Með fiðring í tánum yfir því að snúa aftur í boltann? „Algjörlega. Ég verð í takkaskónum og vonandi verður oddatala á æfingum svo ég geti verið með,“ sagði Þorgrímur glaðbeittur og játti því að Tár, bros og takkaskór væru svo sannarlega að Hlíðarenda. ÞORGRÍMUR ÞRÁINSSON: TEKUR VIÐ ÞJÁLFUN 2. FLOKKS VALS Í KNATTSPYRNU Tár, bros og takkaskór Þorgríms að Hlíðarenda FRJÁLSAR Fjölnismaðurinn Sveinn Elías Elíasson hætti keppni eftir sjö greinar í tugþrautarkeppni HM unglinga í Bydgoszcz í Póllandi í gær þar sem að stangirnar hans skiluðu sér ekki fyrr en of seint. Þetta voru mikil vonbrigði fyrir Svein Elías sem átti frábæran fyrri dag þar sem að hann var í 5. sæti. Vand- ræðin með stangirnar höfðu greinilega áhrif á seinni dag- inn þar sem hann fann sig ekki nærri því eins vel. Sveinn Elías vonaðist eftir að bæta sig í bæði 110 metra grinda- hlaupi og kringlu- kasti, en var nokkuð frá því, sem dæmi var aðeins eitt af þremur köstum hans var gilt. Sveinn var í 12. sæti þegar hann hætti keppni. Til að kóróna vonbrigð- in þá komu stangirnar á svæðið aðeins hálftíma eftir að keppni lauk. Þær höfðu orðið eftir á flug- vellinum í München í Þýskalandi og það tókst ekki að koma þeim á keppnis- staðinn í tíma, þrátt fyrir að bæði Frjálsíþróttasam- bandið og ferða- skrifstofan hefðu lagst á eitt við að hjálpa til að hafa uppi á stöngunum. Þetta er í fyrsta sinn sem Sveinn Elías klárar ekki þraut en það er illmögulegt að stökkva með lánaða stöng í jafn mikilli tæknigrein og stangar- stökkið er. Það var því ákvörð- un hans að hætta keppni í stað þess að taka áhættuna sem hefði getað þýtt það að hann dytti og meiddi sig, því stang- arstökkvarar eru mjög við- kvæmir fyrir bæði lengd og stífni stanganna sem þeir nota. Helga Margrét Þorsteins- dóttir hefur keppni í sjöþraut kvenna á mótinu í dag en líkt og Sveinn Elías þá varð hún Norðurlandameistari á dögun- um. Hún bætti síðan Íslands- metið í sjöþraut um 122 stig í Tékklandi fyrir hálfum mán- uði. - óój Stangir Sveins Elíasar komu ekki í tæka tíð og hann hætti eftir sjö greinar: Í fyrsta skipti sem Sveinn Elías klárar ekki þraut > Jón Arnór með nokkur tilboð Framtíð Jóns Arnórs Stefánssonar er enn óráðin en hann er nú farinn til Ítalíu til þess að ganga frá sínum málum. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er Jón Arnór með tilboð frá nokkrum liðum og því óvissa um hvort hann verður áfram í herbúðum Lottomatica Roma. Rómarliðið hefur gengið í gegnum mikla uppstokkun í sumar og þrír byrjunarliðsmenn eru þegar horfnir á braut. Jón Arnór dróg sig út úr landsliðshópnum sem fer til Lit- háens um helgina til þess að fara út og ganga frá sínum málum. Hann verður síðan með liðinu í öðrum verkefnum haustsins. HANDBOLTI Íslenska 20 ára landslið kvenna mun taka þátt á Heimsmeistaramótinu sem fram fer í Makedóníu dagana 21. júlí til 3. ágúst. Ísland var fyrsta varaþjóð inn á mótið og tók sæti Úrúgvæ sem hætti við þátttöku. „Þetta eru frábærar fréttir,“ sagði Stefán Arnarsson, þjálfari liðsins, en þegar Fréttablaðið talaði við hann var hann að setja saman hópinn og að undirbúa að kalla suma leikmenn úr sumar- fríi. „Það er lítill tími því fyrsti leikur er 21. júlí. Það fóru bara 7 af 35 liðum áfram úr Evrópu og við vorum áttunda liðið. Við vorum með bestan árangur og því fyrsta lið inn. Stelpurnar eru því búnar að fá það sem þær eru búnar að vinna fyrir. Við munum bara æfa fram að móti og gera okkar besta,“ segir Stefán. Ísland er með Rúmeníu, Slóveníu, Ungverjalandi og Þýskalandi í riðli en þessar þjóðir voru allar meðal níu efstu á síðasta HM. „Við erum í algjörum dauða- riðli. Við erum með fimm Evrópuþjóðum en í hinum riðlunum eru bara tvær Evrópu- þjóðir,“ segir Stefán. - óój Stelpurnar á HM 20 ára liða: Frábærar fréttir LÍTILL FYRIRVARI Rut Jónsdóttir í leik með A-landsliðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL 1. deild karla í fótbolta Þór-Njarðvík 3-1 Stjarnan-Haukar 4-5 0-1 Edilon Hreinsson (9.), 1-1 Þorvaldur Árnason (12.), 2-1 Þorvaldur (15.), 2-2 Hilmar Geir Eiðsson (22.), 2-3 Denis Curic (29.), 3-3 Þorvaldur (81.), 3-4 Hilmar Geir (83.), 3-5 Edilon Hreinsson, víti (86.), 4-5 Sigurbjörn Ingimundarson (90.). ÍBV-Selfoss 3-0 1-0 Bjarni Hólm Aðalsteinsson, víti (9.), 2-0 Andr- ew Mwesigwa (16.), 3-0 Pétur Runólfsson (53.) STAÐAN Í 1.DEILD KARLA: (efstu lið) ÍBV 11 10 0 1 23-5 30 Selfoss 11 6 4 1 29-17 22 Haukar 11 6 3 2 25-18 21 Stjarnan 11 6 2 3 19-13 20 Víkingur 10 5 1 4 18-17 16 KA 10 4 2 4 16-12 14 Þór Ak. 11 4 0 7 14-21 12 LANDSBANKAD. KARLA: (efstu lið) FH 10 7 1 2 21-10 22 Keflavík 10 7 1 2 23-15 22 Valur 11 6 1 4 18-14 19 KR 11 6 0 5 19-13 18 Fjölnir 10 6 0 4 17-10 18 Breiðblik 10 4 3 3 17-15 15 Fram 10 5 0 5 10-9 15 Grindavík 10 4 1 5 13-17 13 ÚRSLITIN Í GÆR FÓTBOLTI Pétur Pétursson, aðstoðarlandsliðsþjálfari A- landsliðs Íslands, hafnaði í gær tilboði um að taka við botnliði HK. Þetta kom fyrst fram á fotbolta.net í gær. Áður höfðu Eyjólfur Sverris- son, Arnar og Bjarki Gunnlaugs- synir, Lúkas Kostic og Ólafur Þórðarson hafnaði sams konar tilboði frá Kópavogsliðinu. HK-ingar eru þar með enn þjálfaralausir. Rúnar Páll Sigmundsson mun stjórna liðinu á æfingum og í leikjum á meðan leitin ber ekki árangur. - óój Þjálfaramál í Fagralundi: Pétur Péturs- son hafnaði HK EKKI KLÁR Í SLAGINN Pétur Pétursson þjálf- aði síðast í efstu deild, þegar hann þjálfaði KR, sumarið 2001. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI Helgi Sigurðsson rak heldur betur upp í stuðningsmenn KR sem sungu um að hann væri of gamall. Hann skoraði bæði mörk Vals í 2-1 sigri þar sem Björgólfur Takefusa skoraði sjöunda leikinn í röð fyrir KR í frábærri stemmn- ingu yfir 3000 áhorfenda og glæsi- legri umgjörð á KR-vellinum í gær. Það vantaði ekkert upp á grimmdina í leikmönnum sem seldu sig rándýrt. Valsmenn voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og sóknir þeirra voru margar hverj- ar skemmtilegar en árangur báru þær fæstar. Þeir fengu fimm horn fyrstu tuttugu mínúturnar en engin hætta skapaðist úr þeim. Skemmtilegt var að fylgjast með einvígi bakvarðanna Guð- mundar Reynis og Birkis, í sínum síðasta leik fyrir Val, sem óðu báðir fram völlinn við hvert tæki- færi. Minna kom úr sóknum KR, aðeins skalli Guðjóns beint á Kjartan og langskot Atla ógnuðu Valsmarkinu. KR náði að halda marki sínu hreinu í 409 mínútur í röð í deild- inni, og 589 með bikarkeppninni, áður en Helgi Sigurðsson kom Val yfir í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Hann skallaði þá aukaspyrnu Guð- mundar í netið sem hafði viðkomu í varnarmanni KR. 0-1 í hálfleik. Valsmenn drógu sig aftar á völl- inn í síðari hálfleik og KR-ingar hófu leit að jöfnunarmarki. Hún gekk illa þrátt fyrir að sóknir liðs- ins hefðu verið álitlegar. Kjartan varði vel og Valsmenn refsuðu svo grimmilega með góðri syndisókn. Helgi skoraði þá af markteig eftir sendingu Bjarna Ólafs, hans sjö- unda mark í sumar. Leikurinn virtist búinn en það má aldrei afskrifa Björgólf. Hann potaði enn einu markinu inn af markteig, hans tíunda í sumar og í sjöunda leiknum í röð. Það dugði KR, skammt, Valsmenn voru afar skynsamir og héldu fengnum hlut. „Þetta er ógeðslega fúlt,“ sagði Björgólfur svekktur í leikslok. „Við vorum í rauninni ekkert mættir til leiks í fyrri hálfleik og getum sjálfum okkur um kennt. Þeir eiga fyrri hálfleikinn en við þann seinni og við hefðum átt að skora annað mark. Heppnin var bara ekki með okkur núna ólíkt síðustu leikjum,“ sagði marka- skorarinn sem jafnaði félagsmet Þórólfs Beck með því að skora í sjö leikjum í röð. „Það er ekki ofarlega í huga mér núna. Við höfðum tækifæri til að skilja Vals- ara eftir með þessum leik.“ Hetja dagsins, Helgi Sigurðs- son, var brosmildur eftir leikinn. „Það má segja að tímabilið sé að byrja af alvöru, við erum að kom- ast í alvöru baráttu um titilinn eftir hæga byrjun. Við erum ánægðir með það. Það er ekki hægt að skora á betri tíma en í lok fyrri hálfleiks og við ákváðum að reyna að keyra á þá af sama krafti í seinni hálfleik. Það tókst. Síðan lendum við í því að þeir byrja að pressa og uppskera mark en okkar lið er það sterkt að það heldur út svona. Við erum byrjaðir að reita stigin og höfum unnið þrjá leiki í röð núna, við ætlum okkur að halda áfram á sömu braut,“ sagði Helgi. Ekki verður skilið við leikinn án þess að minnast á frammistöðu Jóhannesar Valgeirssonar dómara sem var frábær. Hann lét leikinn fljóta vel, var samkvæmur sjálf- um sér og sanngjarn. - hþh/ - egm Meistararnir nálgast toppsætið Íslandsmeistarar Vals unnu KR í Frostaskjólinu í gær. Helgi Sigurðsson skoraði bæði mörk Vals en Björg- ólfur Takefusa hélt uppteknum hætti fyrir KR með sjöunda markinu í röð og sínu tíunda í sumar. BRAUT MÚRINN Helgi Sigurðsson varð fyrstur til þess að skora hjá KR-vörninni, með Pétur Marteinsson innanborðs, í sumar. Hér eru þeir í baráttu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KR 1-2 VALUR 0-1 Helgi Sigurðsson (45.+1) 0-2 Helgi Sigurðsson (67.) 1-2 Björgólfur Takefusa (78.) KR-völlur, áhorf.: 3158 Jóhannes Valgeirsson (9) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 19–11 (7–4) Varin skot Stefán Logi 2 – Kjartan 6 Horn 5–6 Aukaspyrnur fengnar 19–15 Rangstöður 0–0 KR 4–4–2 Stefán Logi Magnússon 4 - Skúli Jón Friðgeirsson 4, Grétar Sigurðarson 5, Pétur Marteinsson 6, Guðmundur Reynir Gunnarsson 6 - Óskar Örn Hauksson 4 (85. Guðmundur Pétursson -), Viktor Bjarki Arnarson 5, Jónas Guðni Sævarsson 4, Atli Jóhannssson 5 (74. Jordao Diogo -) - Björgólfur Takefusa 7, Guðjón Baldvinsson 7. Valur 4–4–x Kjartan Sturluson 6 - Birkir Már Sæv- arsson 7 Atli Sveinn Þórarinsson 7, Barry Smith 6, Rene Carlsen 5 - Rasmus Hansen 5, Pálmi Rafn Pálmason 6, Sigurbjörn Hreiðarsson 5, Bjarni Ólafur Eiríksson 7, Guðmundur Benediktsson 6 (82. Baldur Aðalsteinson -), *Helgi Sigurðsson 7 (90. Einar Marteinsson -).

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.