Fréttablaðið - 11.07.2008, Page 61
38 11. júlí 2008 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT 2. íþrótt, 6. úr hófi, 8. efni,
9. farvegur, 11. kringum, 12. laust bit,
14. framvegis, 16. tveir eins, 17. iðka,
18. for, 20. pfn., 21. könnun.
LÓÐRÉTT 1. harmur, 3. pot, 4. reiðu-
fé, 5. óðagot, 7. þögull, 10. grasteg-
und, 13. frjó, 15. kviður, 16. missir,
19. kyrrð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. golf, 6. of, 8. tau, 9. rás,
11. um, 12. glefs, 14. áfram, 16. tt, 17.
æfa, 18. aur, 20. ég, 21. próf.
LÓÐRÉTT: 1. sorg, 3. ot, 4. lausafé,
5. fum, 7. fálátur, 10. sef, 13. fræ, 15.
magi, 16. tap, 19. ró.
„Ég er svolítill rokkari í mér og
hlusta oft á Led Zeppelin og
Metallica. Annars er ég nokkurn
veginn alæta á tónlist og hef
gaman af þessum gömlu góðu
slögurum og mönnum eins og
Johnny Cash.“
Katrín Ósk Guðlaugsdóttir, hárgreiðslu-
kona á Toni & Guy
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Fagra Ísland.
2 Stuðmannabörnin Ólafur Egill
Egilsson og Bryndís Jakobsdóttir.
3 Hjúkrunarfræðingar.
Auglýsingasími
– Mest lesið
Það eru ekki bara olíufurstar og
konungsfjölskyldur barnaævintýra
sem búa í gullhúsum, ef svo má að
orði komast. Á heimasíðu fasteigna-
sölunnar Remax er að finna einbýl-
ishús í Garðabæ á söluskrá. Það
væri ekki í frásögur færandi ef ekki
væri fyrir þá staðreynd að blöndun-
artækin á baðherbergjum hússins
eru úr 24 karata gulli. Það mun vera
afar sjaldgæft hér á landi.
Hús þetta er 461 fermetri og er á
tveimur hæðum. Á neðri hæð húss-
ins er tæplega 100 fermetra sund-
laug og innitjörn með marmara. Þá
eru átta herbergi í húsinu.
Brunabótamat hússins er um 61
milljón og því líklegt að húsið kosti
vel yfir hundrað milljónir. -shs
Gullhús í Garðabæ
SUNDLAUG Um hundrað fermetra
sundlaug er í húsinu. MYND/REMAX.IS
GULLIN BLÖNDUNARTÆKI Blöndunar-
tækin á baðherbergjum hússins eru úr
24 karata gulli. MYND/REMAX.IS
„Það er hægt að túlka þetta sem
pólitískt lag,“ segir Haffi Haff sem er
að senda frá sér lagið Bin Laden.
Danslag af dýrari gerðinni með snert
af ádeilu. „Það er verið að benda á
ákveðna hluti sem eru að gerast í
heiminum,“ segir Haffi en lagið er
eftir Steina nokkurn og textinn líka.
„Hann er snillingur. Hann valdi
akkúrat réttu orðin í textann.“
Haffa skaut upp á stjörnuhimininn
hérlendis með laginu Wiggle wiggle
song eftir Svölu Björgvinsdóttur.
Lagið sat í nokkrar vikur á toppi
íslenska listans á FM957 og var
geysivinsælt. „Það er ekki hægt að
gera það og ekkert meira,“ segir Haffi
sem vinnur nú að sinni fyrstu plötu.
Haffi er alinn upp í Bandaríkjunum
en er alkominn til Íslands. „Auðvitað,
ég er alveg fluttur hingað heim. Búinn
að kaupa mér íbúð og er í fjórum
vinnum hérna,“ segir Haffi. Hann
segist vera rétt að byrja í tónlistinni
en toppurinn sé ekki markmiðið. „Ég
vil bara vinna við tónlist sama hvert
það svo leiðir mig. Ég elska að vinna
að tónlist og sef ekki mikið,“ segir
hinn ofurhressi Haffi Haff sem mun
frumflytja Bin Laden í Sjallanum á
Akureyri í kvöld þar sem Merzedes
Club spilar einnig. Haffi stígur á svið
með Merzedes Club enda samdi hann
eitt lag á plötu sveitarinnar. - shs
Haffi Haff syngur um Bin Laden
HAFFI HAFF
Sendir frá sér lagið Bin Laden.
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Auglýsingasími
– Mest lesið
„Þetta eru verk eftir mig og litla
bróður minn,“ segir hinn ungi
sölufulltrúi fasteigna, Högni
Kjartan Þorkelsson. Í gærkvöldi
opnaði hann sína fyrstu listaverka-
sýningu í versluninni Mohawks á
Laugavegi 44. Högni vakti athygli
fyrr í sumar þegar hann keypti
baksíðuna á símaskránni undir
auglýsingu þar sem hann minnti
fasteignaseljendur og kaupendur
á sjálfan sig. Högni er umsvifa-
mikill fasteignasali þrátt fyrir að
vera fæddur árið 1987. Nú er það
hin hlið sölufulltrúans sem vekur
athygli, myndlistarhæfileikarnir.
„Ég byrjaði árið 1998 að spreyja.
Síðan hef ég verið að færa mig
meira yfir í strigann undanfarin
ár,“ segir Högni en hann tekur
einnig að sér að mála á veggi í
heimahúsum og fyrirtækjum.
Högna hefur áður verið boðið að
halda sýningar á verkum sínum en
ekki viljað það fyrr en nú. Á sýn-
ingunni verða tæplega tuttugu
verk eftir Högna, og fjórtán eftir
Daníel Stefán, yngri bróður hans.
Högni er mikill sölumaður,
fæddur slíkur. Því hefur hann ekki
áhyggjur af því að enginn kaupi
verk hans. „Það verður ekki mikið
mál að selja þau,“ segir hann og
hlær. „Eftir að ég gaf það út í Inn-
lit/Útlit að ég ætlaði að fara að
selja verkin mín hef ég fengið
margar fyrirspurnir.“ Hann segir
það þó hæpið að hann muni hverfa
úr sölu fasteigna yfir í myndlist-
ina. „Nei, nei, blessaður vertu,
maður verður að hafa sín hobbý
og myndlistin er mitt hobbý. En ég
borga ekki reikningana með
henni,“ segir Högni og treystir
þar á fasteignamarkaðinn, þó hart
sé í ári. Eða hvað? „Það gengur
mjög vel hjá mér að selja fasteign-
ir þessa stundina. Ég er með sjö
bókaða kaupsamninga í mánuðin-
um og ef þeir ganga allir eftir þá
gæti þetta orðið söluhæsti mánuð-
urinn minn frá upphafi,“ segir
Högni, sem hefur náð að sameina
listina og fasteignasöluna einu
sinni í orðsins fyllstu merkingu.
„Já, ég hef selt íbúð sem var með
verk eftir mig á einum vegg,“
segir hinn magnaði Högni sölu-
fulltrúi og listamaður.
soli@frettabladid.is
HÖGNI KJARTAN: LÆTUR KREPPUTAL EKKI STÖÐVA SIG
Yngsti fasteignasali lands-
ins opnar listasýningu
FJÖLHÆFUR PILTUR Högna Kjartani er margt til lista lagt en hann er bæði listamaður
og fantagóður sölumaður. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
AUGLÝSINGIN Högni vakti athygli lands-
manna þegar hann keypti baksíðuna á
símaskránni.
Leitin að stjórnanda Gettu betur
stendur enn yfir en eins og fram
hefur komið ætlar Sig-
mar Guðmundsson
að láta af störfum
eftir góða frammi-
stöðu við að spyrja
menntskælinga
út úr. Þórhallur
Gunnarsson
mun ekki síður
horfa til kvenna
en karla og ættu femínistar að
gleðjast. Þannig hafa nöfn kvenna
á borð við Þórurnar Tómasdóttur
og Arnórsdóttur verið nefnd sem
og Evu Maríu Jónsdóttur en Stef-
án Pálsson spurningaljón með
meiru er ákafur stuðningsmaður
hennar í hlutverkið.
Ari Edwald, forstjóri 365 miðla
(sem gefur út Fréttablaðið), er
44 ára í dag. Hann hefur þó ekki
haft mikinn tíma til að undirbúa
afmælisveislu því Ari stendur í stríði
við RÚV sem hefur síðasta mánuð
viljað birta auglýsingar
með rangri framsetn-
ingu tölfræðilegra
gagna sem gefa til
kynna meiri hlustun
á útvarpsstöðvar
þeirra en raun
ber vitni. Ari
keypti sér þó
nýverið herra-
búgarð við
ströndina á
Stokkseyri og verður væntanlega
þar í slökun á afmælisdaginn og
reynir að hugsa um eitthvað annað
en Þorstein Þorsteinsson, auglýs-
ingastjóra RÚV.
Birgir Örn Steinarsson, inn-
blaðsstjóri 24 stunda, gerði
sér mat úr því í blaði sínu að
Ágústa Eva Erlendsdóttir, sem
þekktust er fyrir frábæra
frammistöðu sína í gervi
Silvíu Nætur, hafi verið
áberandi á Paul Simon
tónleikunum og hróp-
að til Simons í anda
Silvíu. En virtist ekki
vilja botna söguna
því ekki var það þó
þetta sem tíðinda-
maður Fréttablaðsins tók helst eftir
í tengslum við leikkonuna góðu
heldur það að ástin virðist blómstra
í barmi hennar og í líki einskis
annars en saxófónleikarans Óskars
Guðjónssonar. -jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI