Fréttablaðið - 14.07.2008, Qupperneq 8
8 14. júlí 2008 MÁNUDAGUR
!"#########$%&'()*(
+(
,
-!#######
!
.#!/0
.1
.##1
2
!
.#!/3
14
*
5 6*
7
!
.##8
9
7
:3#!#;!/<67
!"-.##1
)
=
.7!#">
-
2
7??? 7
!;- .##1!;-.##8
>
7!;-.##1
@+:=A''+'B%3+>@+'B:C,+'D>
Allir velkomnir á menningarhátíðina á Bifröst á föstudaginn
Tekjur ríkissjóðs fyrstu fimm mánuði ársins voru rúmlega 194 milljarðar:
Tekjurnar hafa tvöfaldast á tíu árum
RÍKISSJÓÐUR „Þegar vel árar auk-
ast tekjur ríkissjóðs til muna og
nú hafa verið mörg góð ár í röð,“
segir Sigurður Guðmundsson hjá
efnahagsskrifstofu fjármálaráðu-
neytisins.
Samkvæmt nýjustu tölum um
tekjuafkomu ríkissjóðs fyrstu
fimm mánuði ársins, sem birtust í
síðustu viku, kemur fram að tekj-
ur ríkissjóðs voru tæpir tvö
hundruð milljarðar.
„Þegar fólk hefur mikið milli
handanna aukast tekjurnar. Þá
kaupir fólk til dæmis bíla og annað
frá útlöndum. Þessu öllu fylgir
greiðsla vörugjalda og virðisauka-
skatts. Það kemur síðan inn sem
tekjur í ríkissjóð,“ segir Sigurður.
Skatttekjur eru tæplega 179
milljarðar króna sem eru um 91
prósent af tekjum ríkissjóðs.
Nú þegar harðnar í ári verður lík-
lega annað uppi á teningnum hjá
ríkissjóði. „Þegar atvinna dregst
saman eru minni laun. Þá kaupir
fólk minna og líklega fer meiri pen-
ingur í hluti eins og atvinnuleysis-
bætur,“ segir Sigurður.
Tekjur ríkissjóðs voru 62 millj-
arðar árið 1998. Það þýðir rúmlega
þreföldun í krónum talið milli þess-
ara tíu ára. Þegar vísitala neyslu-
verðs er reiknuð með kemur í ljós
að raungildi tekna ríkissjóðs hefur
tvöfaldast á síðustu tíu árum. - vsp
200
150
100
50
x
10
00
m
ill
ja
ða
r
TEKJUR RÍKISSJÓÐS UNDANFARIN TÍU ÁR*
*Án tillits til vísitölu neysluverðs
98 99 00 01 02 03 04 05 06 07 08
VÍSINDI, AP Vísindamenn í Lettlandi
hafa grafið upp 365 milljóna ára
gamla steingervinga af höfuð-
kúpu, axlabeini og mjaðmagrind
frumstæðasta ferfætlings jarð-
sögunnar. Vonast er til að fundur-
inn hjálpi mönnum að skilja
hvernig fiskar þróuðust í landdýr.
Ferfætlingurinn er löngu
útdauður en hefur líkst litlum
krókódíl. Hann hefur líklega lifað
í grunnum vötnum, verið um metri
á lengd og lifað á fiski. Skepnan
var með fjóra útlimi sem líktust
fremur fótleggjum en uggum.
Fjórfætlingurinn var líklega
þróunarlegur endapunktur, og
engir afkomendur frá honum.
Hann líktist þó ýmsum fiskum
sem námu land á svipuðu tíma-
bili.
Vísindamenn hafa leitað svara
við því af hverju fiskar hafi
þróað með sér fótleggi sem
gerðu þeim kleift að ganga á
land. Hugsanleg skýring er að
þeir hafi lifað í svo grunnum
vötnum að heppilegra hafi verið
að ganga á botninum en að synda.
- gh
Vísindamenn grafa upp mikilvæga steingervinga:
Frumstæðasti fer-
fætlingur sögunnar
FURÐUSKEPPNA Dýrið sem vísindamenn fundu steingervinga af hefur líkst krókódíl.
MYND/INFO.UU.SE
1 Hve margir hlupu í Lauga-
vegshlaupinu á laugardaginn?
2 Hvað heitir ný þáttaröð sem
Ilmur Kristjánsdóttir leikur í?
3 Hvar mega rastafarar nú
reykja marijúana?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30
BRETLAND, AP Breska leyniþjónust-
an leitar nú að starfsfólki úr hópi
kvenna og einstaklinga sem
tilheyra minnihlutahópum í
Bretlandi, í baráttunni gegn
hryðjuverkum.
Tuttugu þúsund hafa sótt um
störfin á þessu eina ári sem
verkefnið hefur verið í gangi.
Bæði konur og hópur fólks af
austurlenskum uppruna eru hvött
til þess að sækja um. Breska
leyniþjónustan segir að fylgst sé
með yfir tuttugu þúsund manns.
Margir af þeim eru með sambönd
við öfgahópa í Pakistan. - mmr
Breska leyniþjónustan:
Nýir njósnarar
taka til starfa
MENNTUN Nú er auðveldara fyrir
rektor Háskólans að taka á mál-
efnum, sem beint er til siðanefnd-
ar skólans, en verið hefur, þegar
álitamál hafa komið upp um starfs-
menn skólans, að sögn rektors.
Starfsmenn Háskóla Íslands
hafi upp á síðkastið unnið að því
að skýra verklag innan skólans,
endurskoða verkferla og sérstak-
lega málefni siðanefndar skól-
ans.
„Við viljum koma í veg fyrir að
afgreiðsla mála dragist í mörg ár
og við viljum hafa úrræðin sem
þarf til að bregðast við hugsan-
legum brotum,“ segir Kristín
Ingólfsdóttir rektor. Eitt þeirra
sé formleg áminning.
Þekktasta dæmið um slíkt mál er
mál Hannesar Hólmsteins Gissur-
arsonar, um brot á höfundarrétti.
Afgreiðslu þess lauk með því að
rektor áminnti hann ekki. Hannes
hafði þá þurft að bíða ákvörðunar
stjórnenda skólans í fjögur ár.
Kristín segir skólann vitanlega
halda sig innan starfsmannalaga,
enn sem fyrr, en með lögum um
háskóla frá 2006 hafi siðanefndin
fengið sérstaka lagastoð. Nú sé
stjórnsýslan skýrari og álitamál
geti farið beint frá siðanefnd og
fyrir rektor. - kóþ
Siðanefnd Háskólans styðst við sérstaka lagastoð:
Auðveldara að áminna
VEISTU SVARIÐ?