Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.07.2008, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 14.07.2008, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 14. júlí 2008 11 VILJA EKKI SVARA KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍUSSON, D KRISTJÁN L. MÖLLER, S LÚÐVÍK BERG- VINSSON, S ÓLÖF NORDAL, D PÉTUR H. BLÖN- DAL, D RAGNHEIÐUR E. ÁRNADÓTTIR, D SIGURÐUR KÁRI KRISTJÁNSSON, D SIV FRIÐLEIFS- DÓTTIR, B STURLA BÖÐV- ARSSON, D ÞÓRUNN SVEIN- BJARNARDÓTTIR, S Flestir í þessum hópi eru ráðherrar og svöruðu ekki símhringingum. Þeir fengu skilaboð í gegnum ráðuneyti sín og/eða aðstoðar- menn og flestir fengu tölvupósta frá blaðinu að auki. EKKI NÁÐIST Í ÞESSA ÁRNI ÞÓR SIG- URÐSSON, V BJARNI BENE- DIKTSSON, D BJÖRGVIN G. SIGURÐSSON, S GEIR H. HAARDE, D HELGI HJÖRVAR, S JÓHANNA SIG- URÐARDÓTTIR, S ÞORGERÐUR KATRÍN GUNN- ARSDÓTTIR, D ÖSSUR SKARP- HÉÐINSSON, S NEYTENDUR Mismunur á árgjaldi knattspyrnufélaga hjá fjórða flokk nemur tæpum fimmtíu þúsund krónum. Í Grindavík er ókeypis að æfa fótbolta en á Akranesi nemur árgjaldið 47.700 krónum. Iðkend- um hefur fjölgað í kjölfar þess að frítt varð að stunda íþróttir í Grindavík. Ef Grindavík er undan- skilin eru lægstu árgjöldin 25 þús- und krónur. Þetta kemur fram á heimasíðu neytendasamtakanna. Meira en helmingur þeirra 24 sveitarfélaga sem Neytendasam- tökin tóku til rannsóknar greiddu styrki til barna fyrir íþrótta- og tómstundaiðkun. Almennt eru það fjölmennustu sveitarfélögin sem hafa tekið upp styrkjakerfi. Nokk- uð misjafnt er við hvaða aldur styrkgreiðslur miðast og er það ýmist 12 ára aldur eins og á Akur- eyri, 15, 16 eða 18 ára aldur. Ef íþróttastyrkurinn er tekinn með í reikninginn þá er árgjaldið fyrir knattspyrnuiðkun fjórða flokks hæst á Selfossi þar sem það er 46.800. Gjöldin er mjög misjöfn og er nokkuð jöfn dreifing frá því að vera ókeypis upp í þessar tæpu fimmtíu þúsund krónur. Verðið er lægst í stóru sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu. Rétt er að taka fram að samanburðurinn er ekki nákvæmur þar sem aðstæður félaganna eru mismunandi. - ges Munur á árgjaldi fyrir knattspyrnuiðkun tæpar fimmtíu þúsund krónur: Ókeypis í Grindavík en dýrast á Akranesi UNGAR OG EFNILEGAR Mikill munur er á því hvað það kostar að æfa knattspyrnu. SKIPULAGSMÁL Björn Bjarnason dómsmálaráðherra telur að Héraðsdómur Reykjavíkur eigi að fá nýtt aðsetur og hverfa frá Lækjartorgi. „Reisa þarf nýtt hús fyrir héraðsdóm og embætti ríkissak- sóknara og héraðssaksóknara,“ skrifar Björn á heimasíðu sína, bjorn.is, og bætir við að hugsanlegt millidómsstig gæti einnig fengið aðstöðu þar. Hanna Birna Kristj- ánsdóttir, formaður skipulagsráðs, er sammála. „Það yrði lyftistöng fyrir Lækjartorg ef í þessu húsi yrði starfsemi sem væri meira í takt við það sem er að gerast á þessu svæði,“ segir hún. - ges Meira líf á Lækjartorg: Ráðamenn vilja færa héraðsdóm

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.