Fréttablaðið - 14.07.2008, Page 12
12 14. júlí 2008 MÁNUDAGUR
Allra síðustu sætin!
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til Montreal 6. og 13. júní. Þetta
er einstakt tækifæri til að njóta lífsins í þessari stórkostlega spennandi borg sem
er önnur stærsta borg Kanada. Í borginni mætast gamli og nýi timinn, rík sagan og
iðandi nýbreytnin á einstaklega skemmtilegan hátt. Það er frábært að skoða sig
um, versla og njóta lífsins í Montreal; fallegar byggingar, endalaust úrval verslana
og veitingastaða og mjög hagstætt verðlag. Gríptu tækifærið og smelltu þér til
Montreal og njóttu þess besta sem þessi spennandi heimsborg hefur að bjóða.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000
Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
Bankarnir á Íslandi eru duglegir við að leggja hin
ýmsu gjöld á viðskiptavini sína. Kristín I. Hilmars-
dóttir skrifar: Ég hringdi og lét millifæra fyrir mig
peninga á milli reikninga í sama banka og í sama
útibúi (Landsbankanum) og mátti gjöra svo vel að
borga 240 kr. fyrir færsluna. Þetta er ekki há
upphæð, þannig séð, og ég get skilið að bankarnir
taki gjald fyrir að millifæra sín á milli. En að taka
gjald fyrir færslur innan sama bankaútibús finnst
mér nokkuð langt gengið.
Inga Björk Svavarsdóttir furðar sig líka á
gjaldagræðgi bankanna og skrifar: Ég komst að því
þegar ég leit á bankareikningsyfirlitið mitt í gær að
95 krónur hefðu verið teknar í þjónustugjald vegna
símtals sem ég hringdi í þjónustuver Landsbankans
til að fá að vita stöðu á reikningi. Ég fékk engar
upplýsingar fyrirfram um að þessi þjónusta
kostaði. Mér þætti gaman að vita hvað sambærileg
þjónusta kostar hjá öðrum bönkum.
Eins og sést hér á töflunni eru gjöld
bankanna mishá. Ég hringdi í fjórar
útlánsstofnanir og spurði annars vegar:
Hvað kostar að millifæra símleiðis á milli
tveggja íslenskra reikninga á sitthvorri kennitöl-
unni í sama banka? Hins vegar: Hvað kostar að
hringja og fá stöðu á reikningi? Glitnir kemur best
út úr þessari könnun. Þar er hvort tveggja ókeypis.
Hinir bankarnir taka mismikið fyrir þjónustuna,
Landsbankinn mest. Þess ber að geta að í öllum
netbönkum væri hægt að framkvæma þessar
aðgerðir ókeypis – ennþá að minnsta kosti.
BANKI MILLIFÆRA FÁ STÖÐU
Landsbankinn 240 kr. 95 kr.
Kaupþing 220 kr. 75 kr.
Byr sparisjóður 100 kr. 100 kr.
Glitnir 0 kr. 0 kr.
Símaþjónusta bankanna kostar sitt:
Bara ókeypis hjá Glitni
ÞJÓNUSTAN ER ÓKEYPIS HJÁ GLITNI
En ekki hjá hinum bönkunum.
AUSTUR-TÍMOR, AP Indónesar
frömdu glæpi gegn mannkyni
þegar Austur-Tímor lýsti yfir
sjálfstæði árið 1999, að því er
sameiginleg Sannleiks- og friðar-
nefnd beggja ríkjanna segir.
Nefndin hefur rannsakað blóð-
baðið og sent frá sér 300 blað-
síðna skýrslu þar sem skýrt er
frá því að Indónesíuher, lögregla
og borgaraleg stjórnvöld á Indó-
nesíu hafi farið í „skipulega
ofbeldisherferð“ gegn sjálfstæðis-
sinnum á Austur-Tímor.
Nefndin segir að Indónesar
ættu að sýna iðrun í verki og biðj-
ast opinberlega afsökunar á
morðum, pyntingum og öðrum
voðaverkum sem framin voru.
Nefndin ætlar að kynna niður-
stöður sínar í dag og afhenda
skýrsluna bæði Susilo Bambang
Yudhoyono Indónesíuforseta og
Jose Ramos-Horta, forseta Aust-
ur-Tímors.
„Við munum fallast á allt sem
nefndin segir og fara að tilmælum
hennar,“ sagði Teuku Faizasyah,
talsmaður utanríkisráðuneytis
Indónesíu. Hann sagði að stjórn-
völd beggja ríkjanna teldu það
siðferðilega skyldu sína að taka
mark á niðurstöðum nefndarinn-
ar: „Markmiðið er að græða sár
fortíðar og starfa saman að betri
framtíð.“
Í skýrslunni er hörðustu gagn-
rýninni beint að Indónesíu, en
einnig eru stjórnvöld á Austur-
Tímor sögð þurfa að biðjast
afsökunar á voðaverkum sem
vopnaðar sveitir sjálfstæðissinna
frömdu. Er þar einkum vísað til
þess að fólk hafi verið haft í haldi
án lagalegra heimilda.
Í þjóðaratkvæðagreiðslu árið
1999 samþykktu íbúar á Austur-
Tímor með yfirgnæfandi meiri-
hluta að segja skilið við Indónes-
íu, sem hafði stjórnað þar með
harðri hendi í 24 ár, eða allt frá
því nýlendustjórn Portúgala á
Austur-Tímor lauk.
Í kjölfar kosninganna hófst
óöld mikil þar sem indónesískir
hermenn og vopnaðar fylgisveitir
þeirra fóru með ofbeldi á hendur
íbúum Austur-Tímors. Sam-
kvæmt skýrslu frá Sameinuðu
þjóðunum kostaði þessi ofbeldis-
herferð meira en þúsund manns
lífið.
Leiðtogar á Austur-Tímor hafa
ekki krafist þess að hinir seku
verði dregnir fyrir dómstóla. Þeir
hafa heldur ekki farið fram á að
alþjóðlegur dómstóll verði fenginn
til að fjalla um glæpina.
Þess í stað var þessi nefnd stofn-
uð og er hlutverk hennar að kom-
ast að niðurstöðu sem bæði
Indónesar og Austur-Tímorar geta
sætt sig við. gudsteinn@frettabladid.is
Indónesía ber mesta
ábyrgð á ofbeldinu
Sannleiksnefnd krefst þess að Indónesíustjórn biðji Austur-Tímor afsökunar á
skipulagðri ofbeldisherferð og glæpum gegn mannkyni. Niðurstöður skýrslu
nefndarinnar verða kynntar stjórnvöldum beggja ríkjanna í dag.
LEIÐTOGAR AUSTUR-TÍMORS OG INDÓNESÍU Xananan Gusmao, forsætisráðherra
Austur-Tímors, og Susilo Bambang Yudhoyono, forseti Indónesíu. Myndin er tekin
þegar þeir hittust í apríl síðastliðnum. NORDICPHOTOS/AFP
BORGARMÁL Anna Kristinsdóttir
hefur verið ráðin mannréttinda-
stjóri Reykjavíkurborgar. Þetta
var samþykkt á borgarráðsfundi í
síðustu viku. „Nú er búið að eyða
óvissunni sem ríkti um þetta,“
segir Sóley Tómasdóttir, vara-
borgarfulltrúi Vinstri grænna,
sem sat á borgarráðsfundinum.
Tölvupóstur var sendur umsækj-
endum um að búið væri að ráða í
stöðu mannréttindastjóra síðast-
liðinn föstudag. Í raun hafði ein-
ungis verið gerð tillaga að því að
Anna yrði ráðin. Ákvörðunin var
ekki tekin endanlega fyrr en á
borgarráðsfundinum í gærmorgun.
„Það er miður hvernig komið var
fram við aðra umsækjendur en við
vildum ekki láta það bitna á Önnu,“
segir Dagur B. Eggertsson borgar-
fulltrúi Samfylkingar.
Spurt var á borgarráðsfundin-
um út í það að Ólafur F. Magnús-
son hafi setið atvinnuviðtöl við
umsækjendur um stöðu mannrétt-
indastjóra sjálfur. Ein röksemd
meirihlutans var að Þórólfur Árna-
son hefði gert það á sínum tíma.
Sóley segir það hafa verið annað
mál þar sem Þórólfur hafi verið
ráðinn borgarstjóri en ekki
skipaður pólitískt eins og Ólafur.
„Ég veit ekki til þess að
pólitískur borgarstjóri hafi tekið
ráðningarviðtöl. Að þurfa að vera
með nefið ofan í öllu sýnir líklega
hvað borgarstjóri treystir sínu
fólki illa,“ segir Sóley Tómasdóttir.
- vsp
Samþykkt einróma að Anna Kristinsdóttir yrði ráðin mannréttindastjóri:
Borgarstjóri viðstaddur viðtöl
SÓLEY TÓMASDÓTTIR Segir að það að
Ólafur þurfi að taka atvinnuviðtöl sjálfur
sýni hvað hann treysti sínu fólki illa.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HEILBRIGÐISMÁL Upplýsingatorg á
vefnum fyrir verðandi foreldra
hefur verið opnað undir slóðinni
medganga.is. Þar er að finna hátt
í tvö hundruð tengla sem tengjast
meðgöngu og barneignum.
Upplýsingum á vefnum er skipt
í fjóra flokka er tengjast með-
göngu, hreyfingu, fatnaði og
barninu. Einnig er þar að finna
góð ráð frá foreldrum. Í tilefni af
nýja vefnum kom út samnefnt
tímarit sem fæst ókeypis í
apótekum og ungbarnaverslunum
á höfuðborgarsvæðinu en er
einnig hægt að nálgast á netinu.
Þema blaðsins er góð ráð.
- ht
Vefur fyrir verðandi foreldra:
Upplýsingatorg
á meðgöngunni
FÁTÆKT Í KABÚL Afgönsk móðir betlar
á götum Kabúlborgar. Hún vonast til
að afraksturinn hjálpi til við að greiða
húsaleigu og afla fæðu handa fjórum
börnum hennar. NORDICPHOTOS/AFP
Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@frettabladid.is
DR. GUNNI neytendur@frettabladid.is
Auglýsingasími
– Mest lesið