Fréttablaðið - 14.07.2008, Side 17

Fréttablaðið - 14.07.2008, Side 17
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL. Þorgerður Guðmundsdóttir læknir á í fórum sínum tvær tréstyttur frá Afríku sem hún erfði eftir afa sinn og ömmu. „Þetta eru karl og kerling sem unnin eru úr tré og voru stytturnar keyptar í Afríku fyrir um fjörutíu til fimmtíu árum. Ég erfði þær frá ömmu og afa en afi keypti stytturnar á ferðum sínum með fraktskipum til Afríku þar sem hann var að fara með skreið til Kongó,“ útskýrir Þorgerður áhugasöm. Afi hennar starfaði sem vélstjóri á fraktskipum hjá skipadeild Sambandsins og ferðaðist víða. „Þegar kom að því að úthluta þessum styttum fannst systkinum pabba eiginlega ekki annað hægt en að ég fengi þær af því að þegar ég var lítil stúlka var ég plötuð til þess að heilsa alltaf styttunum þegar ég kom í heimsókn. Þannig að í hvert skipti sem ég kom til afa og ömmu heilsaði ég styttunum alltaf mjög kumpánlega,“ segir Þorgerður og hlær. Þor- gerður hefur að hluta til fetað í fótspor afa síns en hún fór til Afríku sumarið 2005 og heimsótti þá Kenía. „Ég fór með nokkrum vinum og félögum úr lækna- deildinni en við fórum sem læknanemar og unnum sjálfboðastörf í fátækrahverfum Naíróbí. Það var heilmikil upplifun og það sem sló mig helst voru bágar aðstæður. Annað sem vakti ekki síður athygli mína var hvað fólk var þrátt fyrir allt ánægt með sitt og lífsglatt þó svo það byggi við afar kröpp kjör,“ segir Þorgerður og lýsir yfir áhyggjum af versnandi aðstæðum í kjölfar kosninganna í vetur sem leið en þá urðu mikil átök í Kenía. „Að öðru leyti er Afríka mjög spennandi álfa og náttúran þar er ótrúleg og skemmtilegt að ferðast um og skoða dýralífið,“ segir Þorgerður dreymin. hrefna@frettabladid.is Erfðagripir frá Afríku Blómavasar og blóm gera fallegt heimili enn fallegra. Góð hugmynd er til dæmis að kaupa litríkan blómavasa og setja fallegar liljur eða aðra tegund blóma í vasann. Öryggi á heimilum skiptir miklu máli. Sjóvá forvarnahúsið hefur í sam- starfi við Ikea innréttað tvö örugg heimili í For- varnahúsinu, Kringlunni 3. Mögulegt er fyrir almenning að koma og skoða heimilin undir leiðsögn sérfræðings Forvarnahússins, www. forvarnahusid.is. Innbrot aukast á sumrin þegar fólk fer í frí. Fólk getur gert ýmis- legt til að sporna við þeim. Til dæmis ganga vel frá hurðum og gluggum og skilja ekki varalykil eftir á vafasömum stað. Einnig er gott að reyna að láta líta út eins og það sé einhver heima. Ekki má vera póstur sem auglýsir fjarveru íbúa. Þorgerður heilsaði afrísku styttunum kumpánlega þegar hún var lítil stúlka í heimsókn hjá afa sínum og ömmu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A N TO N Taktu hjólið með - settu það á toppinn. www.stilling.is // stilling@stilling.is Skeifan 11, 108 Reykjavik | Bíldshöfði 12, 110 Reykjavík | Smiðjuvegur 68, 200 Kópavogur Dalshraun 13, 220 Hafnarfjörður | Draupnisgata 1, 600 Akureyri Eyrarvegur 29, 800 Selfoss. | Sími: 520-8000 Allar upplýsingar um er að finna á vef Stillingar www.stilling.is THULE ProRide 591 Einfaldar og stílhreinar hjólafestingar. Auðveldar í notkun. THULE OutRide 561 Fyrir þá sem eru vanir. Hjólið fest í framgaflinum. Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.