Fréttablaðið - 14.07.2008, Blaðsíða 28
14. JÚLÍ 2008 MÁNUDAGUR8 ● fréttablaðið ● híbýli - svefnherbergi
Að ýmsu þarf að huga í svefn-
herberginu svo hjónalífið nái
að blómstra. Rangt litaval,
sængurfatnaður eða óreiða
getur hreinlega gert út af við
stemninguna.
Jóna Björg Sætran, Feng Shui ráð-
gjafi, bendir á að allt í svefnher-
berginu hafi áhrif á undirmeðvit-
undina, en Feng Shui eru kínversk
fræði sem fjalla helst um það
hvernig við getum stjórnað ork-
unni í kringum okkur og gert ráð-
stafanir svo hún nýtist okkur sem
best.
„Ég bendi fólki á að fjarlæga
þá muni úr svefnherberginu sem
kalla fram neikvæðar minningar,“
segir Jóna Björg og bætir við að ef
við viljum njóta okkar í svefnher-
berginu sé mikilvægt að við velj-
um hluti í kringum okkur sem hafa
jákvæð áhrif á tilfinningalífið.
„Svefnherbergið á að vera griða-
staður,“ segir Halldóra Bjarnadótt-
ir hjúkrunarfræðingur, sem skrif-
að hefur ófáa pistla um hvernig
auðga megi og krydda ástalífið.
„Griðastaður er staður þar sem þér
líður vel. Staður þar sem þú lendir
ekki í vandræðum. Staður þar sem
þú upplifir yndislegar stundir.“
Halldóra nefnir í framhaldinu
að þegar tveir aðilar deili herbergi
saman sé mikilvægt að þeir séu
sammála um val á húsögnum, liti á
veggjum og sængurfatnað. Síðast
en ekki síst skipti lýsingin miklu
máli.
Jóna Björg bendir á að lita-
val í svefnherberginu geti haft
heilmikið að segja um líðan fólks.
Eins skipti máli að huga vel að
myndefninu. „Myndefni á að vera
jákvætt; forðast á að hengja upp
myndir sem geta virkað ógnandi.“
Þá segir hún að að mikil sjónmeng-
un geti hlotist af óreiðu, eins og
bókastafla á náttborði. „Allt auka
dót sem við erum ekki að nota þá
stundina hefur truflandi áhrif á
undirmeðvitundina.“
Jóna Björg segir áríðandi að hafa
sem minnst af fötum hangandi utan
á fataskápum. „Einnig skiptir máli
að til séu laus herðatré í skápnum
svo það sé pláss fyrir nýjar flíkur.
Og auðvitað skiptir sköpum að taka
reglulega til í skápnum.“
Þær stöllur eru á því að með því
að huga vel að umgjörðinni í svefn-
herberginu stuðlum við að betri
líðan. Og síðast en ekki síst erum
við að skapa stemningu fyrir ljúfar
stundir á þeim góða griðastað sem
svefnherbergið er. - vg
Ljúfur griðastaður
Mikilvægt er að eiga laus herðatré.
Óreiða getur valdið sjónmengun.
Jóna Björg Sætran, Feng Shui ráðgjafi. Halldóra Bjarnadóttir hjúkrunarfræðingur.
Svefnherbergið er griða-
staður þar sem pör eiga að
geta átt ljúfar stundir.
Að sögn Jónu Bjargar og Halldóru stuðlar falleg umgjörð í herberginu að bættri líðan.
Ítalir vildu eitt sinn sannreyna hvort súkkulaði væri í raun og
veru lostavekjandi. Niðurstaðan var birt í fagritinu Journal of
Sexual Medicine og þar kom berlega í ljós að konur sem nutu
þess að fá sér súkkulaði á degi hverjum höfðu sterkari kynhvöt,
urðu fyrr örvaðar og áttu auðveldara með að fá fullnægingu.
Því er engin skömm að því að geyma konfektmola í nátt-
borðsskúffunni og reyndar dýrka konur að fá rómantísk kon-
fekthjörtu frá ástmanni sínum.
Súkkulaði við rúmstokkinn er því kjörið til skjótfenginnar
orku á milli orkufrekra ástaleikja, eða til að gæða sér á yfir
góðri bók í fjarveru síns heittelskaða.
Súkkulaði fyrir fjörugt ástalíf
Fallega innréttað svefnherbergi er ekki nóg ef réttu lýsinguna
vantar. Lýsing gegnir margþættu hlutverki í samræmi við fjöl-
breytt notagildi herbergisins, ýmist sem mátunar-
klefi, vinnustofa eða hreiður ástarinnar. Mikilvægt
er að hafa gott ljós annaðhvort á vegg yfir rúm-
inu eða á náttborðinu þegar lesið er fyrir svefn-
inn og vinnuljós á skrifborðinu. Þá er vinsælt
að vera með lýsingu inni í fataskáp og gott loft-
ljósið þegar máta á innihald hans í spegli. Hvað
rómantískum augnablikum viðvíkur er huggulegt
að minnka aðeins birtuna og þar koma demparar
sterkir inn.
Allir ættu að geta fengið ljós við sitt hæfi, þar sem
úrvalið er með einsdæmum gott. Því er um að gera að
velja lýsingu að vel athuguðu máli. Fá ráðgjöf hjá
fagmönnum áður en ljós eru keypt eða kynna
sér sjálfur málin áður en lagt er í uppsetningu
þeirra.
Þrátt fyrir að nú sé sumar og bjart nánast allan sólarhringinn
hafa kerti alltaf yfir sér ákveðinn sjarma. Það koma dagar þegar
húmar að og tækifæri sem einfaldlega kalla á kertaljós. Hvort
sem það er kvöldverður fyrir tvo eða notalega stund í svefnher-
berginu þá er gott að eiga fallega kertastjaka og standa spritt-
kertastjakar standa alltaf fyrir sínu. Með þeim er auðvelt að
breyta stemningu og ásýnd heimilisins.
Þetta fallega teljós er hannað af Marie
Olofsson fyrir Sagaform. Kúlulaga
formið veitir því sérstöðu og þegar
kveikt er á kerti í stjakanum skap-
ast notalegt andrúmsloft hvar sem
er. Teljósið er 18 sentimetrar á hæð
og jafn margir í þvermál og er blátt
og túrkislitt. Hægt er meðal annars
að nálgast það á http://www.finnishde-
signshop.com.
Rómantík og kertaljós
Finnski framleiðandinn Ittala hefur
löngum verið vinsæll meðal frænda
sinna á Íslandi, og engin lát á því.
Þessi vínglös eru úr Essence-línunni
sem hönnuð var af Alfredo Häberli,
en rómantískt getur verið að skenkja
elskunni sinni vín í slík glös og bjóða í
svefnherberginu. Hugmynd Häberli var að
skapa vínglasalínu með eins fáum glasagerð-
um og mögulegt væri, en sem þó væri hægt
að bera fram í fínustu vín af öllum skala.
Saman mynda staupin jafnvægi, sem gerist
vegna þess að fótur þeirra er ávallt jafn hár
og sömu stærðar á meðan vínbelgur-
inn sjálfur rokkar til í lögun og stærð.
Finnsk snilld fyrir
guðaveigar
Hugguleg birta í herberginu
N
O
R
D
IC
P
H
O
T
O
S
/G
E
T
T
Y