Fréttablaðið - 14.07.2008, Síða 29

Fréttablaðið - 14.07.2008, Síða 29
MÁNUDAGUR 14. JÚLÍ 2008 9híbýli - svefnherbergi ● fréttablaðið ● Matthildur Fanney Jónsdóttir segir suma hafa heilsukoddana með erlendis. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Heilsukoddar njóta mikilla vinsælda enda þykir mörg- um sem þeir hafi sannað notagildi sitt. Þeir sem umhugað er um góðan svefn rjúka oft til og fjárfesta í heilsurúmum og -dýnum en gleyma heilsukoddum sem eru að margra mati ekki síður mikilvægir. „Eiginleikar koddans eru þeir að hann aðlagast alveg að bæði hálsi og hrygg og veitir þannig góðan stuðning. Notandinn ligg- ur alveg beinn á dýnunni og öðl- ast um leið betri svefn. Koddinn er sá vinsælasti hjá okkur og viðskiptavinirnir eru svo ánægðir að þeir taka hann jafn- vel með erlendis,“ segir Matthildur Fanney Jónsdóttir, hjá Svefni og heilsu, um IQ-CARE- heilsukoddann. IQ-CARE- koddinn er búinn til úr 25 efnum og efnasamböndum og er gríðarlega sterkur að sögn Matthildar. Í honum er svokall- aður eggjabakki svo hann andi betur, yfirborðið haldist þægi- lega svalt og líkamshiti notenda byggist ekki upp þegar þeir halla sér út af. Hjá Rekkjunni fæst ekki síður vinsæll heilsu- koddi, svokallaður Spring Max heilsukoddi. Í honum er þrýstijöfnunarsvampur sem gerir það að verkum að hann aðlagast hálsi og höfði. „Þessi svampur veitir meiri stuðn- ing og kemur í veg fyrir að skekkja myndist á hálsinn. Á koddanum eru svo tvær öldur, sín á hvorum endan- um sem þýðir að hægt er að snúa koddanum á báða vegu. Öðru megin er há alda sem er fyrir herðabreiða og þá sem þurfa stuðning hátt upp á hálsinn. Hinu megin er minni alda fyrir þá sem þurfa minni stuðning,“ útskýrir Hrafn Norð- dal hjá Rekkjunni. - mmr Hugað að heilsunni IQ-CARE- heilsukodd- inn fæst hjá Svefni og heilsu. Hrafn Norðdal hjá Rekkjunni segir heilsukodda ekki síður mikilvæga en heilsu- dýnur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Spring Max-heilsukoddinn fæst í Rekkjunni. G O T T F O L K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.